Morgunblaðið - 15.01.2008, Síða 33
Sálfræðiskor Háskóla Íslandsheldur málstofu á morgun,miðvikudag. Þar munu sál-fræðingarnir Sóley Dröfn
Davíðsdóttir, Sigurbjörg Jóna Lud-
vigsdóttir og Þröstur Björgvinsson
flytja erindið Hópmeðferð við kvíða
–árangursrík og skjótvirk lausn?
„Í fyrirlestrinum munum við fara yf-
ir helstu kosti og galla hópmeðferðar
við kvíða og segja um leið frá starfsemi
Kvíðameðferðarstöðvarinnar,“ segir
Sóley en fyrirlesararnir hafa starfrækt
Kvíðameðferðarstöðina frá maí 2007.
„Áætlað er að um fjórðungur fólks
sé haldinn kvíðaröskun af einhverju
tagi,“ útskýrir Sóley. „Kvíði er okkur
öllum eðlilegur og getur við ýmsar að-
stæður verið gagnlegur en kvíðaröskun
lýsir sér í að fólk kennir meiri kvíða en
ástæða er til og háir kvíðinn því veru-
lega í daglegu lífi. Sem dæmi má nefna
félagsfælni sem talið er að 7-13% fólks
sé haldið og getur leitt til þess að fólk
forðast ýmsar félagslegar athafnir eða
líður mjög illa innan um aðra.“
Við Kvíðameðferðarstöðina starfa
sálfræðingar sérhæfðir í hugrænni at-
ferlismeðferð og er sérstök áhersla
lögð á hópmeðferðir: „Þess er gætt að
framkvæma árangursmælingar á öllu
starfi stöðvarinnar, til að tryggja gæði
starfseminnar og auðvelda rannsókn-
arstarf,“ segir Sóley.
Að sögn Sóleyjar hefur reynslan
sýnt að hópmeðferð dugar vel sem
meðferðarúrræði við flestum kvíða-
röskunum: „Hópmeðferð hefur m.a. þá
kosti að þátttakendur geta lært hver
af öðrum og stutt hver annan í að tak-
ast á við erfiða hluta meðferðinnar,“
útskýrir Sóley. „Fræðsla er stór hluti
af kvíðameðferð og er sérstaklega
hagkvæmt og þægilegt að veita í hóp.“
Sóley leggur á það áherslu að þó
meðferð fari fram í hóp er vandi hvers
og eins vandlega metinn í einstaklings-
viðtali. Ef hópmeðferð hentar ekki, er
boðið upp á önnur úrræði, svo sem
einstaklingsmeðferð. „Hópmeðferðin
felst svo í því að yfirvinna kvíðann í
smáum og öruggum skrefum, þar sem
þess er gætt að ganga ekki of hart að
fólki.“
Fyrirlesturinn á miðvikudag er
haldinn í stofu 101 í Odda, milli kl.
12.10 og 13.00 Aðgangur er öllum
heimill og ókeypis.
Heimasíða Kvíðameðferðarstöðv-
arinnar er á slóðinni www.kms.is.
Heilsa | Fyrirlestur við sálfræðiskor um hjálparúrræði við kvíðaröskun
Möguleikar hópmeðferðar
Sóley Dröfn
Davíðsdóttir
fæddist í Reykja-
vík 1972. Hún
dvaldist eitt ár
við nám við BLCU
í Peking, lauk
B.A.-gráðu í sál-
fræði frá HÍ 1997,
cand.psych.-gráðu
frá sama skóla 2001 og leggur nú
stund á sérnám í hugrænni atferl-
ismeðferð. Hún starfaði áður á
geðsviði LSH en hefur verið sál-
fræðingur við Kvíðameðferðarstöð-
ina frá stofnun 2007 samhliða
stundakennslu við HÍ..
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 33
hlutavelta
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa, jóga,
postulínsmálning, útskurður, lestr-
arhópur.
Árskógar 4 | Bað, handavinna,
smíði/útskurður, leikfimi, boccia.
Upplýsingar í síma 535-2700.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böð-
un, almenn handavinna, fótaaðgerð,
morgunkaffi/dagblöð, vefnaður, há-
degisverður, línudans, kaffi.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í hand-
mennt opin 9-16 m/ leiðb. til kl. 12.
Framsögn og félagsvist kl. 14.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Skák kl. 13, félagsvist kl. 20.
Félag kennara á eftirlaunum | Tölvu-
starf í Ármúlaskóla hefst kl. 15.15.
Hentar öllum, líka þeim sem aldrei
hafa áður komið.
Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl.
9.05 og 9.55, gler- og postulíns-
málun kl. 9.30, handavinnustofan op-
in, jóga kl. 10.50, leikfimi kl. 13, alkort
kl. 13.30. Skráning á þorrablótið 26.
jan. er hafin.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn-
aður, jóga, myndlistahópur, ganga,
leikfimi, hádegisverður, bútasaumur.
Íslendingasögur lesnar kl. 16, Egils-
saga, stjórnandi Arngrímur Ísberg.
Bókmenntakvöld kl. 20, gestahöf-
undur er Pétur Gunnarsson.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Línudans kl. 12, kyrrðarstund í kirkj-
unni kl. 12 og spilað kl. 13, hádeg-
ismatur í Jónshúsi, pantað á staðn-
um eða í síma 617-1501,
skráningarblöð fyrir vornámskeið
liggja frammi, opið til kl. 16.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustof-
ur opnar kl. 9-16.30, m.a. glerskurður,
umsj. Vigdís Hansen, og perlusaumur
án leiðsagnar. Ganga um nágrennið
kl. 10 og postulínsnámskeið kl. 13.
Dagana 6.-11. febr. er menningar- og
listahátíð eldri borgara í Breiðholti,
umsj. Þjónustumiðstöð Breiðholts,
nánar kynnt síðar. S. 575-7720.
Furugerði 1, félagsstarf | Aðst. við
böðun kl. 9, bókband. Frjáls spila-
mennska kl. 13, kaffiveitingar.
Hvassaleiti 56-58 | Búta- og brúðu-
saumur kl. 9-13. Jóga kl. 9, Björg F.
Námskeið í myndlist kl. 13.30 hjá
Ágústu. Helgistund kl. 14. Böðun fyrir
hádegi. Hádegisverður. Hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Fram á vor er m.a.:
skapandi skrif á mánudögum kl. 16,
húslestur í Baðstofunni þriðjudaga kl.
11 og hláturjóga á föstudögum kl. 13.
Myndlistarsýning Stefáns Bjarnason-
ar framlengd fram til 15. febrúar.
Uppl. í s. 568-3132.
Íþróttafélagið Glóð | Hringdansar í
Kópavogsskóla kl. 14.20. Upplýsingar
í síma 564-1490.
Korpúlfar, Grafarvogi | Á morgun er
bingó á Korpúlfsstöðum kl. 13.30.
Leshópur FEBK, Gullsmára | Lestur
fornbókmennta (Gylfaginning) hefst í
Gullsmáranum í dag, kl. 16. Pétur
Gunnarsson höfundur „ÞÞ í fátækt-
arlandi“ verður gestur leshópsins
sama dag kl. 20. Fræðandi bók-
menntastarf. Aðgangur ókeypis.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan opin kl.
9-16 m/ leiðb. kl. 9-13. Hand-
menntastofa opin kl. 9-16 m/ leiðb. kl.
13-16. Myndlist kl. 9, postulín kl. 13,
leikfimi kl. 13. Hárgreiðsla 588-1288.
Fótaaðgerðarstofa 568-3838.
Sjálfsbjörg | Uno-spil kl. 19.30, í fé-
lagsheimili Sjálfsbjargar á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Styrkur | Samtök krabbameinssjúkl-
inga og aðstandenda þeirra halda
fræðslufund í Skógarhlíð 8 kl. 20. Ei-
ríkur Örn Arnarson forstöðusálfræð-
ingur á Landspítalanum fjallar um
svefn og svefnleysi. Þorrablót Styrks
verður haldið 2. febrúar á Hótel Loft-
leiðum. Miðapantanir í síma 896-
5808.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fóta-
aðgerðir kl. 9-16. Myndmennt, enska,
hádegisverður, leshópur, spurt og
spjallað /myndbandasýning, búta-
saumur, frjáls spil og kaffiveitingar.
Upplýsingar í síma 535-2740.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja,
morgunstund, leikfimi, upplestur,
glerbræðsla, félagsvist. Hárgreiðslu-
og fótaaðgerðarstofur opnar allan
daginn. Vitatorg er opin öllum aldurs-
hópum. Uppl. í síma 411-9450.
Kirkjustarf
Áskirkja | Opið hús kl. 10-14. Föndur
og spjall, bænastund kl. 12 í umsjá
sóknarprests. Léttur hádegisverður
eftir bænastundina.
Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11.
Kirkjustarf aldraðra kl. 12, léttur
málsverður. Helgistund sr. Yrsa Þórð-
ardóttir, gestur Þorbjörg Daníels-
dóttir. 10-12 ára starf kl. 17-18.15.
Æskulýðsstarf Meme fyrir 9.-10. bekk
kl. 19.30-21.30. www.digraneskirkja.is
Fella- og Hólakirkja | Kyrrðarstund
kl. 12. Organisti Guðný Einarsdóttir,
íhugun og bæn. Umsjón Ragnhildur
Ásgeirsdóttir djákni. Súpa og brauð í
safnaðarheimili kirkjunnar. Opið hús
eldri borgara kl. 13-16. Bingó í umsjá
Valgerðar Gísladóttur. Kaffiveitingar.
Helgistund í kirkju.
Fríkirkjan Kefas | Almenn bæna-
stund kl. 20.30.
Grafarvogskirkja | Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 13.30-16. Helgistund,
handavinna, spilað og spjallað. Kaffi-
veitingar. TTT fyrir 10-12 ára kl. 16-17 í
Engjaskóla.TTT fyrir 10-12 ára kl. 17-
18 í Borgaskóla.
Grensáskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Stutt helgistund með altarisgöngu og
bæn. Að helgistund lokinni gefst
kostur á léttum málsverði.
Hallgrímskirkja | Starf fyrir eldri
borgara kl. 11-14. Leikfimi, súpa, kaffi
og spjall.
Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
KFUM og KFUK | Holtavegi 28.
Fundur í AD KFUK kl. 20. Biblíulestur
í umsjá Höllu Jónsdóttur. Kaffi eftir
fundinn. Allar konur eru velkomnar.
Laugarneskirkja | TTT-hópurinn
kemur saman kl. 16 undir handleiðslu
Andra Bjarnasonar, (5.-6. bekkur).
Kvöldsöngur kl. 20. Þorvaldur Hall-
dórsson leiðir sönginn og sókn-
arprestur flytur Guðsorð og bæn.
Kynning á 12 spora-starfinu, Vinir í
bata kl. 20.30. Allt fólk hvatt til að
mæta.
Vídalínskirkja Garðasókn | Kyrrð-
arstund kl. 12. Tónlist leikin og ritn-
ingartextar lesnir frá kl. 12.10. Súpa
og brauð kl. 12.30, 400 kr. Opið hús í
Kirkjuhvoli, Vídalínskirkju kl. 13-16.
Vist og brids, púttgræjur á staðnum.
Röbbum saman og njótum þess að
eiga samfélag við aðra. Kaffi og með-
læti kl. 14.45. Akstur fyrir þá sem
vilja, upplýsingar í síma 895-0169.
90ára afmæli. Níræður er í dag, 15.janúar, Sveinn Snjólfur Þórð-
arson frá Skógum í Mjóafirði. Hann
tekur á móti gestum laugardaginn 19.
janúar í Sigfúsarhúsi, félagi eldri borg-
ara á Neskaupstað, eftir kl. 15.
Hlutavelta | Patrik
Gunnarsson, Jón Otti
Sigurjónsson og Elv-
ar Guðmundsson
héldu tombólu hjá
Nettó í Salahverfi, til
styrktar Rauða kross-
inum. Þeir komu í
sjálfboðamiðstöð
Kópavogsdeildar
Rauða krossins og af-
hentu afrakstur tom-
bólunnar, 5.760 kr.
Strákarnir eru sex og
sjö ára og eru í 1. og 2.
bekk Salaskóla.
Söfnun | Sex vinkonur úr Lindaskóla, þær Birta Líf Reynisdóttir, Guð-
rún Ásgeirsdóttir, Katrín Linh Hauksdóttir, Ólafía Ósk Reynisdóttir,
Diljá Rún Sigurðardóttir og Helga Margrét Gísladóttir, komu færandi
hendi í sjálfboðamiðstöð Kópavogs. Þær gengu í hús í hverfinu sínu og
söfnuðu flöskum til styrktar Rauða krossinum og söfnuðu alls 14.983 kr.
dagbók
Í dag er þriðjudagur 15. janúar, 15. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Og hann mun senda út englana og safna sínum útvöldu úr áttunum fjórum, frá skautum jarðar til himinskauta (Mk 13, 27.)
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Félagi
frjálslyndra í Eyjafirði:
„Fundur félaga í Frjálslynda
flokknum í Eyjafirði skorar á
stjórnvöld að virða mannréttindi
og stjórnarskrárvarin atvinnurétt-
indi Íslendinga og afnema án tafar
núverandi kvótakerfi.
Kvótakerfið hefur valdið þjóð-
inni gríðarlegum skaða s.s.
byggðaröskun, gjaldþrotum, brott-
kasti, og sært réttlætiskennd al-
mennings.
Frjálslyndi flokkurinn hefur á
umliðnum árum flutt margvíslegar
tillögur um úrbætur og er skorað á
ráðamenn í Samfylkingu og Sjálf-
stæðisflokki að kynna sér þær og
hrinda þeim í framkvæmd.“
Yfirlýsing frá Félagi
frjálslyndra í Eyjafirði
HÚSVÍKINGAR!
Það er ekki bara hægt að skoða hvali á Húsavík heldur einnig 251 vinningshafa
í Happdrætti Háskólans á síðasta ári. Aðgangur ókeypis.
– Vertu með og fáðu þér miða á hhi.is eða hjá umboðsmanni.
TIL HAMINGJU
Árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
FRÉTTIR