Morgunblaðið - 04.02.2008, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Alicante
um páskana
16.-29. mars
frá kr. 39.790
Frábært verð á flugsætum í páskaferð!
Heimsferðir bjóða frábært verð á flugsætum til Alicante um
páskana. Flogið er í beinu morgunflugi. Njóttu vorsólarinnar
við Alicante um páskana. Bókaðu strax og tryggðu þér sæti
- takmarkaður fjöldi sæta í boði á þessu verði.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 39.790
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir
með skötttum.
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
TEKJUKÖNNUN Samtaka ferðaþjónustunnar
og Hotelbenchmark sýnir að nýting hótelher-
bergja í Reykjavík var minni árið 2007 en árið
áður, en meiri úti á landi. Þannig minnkaði nýt-
ing fjögurra stjörnu hótelherbergja í höfuðborg-
inni um 3,4% en nýting þriggja stjörnu her-
bergja um 1,7%. Hún jókst hins vegar um 4,4%
á landsbyggðinni.
Að sögn Ernu Hauksdóttur, formanns Sam-
taka ferðaþjónustunnar, kemur þessi samdrátt-
ur í Reykjavík ekki á óvart. Hann verður sam-
fara mikilli aukningu í framboði á
hótelherbergjum, enda hafi 3-4 stjörnu her-
bergjum fjölgað um 24% á síðustu tveimur ár-
um, þar af 18-19% bara á árinu 2007.
Mest segir hún þar muna um turninn á Grand
hóteli, sem hefur yfir 200 herbergi. Einnig kem-
ur til fjölgun herbergja á Cabin hóteli og ný
hótel á borð við Þinghól og Arnarhvol. Mestu
máli segir hún skipta að tekjur á hvert fram-
boðið herbergi haldi í við verðlagsþróun og auk-
inn kostnað í hótelrekstri. Meðalverð fyrir her-
bergi í Reykjavík hækkaði úr 9.276 kr. árið
2006 í 10.068 kr. í fyrra. Að meðaltali jukust
tekjur á framboðið herbergi í Reykjavík um 8%
í fyrra, en um heil 27% úti á landi. Erna segir
smæð markaðarins á landsbyggðinni slíka að ein-
stakar ráðstefnur eða viðburðir geti haft áhrif á
verð. Framkvæmdir á Austurlandi hafi haft áhrif
á bæði nýtingartölur og verð þar en á þessu ári
sé jafnvel búist við að nýting og verð fari að
lækka á því svæði.
24% fjölgun herbergja
Fjórðungsfjölgun 3-4 stjörnu hótelherbergja síðustu tvö ár Nýting herbergja
dregst saman samfara fjölgun 8% tekjuaukning á framboðið herbergi árið 2007
Árvakur/Ómar
Í HNOTSKURN
»Tekjukönnunin var framkvæmd af Delo-itte, fyrir Hotelbenchmark og Samtök
ferðaþjónustunnar hér á landi. Hún náði til
7.800 hótela í 140 löndum.
»Könnunin náði til hótela sem hafa 1.786herbergi í Reykjavík og 350 herbergi á
landsbyggðinni.
»Árið 2007 varð 6,2% tekjuaukning á hvertframboðið fjögurra stjörnu herbergi í
Reykjavík og 6,8% á hvert þriggja stjörnu
herbergi.
TAFLFÉLAGIÐ Hellir stóð fyrir al-
þjóðlegu unglingamóti um helgina.
Mótið fór fram í húsakynnum Skák-
skóla Íslands og voru 28 keppendur
skráðir til leiks, þar af tíu erlendir
frá fjórum löndum; Danmörku, Sví-
þjóð, Skotlandi og Þýskalandi.
Flestir af bestu íslensku skákmönn-
unum, fæddir 1991 eða síðar, tóku
þátt.
Um var að ræða stærsta og sterk-
asta alþjóðlega skákmót sem fram
hefur farið hérlendis fyrir ung-
linga.
Bestum árangri af íslensku kepp-
endunum náði Sverrir Þorgeirsson
en hann endaði í 1.-4. sæti. Með
honum í efsta sæti urðu Svíinn Jak-
ob Aperia, Þjóðverjinn Maximilian
Berchtenbreiter og Daninn Martin
Storgaard. Þeir hlutu 4,5 vinninga í
sex skákum. Helgi Brynjarsson og
Bjarni Jens Kristinsson urðu í 5.-6.
sæti með 4 vinninga.
Íslensku skákmönnunum gekk
almennt vel á mótinu. Patrekur
Maron Magnússon hækkaði mest
þeirra í alþjóðlegum skákstigum
eða um 31 stig, Jóhanna Björg Jó-
hannsdóttir um 26 stig og Helgi
Brynjarsson um 23 stig.
Að sögn Gunnars Björnssonar,
formanns Hellis, tókst mótið í alla
staði mjög vel og er vonast til að
framhald verði á því á komandi ár-
um.
Sverrir
endaði í
1.-4. sæti
Alþjóðlegt unglinga-
mót í skák tókst vel
Morgunblaðið/Ómar
Einbeittir Sverrir Þorgeirsson teflir gegn Svíanum Jacob Aperia í lokaumferðinni en þeir voru efstir og jafnir eft-
ir 5. umferð. Sverrir endaði að lokum í 1.-4. sæti og náði bestum árangri íslensku keppendanna.
TALSVERÐUR erill var hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu að-
faranótt sunnudags og voru 165
verkefni bókuð frá miðnætti.
12 manns gistu fangageymslur
vegna ölvunar, fíkniefna, slagsmála
og ölvunaraksturs.
Tilkynnt var um sex árekstra á
höfuðborgarsvæðinu og varð tölu-
vert eignatjón en engin alvarleg
slys á fólki.
Fimm manns voru teknir fyrir
ölvun við akstur og einn var tekinn
grunaður um akstur undir áhrifum
fíkniefna.
Tilkynnt var um fjórar minni-
háttar líkamsárásir og voru fjórir
fluttir á slysadeild.
Einn ökumaður var kærður fyrir
akstur undir áhrifum fíkniefna í
Grindavík. Annar ökumaður var
kærður fyrir akstur undir áhrifum
áfengis í Reykjanesbæ. Þrír menn
gistu fangaklefa lögreglunnar á
Suðurnesjum vegna ölvunar og
óspekta.
Erill hjá lög-
reglu höfuð-
borgarsvæðis
FIMM ökumenn voru kærðir fyrir
of hraðan akstur á Reykjanesbraut-
inni í gær. Sá er hraðast ók mældist
á 150 km hraða þar sem leyfður há-
markshraði er 90 km hraði. Einn
ökumaður var kærður fyrir stöðv-
unarskyldubrot, tveir fyrir að nota
ekki öryggisbelti og einn ökumaður
var staðinn að akstri sviptur öku-
réttindum.
Þrjú umferðaróhöpp urðu á svip-
uðum slóðum austan við Selfoss í
gær. Engin slys urðu á fólki. Í
tveimur tilvikum urðu aftur á móti
töluverðar skemmdir á bílum. Segir
lögreglan að óhöppin megi rekja til
þess að færð var ekki með besta
móti.
Á 150 km
hraða
FANNFERGI er á vinnustöðum
Kárahnjúkavirkjunar á hálendinu
og starfsaðstæður í samræmi við
það. Fram kemur á upplýsingasíðu
Kárahnjúkavirkjunar að til dæmis
hefur snjór safnast í hengjur ofan
við aðkomugöng 2 og fram-
kvæmdaeftirlitið hefur því í örygg-
isskyni bannað alla umferð gang-
andi fólks um gangamunnann. Þeir
sem fara inn í göngin og koma út úr
þeim verða að ferðast með lestum.
Snjóruðningstæki hafa vart
undan við hreinsunina
Snjóruðningstæki eru stöðugt í
gangi við að hreinsa af vegum og
vinnusvæðum en hafa tæpast und-
an. Á vefsíðu virkjunarinnar kemur
fram að útlit sé nú fyrir að enn
meiri snjó kyngi niður næsta sólar-
hringinn, ef marka má veðurspá.
Hörkuvetur
á virkjunar-
svæði
Lögreglan í Reykjavík handtók
karlmann á fertugsaldri rétt fyrir
klukkan ellefu í gærkvöldi vegna
gruns um ölvun við akstur. Vegfar-
endur tilkynntu um ökumanninn á
ellefta tímanum þar sem ökulag
hans þótti óeðlilegt.
Lögregla hafði svo hendur í hári
hans við gatnamót Reykjanes-
brautar og Stekkjarbakka skömmu
síðar.
Að svo búnu var farið með mann-
inn á lögreglustöðina við Hverf-
isgötu. Þar var tekin af honum
skýrsla og hann látinn blása í önd-
unarsýnamæli til að meta áfeng-
ismagn í blóði hans.
Tekinn fyrir
ölvunarakstur
SAMÞYKKT var á þingi Kraftlyft-
ingasambands Íslands (Kraft) um
helgina að heimila stjórn þess að
ganga til viðræðna við Íþrótta- og
ólympíusamband Íslands um aðild
að ÍSÍ.
Kraftlyftingasambandið var
stofnað út úr Lyftingasambandinu
1985 og hefur það alla tíð verið ut-
an við ÍSÍ. Jakob Baldursson, ný-
kjörinn formaður Kraft, segir að
þegar hafi verið rætt við fram-
kvæmdastjóra ÍSÍ um málið og
framundan sé ákveðið vinnsluferli.
Stofna þurfi deildir innan íþrótta-
bandalaga í viðkomandi sveitar-
félögum með það að leiðarljósi að
ÍSÍ taki málið fyrir á íþróttaþingi
sínu á næsta ári.
Jakob segir óviðunandi að ekki
sé hægt að bjóða mönnum upp á
það að vera undir öllum þeim lög-
um og löggjöfum sem ÍSÍ hefur
upp á að bjóða. „Menn verða að
geta strokið um frjálst höfuð með-
al almennings úti í bæ án þess að
hafa alltaf þennan stimpil á sér,“
heldur hann áfram og vísar til
lyfjamála. Í fyrra kepptu 79 manns
hjá Kraft og segir Jakob að sam-
bandið vilji bjóða upp á heilbrigða
sál í hraustum líkama án ólöglegra
lyfja.
Jakob segir að mikill og vaxandi
áhugi sé á kraftlyftingum og víða
vilji menn stofna félög. „Það er
hægt að fara að byggja upp góða
framtíð í þessari íþrótt sem er ein
af þjóðaríþróttum Íslendinga.“
Líney Rut Halldórsdóttir, fram-
kvæmastjóri ÍSÍ, segir að allir
sem vilji starfa samkvæmt lögum
og reglum Íþróttasambandsins séu
velkomnir.
Kraftlyftinga-
menn sækja í ÍSÍ
Kraftlyftingasambandið vill breytingar