Morgunblaðið - 04.02.2008, Síða 18

Morgunblaðið - 04.02.2008, Síða 18
|mánudagur|4. 2. 2008| mbl.is daglegtlíf Árvakur/Kristinn Kattakrakkar Dagbjört með Nóa en Haukur með uppáhaldið Leó sem hann segir mesta gáfnaljósið í hópnum. Borðar spaghettí Freyja er Garfield-köttur, elst og efst að virðingu. Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Þ eim virðist semja þokka- lega vel köttunum sjö sem búa saman á einu heimili í útjaðri borg- arinnar, þótt engir hafi flutt inn á sama tíma og engir tveir séu af sömu tegund. Þeim hefur fjölgað jafnt og þétt frá því fyrir fjór- um árum þegar læðan Freyja, sú elsta og virtasta í hópnum, flutti inn á heimilið, þá sex ára gömul. Fyrri eig- andi þurfti að láta hana frá sér vegna barneigna og ofnæmis. Freyja er af kattategundinni ex- otic shorthair sem er sama tegund og hinn heimsfrægi Garfield (Grettir). Hún er fjarska lík honum í útliti og hefur sama geðslag, er sérlega mikið fyrir að láta klappa sér og er algjör dekurrófa sem borðar spaghettí með bestu lyst, rétt eins og teiknimynda- kötturinn tvífari hennar. Freyja er eina læðan í hópnum en fresskettirnir sex sýna henni engan yfirgang. Enda er hún mjög vönd að virðingu sinni og hætt öllum barna- skap. Hún horfði til dæmis skilnings- vana augum á yngsta meðliminn þeg- ar hann kom sem kettlingur fyrir tæpu ári og lék sér eins og kettlinga er háttur. Úr frekar fyrirlitlegu augnaráði hennar mátti lesa: Hvern- ig nennirðu þessu, krakkaskratti? Þetta minnir óneitanlega á viðhorf Grettis til sér lægra settra dýra. Gáfnaljósið, töffarinn og veiðiklóin Nokkrum mánuðum eftir að Freyja flutti inn gerðu börnin á heimilinu, Haukur og Dagbjört, kröfu um að fá kettling. Því var tæki- færið gripið þegar auglýstir voru gef- ins kettlingar og Hrói kom til sög- unnar, rauðbröndóttur, lítill og smár og einstaklega matvandur. Freyja gamla var ekkert rosalega hrifin af þessum kjána en það gekk nú samt. Þriðji var Leó, grár, stór og vold- ugur kafloðinn norskur skóg- arköttur. Hann kom úr Kattholti og enginn veit hvað hann er gamall en hann er í miklu uppáhaldi hjá Hauki, enda er Leó sérlega skemmtilegur persónuleiki. „Leó er mjög vitur. Hann er mesta gáfnaljósið og hann er eiginlega afinn í hópnum,“ segir Haukur og bætir við að sér líki vel í fari Leós hversu mikill veiðiköttur hann sé og töffari. „Hann er hug- rakkur og hefur til dæmis ráðist á schäferhund. Hann kemur líka oft heim með mýs í kjaftinum. Hann á þó sínar mjúku hliðar og tók til dæmis að sér Hróa og Tígra þegar þeir komu sem litlir kettlingar og passaði þá mjög vel. Hins vegar gerir hann kattamun og vildi ekki sjá Litla skratta þegar hann flutti hingað sem kettlingur. Freyja tók þá hlutverkið að sér og varð verndarengill Litla skratta. Freyja er stundum svolítil frenja, þótt hún sé kelin. Það er ekki óhætt að vera í gallabuxum nálægt henni, þá klórar hún mann í gegn.“ Köttur sólginn í ostapopp Fjórði kötturinn var Tígri, sem er rauðbröndóttur eins og Hrói, en hann kom sem kettlingur af því vin- kona þurfti að losna við kettlinga og þau stóðust hann ekki, enda fannst þeim sig ekkert muna um að fá einn kött í viðbót. Tígri hefur alla tíð verið mikill útiköttur og sést ekki oft heima. Hann gefur minnst af sér og hefur ekki verið hrifinn af mannfólki síðan Dagbjört reyndi að baða hann. Fljótlega fannst fjölskyldu- meðlimum þurfa að auka fjölbreytn- Sjö katta sambúð Vinkonur Dagbjört og Freyja gamla eru hændar hvor að annarri. Nýjastur Bjartur vill vera út af fyrir sig og er að spá í að flytja í hesthúsið. ina og því var síamskötturinn Mýsla sóttur í Kattholt. Hún staldraði þó stutt við, aðlagaðist illa þeim köttum sem voru fyrir á heimilinu og saknaði bróður síns sárt. Hún fékk að fara aftur til hans og enduðu þau systk- inin saman á öðru góðu heimili. Mýsla var samt einstaklega skemmtileg og át til dæmis ostapopp með krökkunum þegar þau voru að horfa á sjónvarpið. Fljótlega var leitað fleiri tegunda og næsti köttur var bengalköttur frá Nátthaga, en hann var ekki lengi frekar en Mýsla því þótt hann væri mjög mannelskur hataði hann aðra ketti og slagsmálin voru stöðug. Hann flutti því á annað heimili hjá góðum kunningja og unir hag sínum vel þar, kóngur í ríki sínu. Til að bæta upp þessa tvo sem ekki festu rætur flutti persinn Nói næstur inn, en hann er síðhærð kelirófa sem kann vel við sig í kattafjörinu. Eitt sinn voru gæludýrin þrjátíu Sjötti kötturinn er yngstur í hópn- um, kolsvartur og snögghærður, tæplega ársgamall. Hann er ýmist kallaður Litli skratti, Lakkrís, Blakkur eða Depill. Sjöunda og nýj- asta eintakið er Bjartur, sem kom upphaflega í pössun. Hann er mikil prímadonna og vill vera út af fyrir sig. Til stendur að hann flytji í hest- hús fjölskyldunnar, því honum lyndir ekki vel við hina kettina. Kettirnir sjö og hestarnir þrír eru ekki einu skepnurnar sem hafa verið hluti af þessari dýrelsku fjölskyldu. Þar bjó eitt sinn tíkin Táta, nokkrir naggrísir, tólf dverghamstrar og fuglar. Þegar dýrin voru flest voru þau rúmlega þrjátíu. Nú er fjöl- skyldan að spá í að fá sér nýjan hund og honum þarf væntanlega að vera vel við ketti. Hugrakkur töffari Leó er svalur, ræðast á hunda án þess að hika og það er mikið veiðieðli í honum. Persinn Nói Hann er friðsamur og skrokkurinn er lítill en falinn undir miklum feldi sem getur blekkt augað. Freyja er stundum svolítil frenja, þó hún sé kelin. Það er ekki óhætt að vera í gallabuxum nálægt henni, þá klórar hún mann í gegn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.