Morgunblaðið - 15.01.2008, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 11
FRÉTTIR
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
ÞEIR þurfa að
vera stuttorðir
þingmennirnir
sem vilja tjá sig
um jafna stöðu og
jafnan rétt karla
og kvenna á Al-
þingi í dag enda
önnur umræða
um jafnrétt-
isfrumvarpið sú
fyrsta sem fer fram eftir að ný þing-
skapalög tóku gildi.
Með lögunum er ræðutími þing-
manna takmarkaður en þeir sem hafa
margt fram að færa þurfa þó ekki að
örvænta enda mega þeir taka til máls
eins oft og þeir vilja. Áður var ræðu-
tími aðeins takmarkaður í fyrstu um-
ræðu en nú munu takmarkanir gilda
á öllum stigum máls. Þingmenn sem
ætla að tjá sig um jafnréttisfrum-
varpið í dag geta talað fyrst í 20 mín-
útur, síðan í 10 mínútur og svo eins
oft og þeir vilja í fimm mínútur í senn.
Sturla Böðvarsson, forseti Alþing-
is, segist spenntur að sjá hvernig
framkvæmd nýju laganna tekst til en
hann gerir jafnframt ráð fyrir að
þemaskipta umræðum á þingi meira
en hefur verið gert. Þannig verða t.d.
mál sem heyra undir félagsmálaráðu-
neyti allsráðandi á þingi í dag en á
fimmtudag verða fjármál til umræðu.
„Tilgangurinn með breytingunum er
að gera umræðurnar líflegri, mál-
efnalegri og árangursríkari,“ segir
Sturla og leggur jafnframt áherslu á
rýmri tíma til að fjalla um þingmál í
þingnefndum.
Óundirbúnar fyrirspurnir
tvisvar í viku
Þingfundur hefst í dag með óund-
irbúnum fyrirspurnum til ráðherra
en sá liður verður á dagskrá tvisvar í
viku í stað einu sinni áður. Líklegt má
telja að stjórnarandstaðan taki upp
þau málefni sem efst hafa verið á
baugi í þjóðfélagsumræðunni und-
anfarið, s.s. embættisveitingar ráð-
herra og álit mannréttindanefndar
Sameinuðu þjóðanna um íslenska
kvótakerfið.
Utanríkisráðherra mun jafnframt
á næstunni leggja fram frumvarp um
varnarmál sem ætla má að verði ít-
arlega rætt og á þessu þingi stendur
til að afgreiða miklar breytingar á
skólakerfinu allt frá leikskóla og upp í
framhaldsskóla með fjórum frum-
vörpum menntamálaráðherra.
Þingmenn flytja styttri ræður
Alþingi kemur saman að nýju í dag og í fyrsta sinn verður takmarkaður ræðutími í öllum um-
ræðum Forseti Alþingis segist spenntur að sjá hvernig tekst til með framkvæmd nýju laganna
Árvakur/Sverrir
Minna mas Umræður á þingi verða með allt öðru sniði frá og með deginum
í dag enda í fyrsta sinn sem ræðutími er takmarkaður á öllum stigum máls.
Sturla Böðvarsson.
Í HNOTSKURN
» Alþingi kemur saman að nýjuí dag eftir jólaleyfi og kjör-
dæmadaga.
» Fjöldi mála bíður afgreiðsluþingsins, þ.m.t. eru sjö stjórn-
arfrumvörp og sautján þing-
mannafrumvörp sem bíða fyrstu
umræðu.
»Ný þingskapalög tóku gildium áramót en þau fela m.a. í
sér takmörkun á ræðutíma.
» Þingflokkformenn allraflokka nema VG stóðu að
breytingunum og hart var deilt
um þær fyrir áramót.
HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ
hefur í bréfi brýnt fyrir heilbrigðis-
stofnunum og sjúkrahúsum að upp-
lýsa sjúklinga fyr-
irfram um
kostnað við lækn-
isaðgerðir. Komið
hefur fyrir að
kvartað hafi verið
til ráðuneytisins
um að þetta hafi
ekki verið gert.
Á vef heilbrigð-
isráðuneytisins
kemur fram að
ráðuneytið hefur með bréfi vakið at-
hygli heilbrigðisstofnana og sjúkra-
húsa á því, að stofnununum ber að
upplýsa sjúklinga áður en til lækn-
ismeðferðar kemur hve mikið greiða
skuli fyrir meðferðina.
Stofnunum ber að afhenda sjúk-
lingum reikning
Þá ber stofnunum að afhenda sjúk-
lingi reikning með upplýsingum um
gjaldtökuna. Um er að ræða svoköll-
uð ferliverk sem unnin eru af sér-
fræðilæknum á sjúkrahúsum og heil-
brigðisstofnunum. Þetta er gert til að
ítreka skyldur í þessum efnum gagn-
vart sjúklingum, en komið hefur fyrir
að kvartað hefur verið til ráðuneyt-
isins um að þetta hafi ekki verið gert.
Þá er áréttað að stofnun ber að af-
henda reikning þar sem fram koma
upplýsingar um það sem greitt er fyr-
ir.
Gildir fyrir sérfræðiþjónustu
á göngudeildum
Ráðuneytið hefur með bréfinu vak-
ið athygli á að þegar sérfræðilækn-
isþjónusta er veitt á göngudeildum
heilbrigðisstofnana eða sjúkrahúsa er
um að ræða ferliverk. Með ferliverk-
um er átt við læknismeðferð, sem
unnt er að veita hvort sem er á lækna-
stofum sérfræðinga utan sjúkrahúsa,
á sjúkrahúsum eða heilbrigðisstofn-
unum og krefst ekki innlagnar á
sjúkradeild nema í undantekningar-
tilvikum.
Það er fyrst og fremst eðli lækn-
ismeðferðarinnar sem ræður úrslit-
um um það hvort verk telst ferliverk,
en ekki hvort sjúklingur dvelst á við-
komandi stofnun næturlangt í undan-
tekningartilvikum, að því er segir á
vef heilbrigðisráðuneytisins.
Sjúklingar séu
upplýstir fyrir-
fram um kostnað
Guðlaugur Þór
Þórðarson
HESTAKONAN unga frá Grundarfirði tók tæknina í
sína þjónustu við að ná í folaldið út í haga. Snati
virðist ekkert ósáttur við þetta vinnulag og fylgdi
sáttur sínum húsbónda. Sjálfsagt hefði hann þó
heldur viljað hafa gamla lagið á hefði hann verið
spurður.
Árvakur/Alfons Finnsson
Þörfustu þjónarnir
HAFNFIRÐINGAR!
Af hverju læðast Hafnfirðingar alltaf fram hjá 2.616 húsum í bænum?
Til að vekja ekki vinningshafana í Happdrætti Háskólans á síðasta ári.
– Vertu með og fáðu þér miða á hhi.is eða hjá umboðsmanni.
TIL HAMINGJU