Morgunblaðið - 15.01.2008, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HÚSAFRIÐUNARNEFND ríkis-
ina samþykkti samhljóða á fundi sín-
um í gærmorgun að beita skyndifrið-
un fyrir húsin á Laugavegi 4 og 6.
Það þýðir að menntamálaráðherra
hefur tveggja vikna frest til að
ákveða um friðun húsanna. Að sögn
Nikulásar Úlfars Mássonar, for-
stöðumanns húsafriðunarnefndar,
tekur skyndifriðunin gildi samstund-
is og er þannig komið í veg fyrir
frekara niðurrif húsanna en verktak-
ar byrjuðu í síðustu viku að rífa niður
viðbyggingar sem standa á milli
húsanna tveggja, auk þess að rífa
klæðningar af húsunum tveimur sem
um ræðir.
Ráðherra þarf að taka afstöðu
til friðunar fyrir 28. janúar
„Með því að skyndifriða húsin er
komið í veg fyrir frekara niðurrif
þeirra þannig að tryggt sé að þau
standi þarna áfram þegar kemur að
því að menntamálaráðherra ákveði
um friðun þeirra,“ segir Nikulás.
Húsafriðunarnefnd hafði áður á
fundi sínum 8. janúar sl. ákveðið að
leggja til við menntamálaráðherrar-
áðherra að friða húsin en sú tillaga
hefur enn ekki borist inn á borð ráð-
herra þar sem forstöðumaður vinnur
að greinargerð með tillögunni. Eig-
anda húsanna á Laugavegi 4 og 6,
Kaupangi, var veittur frestur til 24.
janúar nk. til að senda nefndinni at-
hugasemdir en að þeim fresti lokn-
um mun nefndin senda menntamála-
ráðherra tillögu um friðun. „Ráð-
herra hefur þá frest til 28. janúar til
þess að taka afstöðu til friðunar,“
segir Nikulás.
Að sögn Nikulásar hætti verktak-
inn niðurrifi húsanna eftir að nefndin
samþykkti í síðustu viku að leggja til
við ráðherra að húsin yrðu friðuð.
Hins vegar hefði niðurrifið hafist að
nýju sl. föstudag. Af þessum sökum
hefði húsafriðunarnefnd hist á fundi
í gær í því skyni að leita leiða til að
koma í veg fyrir frekara niðurrif.
„Við urðum að gera þetta. Fyrst
menn héldu áfram að rífa niður húsin
eru þetta þau viðbrögð sem okkur
þótti eðlileg.“ Spurður hvort unnar
hafi verið einhverjar óafturkræfar
skemmdir á húsunum svarar Niku-
lás neitandi. „Við teljum ekki að það
sé búið að því. En samkvæmt samn-
ingi Reykjavíkurborgar við eigend-
urna átti allt að vera farið af lóðun-
um á föstudaginn kemur og þetta
kemur í veg fyrir það,“ segir Nikulás
að lokum.
Gert til að forðast frekara
tjón sem hlytist af niðurrifi
Skyndifriðun húsa-
friðunarnefndar
tekur þegar gildi
Árvakur/Golli
Lok, lok og læs Starfsmaður Minjaverndar læsir Laugavegi 6 eftir að framkvæmdir voru í gær stöðvaðar þar
þegar húsafriðunarnefnd ríkisins ákvað að beita skyndifriðun fyrir húsin að Laugavegi 4 og 6.
JÓN Sigurjónsson, kaupmaður í Jóni
og Óskari, úra- og skartgripaverslun,
Laugavegi 61, undrast þá ráðstöfun
borgaryfirvalda að leyfa hótelbygg-
ingu á lóðunum Laugavegi 4-6. Þar sé
Laugavegurinn þrengstur og engin
aðstaða fyrir rútur og leigubíla að
skila af sér eða sækja hótelgesti. Hót-
el á þessum stað muni verða til mikils
trafala fyrir umferð.
Jón kvaðst hafa litla trú á að áform-
aðar verslanir á götuhæð hótelsins
yrðu til frambúðar. Hann nefndi hótel
á Laugavegi 24 þar sem átti að vera
verslun á jarðhæð en nú er þar gesta-
móttaka og morgunverðarsalur.
„Okkur vantar ekki hótel við Lauga-
veg heldur meira nútímalegt verslun-
arhúsnæði. Það er sama hvort það er í
uppgerðu eða nýju húsnæði,“ sagði
Jón.
Þá finnst Jóni að standa eigi við yf-
irlýsta stefnu um að hús sunnan við
Laugaveg séu ekki hærri en þriggja
hæða vegna skuggamyndunar. Þess
vegna sé óráð að reisa fjögurra hæða
hús á þessum lóðum.
Jón segir að húsin á umræddum
lóðum hafi verið meðal þeirra sem
metin voru ónothæf fyrir verslun.
Þetta hafi verið ákveðið eftir að rýni-
hópur á vegum borgarinnar og kaup-
manna gerði úttekt á Laugaveginum.
Þá voru tekin út 20-30 hús sem í raun
voru talin ónothæf til nútímaverslun-
arreksturs og samþykkt að þessi hús
mætti fjarlægja eða endurbæta þann-
ig að þau hæfðu til verslunarreksturs.
Þær kröfur sem gerðar voru til hús-
næðisins voru m.a. að ekki væru
tröppur upp eða niður í verslanirnar,
lofthæð væri lögleg og húsnæðið upp-
fyllti nútímakröfur.
Jón sagði að þáverandi borgaryf-
irvöld hefðu lýst því yfir að Laugaveg-
ur yrði aðalverslunargata borgarinn-
ar, en verslun þar hefði lengi háð
varnarbaráttu við stórar verslunar-
miðstöðvar. Kaupmenn við Laugaveg
hefðu fyllst von um að eitthvað yrði
gert svo Laugavegurinn gengi í end-
urnýjun lífdaga. Þeir væru margir
orðnir langeygir eftir að staðið væri
við fyrirheit borgaryfirvalda.
Vantar ekki hót-
el við Laugaveg
Kaupmaður óttast að hótel tefji umferð
GRÍMSEYJARFERJAN Sæfari
lagðist að bryggju á athafnasvæði
Slippsins – Akureyri síðdegis í gær,
nærri tveimur sólarhringum eftir að
haldið var frá Hafnarfirði. Lokaend-
urbætur á skipinu verða gerðar á
Akureyri og reiknað er með að það
geti hafið áætlunarsiglingar á milli
Grímseyjar og Dalvíkur í lok næsta
mánaðar.
Ferðin frá Hafnarfirði til Akur-
eyrar gekk mun hægar en ráð var
fyrir gert vegna smávægilegrar bil-
unar í tengibúnaði við aðra aðalvél-
ina. „Ferðin gekk í sjálfu sér ljóm-
andi vel,“ sagði Hjörtur Emilsson,
framkvæmdastjóri verkfræðistof-
unnar Navís við Morgunblaðið um
borð í Sæfara, en Navís hefur haft
eftirlit með breytingunum á skipinu.
Hjörtur sagði að fljótlega eftir
brottför hefði innri skrúfuássþétti í
annarri aðalvélinni ofhitnað. „Þéttin
er sjókæld og þar hitnaði það mikið
að þeir ákváðu að drepa á stjórn-
borðsvélinni og keyra bara á bak-
borðsvélinni norður. Það kom í ljós
að stífla er í röralögnum þannig að
ekki komst nægur sjór inn til að
kæla þéttina.“
Hjörtur sagði vandamálið ekki
stórt, skipt yrði um loka og lagnir og
þar með yrði þetta úr sögunni.
„Vélarnar keyrðu eðlilega, líka
stjórnborðsvélin, og það hefði alveg
verið hægt að ræsa hana ef á hefði
þurft að halda, en það var ákveðið að
sigla á annarri vélinni og fara bara
aðeins hægar til öryggis.“
Skipstjórinn vildi ekki tjá sig við
Morgunblaðið en Hjörtur sagði hann
ánægðan með skipið. „Hann sigldi
því líka til landsins á sínum tíma og
segir þetta eins og allt annað skip,
mun þægilegra í sjó,“ sagði Hjörtur.
Vonir standa til þess að starfs-
menn Slippsins – Akureyri ljúki
lokaendurbótum á Sæfara á næstu
3-4 vikum og skipið geti hafið lang-
þráð ferðalög til og frá Grímsey í lok
febrúar. Smíða á dyr á stjórnborðs-
síðu sem verða aðalinngangur í ferj-
una sem gerir hreyfihömluðu fólki
auðveldara um vik. Sams konar dyr
verða settar á bakborðshliðina og
verða neyðarútgangur. Þá verður
skipt um nokkra fermetra stáls á
byrðingi skipsins, sett kælikerfi í efri
lest, salernum breytt og gengið end-
anlega frá veitingasal.
Smávægileg bilun tafði
för Sæfara til Akureyrar
Árvakur/Skapti Hallgrímsson
Komnir Grímseyjarferjan Sæfari leggst að bryggju á athafnasvæði Slippsins - Akureyri um klukkan fimm í gær.
FIMMTÁN ára piltur brenndist í
andliti um helgina þegar hann bar
eld að púðri sem hann hafði tekið úr
flugeldum. Óhappið varð í Hafnar-
firði en pilturinn kom púðrinu fyrir í
dós og bar eld að með þeim afleið-
ingum að eldblossinn náði í andlit
hans. Pilturinn hlaut fyrsta og ann-
ars stig bruna í andliti og brenndist
einnig á hálsi og handleggjum.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hvetur foreldra til að fylgjast með
því að börn þeirra séu ekki að rífa í
sundur flugelda en talsvert sé um að
heimatilbúnar sprengjur séu enn
sprengdar á höfuðborgarsvæðinu og
hafi orðið talsvert eignatjón af þeirra
völdum.
Brenndist
í andliti
Fimmtán ára piltur
bar eld að púðri
HÓLM-
ARAR!
Alle ved, at der er danske dage i Stykkisholm.
Men vidste du, at sidste år vandt 162 indbyggere
i Stykkisholm en gevinst i Universitets lotteri? Utroligt!
– Vertu með og fáðu þér miða á hhi.is eða hjá umboðsmanni.
TIL HAMINGJU
♦♦♦
KARLMAÐUR sem ók pallbíl slapp
ómeiddur úr slæmri bílveltu sem
varð rétt innan við Skarfasker við
Ísafjörð upp úr hádeginu í gær.
Ökumaðurinn var einn í bifreið
sinni en hann var á leiðinni frá Bol-
ungarvík til Ísafjarðar þegar óhapp-
ið varð.
Bíllinn stöðvaðist ofan í fjöru og
endaði á þakinu. Mikil hálka var á
veginum sem og öllum vegum á
Vestfjörðum og hvetur lögreglan á
Ísafirði alla vegfarendur til að sýna
aðgæslu.
Slapp
ómeiddur