Morgunblaðið - 15.01.2008, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÓVENJUMIKIÐ fannfergi var og
ófært í Grindavík í gær þegar stað-
bundið óveður gekk þar yfir aðfara-
nótt mánudags. Mjög djúpir skaflar
mynduðust í bænum og hafði björg-
unarsveitin Þorbjörn í Grindavík
nóg að gera við að losa bíla sem sátu
fastir. Skólahald féll niður í bænum
vegna veðurs.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Bogi Adolfsson, formaður björg-
unarsveitarinnar Þorbjörns, veðrið
með ólíkindum. „Ég fór einn rúnt
um bæinn á miðnætti á mánudag og
þá var bara smásnjór. Fimm klukku-
tímum seinna voru víða komnir 4
metra skaflar. Þannig að þetta hefur
gerst á örskömmum tíma,“ segir
Bogi og tekur fram að jafnfallinn
snjór hafi verið um einn til tveir
metrar en hins vegar hafi skafið
mikið. Segir hann björgunarsveit-
armenn hafi staðið í ströngu frá því
snemma í gærmorgun og langt fram
eftir degi, en alls voru um 20-30
björgunarsveitarmenn að störfum,
auk þess sem 4x4 klúbburinn í
Keflavík veitti björgunarsveit-
armönnum liðsinni.
Aðspurður segir Bogi engar alvar-
legar skemmdir hafa orðið, né held-
ur slys á fólki, en mikið hafi verið að
gera. Segir hann flest verkefnanna
hafa snúið að því að fjarlægja bíla
sem sátu fastir í sköflum. Spurður
hvort fólk hafi almennt verið illa bú-
ið svarar Bogi því neitandi og bendir
á að færðin hafi einfaldlega verið
mjög erfið. „Umferðin hélt bara
áfram eins og venjulega þrátt fyrir
veðrið, þannig að við þurftum bara
að leysa úr því.“ Aðspurður hversu
margir bílstjórar lent hafi í erf-
iðleikum segist Bogi ekki hafa ná-
kvæma tölu yfir það þar sem hann
hafi ekki haft undan að skrá tilfellin
en giskar á að a.m.k. 50-60 bílar hafi
lent í vandræðum.
Seinkanir í millilandaflugi
Tafir urðu á millilandaflugi í gær-
morgun sökum fannfergis. Að sögn
Trausta Tómassonar, samræm-
ingastjóra Keflavíkurflugvallar,
gekk erfiðlega að ná viðunandi
bremsuskilyrðum þar sem jafn-
harðan skóf í brautina sökum þess
hversu léttur snjórinn var. „Þannig
þurfti sífellt að skafa auk þess sem
gripið var til þess ráðs að sandbera á
undan vélunum,“ segir Trausti og
áætlar að tafirnar hafi numið á
bilinu 45 mínútum til tveggja
klukkustunda. Sagði hann viðbúið að
tafir yrðu fram eftir degi í gær sem
næmi einni klukkustund.
„Staðbundin veður eins og það
sem gerði í Grindavík eru ekki al-
geng en heldur ekkert einsdæmi,“
segir Einar Sveinbjörnsson veð-
urfræðingur í samtali við Morg-
unblaðið. Bendir hann á að það komi
býsna oft fyrir að það snjói mjög
mikið allra syðst á landinu, t.d. í
Vestmannaeyjum og Mýrdalnum.
Aðspurður segir hann lægðina
sem gekk yfir Reykjanesskaga í gær
vera á ferð sinni yfir landið. „Það má
eiginlega segja að lægðin hafi slitnað
í sundur. Annar hluti hennar er að
mjaka sér hægt til austurs og suður
um en hinn til norðurs yfir Breið-
fjörð, Hrútafjörð, Barðaströnd og
Holtavörðuheiði,“ segir Einar.
Fannfergi og ófærð í Grindavík setti strik í reikning ökumanna sem festu víða bíla sína í snjósköflum
Segir veðrið
hafa verið
með ólíkindum
Morgunblaðið/RAX
Hvítt Björgunarsveitin Þorbjörn sinnti tugum útkalla frá því eldsnemma í gærmorgun og fram eftir degi. Í flest-
um tilfellum var um að ræða bíla sem sátu fastir þar sem fólk ætlaði að vera á fartinni eins og á venjulegum degi.
Staðbundið óveður Eins og sjá má á þessari mynd frá Veðurstofu Íslands
var úrkoman í gær staðbundin og aðeins yfir Reykjanesskaga.
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„ÉG TEL að rík-
isstjórn Íslands
beri að taka til-
mælin alvarlega
til að sýna sam-
vinnuvilja við
þessa alþjóðlegu
nefnd,“ segir
Jakob Möller,
fyrrverandi yfir-
maður kæru-
deildar SÞ í um aldarfjórðung, um
þá niðurstöðu Mannréttindanefndar
SÞ að íslensk stjórnvöld hafi brotið
gegn réttindum tveggja sjómanna,
sem skutu máli sínu til nefndarinnar
eftir að Hæstiréttur dæmdi gegn
þeim fyrir að hafa farið á veiðar án
kvóta.
„Ég hygg að Íslandi sé ekkert að
vanbúnaði að tilkynna nefndinni að
það muni láta fara fram endurskoð-
un á þessu fiskveiðakerfi, burtséð
frá því hvort slík endurskoðun
myndi leiða til breytinga eða ekki,“
segir Jakob. Hann segist sammála
Björgu Thorarensen um að stjórn-
völdum beri að taka niðurstöðuna
mjög alvarlega, þótt hún sé ekki
þjóðréttarlega bindandi.
Í því sambandi megi velta því upp
hvort fullvalda ríki beri ekki að fara
eftir niðurstöðum slíkrar kæru-
nefndar, úr því það kjósi að gerast
aðili að kæruleiðinni, skv. valfrjáls-
um viðauka við samninginn um
borgaraleg og stjórnmálaleg rétt-
indi.
Niðurstaða útskýrð í 20 línum
Hvað niðurstöðu nefndarinnar í
íslenska málinu áhrærir segir Jakob
hana aðeins útskýrða í um 20 línum í
tuttugu blaðsíðna áliti nefndarinnar.
Rökstuðningurinn sé því í knappara
lagi.
Þótt nefndin hafi engin tök á að
knýja ríkin til að fara eftir tilmælum
sínum kunni þau að bíða álitshnekki
ef tilmælin eru virt að vettugi. Nið-
urstaða meirihluta nefndarinnar var
sú að fiskveiðistjórnunarkerfið færi
í bága við jafnræðisreglu 26. greinar
alþjóðasamningsins um borgaraleg
og stjórnmálaleg réttindi. Af 160 að-
ildarríkjum samningsins hafa 110
ríki fullgilt kæruleiðina.
Sum ríkjanna sem samþykkt hafa
kæruliðina reyni allajafna að fylgja
þeim tilmælum sem nefndin leggur
til. Það verði þó að játast að meiri-
hluti ríkjanna geri það ekki og sum
aldrei.
Frá mörgum heimshornum
Aðspurður segir Jakob:
„Nefndin samanstendur af átján
nefndarmönnum. Af nefndarmönn-
um frá Afríku, Asíu og Suður-Am-
eríkulöndum studdu níu af tíu þá
niðurstöðu, að fiskveiðistjórnunar-
kerfið færi í bága við jafnræðisreglu
26. greinar samningsins (nefndar-
maður frá Japan hafnaði þeirri nið-
urstöðu).
Af nefndarmönnum frá Evrópu,
Ástralíu og Norður-Ameríku studdu
þrír af átta þá niðurstöðu að kerfið
færi í bága við 26. greinina. Fimm
nefndarmenn frá þessum heimshlut-
um höfnuðu þeirri niðurstöðu,“ seg-
ir Jakob Möller um niðurstöðuna.
Ber að taka tilmæli
nefndar SÞ alvarlega
Hafði samsetning Mannréttindanefndarinnar áhrif á álitið?
Í HNOTSKURN
»Að sögn Jakobs hafði meiri-hlutinn og reyndar allir
nefndarmenn fullan skilning á
því að Ísland hefði orðið að grípa
til viðeigandi ráðstafana til
verndar fiskstofnunum.
»Enginn nefndarmaður taldiað það væri brot á jafnræð-
isreglunni að kvótakerfið var
tekið upp sem bráðabirgðalausn.
»Meirihlutinn taldi hins vegarað með því að gera kvóta-
kerfið varanlegt hefði Ísland far-
ið yfir strikið og afhent til-
teknum mönnum, eða skipum í
eigu tiltekinna aðila, rétt sem
þeim sýndist vera eignaréttur,
vegna þess að kvótann má selja
eða leigja.
Jakob Þ. Möller
„ÞETTA er búin að vera svakalega
mikil úrkoma og illfært,“ segir Sig-
ríður María Eyþórsdóttir sem býr í
miðbæ Grindavíkur. Hún hélt sig,
líkt og margir íbúar bæjarins,
heima við í gær, vegna fannferg-
isins. „Það kemur nú ekkert að sök
því ég birgði mig upp af suðusúkku-
laði og mjólk í gær þannig að hér er
boðið upp á kakó með rjóma.“
Að sögn Sigríðar gerist það að-
eins einu sinni til tvisvar sinnum á
hverjum vetri að veðrið verði jafn
vont og það var í gær. Tekur hún
fram að alla jafna sé frekar snjólétt
í Grindavík og því ekki skrýtið að
margir hafi ekki verið nægilega vel
undirbúnir fyrir vonda veðrið.
Morgunblaðið/RAX
Yljar sér við kakó Að sögn Sigríðar Maríu Eyþórsdóttur hómópata sá ekki
milli húsa í miðbæ Grindavíkur í gærmorgun vegna snjókomunnar.
Svakaleg
úrkoma
HORNFIRÐ-
INGAR!
Höfn í Hornafirði býður upp á Humarhátíð einu sinni á
ári. Happdrættishátíð bæjarbúa er hinsvegar haldin
mörgum sinnum á ári. Spyrjið bara þá 314 íbúa Hafnar
sem fengu vinning í fyrra.
– Vertu með og fáðu þér miða á hhi.is eða hjá umboðsmanni.
TIL HAMINGJU