Morgunblaðið - 04.02.2008, Síða 29

Morgunblaðið - 04.02.2008, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2008 29 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Fyrirlestrar og fundir Staðlaráð Íslands | Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti gert grein fyrir lykilatriðum staðlanna ISO/IEC 17799 og ISO/ IEC 27001 og þekki hvernig þeim er beitt við stjórnun upplýsinga- öryggis í fyrirtækjum. Hámarks- fjöldi þátttakenda er 12 manns. dagbók Í dag er mánudagur 4. febrúar, 35. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Vaknið, því þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur. (Matth. 24, 42.) Náttúrulækningafélag Ís-lands heldur á fimmtudagmálþing um kulnun ístarfi. Málþingið er haldið á Hótel Loftleiðum og hefst kl. 20. „Kulnun í starfi er stundum kölluð útbruni. Í stuttu máli er kulnun þeg- ar fólk er undir langvarandi álagi, slítur sér út og eyðir öllum vara- forða. Starfið og álagið sem því fylgir er farið að taka yfir einkalífið, og í stað vinnugleði er komin vanlíðan, sektarkennd og vanmáttarkennd,“ segir Jón Björnsson rithöfundur og sálfræðingur sem er einn fyrirlesara á þinginu. Auk Jóns flytja erindi Kristinn Tómasson yfirlæknir hjá Vinnueftirliti ríkisins, Ása Ásgeirs- dóttir fagstjóri hjá Vinnueftirlitinu og Margrét Arnljótsdóttir sálfræð- ingur hjá HNLFÍ. Í erindi sínu fjallar Jón um þann hraða sem einkennir líf fólks nú á dögum, hættuna á að ánetjast hrað- anum og láta hann spilla lífsgæðum og siðferði. Einnig ætlar Jón að lýsa hvernig hann sjálfur brást við þegar honum fannst að álag í starfi og kröf- ur hraðans væru tekin að ógna lífs- gleðinni: „Kulnun birtist með mis- munandi hætti hjá hverjum og einum. Í mínu tilviki fannst mér lífið vera orðið þröngt og fátæklegt. Allar vökustundir var ég meira og minna upptekinn af vinnunni svo ekkert svigrúm var fyrir önnur áhugamál,“ segir Jón. „Ég tók þá ákvörðun að breyta um lífsstíl, skipta um starf og hætta að príla metorðastigann. Ólíkt því sem ég átti von á urðu umskiptin auðveld, og hef ég ekki eitt augnablik séð eftir þessari ákvörðun síðan.“ Jón ráðleggur þeim sem telja sig vera að kulna í starfi að hugsa sinn gang: „Lífinu eigum við að lifa okkur til ánægju, og ef eitthvað er til ama má ekki bíða of lengi að ráða bót. Með hæfilegum skammti af sjálfs- skoðun geta langflestir hjálparlaust fundið sér réttan farveg og forgangs- raðað gildunum í lífinu.“ Heimasíða Náttúrulækningafélags- ins er á slóðinni www.nlfi.is. Að- gangseyrir að málþinginu er kr. 800 og eru allir velkomnir. Fundarstjóri er Jan Tribel yfirlæknir NFLÍ og verða pallborðsumræður að loknum erindum. Heilsa | Málþing NLFÍ um kulnun í starfi á fimmtudag kl. 20 Hvað má gera við kulnun?  Jón Björnsson fæddist í A- Húnavatnssýslu 1947. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri og námi í sálfræði frá Há- skólanum í Freib- urg. Jón var fé- lagsmálastjóri á Akureyri og síðar framkvæmdastjóri menningar-, upp- eldis- og félagsmála hjá Reykjavík- urborg. Hann hefur undanfarin ár fengist við ýmis verkefni innan stjórn- sýslunnar og skrifað ferðabækur. Eig- inkona Jóns er Stefanía Arnórsdóttir bókasafnsfræðingur og eiga þau tvö börn og þrjú barnabörn. Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9- 16.30, boccia kl. 10, félagsvist kl. 13.30. Aflagrandi 40 | Bíóferð á Brúðgum- ann fimmtud. 7. febrúar kl. 16, rúta frá Aflagranda kl. 15.30. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, morgunkaffi/dagblöð, jóga, fótaaðgerðir, hádegisverður, búta- saumur, kaffi. Þriðjud. 5. febrúar verð- ur farið á Revíu í Iðnó kl. 14. Rútuferð frá Bólstaðarhlíð kl. 13.10, rútugjald 500 kr. Skráning í s. 535 2760. Dalbraut 18-20 | Vinnustofa opin kl. 9-12, leikfimi kl. 10, myndlist kl. 13-16, bridds kl. 14. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif- stofa FEBK í Gullsmára 9 er opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 10- 11.30, s. 554 1226. Skrifstofan í Gjá- bakka er opin á miðvikudögum kl. 15- 16, s. 554 3438. Félagsvist í Gull- smára á mánud. kl. 20.30, í Gjábakka á miðvikud. kl. 13 og á föstud. kl. 20.30. Félag eldri borgara, Reykjavík | Bridds kl. 13, kaffitár kl. 13.30, línu- danskennsla kl. 18, samkvæmisdans byrjendur kl. 19, og framhald kl. 20. Fé- lagsfundur verður haldinn í Stangarhyl 4 laugard. 9. febr. kl. 14, kynntar verða tillögur um breytingar á lögum Félags eldri borgara í Reykjavík. Félagsheimilið Gjábakki | Handa- vinnustofan opin, leiðbeinandi verður til hádegis, gler- og postulínsmálun kl. 9.30 og kl. 13, lomber og canasta kl. 13.15, kóræfing kl. 17 og skapandi skrif kl. 20, bolludagskaffi. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleikfimi kl. 8, kvennaleikfimi kl. 9, 9.45 og 10.30, karlaleikfimi kl. 9.30, boccia kl. 10.30, gönguhópur frá Jóns- húsi kl. 11, glerskurðarklúbbur kl. 13, biblíulestur í Jónshúsi kl. 14, enginn aðgangseyrir. Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur opnar kl. 9-16.30, postulínsnámskeið kl. 10, sund og leikfimiæfingar í Breið- holtslaug kl. 9.50. Frá hádegi er spila- salur opinn, kóræfing kl. 14.20, dans- æfing kl. 10, uppl. á staðnum og í s. 575 7720. Garðaholt, samkomuhús | 55. fundur verður haldinn 5. febr. nk. og hefst stundvíslega kl. 20 – venjuleg aðal- fundarstörf. Miðar á galakvöld félags- ins verða seldir á fundinum. Kaffi- nefnd, hverfi 5, 6, 19 og 21, sem mætir kl. 19. Stjórnin. www.kvengb.is. Hraunbær 105 | Kaffi, spjall, blöðin kl. 9, opin handavinnustofa kl. 9-16.30. Útskurður kl. 9-12, bænastund kl. 10, hádegismatur, myndlist kl. 13-16, kaffi kl. 15. Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, ganga kl. 10, handmennt – gler kl. 10, Gaflarakór- inn kl. 10.30, handmennt – gler kl. 13, félagsvist kl. 13.30. Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl. 9-16 hjá Sigrúnu, jóga hjá Sóleyju Erlu, hádegisverður, frjáls spila- mennska kl. 13-16, bollukaffi. Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sporthús- inu, Dalsmára kl. 9.30. Hringdansar í Kópavogsskóla kl. 14.20. Upplýsingar í síma 564 1490. Korpúlfar, Grafarvogi | Á morgun, þriðjudag, er sundleikfimi í Graf- arvogssundlaug kl. 9.30. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morg- unkaffi og spjall kl. 9.30, sögustund kl. 10.30, handverks- og bókastofa kl. 13, kaffi kl. 14.30, söng- og samverustund kl. 15. Laugarból, íþr.hús Ármanns/Þróttar Laugardal | Leikfimi fyrir eldri borgara mánud. kl. 12, þriðjud. kl. 11 og fimm- tud. kl. 11. Leshópur FEBK, Gullsmára | Vigdís Grímsdóttir rithöfundur verður gestur leshóps FEBK í félagsheimilinu Gull- smára 13 þriðjudaginn 5. febr. kl. 20. Enginn aðgangseyrir. Norðurbrún 1 | Smíðastofan og handa- vinnustofa opnar kl. 9-16, boccia kl. 10, hárgreiðslustofa, sími 588 1288, fóta- aðgerðarstofa, sími 568 3838. Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höf- uðborgarsvæðinu | Brids kl. 19 í fé- lagsheimili Sjálfsbjargar á höfuðborg- arsvæðinu, Hátúni 12. Vesturgata 7 | Hárgreiðsla kl. 9.15- 15.30, handavinna og boccia kl. 9, leik- fimi kl. 11, hádegisverður kl. 11.45, kór- æfing kl. 13, kaffiveitingar kl. 14.30. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bókband, morgunstund, boccia, hand- mennt, upplestur framh.saga kl. 12.30, Sungið með Sigríði kl. 13.30, hár- greiðslu- og fótaaðgerðastofur opnar alla daga, frjáls spilamennska eftir há- degi. Þórðarsveigur 3 | Mánudagur: kl. 10 félagsráðgjafi (annan hvern mánu- dag), kl. 13 salurinn opinn, kl. 13.15 leik- fimi, kl. 14.45 boccia. Kirkjustarf Grafarvogskirkja | TTT fyrir börn 10- 12 ára í Grafarvogskirkju og Húsaskóla kl. 17-18. Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8.-10. bekk í Grafarvogskirkju kl. 20. Hallgrímskirkja | Kyrrðar- og bæna- stundir kl. 12.15 í umsjá Sigrúnar V. Ás- geirsdóttur. Laugarneskirkja | Fundur í safn- aðarheimili Laugarneskirkju kl. 20, hugsjón félagsins er að hlúa að starfi kirkjunnar. Nýjum konum er velkomið að bætast í vaxandi hóp kvenfélags- kvenna. Þorlákskirkja | Foreldramorgunn í bókasafni á þriðjudagsmorgun kl. 10 og 12. Það er mikið um kvikmynda- frumsýningar og verðlaunahátíðir hjá fræga og fína fólkinu í Holly- wood um þessar mundir. Mikið að gera á rauða dreglinum Reuters Gaman saman Eva Longoria Parker stillir sér upp með meðleik- urum sínum í mynd- inni Over Her Dead Body í Hollywood á dögunum. Frá vinstri; Lake Bell, Eva Lon- goria, Jason Biggs og Lindsay Sloane. Myndin var frumsýnd í Bandaríkjunum 1. febrúar. Kát Leikkonan Kate Hudson stillir sér upp á forsýningu myndarinnar Fool’s Gold í Kínverska leikhúsinu í Hollywood 30. janúar síðastliðinn. Auk hennar fara Matt- hew McConaughey og Donald Sutherland með aðalhlutverk í myndinni. Verðlaunuð Angelina Jol- ie og Brad Pitt mæta á Al- þjóðlegu kvikmyndahátíð- ina í Santa Barbara, Kaliforníu á laugardag- inn. Jolie fékk verðlaun fyrir besta leik ársins á hátíðinni fyrir hlutverk sitt í A Mighty Heart. Hress Clint Eastwood og kona hans Dina á Al- þjóðlegu kvikmyndahátíð- inni í Santa Barbara. Myndarlegt par Matthew McConaughey með unnustu sinni og verðandi barnsmóður Camillu Alves á frum- sýningu Fool’s Gold. Fjólublá Fernanda Romero á rauða dreglinum á forsýn- ingu nýjust myndar sinnar The Eye í Los Angeles. Sæt og fín Jessica Alba og Alessandro Nivola á forsýningu The Eye. CLUBVOICE er heiti nýrrar útvarpsstöðvar á Ak- ureyri. Hún er þó ekki send út þráðlaust heldur er hún aðeins send út á netinu. Einungis verður leikin danstónlist á stöðinni og segja aðstand- endur hennar að vantað hafi útvarpsstöð sem spili einungis þá tegund tónlistar. Útvarpsstöðin er hliðarverkefni útvarpsstöðv- arinnar VOICE 987, sem hefur verið í gangi á Akureyri á annað ár. Segir Árni Már Valmundarson, dagskrárstjóri VOICE 987, í tilkynningu, að það eina sem þurfi að hafa sé nettenging og tölva og þá sé hægt að hlusta hvar sem viðkomandi er staddur í heiminum. Einnig er hægt að hlusta á VOICE 987 á netinu, í bestu mögu- legu gæðum, allan sólarhringinn. Hægt er að hlusta á báðar stöðvarnar á www.voice.is. ClubVOICE fór í loftið sl. föstudag- kvöld. Netútvarpsstöð á Akureyri FRÉTTIR FORELDRAR langveikra eða alvarlega fatlaðra barna geta eftir nýliðin mánaðamót sótt um sérstakar greiðslur frá Trygg- ingastofnun samkvæmt lagabreytingu sem tók gildi 1. janúar sl. Um er að ræða nýjan bótaflokk hjá Tryggingastofnun og koma fyrstu greiðslur til framkvæmda 15. mars 2008. Foreldrar barna sem greinast eftir 1. október 2007 eiga rétt á greiðslum að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, skv. upplýsingum Trygg- ingastofnunar. Foreldrar barna sem greinast með svonefnd 1. eða 2. sjúk- dóms- eða fötlunarstig eiga rétt á almennri fjárhagsaðstoð, óháð því hvenær börn þeirra greindust, að ákveðnum skilyrðum upp- fylltum. Greinist barn aftur, eftir 1. okt. 2007, með alvarlegan eða langvinnan sjúkdóm eftir að hafa náð bata geta foreldrar átt rétt á greiðslum. TR hefur opnað upplýsingasíðu á netinu (tr.is) um þessi rétt- indi þar sem mögulegt er að leggja inn umsóknir. Aukinn réttur foreldra langveikra barna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.