Morgunblaðið - 15.01.2008, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 25
MYNDIN er að skýrast varðandi
„útvistun“ á störfum læknaritara á
Landspítala – háskólasjúkrahúsi.
1) Ljóst er að þetta er liður í
áformum um einkavæðingu á starf-
semi Landspítalans. Það upplýsti
Niels Christian Nielsen, aðstoð-
armaður lækningaforstjóra, í viðtali
í fréttatíma Stöðvar 2 hinn 7. janúar
sl. Þessi talsmaður sjúkrahússins
var spurður hvort þetta væri „skref
í átt að einkavæðingu í heilbrigð-
iskerfinu?“ Hann svarar: „Ja, nú er-
um við að taka eitt skref í einu, við
skulum sjá fyrst hvort að þetta
gengur upp hjá okkur og hvort að
allra öryggisþátta og þeirra þátta
sem við höfum, sem við berum fyrir
brjósti, hvort það gengur upp og þá
gæti þetta orðið skref í þá áttina.“
2) Yfirlýstur tilgangur með út-
vistun er að ná niður útgjöldum sem
stéttarfélögin óttast að verði á
kostnað starfsmanna. Már Krist-
jánsson, sviðsstjóri á slysa- og
bráðasviði LSH, segir í fréttaviðtali
á Stöð 2, 8. janúar sl., að Landspít-
alinn sé með þessu að „leita allra
leiða til að ná rekstrarkostnaði nið-
ur“. Hann segir ennfremur: „Okkur
er þröngt sniðið stakkurinn að umb-
una fólki í formi launa þannig að við
sjáum þarna ákveðin tækifæri fyrir
fólkið að stofna fyrirtæki þar sem að
það gæti tekið þennan þátt lækna-
ritunarstarfanna að sér og við telj-
um að það séu möguleikar á því að
fólk geti aflað sér betri tekna með
þessum hætti.“ Í fréttinni er enn-
fremur haft eftir sviðstjóranum að
spítalinn hafi „hvorki … fjárhags-
legt svigrúm til að fjölga læknarit-
urum né borga þeim yfirvinnu.
Stjórnendur vilji sjá meiri afköst
fyrir minna fjármagn. Felist engin
hagræðing í tilraunaverkefninu
verði ekki af útboði.“
Ekki verður betur séð en hér sé
verið sé að reyna að slá ryki í augu
fólks með tali um að í útvistun felist
„tækifæri fyrir fólkið“ þegar jafn-
framt er ljóst að verið er að fara
fram á meiri vinnu fyrir minni laun.
3) Ekki hefur verið leitað eftir
samstarfi við starfsfólk. Eftirfar-
andi yfirlýsing frá fulltrúum lækna-
ritara á Landspítala birtist í 24
Stundum 28. des. sl.: „Læknaritarar
á Landspítala harma það að þurfa
að kalla eftir upplýsingum eða lesa í
dagblöðum um þá fyrirætlan að
bjóða út ritun sjúkraskráa stofn-
unarinnar. Læknaritarar fordæma
þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa
verið við þessa fyrirætlan. Á annað
hundrað læknaritara vinna á spít-
alanum og lesa um það í blöðunum
að „…þeir sem missa vinnu hjá okk-
ur verði ráðnir annars staðar ef til
þess kemur…“ (24 stundir) og að
leita eigi eftir skilvirkari vinnu-
brögðum. Læknaritarar telja veru-
lega að starfsheiðri sínum vegið.
Mikið hefur verið fjallað um málefni
Landspítala síðustu vikur. Málefnin
eru mörg og brýn sem taka þarf á.
Læknariturum er kunnugt um það
eins og öðrum fagstéttum. Bendum
við á að læknaritarar eru færir um
að ræða um þau málefni sem að
þeim snúa svo sem ritun sjúkra-
skráa, hagræðingu ýmiss konar og
ekki síst lausnir. Læknaritarar eru
meðvitaðir um húsnæðisvanda spít-
alans. Við hvetjum framkvæmda-
stjórn Landpítala til að eiga við-
ræður við læknaritara um þeirra
málefni.“
4) Þegar útboðsgögnin á verkefn-
inu eru skoðuð kemur í ljós að það
er ekki á færi nokkurra einstaklinga
að bjóða í verkefnið eins og gefið
hefur verið í skyn. Vitað er að fyr-
irtæki í lyfjaiðnaði hafa sýnt verk-
efninu áhuga en láta
fylgja með sögunni að
þau myndu stofna sér-
stakt fyrirtæki um
þennan þátt sér-
staklega, væntanlega
meðvituð um þá gagn-
rýni að varhugavert sé
að fela hagsmuna-
aðilum í lyfjasölu
rekstur þessarar
starfsemi.
5) Sagt er að um sé
að ræða tilraunaverk-
efni og verði frekari
ákvarðanir teknar að tilraunatím-
anum – sex mánuðum – liðnum.
Trúir því einhver að eftir að fyr-
irtæki hefur fengið verkefnið í sinn
hlut, komið sér upp nauðsynlegum
búnaði og ráðið fólk til starfa, að þá
yrði verkefnið tekið frá því? Er ekki
jafnvel líklegt að öflugt fyrirtæki
sem ætlaði sér að komast þarna í
örugga tekjulind til frambúðar
myndi jafnvel undirbjóða verkið á
tilraunatímanum vitandi að þegar
fram liðu stundir hefði það yf-
irburðastöðu, jafnvel einokunar-
aðstöðu, gagnvart LSH og gætu þá
stillt spítalanum upp við vegg?
6) Læknaritarastarfið er eitt af
lykilstörfum í heilbrigðiskerfinu.
Persónuverndarsjónarmið og krafa
um góða fagmennsku eru þar
grundvallaratriði. Læknaritarar
vilja að sjálfsögðu koma að end-
urskipulagningu á verksviði sínu ef
um slíkt ætti að vera að ræða.
Furðu sætir að stjórnendur á LSH
skuli sýna starfsstéttinni þá fram-
komu sem raun ber vitni.
7) Hvað segir Persónuvernd um
þessi áform? Hvers vegna er ætt
áfram með málið áður en það hefur
verið brotið til mergjar hvað öryggi
sjúklinga varðar? Getur verið að
forstjórar á Landspítalanum haldi
að þetta sé eitthvert prívatmál
þeirra?
Einkavæðingin
á Landspítalanum
Ögmundur Jónasson og Árni
Stefán Jónsson fjalla um störf
læknaritara
» Læknaritarastarfiðer eitt af lykilstörf-
um í heilbrigðiskerfinu.
Persónuverndarsjón-
armið og krafa um góða
fagmennsku eru þar
grundvallaratriði.
Ögmundur Jónasson
Árni Stefán Jónsson er formaður
SFR og Ögmundur Jónasson er for-
maður BSRB.
Árni Stefán Jónsson
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
KEF
Gaman er að koma í Keflavík. Það
finnst a.m.k. þeim 746 íbúum
Bítlabæjarins sem fengu vinning
í Happdrætti Háskólans á síðasta ári.
– Vertu með og fáðu þér miða á hhi.is
eða hjá umboðsmanni.
TIL HAMINGJU
Opið frá kl. 9-18
Höfum til leigu um 390 fm óinnréttað skrifstofuhúsnæði á 3. hæð ásamt bílastæð-
um í bílakjallara. Hæðin er í einu af glæsilegri húsum við Borgartún. Nánari upplýs-
ingar veita Hákon og Kjartan. 7278
GLÆSILEG SKRIFSTOFUHÆÐ
Vel staðsett 530 fm atvinnuhúsnæði á áberandi horni í miðju Smiðjuhverfinu. Hús-
næðið er í dag eitt opið rými með snyrtingum og kaffiaðstöðu. Mjög auðvelt er að
breyta þessu húsnæði í verslunarhúsnæði, aðkoma er mjög góð, næg bílastæði.
Auðvelt er að skipta húsnæðinu í tvo eða þrjá hluta. Húsnæðið er til afhendingar
fljótlega. V. 117 m. 7109
SMIÐJUVEGUR – ÁBERANDI HORNLÓÐ
Um að ræða eignarhluta 02-0106 sem er 120,0 fm og eignarhluta 02-0107 sem er
120 fm eða samtals 240 fm. Eignarhlutar eru nýttar sem ein heild í dag en auðvelt
er að skipta þeim upp. Nánari upplýsingar veita Hákon og Kjartan. V. 48 m. 7261
SMIÐJUVEGUR – JARÐHÆÐ