Morgunblaðið - 04.02.2008, Síða 36
36 MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
DEATH AT A FUNERAL kl. 6 - 8 - 10:10 B.i.7 ára
THE GAME PLAN kl. 5:40 LEYFÐ
NATIONAL TREASURE 2 kl. 8 B.i.12 ára
I AM LEGEND kl. 10:30 B.i.14 ára
SWEENEY TODD kl. 5:40D - 8D - 10:30D B.i.16 ára DIGITAL
UNTRACEABLE kl. 8:20 - 10:30 B.i.16 ára
CLOVERFIELD kl. 8:30 - 10:30 B.i.14 ára
MICHAEL CLAYTON kl. 6:10 B.i.7 ára
TÖFRAPRINSESSAN m/ísl tali kl. 6:10 LEYFÐ
SWEENEY TODD kl. 5:30D - 8D - 10:30D B.i.16 ára DIGITAL
SWEENEY TODD kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16 ára LÚXUS VIP
UNTRACEABLE kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.16 ára
CHARLIE WILSON'S WAR kl. 5:50 - 8 - 10:30 B.i.12 ára
SIGURVEGARI
JOHNNY DEPP
BESTI LEIKARI
GOLDEN GLOBE®
SÖNGLEIKUR/
GAMANMYND
BESTA MYND
SÝND Í ÁLFABAKKA
DWAYNE „THE ROCK“ JOHNSON
eee
- S.V, MBL
O S C A R
®
T I L N E F N I N G A R
ÞAR Á MEÐAL3BESTI LEIKARI - JOHNNY DEPP
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
DIANE LANE Í ÓVÆNTASTA
SÁLFRÆÐITRYLLI ÁRSINS.
HVERNIG FINNURÐU
RAÐMORÐINGJA SEM SKILUR
EKKI EFTIR SIG NEINA SLÓÐ?
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG KEFLAVÍKSÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSI
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
MYNDDISKAR»
Eftir Sæbjörn Valdimarsson
saebjorn@heimsnet.is
HEATH Ledger, hinn fjölhæfi, ástr-
alski leikari, fannst látinn fyrir
skemmstu á heimili sínu á Manhattan,
hans hefur verið minnst í blaðinu og
óþarft að fara fleiri orðum um þann
sorglega atburð. Hann féll frá aðeins
28 ára og hefur ungur aldur hans
komið mörgum á óvart. Bæði var leik-
arinn fullorðinslegur og þroskaður og
enn frekar hafði maður á tilfinning-
unni að hann hefði verið að miklum
mun lengur í sviðsljósinu. Ledger var
kappsamur og metnaðarfullur, eilíf-
lega að berjast við að vera tekinn al-
varlega og losna úr rammanum sem
töffaralegt útlitið markaði honum.
Þrátt fyrir ungan aldur hafði hann
leikið í einum 20 myndum og fáeinum
sjónvarpsþáttum. Fyrsta hlutverkið
féll Perth-búanum í skaut aðeins 13
ára gömlum, það kveikti bál sem varð
til þess að hann hélt til Sydney rétt 17
ára. Hann einblíndi á leiklistina og
með mikilli þrautseigju fór hann að
krækja í betri hlutverk. Hér á eftir
verður rennt yfir helstu verkin hans
sem fáanleg eru hérlendis.
Frægðin lét á sér standa, Ledger
hélt vestur um haf þar sem landi
hans, George Jordan, réð hann í
fyrsta umtalsverða hlutverkið, í
glæpagrínmyndinni Two Hands (’99).
Myndin kom út hérlendis og er finn-
anleg ef vel er leitað. Ledger leikur
smábæjarstrák sem vill komast áfram
með illu ef ekki góðu. The Patriot (’00) er vond mynd úr
Þrælastríðinu, með Mel Gibson í tit-
ilhlutverkinu. Hún gerði lítið gagn,
íburðarmikil en innantóm.
A Knight’s Tale (’01) farnaðist bet-
ur. Ledger leikur sjálfskipaðan ridd-
ara og burtreiðarkempu í brokk-
gengri en vinsælli mynd þar sem gert
er pythonskt grín að riddarasögnum
miðalda. Monster’s Ball (’02) Ledger fer vel
með lítið en áhrifaríkt hlutverk sonar
Billys Bobs Thorntons. Þeir eru kúg-
aðir afkomendur kynþáttahatarans
Peters Boyles og búa undir þaki hans
í Suðurríkjunum. Ned Kelly (’03) Fjallbrött af-
þreying um Hróa hött andfætlinga
okkar og Ledger í banastuði í
„stralla“-legri mynd. The Brothers Grimm (’05). Matt
Damon og Ledger leika Grimms-
bræður undir lipurri stjórn Terrys
Gilliams. Þeir eru ekki einvörðungu
sagnaritarar, heldur fyrst og fremst
svindlarar sem hafa lifibrauð sitt af
því að hrekkja hjátrúarfullt lands-
byggðarfólk. Brokeback Mountain (’05) Hinn
bláeygði og karlmannlegi Ledger er
tvímælalaust þekktastur fyrir hlut-
verk tvíkynhneigðs smala í ósk-
arsverðlaunamynd, óvenju opinskárri
og tilfinningaþrunginni, þar sem tog-
ast á hatur og hlýja. Casanova (’06) Ledger sýnir við-
unandi andstæðu kúrekans í Broke-
back Mountain, að ekki sé talað um
hinn óþekkjanlega Jacob Grimm. Nú
skimar hann um sviðið sem hinn fág-
aði aðalsmaður miðalda og gerir hlut-
verkinu tilhlýðileg kómísk skil.
m
Ledger-myndir á leigum
Reuters
Kúrekar Heath Ledger, t.v. ásamt Jake Gyllenhaal í Brokeback Mountain.
NÚNA, þegar tökur eru í und-
irbúningi á nýjustu kvikmyndagerð
Fýkur yfir hæðir, er vel viðeigandi
að markaðssetja nýja útgáfu Jane
Eyre, annarar frægrar bókar eftir
Charlotte Bronte. Sígild saga af
staðfastri stúlku sem elst upp við
sult og seyru og ástleysi hjá vond-
um frænkum og síðar á mun-
aðarleysingjahæli. Hagur Jane
vænkast þegar hún er ráðin sem
kennslukona hjá Rochester (Steph-
ens), auðugum aðalsmanni sem fel-
ur hrikalegan leyndardóm innan
veggja síns reisulega herragarðs.
Hádramatísk saga af ást í meinum,
ógæfu og gleðilegum umskiptum
sem skilja við áhorfandann sáttan
og sælan þrátt fyrir óhóflega lengd,
en myndin er þáttaröð („minisería“)
frá BBC, gerð fyrir þarfir sjón-
varpsins. Wilson er sterk og trú-
verðug Jane, Stephens er eins og
sukkaður rótari hjá ACDC. Engu
að síður frábær afþreying, einkum
fyrir konur, skrifuð, leikstýrt og
borin uppi af kvenfólki. Vönduð að
allri gerð eins og vænta má úr
þessari átt.
Ólíklegir bjargvættir
Mynddiskur
Drama
England 2006. Myndform 2007. 230
mín. (2 x 115 mín.) Ekki við hæfi yngri
en 14 ára. Leikstjóri: Susanna White. Að-
alleikarar: Ruth Wilson, Toby Stephens.
Jane Eyre Sæbjörn Valdimarsson
ÞESSI sögufrægi vestri á öruggt
pláss í minningabankanum. Harris
leikur breskan aðalsmann og heims-
hornaflæking sem finnur sjálfan sig
þegar hann er tekinn til fanga af Sio-
ux-indjánum í villta vestrinu. Eftir
kvalafulla pyntingarathöfn, þar sem
hann sannar manndóm sinn og karl-
mennsku í ógnvænlegri eldskírn, er
hann tekinn góður og gildur inn í
ættbálkinn. Myndin fer samvisku-
samlega með sagnfræðina hvað
snertir málfar, lífshætti og trúarsiði
og Harris er staffírugur með sitt
gullna lokkaflóð um herðar niður.
Jafnan nýrakaður. Ein vinsælasta
mynd stórleikarans og fylgdu tvær
framhaldsmyndir í kjölfarið. Svip-
mikil með fallegri tónlist og töku-
stöðum.
Maðurinn sem var kallaður Hross
Mynddiskur
Vestri
Bandaríkin 1970. Sam myndir 2007.
111 mín. Ekki við hæfi yngri en 12 ára.
Íslenskur texti. Leikstjóri: Elliot Silver-
stein. Aðalleikarar: Richard Harris, Dame
Judith Anderson.
A Man Called Horse Sæbjörn Valdimarsson
Hross Svipmikill vestri með fallegri tónlist og tökustöðum.
LÁTIÐ ekki vinalegt hundsnafnið á
myndinni blekkja ykkur, því á ferð-
inni er uppvakningasatíra í anda
Shaun of the Dead og annarra slíkra
en hófstilltari. Umhverfið er friðsælt
bæjarfélag í Bandaríkjunum á 6.
áratugnum. Íbúarnir búa vel, eiga
falleg heimili, vel kembd börn og
hafa örugga atvinnu. Það hefur geis-
að stríð milli borgaranna og upp-
vakninga og því lokið á farsælan hátt
fyrir mannkynið: Uppvakningarnir
endurhæfðir, gerðir hættulausir og
látnir sinna einföldum störfum úti í
þjóðfélaginu. M.a. við garðslátt, rus-
latínslu og húshjálp og þar kemur
Fídó (Connally) til sögunnar. Hann
er ráðinn sem snatt-sombí hjá Helen
(Moss) og Bill (Baker), og tekst mik-
il vinátta með honum og Timmy
(Ray), ungum syni þeirra hjóna.
Ekki jafn groddafyndin og Shaun,
en þeim mun ísmeygilegri, skopið
felst ekki síst í að gera sem mest úr
andstæðunum, litadýrð og fágun
ytra borðs fyrirmyndarsamfélagsins
og á hinn bóginn vafasömum gjörð-
um þess og ómennsku broddborg-
aranna á bak við vammlaus tjöldin.
Hins vegar reynast hinar end-
urhæfðu mannakjötsætur drengir
góðir, svona yfir höfuð. Frábært
leikaraval hjálpar myndinni svo úr
verður meinfyndin og harla óvenju-
leg skemmtun.
Endurhæfðir upp-
vakningar á sveimi
Mynddiskur
Gamanmynd
Bandaríkin 2007. Myndform 2008. 88
mín. Ekki við hæfi yngri en 12 ára. Ís-
lenskur texti. Leikstjóri: Andrew Currie.
Aðalleikarar: Carrie-Anne Moss, Billy
Connally, Tim Blake Nelson.
Fido Sæbjörn Valdimarsson
Fido „Umhverfið er friðsælt bæjarfélag í Bandaríkjunum á 6. áratugnum.“