Morgunblaðið - 15.01.2008, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 39
EKKI er búist við að söngkonan
Björk Guðmundsdóttir fái á sig
kæru vegna atviks sem varð við
komu hennar til flugvallarins í
Auckland á Nýja-Sjálandi í fyrra-
dag, en þar mun hún syngja á tón-
listarhátíð á föstudaginn kemur. En
á flugvellinum réðst Björk að ljós-
myndara sem hafði tekið af henni
myndir þrátt fyrir að hafa verið beð-
inn um að gera það ekki. Að þessu
sinni var það Glenn Jeffrey, ljós-
myndari frá ný-sjálenska dag-
blaðinu Herald, sem tók af henni
nokkrar myndir þrátt fyrir að fylgd-
armaður Bjarkar bæði hann um að
gera það ekki.
Jeffrey segir að hann hafi tekið
nokkrar myndir af henni og snúið
sér undan til að ganga á braut þegar
Björk réðst aftan að honum og reif
stuttermabolinn hans niður eftir
bakinu.
Við árásina valt Björk um koll og
datt í gólfið. Jeffrey segist ekki hafa
talað við hana eða snert hana.
Förunautur Bjarkar sem ekki hef-
ur verið nefndur á nafn mun hafa
sagt: „B, ekki gera þetta. B, ekki
gera þetta.“
Eftir árásina ræddi Jeffrey við
lögregluna og lét hafa eftir sér að
það væri óviðunandi að ráðist væri á
fréttaljósmyndara og hann ætlaði að
athuga sinn lagalega rétt.
Síðdegis í gær kom frétt í Herald
þar sem fram kom að hvorki Jeffrey
né Herald ætluðu að kæra atvikið og
lögreglumaður í Auckland sagði að
þeir væru ekki að rannsaka atvikið.
Samkvæmt vefmiðlinum E! Online
á talskona flugvallarins að hafa sagt
fréttamönnum að það væri til mynd-
bandsupptaka úr öryggismynda-
vélum af atvikinu ef lögreglan færi
fram á að sjá það vegna rannsóknar
málsins.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Björk fær nóg af ágangi fjölmiðla-
fólks, því árið 1996 réðst hún á
fréttakonu á flugvellinum í Bang-
kok. Björk baðst fyrirgefningar á
því atviki og var það ekki kært.
Hægt er að sjá myndband af því á
vefsíðunni YouTube (leitarorð:
Bjork fight).
Fjölmiðlar fjölluðu flestir um árás
Bjarkar á ljósmyndarann í vef-
miðlum sínum í gær. Slúðursíðurnar
Perezhilton.com og People.com létu
sitt ekki eftir liggja frekar en virðu-
legri miðlar eins og Reuters, The
Guardian, San Francisco Chronicle
og The New Zealand Herald.
Reuters
Í essinu sínu Björk á tónleikum í Lima í Perú 13. nóvember síðastliðinn.
Björk lemur ljósmyndara
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Háskólabíó
The Nanny diaries kl. 8 - 10:20
The Golden Compass kl. 8 - 10:30
Duggholufólkið kl. 6
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
Sýnd kl. 6, 8 og 10
ÁST. SKULDBINDING. ÁBYRGÐ.
HANN HLEYPUR FRÁ ÖLLU!
eee
FLAUELSMJÚK OG ÞÆGILEG
- DÓRI DNA. D.V.
Sýnd kl. 5, 8 og 10:15
Viðskiptavinir, sem greiða
með korti frá SPRON, fá
20% afslátt
af miðaverði á myndina
eeee
- Ó.H.T., RÁS 2
Þetta er frumleg, úthugsuð,
vönduð og spennandi barna-
og fjölskyldumynd, besta
íslenska myndin af sínu tagi.
eeee
- B.S., FBL
„...ein besta fjölskyldu-
afþreyingin sem í boði
er á aðventunni”
eee
- S.V., MBL
„Duggholufólkið bætir
úr brýnni þörf fyrir
barnaefni”
EITT STÓRFENGLEGASTA
ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA.
Viðskiptavinir, sem greiða
með korti frá SPRON, fá
20% afslátt
af miðaverði á myndina
EITT STÓRFENGLEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA. í Háskólabíói
-bara lúxus
Sími 553 2075
11. - 24. Janúar
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
SÝND Í SMÁRABIÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
Sýnd kl. 8 og 10:30
eee
- S.V. MBL
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
Sýnd kl. 6 m/ísl. tali
NÚ VERÐUR ALLT VITLAUST!
MÖGNUÐ SPENNUMYND EFTIR
FRÁBÆRRI SÖGU STEPHEN KING
MISTRIÐ
FRÁ FRANK DARABONT, HANDRITSHÖFUNDI
OG LEIKSTJÓRA „THE GREEN MILE“ OG
„THE SHAWSHANK REDEMPTION“
ÓTTINN BREYTIR ÖLLU!
www.laugarasbio.is
Stærsta kvikmyndahús landsins
MOLIÈRE
PERSEPOLIS
LOFAÐU MÉR
LÖGMAÐUR
HRYÐJUVERKANNA
Dagskrá og miðasala
á midi.is
Allt um myndirnar
á graenaljosid.is og af.is
“... trúlega besta Stephen King
mynd í tæpan áratug.”
T.V. - Kvikmyndir.is
Allar myndir eru með enskum texta
Persepolis kl. 6
Moliére kl. 10
Lögmaður hryðjuverkanna kl. 8
Lofaðu mér kl. 10
2 dagar í París kl. 8
Síðasti geðsjúklingurinn kl. 6
Vonbrigði kl. 6
2 DAGAR Í PARÍS
SÍÐASTI
GEÐSJÚKLINGURINN
VONBRIGÐI
eeeee
- H.J. MBL
Opið hús
Við bjóðum ykkur í heimsókn
í dag kl. 16–18, íbúð 503
LINDARGATA 27 REYKJAVÍK
Stórglæsilegt fjölbýlishús
Höfum til sölu eina íbúð í þessu einstaklega
glæsilega húsi við Lindargötu. Um er að ræða 80
fm, 2ja herbergja íbúð á fimmtu hæð. Íbúðinni er
skilað fullbúinni með parketi á gólfum en ísskápur
og upp þvottavél f ylgja. Staðsetning hússins í hjarta
borgarinnar er frábær, í göngufæri við alla þá
verslun og þjónustu sem miðbærinn hefur upp
á að bjóða.
Verð 31,9 millj.
Ítarlegar
upplýsingar
um eignina
á vefsíðu okkar
www.iav.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200www.iav.is