Morgunblaðið - 15.01.2008, Page 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ÞRÁTT fyrir að nokkrar nýjar kvik-
myndir hafi verið frumsýndar fyrir
helgi tókst engri þeirra að slá æv-
intýramyndina National Treasure:
Book Of Secrets af toppnum. Nicol-
as Cage og félagar eru því í efsta
sæti bíólistans aðra helgina í röð, en
rúmlega 3.500 manns sáu myndina
um þessa helgi, og alls hafa því rúm-
lega 16.000 manns séð hana hér-
lendis.
Breska gamanmyndin Death at a
Funeral stökk hins vegar beint í
annað sætið, en tæplega 2.500
manns skelltu sér á hana um
helgina. Myndin segir frá manni
nokkrum sem ætlar að veita föður
sínum sómasamlega útför, en þegar
á hólminn er komið reynist það
þrautin þyngri.
Þá var bandaríska hrollvekjan
The Mist einnig frumsýnd fyrir
helgi, en myndin er byggð á sam-
nefndri sögu hrollvekjumeistarans
Stephens King. Leikstjóri mynd-
arinnar er Frank Darabont, en þetta
er ekki í fyrsta skipti sem hann leik-
stýrir mynd sem byggð er á sögu
Kings. Áður leikstýrði hann bæði
The Shawshank Redemption og The
Green Mile við góðan orðstír. Rúm-
lega 2.000 manns þorðu á The Mist
um helgina.
Loks frumsýndi Græna ljósið nýj-
ustu mynd leikstjórans Ang Lee,
Losti, varúð (Se Jie). Myndin gerist í
Sjanghæ stuttu fyrir heimsstyrjöld-
ina síðari. 500 manns skelltu sér á
myndina sem er stranglega bönnuð
börnum enda ansi svæsin kynlífs-
atriði í myndinni – en íslenskir bíó-
gestir hafa þó fæstir lagt jafn mikið
á sig og fjöldi Kínverja gerði, en þeir
þurftu að gera sér ferð til Hong
Kong til að sjá myndina sem er
bönnuð annars staðar í Kína.
Vinsælustu myndirnar í íslenskum kvikmyndahúsum
Bíógestir velja ævintýri,
erótík, grín og hrylling
* E.
(
!
"
# $ %&'
( )
$ % '&
*
& +, $
")
-
$
.
+/ %
Margt býr í þokunni Bandaríska hrollvekjan The Mist segir frá óhugnan-
legum atburðum sem eiga sér stað í smábæ í Maine-fylki.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„STÓR? Hún er nú ekkert svakalega
stór,“ segir Steinþór Jónsson, hót-
elstjóri Hótel Keflavíkur, þegar hann
er spurður hvernig stórstjarnan
Beyoncé Knowles hafi komið honum
fyrir sjónir. Eins og fram kom á
mbl.is í gær millilenti bandaríska
söngkonan ásamt fylgdarliði sínu í
Keflavík í fyrrakvöld, og gisti fólkið á
hótelinu um nóttina. „Þau komu
hingað og innrituðu sig, og fóru svo
út að horfa á leik í ameríska fótbolt-
anum,“ segir Steinþór og bætir því
við að um níu eða tíu manns hafi verið
að ræða. Á vef Víkurfrétta í gær kom
fram að Jay-Z, rappari og kærasti
söngkonunnar, hafi verið með í för en
Steinþór gat ekki staðfest það.
Gaman að koma til Íslands
Að sögn Steinþórs fékk hópurinn
svítur á fjórðu hæð hótelsins út af
fyrir sig. „Aðstoðarhótelstjórinn fór
beint í að leysa mál sem þau báðu um,
sérþarfir sem voru reyndar frekar
minni háttar. Þetta voru ákveðnar
óskir sem var bara brugðist við, það
voru engir stjörnustælar í þessu,“
segir hann. „Það var annars full-
bókað hjá okkur að öðru leyti, meðal
annars mikið af Bandaríkjamönnum,
og það varð auðvitað uppi fótur og fit
þegar fréttist hver var að fara að
ganga í gegnum anddyrið,“ segir
Steinþór, en Beyoncé og félagar yf-
irgáfu hótelið kl. 8.45 í gærmorgun.
„Hún var kurteis og heilsaði öllum.
Svo heyrði ég í henni þegar ég var að
fara, og færði henni smágjöf frá hót-
elinu, bara til þess að gera eitthvað.
Þetta var listaverk frá systur minni,
Guðlaugu Helgu Jónsdóttur, og hún
þakkaði kærlega fyrir sig. Hún sagði
svo að sér hefði þótt mjög gaman að
koma til Íslands.“
Beyoncé á Íslandi
Reuters
Fögur Beyoncé sagði að sér hefði
þótt gaman að koma til Íslands.
HRÍSEYINGAR!
Á síðasta ári fékk einn af hverjum sex Hríseyingum vinning í Happdrætti Háskólans.
Eru Hríseyingar heppnasta fólk landsins?
– Vertu með og fáðu þér miða á hhi.is eða hjá umboðsmanni.
TIL HAMINGJU
Sími 564 0000Sími 462 3500
Sími 551 9000
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó
* Gildir á allar
sýningar merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ*
The Golden Compass kl. 6 - 8 B.i. 10 ára
The Nanny Diaries kl. 10
Alvin og íkornarnirm/ísl. tali kl. 6
Lions for lambs kl. 8 - 10 B.i. 7 ára
The Mist kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i.16 ára
The Mist kl. 5:20 - 8 - 10:40 LÚXUS
The Nanny Diaries kl. 5:40 - 8 - 10:20
The Golden Compass kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.10 ára
Alvin og íkornarnir ísl. tal kl. 4 - 6
Alvin and the C.. enskt tal kl. 8
Duggholufólkið kl. 3:45 B.i. 7 ára
Hitman kl. 10 B.i. 16 ára
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Dagbók fóstrunnar
eee
- A.S. MBL
Stórskemmtileg gamanmynd
með Scarlett Johansson í aðalhlutverki
sem fóstra hjá ríka liðinu í New York
og lífið á toppnum því ekki er allt sem sýnist!
ÁST. SKULDBINDING. ÁBYRGÐ.
HANN HLEYPUR FRÁ ÖLLU!eee
- T.S.K. 24 STUNDIR
eee
- S.V. MBL
eee
- V.J.V., TOPP5.IS
SÝND Í SMÁRABÍÓI
FRUMSÝNING
LOSTI, VARÚÐ
SÝND Í REGNBOGANUM
SÝND Í REGNBOGANUM SÝND Í REGNBOGANUM SÝND Í SMÁRABÍÓI
NÚ VERÐUR ALLT VITLAUST!
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
eee
FLAUELSMJÚK OG ÞÆGILEG
- DÓRI DNA. D.V.
MÖGNUÐ
SPENNUMYND
EFTIR
FRÁBÆRRI
SÖGU
STEPHEN KING
MISTRIÐ
FRÁ FRANK DARABONT, HANDRITSHÖFUNDI
OG LEIKSTJÓRA „THE GREEN MILE“ OG
„THE SHAWSHANK REDEMPTION“
ÓTTINN BREYTIR ÖLLU!
SÝND Í REGNBOGANUM
- Kauptu bíómiðann á netinu -
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
Lust, Caution kl. 6 - 9 B.i. 16 ára
I´m not there ath. ótextuð kl. 6 - 9 B.i. 12 ára
We own the night kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára
Run fat boy run kl. 5:30 - 8 - 10:10
„Skemmtilegasta og áhrifaríkasta „ævisaga”
frægrar rokkstjörnu sem færð hefur verið á hvíta
tjaldið á síðustu árum!“
eeee
- H.J. MBL
eee
- A.F.B. 24 STUNDIR
„Kynlífssenurnar eru mjög grófar.
Ekki svæsnar á klámfenginn hátt en ansi
nálægt því. Stórkostlegt listaverk!“
James Berardinelli, Reel Views
Frá Óskarsverðlaunahafanum Ang Lee
leikstjóra „Brokeback Mountain“
og „ Croutching Tiger, Hiddden Dragon“
“... trúlega besta Stephen King
mynd í tæpan áratug.”
T.V. - Kvikmyndir.is
Cate Blanchett
Besta leikkonan í
aukahlutverki