Morgunblaðið - 15.01.2008, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 23
Við ræddum við mjög harð-an stjórnarandstæðingúr Luo-ættbálknum, íhverfi sem þeir voru bún-
ir að taka yfir. Það var alveg á
hreinu að þeir eru búa sig undir
morgundaginn og ætla að gera allt
vitlaust. Þeir ætla ekki að gefa sig,“
segir Þórunn Helgadóttir, starfs-
maður ABC barnahjálpar um óöld-
ina í Nairobi,
höfuðborg
Kenía.
Ógnaralda of-
beldis og grip-
deilda hefur
gripið um sig í
landinu eftir að
Mwai Kibaki var
lýstur sigurveg-
ari í forsetakosn-
ingunum 27. des-
ember sl. og
hundruð manna lágu í valnum.
„Það er búið að skipta hverfum
upp milli ættbálka. Ef forsetinn gef-
ur sig ekki verður þetta langvarandi.
Þetta mun krauma áfram og við
sjáum ekki að það verði sátt í land-
inu nema það finnist lausn á þessu
kosningasvindli.
Það bíða allir eftir því hvað gerist
þegar þingið hefur störf á ný á
morgun [í dag]. Stjórnarandstaðan
hefur meirihluta og hefur stjórnin
reynt að kaupa þingmenn héðan og
þaðan, til að kaupa sér stuðning. Á
morgun [í dag] kemur í ljós hvort
henni hefur tekist það. Ef henni hef-
ur tekist það verður örugglega allt
vitlaust.“
Þúsundir týnt lífi?
Að sögn Þórunnar hamstra íbúar
höfuðborgarinnar Nairobi mat og
nauðsynjar og bíða átekta áður en
fyrirhuguð fjöldamótmæli stjórn-
arandstöðunnar, undir forystu Raila
Odinga, hefjast á morgun, miðviku-
dag. Ráðgert er að þau standi fram á
föstudag og segir Þórunn „algjöra
óvissu“ ríkja um hvað gerist eftir
föstudaginn
Þórunn segist aðspurð telja að
það sé mjög varlega áætlað að
250.000 manns hafi þurft að flýja
heimili sín. Hún óttast einnig að mun
fleiri en 700 hafi týnt lífi í átökunum.
„Tala látinna er miklu, miklu
hærri. Tölurnar eru byggðar á gögn-
um frá spítölum. Fólk finnur rotn-
andi lík á ökrum. Við höfum séð lík í
skurðum í hverfunum. Það er ekki
alltaf hægt að flytja þau í líkhús.“
Lögreglan beitir hörku
„Í síðustu viku fórum við í mat-
væladreifingu. Þegar ég var að ljúka
dreifingunni sáum við stóran her-
lögreglubíl koma inn á staðinn þar
sem við vorum. Við fórum út úr
hverfinu. Á næstu klukkutímum
voru þrettán myrtir, tólf skotnir af
lögreglunni. Þessar tölur komu
hvergi fram.“
Mörg hús hafa verið brennd og
fólk misst allar eigur sínar. Þeir sem
voru fátækastir fyrir hafa þjáðst
mest. Þeir allra fátækustu misstu
það litla sem þeir áttu.“
Fólk með smáiðnað og þeir sem
hafi haft viðurværi af því að selja
varning hafi horft á eftir eigum sín-
um í eldinn. „Fólk stendur eftir al-
gjörlega allslaust. Það er hálf yf-
irþyrmandi þegar maður gengur um
og ræðir við þetta fólk.“
Þórunn tekur dæmi af ófrískri
konu sem hún hitti á sunnudag. Hún
hafi farið út með börnin en snúið aft-
ur að heimili sínu sem rjúkandi rúst-
um. Eiginmaður hennar hafi verið
innilokaður í öðru héraði vegna mót-
mæla. Konan eigi ekki fé til að
greiða lækni fyrir fæðingarhjálp.
Margir hafist við undir berum
himni án nauðþurfta, leiti matvæla á
daginn og skilji börnin eftir á meðan.
Fátækrahverfin í Nairobi eru fjöl-
menn. Ágætt dæmi er Natharhare,
næststærsta fátækrahverfið, þar
sem Þórunn starfar, þar búa um
800.000 manns, margir í skúrum.
Erfitt að skipuleggja starfið
Þórunn segir hjálparstarfsmenn
starfa við erfiðar aðstæður í Nairobi,
fátækrahverfin séu yfirfull af fólki
og mikill fjöldi sem streymi að flutn-
ingabílum með vistir. Lítið megi
bregða út af við slíkar aðstæður.
Sumir skólar séu yfirfullir af
flóttafólki og vandasamt að reyna að
rétta svo mörgum hjálparhönd.
Það sé um margt auðveldara að
skipuleggja hjálparstarf inn til
landsins, þar sem hafi verið skipu-
lagðar flóttamannabúðir. Vistir og
nauðsynjar berist frá hjálparstofn-
unum, en ekki nóg.
Hún segir reynt að koma upp
skólastarfi, svo að börnin hafi að ein-
hverju að hverfa. Þau kaupi tjöld og
færi fólkinu mat, sem margt búi á
götunni eftir grimmdarverkin.
„Það má segja að það séu tvær
hliðar á höfuðborginni. Þegar maður
keyrir um venjuleg hverfi í mið-
bænum er nóg að gera og lífið virðist
ganga eðlilega fyrir sig. Maður sér
ekki í fljótu bragði að neitt sé í
uppsiglingu. Í gær vorum við að
keyra um fátækrahverfin og þar er
ástandið alveg ferlegt. Fólk leitar
hælis í skólum og kirkjum. Við heim-
sóttum mosku og þar svaf úti fólk
sem hafði hrakist frá heimilum sín-
um, um fimm hundruð manns. Það
var búið að skipta hverfinu milli ætt-
bálka.“
Þórunn segir aðspurð hina ríku og
efnameiri hafa nóg að bíta og
brenna. Þótt margir tapi viðskiptum
gangi lífið sinn vanagang. Hins veg-
ar þekki allir einhvern sem hafi lent
illa úti í ástandinu. Sjálf er hún gift
kenískum manni og hefur fjölskylda
hans misst fyrirtæki sitt í bruna.
Ástandið sé erfitt og öll hjálp vel
þegin.
Hún hvetji því alla Íslendinga til
að leggja sitt af mörkum.
Reuters
Neyð Heimilislaus móðir í Kenía hughreystir barn sitt á meðan þau bíða eftir matvælum í neyðarskýli í Nairobi.
Heimilislausir mun
fleiri en talið var
Ástandið á götum Nai-
robi í Kenía er skelfi-
legt, fólk hamstrar
mat og bíður átekta
fyrir mótmælin á
morgun. Þórunn
Helgadóttir sagði
Baldri Arnarsyni frá
aðbúnaði þeirra sem
misst hafa heimili sín í
óeirðunum undanfarið.
Í HNOTSKURN
»Áætlað er að 700 manns hafilátið lífið í átökum í Kenía
frá því Mwai Kibaki var úr-
skurðaður sigurvegari í forseta-
kosningunum 27. desember sl.
»Þórunn telur að mun fleirihafi týnt lífi.
Þórunn
Helgadóttir
baldura@mbl.is
AP
Á vergangi Heimilislaust fólk kemur sér fyrir í tímabundnu skýli flug-
hersins í Nairobi í gær. Talið er að minnst 250.000 hafi flúið heimili sín.
agið glæðist
mkomustað
Árvakur/Golli
ggir hleypa mikilli birtu inn, enda ekki vanþörf á í skammdeginu.
a heimsóknin Stjórnmálafræðinemarnir Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir, Guð-
ur Árnason og Örvar Marteinsson töldu ýmsa þjónustu betur staðsetta í nýja húsinu.
ixír Rut Elíasdóttir þjóðfræðinemi og enskunemarnir Gísli Valgeirsson og Unnur
ansdóttir. Kaffið í Hámu tekur öðru kaffi á háskólasvæðinu fram að þeirra mati.
Þeim Þórarni, Lenu, Davíð, Jónínu Guðnýju, Gunnari Helga og Geir Atla líkaði Hámu-
inn vel. Þau nema stærðfræði og iðnverkfræði og sækja tíma í hinni nýju byggingu.