Morgunblaðið - 04.02.2008, Síða 16
16 MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
BOLSHOI-
leikhúsið í
Moskvu verður
opnað að nýju í
nóvember árið
2009. Er það ári
síðar en áætlanir
gerðu ráð fyrir
eftir að drifið var í
að laga það til að
bjarga því frá
hruni. Þessu sögufræga húsi var lok-
að fyrir þremur árum vegna þess að
veggir voru farnir að molna og und-
irstaða þess hafði færst úr stað.
Verktakarnir frestuðu opn-
unardeginum eftir að þeir komust að
því að 75% af húsinu voru ótryggð, en
endurbótunum átti að ljúka síðar á
þessu ári.
„Við stefnum nú að því að opna 1.
nóvember á næsta ári með óperunni
Ruslan og Ljudmilu eftir Mikhail
Glinka,“ sagði Mikhail Shvydkoi, for-
maður menningarmála í Rússlandi.
Ítalska La Scala-strengjasveitin og
kór hafa einnig verið bókuð þann
mánuð.
Yfir 1.000 verkamenn hafa unnið
við bygginguna, sem er um 200 ára
gömul. „Þetta er söguleg bygging
sem er byggingarfræðilega mjög erf-
ið og því ganga endurbæturnar ekki
hraðar,“ sagði Shvydkoi um tafirnar.
Endurbygging hússins mun kosta
um 18 billjónir rúblna eða 370 millj-
ónir punda og er það ríkisstjórn
Rússlands sem greiðir.
Seinka
opnun
Bolshoi-leikhúsið í
Moskvu tekið í gegn
Bolshoi leikhúsið.
EINSTAKT safn
nútímalistar verð-
ur boðið upp í
næstu viku fyrir
Red, samtök sem
U2-stjarnan Bono
stofnaði til að
safna peningum
fyrir baráttuna
gegn alnæmi í
Afríku.
Uppboðið fer fram 14. febrúar í
Sothebys í New York og verða að-
allega í boði ný verk eftir um sextíu
listamenn, m.a. Jasper Johns, Jeff
Koons, Tracey Emin og Anthony
Gormley. Vonast er til að uppboðið
skili um 28 milljónum dollara í sjóð-
inn. Uppboðið hefur verið skipulagt
af Bono og listamanninum Damien
Hirst sem hefur gefið sjö verk til
þess, m.a. sjúkraskáp fullan af pillum
titlað Where There’s a Will, There’s a
Way. Það verk eitt er metið á um sex
milljónir dollara. Bono nefndi hug-
myndina að uppboðinu fyrst við Hirst
fyrir tveimur árum þegar þeir voru í
fríi saman í Suður-Frakklandi.
Margir listamannanna gerðu verk
sérstaklega fyrir uppboðið með þem-
að rautt og ást í huga. Rauður er því
yfirgnæfandi litur á verkunum 72
sem boðin verða upp.
List til góð-
gerðamála
Bono
TRÍÓ Lurra heldur tónleika í
kvöld í Salnum í Kópavogi.
Tríóið var stofnað í Amst-
erdam 2004 og er skipað þeim
Ainoa Miranda á bassaklarin-
ett, Melkorku Ólafsdóttur
flautuleikara og Helenu Basi-
lova píanóleikara. Þær kláruðu
allar mastersgráður með
hæstu einkunn frá Kons-
ervatoríinu í Amsterdam.
Þær munu flytja verk eftir
Atla Ingólfsson, Piet Ketting, Hróðmar Inga Sig-
urbjörnsson, Ton de Leeuw, Daníel Bjarnason og
Carlos Sánchez-Gutiérrez. Þetta eru fyrstu tón-
leikar tríósins hér á landi, eru þeir liður í Myrkum
músíkdögum og hefjast kl. 20.
Tónlist
Tríó Lurra leikur
í Salnum
Melkorka
Ólafsdóttir
Á MORGUN, þriðjudaginn 5.
febrúar, flytur Anna Lísa Guð-
mundsdóttir, deildarstjóri
fornleifadeildar Minjasafns
Reykjavíkur, fyrirlestur á
Landnámssýningunni í Að-
alstræti 16. Fyrirlesturinn
nefnist: Hvar er að finna forn-
leifar í Kvosinni? Væntanlegar
rannsóknir.
Fjallað verður um hvar enn
gætu leynst fornleifar í jörðu,
allt frá landnámsminjum til tuttugustu aldar
minja. Einnig verður vikið að því hvað heimildir
segja okkur um Reykjavík á síðmiðöldum og
fjallað um yngri minjar á svæðinu.
Fyrirlesturinn hefst kl. 17.
Fyrirlestur
Rætt um fornleifar
í Kvosinni
Séð yfir Reykjavík.
Í HÁDEGINU í dag verða tón-
leikar með DuoPlus í Norræna
húsinu.
DuoPlus skipa þau Ingólfur
Vilhjálmsson klarinettleikari
og Andrea Kiefer harmónikku-
leikari. DuoPlus var stofnað
árið 2005 í Köln. Dúóið spilar
samtímatónlist fyrir harm-
ónikku og klarinett/bassaklar-
inett.
Á tónleikunum munu þau
m.a. frumflytja þrjú ný verk eftir Einar Torfa
Einarsson, Inga Garðar Erlendsson og Maiju
Hynninen auk þess sem íslenskur frumflutningur
verður á nokkrum verkum.
Tónleikarnir hefjast kl. 12.15.
Tónlist
Duo Plus í Nor-
ræna húsinu
Ingólfur
Vilhjálmsson
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
BÚSLÓÐ Kristleifs Björnssonar
myndlistarmanns fór í gám í vik-
unni. Sjálfur flýgur hann af landi
brott í dag og sest að í Berlín. Hann
þekkir vel til í Þýskalandi, nam í
Leipzig og útskrifaðist árið 2003.
Kristleifur hefur einkum unnið með
ljósmyndamiðilinn en leitar jafn-
framt í aðra miðla, eins og vegg-
spjaldið með teikningu af skúlptúr
úr Legókubbum á veggnum í yf-
irgefinni vinnustofunni í Skipholti
ber vitni um.
Kristleifur hefur ekki verið áber-
andi í myndlistarlífinu á Íslandi, og
vill það ekki og biðst undan mynda-
töku. Verk hans hafa hinsvegar
verið sjáanleg í söfnum og gall-
eríum víða um Evrópu á síðustu
misserum.
„Það seinasta sem sást eftir mig
á Íslandi var í Listasafni ASÍ árið
2005,“ segir hann. Það var sýningin
„Mindi, indverska blómið mitt,“
flennistórar myndir af indvers-
kættuðu leikkonunni Parminder
Nagra.
Meðal stórmeistara
í Tate Modern
Í mars er Kristleifur meðal sýn-
enda hjá Stalke galleríinu í Kaup-
mannahöfn sem er það gallerí sem
hann hefur unnið nánast með. Í maí
er Kristleifur svo meðal þátttak-
enda á stórri yfirlitssýningu í must-
eri nútímalistarinnar í Bretlandi,
Tate Modern.
„Ég verð með tvö verk úr verka-
röðinni My girls. Annað þeirra
sýndi ég í Ásmundasal, hitt er
eldra, úr My girlfriend Natalie.“
Um er að ræða stóra sýningu
sem nefnist Street & Studio: An
Urban History of Photography. Í
upplýsingum frá safninu kemur
fram að yfir 350 áhrifamiklum
verkum, eftir alþjóðlegt úrval lista-
manna, sé safnað þar saman. Meðal
listamannanna eru Henri Cartier-
Bresson, Robert Mapplethorpe,
August Sander og Cindy Sherman.
„Þetta eru verk í borgarsam-
hengi. Mín verk eru í síðasta hluta
sýningarinnar,“ segir Kristleifur. Í
haust verður sýningin sett upp í
Folkvang Museum í Essen.
Í fyrrasumar sýndi hann í Foto-
museum Winterthur í Sviss og í
sumar verður sýning í Skaftfelli á
Seyðisfirði.
Góður galleristi sér um hitt
Ljósmyndaröð af íslenskum
fjallshlíðum sem verður sýnd á
Seyðisfirði, segir hann ekki vera
neinar glansmyndir. „Þetta er heið-
arlegt landslag, það kemur til dyr-
anna eins og það er.“
Kristleifur vinnur mikið í mynd-
röðum. „Hjá mér gengur vinnan
fyrst og fremst út á að búa til verk.
Þetta er bara heiðarleg vinna. Ég
legg minna upp úr sýningunum en
því að búa til verkin.
Mér finnst þetta að miklu leyti
komið þegar verkin eru komin í
kassann. Þá lýkur mínu hlutverki
að mestu. Svo þarf góður galleristi
að sjá um hitt.“
Heiðarleg vinna
að búa til listaverk
Ljósmynd/Árni Torfason
Indverska blómið Frá sýningu Kristleifs Björnssonar í Ásmundarsal árið 2005. Eitt verkanna af indversku leik-
konunni Parminder Nagra verður á sýningunni í Tate Modern.
Kristleifur Björnsson á ljósmyndaverk á yfirlitssýningu í Tate Modern í vor
FEBRÚAR er leikhúsmánuður unga
fólksins í Þjóðleikhúsinu og Borg-
arleikhúsinu. Að baki hugmyndinni
býr sú sannfæring að leikhúsið eigi
brýnt erindi við fólk á öllum aldri og
einnig að það sé leikhúsunum nauð-
synlegt að eiga samtal við ungt fólk
og efla leikhúsaðsókn meðal yngri
áhorfenda. Leikhúsin munu af þessu
tilefni leggja áherslu á að kynna dag-
skrá sína og starf fyrir ungu fólki og
auka framboð á viðburðum sem geta
höfðað sérstaklega til þess.
Hin árlega örleikritunarsamkeppni
framhaldsskólanema fer fram í febr-
úar og verða úrslit hennar kunngjörð
á Stóra sviði Þjóðleikhússins 1. mars.
Þetta er fimmta árið sem sam-
keppnin er haldin og nýtur hún sívax-
andi vinsælda. Samkeppnin er í sam-
starfi við Listaháskóla Íslands.
Þjóðleikhúsið býður upp á sérstaka
dagskrá fyrir ungt fólk, auk þess að
bjóða ungu fólki hagstætt miðaverð í
febrúarmánuði. En fólk á aldrinum
15-25 ára getur pantað miða og valið
sér sæti á allar sýningar Þjóðleik-
hússins fyrir 1.500 kr. Í tengslum við
Vetrarhátíð í Reykjavík verður ungu
fóki einnig boðið endurgjaldslaust á
leiksýninguna norway.today, hinn 8.
febrúar.
Leikhúsmánuður
unga fólksins
Boðssýning Í tilefni þess að febrúar er leikhúsmánuður unga fólksins býð-
ur Þjóðleikhúsið á leiksýninguna Norway.today þann 8. febrúar.
♦♦♦
12.15 Norræna húsið
DuoPlus Ingólfur Vilhjálms-
son klarinettuleikari og Andrea
Carola Kiefer harmónikkuleik-
ari frumflytja verk fyrir harm-
ónikku og klarinettu.
20.00 Salurinn
Trio Lurra Ainoa Miranda
bassaklarinettuleikari, Mel-
korka Ólafsdóttir flautuleikari
og Helena Basilova píanóleikari
frumflytja verk eftir Daníel
Bjarnason og Atla Ingólfsson og
leika fleiri verk.
Myrkir
músíkdagar
Í DAG: