Morgunblaðið - 04.02.2008, Síða 6
6 MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
UMFERÐARSTOFA hefur hrint af stað aug-
lýsingaherferð gegn slysavaldi sem felst í að
sofna undir stýri og nefnist herferðin einfald-
lega „15“ en með því er vísað til þess að ekki
þarf nema 15 mínútna svefn til að koma í veg
fyrir slys af völdum þessa. Sérstök heimasíða
www.15.is hefur verið opnuð í tilefni átaksins.
Samkvæmt upplýsingum Umferðarstofu
urðu 10 banaslys á árunum 1998-2006 af völd-
um þess að ökumaður sofnaði undir stýri og í
þeim létust 16 manns. Í þessum tilfellum leiddi
rannsókn það í ljós að aðalorsök slyssins var
sú að ökumaður sofnaði við akstur. Þessu til
viðbótar voru 11 banaslys í umferðinni á sama
tímabili þar sem svefn og þreyta voru orsaka-
valdar ásamt öðrum þáttum. Í þeim slysum
létust 11 manns.
Kæfisvefninn hrjáir þúsundir manna
Á málþingi Umferðarstofu síðastliðinn
fimmtudag var fjallað um syfju og akstur en
þar hélt Gunnar Guðmundsson lungnalæknir
erindi um helstu orsakir syfju og hvernig
greina má og meðhöndla sjúkdóma sem valda
syfju. Að sögn hans eru ýmsar ástæður fyrir
dagsyfju sem getur komið illilega niður á
hæfni fólks til að keyra bíl
með ófyrirséðum afleiðing-
um. Einn þessara sjúkdóma
er kæfisvefn sem talið er
3-4 þúsund konur þjáist af
og um tvöfalt fleiri karlar.
„Það eru einnig fleiri sjúk-
dómar sem trufla svefninn,
s.s. fótaóeirð sem lýsir sér í
því að fólk finnur sig knúið
til að hreyfa fæturna. Oft
finnur fólk fyrir þessu á
kvöldin en einnig á nóttunni og þá finnur sof-
andi fólk ekki endilega fyrir óþægindunum, en
hins vegar skynjar líkaminn þau með því að
grynna svefninn,“ segir hann. Hægt er að taka
á þessu með verkjalyfjum en einnig er fyrir
hendi lyfjameðferð og þá bendir Gunnar á að
hugsanlega gæti járnskortur valdið fótaóeirð.
„En að þessu frátöldu er margt í nútíma-
þjóðfélagi sem veldur því að fólk hreinlega sef-
ur of lítið. Langflestir þurfa 7-8 tíma svefn en
svo virðist sem margir gefi sér ekki tíma til
þess að unna sér nauðsynlegrar hvíldar. Einn-
ig getur hávaði af ýmsum ástæðum truflað
svefninn.“
Svefngæðin þurfa að vera nægileg
Gunnar segir að verkir af ýmsum toga, eða
lyf vegna annarra óskyldra sjúkdóma geti
einnig truflað nætursvefn hjá fólki. Hann
bendir á að í raun sé ekki nóg að sofa nógu
lengi heldur þarf svefninn að vera nægilega
góður. „Það þarf að vera rétt uppbygging á
öllum svefnskeiðunum til að fólk hvílist rétt.
Svefntími er eitt og svefngæði annað.“
Þótt fólk sé illa sofið bitnar það ekki endi-
lega á daglegum störfum en dagsyfjan getur
hellst yfir fólk þegar það sest undir stýri að
sögn Gunnars. „Rannsóknir sýna að tvö tíma-
bil sólarhringsins eru hættulegust gagnvart
syfju ökumanna; það er á nóttunni og síðan
um eftirmiðdaginn þegar fólk er að aka heim
úr vinnunni. Gjarnan kemur syfjan fram þegar
lítil umferð er því við þær aðstæður er á vissan
hátt minni þörf á einbeitingu ökumanna.“
Gunnar segir mikilvægt að fólk tileinki sér
reglulegan svefn, fari alltaf að sofa á sama
tíma á kvöldin og forðist hávaða og annað sem
getur truflað svefninn.
Talið er að um þriðjungur fullorðins fólks
finni fyrir dagsyfju þegar litið er yfir eina viku
í senn og telst kæfisvefninn þar skæður or-
sakavaldur.
„Tveir þriðju sjúklinga með kæfisvefn eru
of þungir og þeim er því ráðlagt að megra sig
og auka hreyfingu. Einnig henta sérstakir bit-
gómar sumum en þeir eru smíðaðir úr silíkon-
efni og gera það að verkum að neðri kjálkinn
færist framar og auðveldar öndun. Þá hafa
loftdælur reynst góðar en þar er um að ræða
rafknúnar dælur sem flytja loft í gegnum nefið
og fyrirbyggja að kokið leggist saman. Í sum-
um tilvikum getur einnig gagnast að gera að-
gerð á nefi ef nefgöngin eru þröng.“
Gunnar ráðleggur ökumönnum sem finna
fyrir syfju í akstri að nema staðar og leggja
bílnum þar sem hann veldur ekki annarri um-
ferð hættu. „Ökumenn ættu því næst að leggja
sig í 15 mínútur en það má mæla með ýmsum
ráðum eins og þeim að keyra með opinn
glugga eða borða undir stýri ef syfjan hellist
yfir fólk. En þetta er ekki raunveruleg hvíld.
Ef fólk lendir ítrekað í óhöppum eða er nærri
óhöppum vegna þreytu undir stýri þarf það að
skoða hvað gæti truflað eðlilegan nætursvefn
og leita læknis til að fá viðeigandi meðferð.“
Gunnar er ekki þeirrar skoðunar að taka
eigi ökuskírteini af þeim sem eru með kæfi-
svefn. Ráðlegra væri að gera ráðstafanir til að
stytta biðlista eftir tækjum en 150 manns eru
nú á biðlista. Ennfremur varpar hann þeirri
hugmynd fram hvort við endurnýjun ökuskír-
teinis ætti að hafa spurningalista um kæfi-
svefn og jafnframt telur hann að gagnlegt
væri að atvinnubílstjórar færu í svefnrann-
sóknir.
Dauðans alvara að sofna undir stýri
Gunnar
Guðmundsson.
STYTTAN af Gísla Halldórssyni,
fyrrverandi forseta Íþrótta-
sambands Íslands, verður færð til í
Laugardalnum og sett við hliðina á
Laugardalshöllinni.
Stefán S. Konráðsson, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri ÍSÍ, segir
að málið hafi verið lengi í deiglunni
og ánægjulegt sé að heyra að borg-
arráð hafi samþykkt breytinguna.
Gísli Halldórsson hafi byggt upp
Laugardalinn, en staðsetning stytt-
unnar geri það að verkum að fáir
sjái hana. Á nýjum stað verði hún
hins vegar fyrir allra augum.
Gísli Halldórsson þakkar Stefáni
fyrir að hafa beitt sér í málinu og er
ánægður með ákvörðun borg-
arráðs. „Það er ágætt að heyra
þetta,“ segir hann.
Ávakur/Ómar
Dalurinn Styttan af Gísla Halldórssyni er skammt frá þjóðarleikvanginum í Laugardal.
Styttan af
Gísla Hall-
dórssyni
færð til
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
UNGLINGAFERÐIR og ömmu- og afaferð eru meðal
þeirra nýjunga sem má finna í ferðaáætlun Ferðafélags
Íslands (FÍ) fyrir árið 2008 sem kom út fyrir skemmstu.
Jafnframt er aukin áhersla lögð á dagsferðir og boðið er
upp á girnilegar matar-, sögu- og menningarferðir. Þar
að auki mun FÍ bjóða upp á fjallgöngur á brattari og tor-
sóttari tinda en oftast áður.
Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri FÍ, segir að til-
gangurinn með ömmu- og afaferðinni sé að gefa ömmum
og öfum tækifæri til að njóta náttúrunnar með barna-
börnunum. Gengið er eftir Laugaveginum, milli Land-
mannalauga og Þórsmerkur, á fjórum dögum og farang-
urinn ferjaður á milli skála.
Meðal annarra nýjunga eru unglingaferðirnar en FÍ
hefur undanfarið lagt mikla áherslu á að ná til unglinga,
m.a. með því að kynna fjallamennsku í skólum. Að sögn
Páls njóta börn og unglingar sérkjara við inngöngu í FÍ
(árgjaldið er 1.500 krónur) og boðið er upp á sérstaka
dagskrá og ferðir fyrir þau. Þá hefur FÍ staðið að ung-
lingaferðum í samvinnu við skóla og auk þess lagt til bún-
að og útvegað unglingunum afslátt af útivistarfatnaði.
Meðal þeirra tinda sem ferðafélagsmenn ætla að klífa
á árinu eru Kirkjufell, Helgrindur og Hrútsfjallstindar
en þetta eru brattari fjöll en eru alla jafna í ferðaáætlun
félagsins. Páll segir að FÍ hafi fundið fyrir auknum
áhuga félagsmanna á krefjandi fjallgöngum og við því sé
verið að bregðast. Hann tekur þó fram að ekki sé um klif-
urleiðangra að ræða og þeim sem hafa áhuga á slíku sé
m.a. bent á Íslenska alpaklúbbinn.
Mikil áhersla er lögð á öryggi í ferðum FÍ og í ferð-
unum er algjör óþarfi að láta óttann ná tökum á sér. Það
er þó ekki ólíklegt að einhverjir verði æði smeykir í
draugaferð sem farin verður í Hvítárnes í september. Í
Hvítarnesi stendur elsti skáli FÍ og að sögn Páls hafa
margir sem þar hafa gist orðið varir við reimleika.
Draugagangurinn mun stafa af konu sem þar bjó fyrir
margt löngu. „Maðurinn hennar yfirgaf hana og hún fyr-
irfór sér í bæjarlæknum sem rennur þarna við skálann.
Skáli Ferðafélagsins var byggður mitt á milli rústanna af
bæjarhúsunum og gönguleiðar hennar í lækinn. Og það
er talið að hún sé að ganga þarna um á leið sinni í lækinn
og hún sé meira eða minna í skálanum. Það hafa mjög
margir orðið varir við hana og hún heldur til í sérstakri
koju sem er kölluð draugakoja,“ segir Páll.
Kynslóðabilið brúað í
gönguferðum um landið
Árvakur/RAX
Lokkandi Kirkjufell er ekki hátt en lögun þess og stað-
setning gerir það ómótstæðilegt fyrir fjallgöngumenn.
EFTIR mikið kuldakast síðustu
daga hlýnaði í veðri á sunnanverðu
landinu í gær og margir landsmenn
notfærðu sér bjart og fallegt veðrið
til að ganga sér til heilsubótar. Útlit
er fyrir áframhaldandi bjartviðri á
Suðurlandi og suðvesturhorninu í
dag.
Veðurstofan spáir norðanátt, 10-
15 metrum á sekúndu, á höfuðborg-
arsvæðinu í dag og líkur eru á snjó-
komu öðru hverju síðdegis. Spáð er
0-5 stiga frosti. Lítilsháttar snjó-
koma verður norðan- og austantil í
dag.
Suðvestanáttir verða ríkjandi
næstu daga með éljum vestantil á
landinu, en á föstudag er útlit fyrir
skammvinna, hvassa sunnanátt með
rigningu víða um land og hlýindum.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Bjartur sunnudagur Ragnhildur Jónsdóttir fylgist með hundinum Fókus
elta snjóbolta á Fagradalsheiði í Mýrdal í björtu og fallegu veðri í gær.
Útlit fyrir hlýindi