Morgunblaðið - 04.02.2008, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2008 15
ERLENT
Belgrad. AP. | Bor-
is Tadic var end-
urkjörinn forseti
Serbíu í gær með
naumum sigri á
þjóðernissinnan-
um Tomislav
Nikolic.
Yfirkjörstjórn
Serbíu og óháðir
eftirlitsmenn
sögðu að Tadic
hefði fengið 51% atkvæðanna og
Nikolic 47%.
Nikolic játaði sig sigraðan. Stuðn-
ingsmenn Tadic fögnuðu úrslitunum
í miðborg Belgrad og héldu á fánum
Serbíu og Evrópusambandsins.
Tadic er hlynntur því að Serbía
gangi í Evrópusambandið en Nikolic
vill nánara samstarf við Rússland.
Báðir eru þeir andvígir því að Kos-
ovo fái sjálfstæði. Tadic hefur þó
sagt að ekki komi til greina að beita
hervaldi vegna deilunnar og líklegt
er að hann reyni að halda nánum
tengslum við Evrópusambandið þótt
það styðji sjálfstæði Kosovo.
Tadic sigr-
aði í Serbíu
Boris Tadic
Randi Mohr skrifar
frá Færeyjum
FÆREYJAR stefna nú aftur að
aukinni sjálfstjórn eftir að þrír
flokkar – Jafnaðarflokkurinn, Þjóð-
veldisflokkurinn og Miðflokkurinn –
náðu samkomulagi á laugardag um
myndun nýrrar landstjórnar.
Þessir þrír flokkar hafa aldrei áð-
ur myndað stjórn saman og eru allir
vinstrisinnaðri en þeir flokkar sem
fara nú úr landstjórninni eftir kosn-
ingar til lögþingsins fyrir rúmum
hálfum mánuði. Auk sjálfstjórn-
armálanna verður því meiri áhersla
lögð á félagsmál en áður.
Nýja landstjórnin verður undir
forystu Jóannes Eidesgaard, leið-
toga jafnaðarmanna.
Fjárframlög Dana minnki
Það var einkum Þjóðveldisflokk-
urinn, undir forystu Høgna Hoydal,
sem beitti sér fyrir því að stefnt yrði
að aukinni sjálf-
stjórn. Flokk-
arnir náðu sam-
komulagi um að
árlegt fjár-
framlag Dan-
merkur til Fær-
eyja, sem nemur
nú 615 milljónum
danskra króna,
tæpum átta millj-
örðum íslenskra,
yrði lækkað á næstu fjórum árum
um 117 milljónir danskra króna, 1,5
milljarða íslenskra.
Til lengri tíma litið er síðan stefnt
að því að efnahagur Færeyja verði
sjálfbær. Gert er ráð fyrir því að
fjárframlag Danmerkur minnki um
50 milljónir danskra króna (650
millj. ísl.) til viðbótar með því að
færa fleiri málaflokka frá dönsku
stjórninni til færeysku landstjórn-
arinnar.
„Þegar allt er lagt saman eiga
fjárframlögin frá Danmörku að
minnka um 160 milljónir króna
næstu fjögur árin,“ sagði Hoydal.
Í stjórnarsáttmálanum er gert ráð
fyrir því að tillaga um færeyska
stjórnarskrá verði borin undir þjóð-
aratkvæði í Færeyjum árið 2010.
Ennfremur er stefnt að því að stofna
færeyskt utanríkisráðuneyti og bú-
ist er við að Hoydal verði fyrsti „ut-
anríkisráðherra“ Færeyja.
Hoydal segir að landstjórnin
stefni að því að Færeyjar fái aðild að
EFTA og Evrópska efnahagssvæð-
inu (EES).
Stjórnarskrá leiðir ekki
sjálfkrafa til sjálfstæðis
Fulltrúar allra stjórnmálaflokka
Færeyja hafa nú þegar lagt mikla
vinnu í færeyska stjórnarskrá og í
stjórnarsáttmálanum er gert ráð
fyrir því að viðræðunum verði haldið
áfram. Gert er ráð fyrir því að
stjórnarskrártillagan verði borin
undir þjóðaratkvæði eftir að fær-
eyska lögþingið samþykkir hana.
Høgni Hoydal segir að verði
stjórnarskráin samþykkt í þjóð-
aratkvæðagreiðslunni leiði það ekki
sjálfkrafa til sjálfstæðis Færeyja og
aðskilnaðar frá Danmörku.
Stefnt að aukinni sjálfstjórn
Ný landstjórn Færeyja boðar þjóðaratkvæðagreiðslu um færeyska stjórnarskrá
og gert er ráð fyrir því að Hoydal verði fyrsti „utanríkisráðherra“ eyjanna
Í HNOTSKURN
» Nýja landstjórnin hyggstleggja meiri áherslu á um-
hverfismál en fyrri stjórn.
» Í stjórnarsáttmálanum segirað ekki verði hægt að kaupa
og selja réttinn til að nýta sjáv-
arauðlindir Færeyja.
» Stjórnin boðar aukna aðstoðvið einstæða foreldra og elli-
lífeyrisþega sem eiga ekki rétt á
greiðslum úr lífeyrissjóðum. Fé-
lagslegum íbúðum verður fjölg-
að, en þær eru nú mjög fáar.
Høgni Hoydal
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
NÝJAR skoðanakannanir benda til
þess að Barack Obama hafi saxað á
forskot Hillary Clinton og ekki sé
marktækur munur á fylgi þeirra fyr-
ir forkosningar demókrata í 22 sam-
bandsríkjum Bandaríkjanna á morg-
un.
John McCain hefur hins vegar náð
miklu forskoti á helsta keppinaut
sinn, Mitt Romney, í forkosningum
repúblikana. Kosið verður í 21 ríki á
morgun í forkosningum repúblikana
og McCain vonast til þess að tryggja
sér þá nógu marga kjörmenn til að
verða fyrir valinu sem forsetaefni
flokksins.
Washington Post og ABC-sjón-
varpið birtu í gær skoðanakönnun
sem bendir til þess að Clinton sé með
fjögurra prósentustiga forskot á
Obama í landinu öllu. Um 47% að-
spurðra sögðust ætla að kjósa Clin-
ton en 43% Obama. Skekkjumörkin
voru fjögur prósentustig þannig að
munurinn telst ekki marktækur.
Könnunin var gerð 30. janúar til 1.
febrúar.
Tvísýn barátta í Kaliforníu
Baráttan í Kaliforníu er mjög tví-
sýn og tvær kannanir þar benda til
þess að Clinton fái mest fylgi en
Obama er með naumt forskot ef
marka má þriðju könnunina.
Clinton er með naumt forskot í
nokkrum öðrum mikilvægum ríkjum
en svo virðist sem Obama hafi sótt í
sig veðrið eftir að hafa sigrað í Suð-
ur-Karólínu og tryggt sér stuðning
Teds Kennedys öldungadeildarþing-
manns og fleiri atkvæðamikilla
demókrata.
Könnun Washington Post og ABC
bendir til þess að 48% líklegra kjós-
enda repúblikana styðji McCain en
24% Romney. Mike Huckabee, fyrr-
verandi ríkisstjóri Arkansas, er í
þriðja sæti með 16% fylgi og 7%
sögðust styðja Ron Paul, fulltrúa-
deildarþingmann frá Texas.
McCain virðist hafa notið góðs af
því að Rudy Giuliani, fyrrverandi
borgarstjóri New York, ákvað að
draga sig í hlé og styðja hann.
Clinton og Obama
jöfn í könnunum
McCain með mikið forskot á Romney fyrir kosningar í 21 ríki
ÞÁTTTAKENDUR í kjötkveðjuhátíð í spænska þorp-
inu Laza eru hér í búningum fornra skattheimtumanna
sem nefnast „peliqueiros“ á spænsku. Mennirnir voru
meðal annars með kúabjöllur þegar þeir eltu vegfar-
endur á götum þorpsins í gær. Þeir notuðu prik til að
dangla í þá, sem komust ekki undan, en aðrir þátttak-
endur í hátíðinni máttu ekki hefna sín. Á hátíðinni í dag
fer fram slagur í þorpinu og beitt verður þá hveiti,
vatni og lifandi maurum. Hátíðinni í Laza lýkur síðan á
morgun þegar „erfðaskrá asnans“ verður lesin upp.
Reuters
Með leyfi til að lemja
ÖRYGGISRÁÐ
Sameinuðu þjóð-
anna hélt skyndi-
fund í gærkvöldi
um átök sem geis-
uðu í Afríkuríkinu
Tsjad um helgina.
Stjórnarher
landsins barðist
við hundruð upp-
reisnarmanna í
höfuðborginni
Ndjamena en uppreisnarliðið kvaðst
í gærkvöldi hafa farið út fyrir borg-
ina til að gefa íbúunum færi á að flýja
áður en það hæfi nýja sókn til að
steypa Idriss Deby forseta af stóli.
Franski herinn kvaðst hafa flutt
580 útlendinga frá Ndjamena með
flugvélum. Flytja á 320 útlendinga til
viðbótar í dag.
Hörð átök í
Ndjamena
Idriss Deby,
forseti Tsjad.
NIKOLAS Sarkozy Frakklands-
forseti og Carla Bruni, fyrrv. fyr-
irsæta, gengu í hjónaband í forseta-
höllinni í París á laugardag. Um 20
ættingjar og vinir þeirra voru við-
staddir. Þetta er þriðja hjónaband
Sarkozy sem skildi við aðra konu
sína fyrir fjórum mánuðum.
Orðin hjón
Reuters
Ástfangin Carla og Nicolas Sar-
kozy á kaffihúsi í París í gær.
LÖGREGLAN í Chicago í Banda-
ríkjunum leitaði í gær manns sem
er grunaður um að hafa skotið
fimm konur til bana í fataverslun í
úthverfi Chicago. Konurnar voru á
aldrinum 22-37 ára. Talið er að
maðurinn hafi ætlað að ræna versl-
unina. Lögreglan notaði m.a. þyrl-
ur við leitina.
Morðingja leitað
LÍBANSKUR maður beið bana og
annar særðist þegar ísraelskir her-
menn hófu skothríð nálægt landa-
mæraþorpinu Ghajar í gær, að sögn
lækna og líbanskra embættismanna.
Friðargæslulið Sameinuðu þjóðanna
í Líbanon rannsakaði málið.
Rannsaka árás
JACK Straw, dómsmálaráðherra
Bretlands, hefur fyrirskipað rann-
sókn á ásökunum um að lögreglan
hafi tvisvar sinnum hlerað samtöl
bresks þingmanns, Sadiq Khan,
sem er múslími, við fanga sem
grunaður er um að hafa safnað fé
handa talibönum á netinu.
Samtöl hleruð?
AÐ minnsta kosti 34 biðu bana í Rú-
anda og sex í Kongó í tveimur snörp-
um jarðskjálftum í gær. Hundruð
manna slösuðust í skjálftunum.
Upptök skjálftanna voru á mis-
gengi í Sigdalnum.
Hús hrundu og stórar sprungur
mynduðust á byggingum í bænum
Bukavu í Kongó, nálægt upptökum
fyrri skjálftans sem mældist 6 stig á
Richters-kvarða. Hinn skjálftinn var
um 5 stig.
Fólk hljóp út úr kirkjum sem voru
troðfullar þegar fyrri skjálftinn reið
yfir. Tíu manns létu lífið í kirkju sem
hrundi í Rúanda, að sögn þarlendra
fjölmiðla.
Tugir létu lífið
í skjálftum
EGYPSKIR landamæraverðir og
liðsmenn Hamas-hreyfingarinnar
lokuðu landamærum Egyptalands
og Gaza-svæðisins að nýju í gær.
Áður hafði verið skýrt frá því að
Egyptar hefðu náð samkomulagi
um landamæraeftirlit tæpum hálf-
um mánuði eftir að vopnaðir Pal-
estínumenn eyðilögðu um tvo
þriðju hluta tólf kílómetra langs
múrs á landamærunum. Egypskir
hermenn loka hér gati á múrnum
með gaddavír.
AP
Landamær-
um lokað
♦♦♦