Morgunblaðið - 04.02.2008, Síða 19

Morgunblaðið - 04.02.2008, Síða 19
fjármál fjölskyldunnar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2008 19 anum. Fnykurinn var svo ferlegur að Víkverji tók til fótanna og rauk út í dauðans ofboði. Það tók hann tvo daga að jafna sig í hálsinum eft- ir allan mökkinn. Eftir að bannið tók gildi hefur Víkverji notið þess út í ystu æs- ar að dreypa á rauðvíni sér til heilsubótar, sál- argagns og hugsvöl- unar. Það fór því hroll- ur um Víkverja þegar hann frétti að félag kráareigenda í borg- inni hefði ákveðið að mótmæla tóbaks- varnalögunum með því að leyfa við- skiptavinum sínum að eitra loftið fyrir öðrum þegar vetrarkuldinn er sem mestur úti. Hann vonar að yfirvöld hafi dug í sér til að framfylgja lögunum eða verða við þeirri kröfu kráareigend- anna að þeir fái að bjóða upp á eyk- herbergi fyrir þá gesti sem eru bundnir fjötrum nikótínsins. Að öðrum kosti væri það sjálfsögð krafa að þingmenn okkar væru sjálf- um sér samkvæmir og bönnuðu reykingar í Alþingishúsinu. Víkverji dagsins erekki hrifinn af öll- um boðum og bönnum en gladdist mjög þegar reykingar voru bann- aðar inni á veit- ingastöðum. Víkverji skilur þó vel óánægju sumra reykingamanna með bannið því hann reykti sjálfur í mörg ár þar til hann tileinkaði sér lífsspeki Hugos Chavez og kenningar hans um „hinn nýja mann“. Chavez hefur sem kunnugt er hafið heilaga herferð gegn hvers kyns ósiðsemi og óhollustu, allt frá brennivíni til of mikillar blóðfitu, og fylgt því eftir með því að hækka skatta á tóbak og annan óþverra. Skömmu áður en reykingabannið tók gildi hætti Víkverji sér í eina af vínstofum miðborgarinnar til að dreypa á rauðvínsglasi dagsins. Hann valdi sæti sem næst dyrum vínstofunnar í von um fá ferskt loft þegar þær voru opnar, en öðru nær: það var eins og allur reykur vínstof- unnar sogaðist að Víkverja sem varð náfölur og ætlaði varla að ná and-      víkverji skrifar | vikverji@mbl.is R ysjótt veðurfar í vetur er ekki alslæmt. Tíðin hefur skilið eftir sig snjó, útivistarfólki til ánægju og yndisauka, eftir að minnsta kosti arfaslök tvö undanfarin skíðaár á Fróni. „Það hefur verið mikið fjör í skíðadeildinni og farið að vanta inn í stærðir sem kemur innkaupamönnum svolítið í opna skjöldu. Við eigum þó enn allar græjur, en kannski í minna magni en áætlað var,“ segir Agnar Bogi Sturluson, sölumaður hjá Intersport, og Gísli Páll Hannesson, versl- unarstjóri hjá Útilífi tekur undir. 15-20% pakkaafslættir veittir Til að koma barninu sem ódýrast í skíðabrekkurnar á meðan það prófar sig áfram í sportinu er auðvitað best að hringja í vini og kunningja og fá útbúnað lánaðan eða keyptan ódýrt því margir búa yfir geymslum með góðum græjum. Hinn kosturinn er að fara í næstu verslun og kaupa nýj- an búnað á ungana sína. Samkvæmt lauslegri athugun Daglegs lífs er hagstæðast að kaupa svokallaða „pakka“, sem innihalda skíði eða bretti, bindingar og skó og er þá veittur 15-20% pakkaafsláttur. Þannig kostar ódýrasti barnaskíða- pakkinn í Intersport 19.900 krónur með 20% pakkaafslætti og hjá Útilífi eru barnaskíðapakkar frá 18.674 krónum með 15% pakkaafslætti, samkvæmt upplýsingum sölumanna. Skíðastafir kosta að auki í kringum 1.500 krónur. Brettapakkar fyrir tíu ára börn eru í kringum 32 þúsund krónur með 20% pakkaafslætti hjá báðum verslunum. Enginn er nú maður með mönnum öðruvísi en að vera á svokölluðum Carving-skíðum, sem þurfa að ná að minnsta kosti upp í hökuhæð og best er að velja skíðaskó í mýkri kant- inum fyrir byrjendur svo menn ör- magnist ekki strax í brekkunum. „Óvanir skíðamenn verða fljótt þreyttir í fótunum í of stífum skóm, en eftir því sem tækninni og hrað- anum fleytir fram, kallar það á stífari skó og skíði,“ segir Gísli og bætir við að mismunandi verð á skíðapökkum liggi gjarnan í skónum, sem verða dýrari eftir því sem smellunum fjölg- ar. Verð á skóm liggi frá tæpum sex þúsund krónum og upp í ellefu þús- und, en börnum, sem ekki að skíða af krafti fyrir keppni, dugi vel einföld- ustu gerðir af skóm. „Við mælum svo með að fólk skipti um bindingar á sjö ára fresti, þyki mönnum vænt um krossböndin sín því plastið í binding- unum er ekki eilíft,“ segir Gísli. Eins eru hjálmar bráðnauðsynleg öryggistæki í skíðabrekkunum. Ung- ir skíðamenn þurfa líka að sjá vel frá sér og skíðagleraugu eru talin góð hjálpartæki gegn endurkasti. Nærri lætur að skíðahjálmar kosti um sex þúsund krónur og gleraugu tvö til þrjú þúsund krónur. Það hefur auk þess færst í vöxt að menn klæðist svokölluðum bakbrynjum, sem kosta frá rúmum fimm þúsund krónum upp í tæpar tíu þúsund. Forðast bómullina Ekki er nóg að leggja af stað í fjall- ið með nútíma græjur í farteskinu – það þarf líka að verjast íslensku nepjunni. Skíðafatnaðurinn fylgir líklega heldur meiri tískusveiflum en nauðsynleg skíðatól, að sögn sölu- manna, þó það sé auðvitað mjög per- sónubundið hversu flott fólk vill vera á því. Í stað skíðasamfestinga áður, þykja tvískiptir skíðagallar nú miklu smartari og praktískari því þá er hægt að klæða sig úr efri spjörinni ef þurfa þykir auk þess sem sumir skíðastakkar eru þannig úr garði gerðir að hægt er að renna ermunum af. Skíðagallar eru á misjöfnu verði þó algengt verð á tvískiptum barna- skíðagöllum leggi sig á rúmar tíu þúsund krónur. Þá er ótalið það sem mestu máli skiptir til að verjast kuldabola sem eru góð nærföt og góðir skíðasokkar. „Forðast skal bómull eins og heitan eldinn því hún heldur í sér raka. Hún drekkur í sig svita með þeim afleið- ingum að menn snarkólna niður í kakópásum og ná ekki að hita sig al- mennilega upp á ný. Næst lík- amanum þarf því gerviefni eða ekta ull eða blöndu af hvoru tveggja. Heit- fengnir ættu, að sögn Agnars, að velja heldur gerviefnasett en ull- arblönduna. Skíðasokkarnir þurfa að vera háir til að stroffið nái upp fyrir skíðaskóna. Undirfötin, það er síð- brók og treyju, er hægt að fá úr gerviefnum á tæpar 2.300 krónur í Intersport svo dæmi sé tekið og á sama stað kostar ullarsett, sem er úr 80% ull og 20% gerviefni, tæpar sjö þúsund krónur. Skíðasokkar kosta svo á bilinu 800 til 2.000 krónur. Notað, nýtt og til leigu Skiptimarkaðir eru fátíðir hér á landi, en Skíðaþjónustan á Akureyri selur bæði notaðan og nýjan skíða- búnað auk þess að vera með viðgerð- arþjónustu og skíðaleigu. „Notaðir barnaskíðapakkar, sem innihalda skíði, skó, bindingar og stafi, kosta 8 til 12 þúsund krónur á meðan nýr búnaður á börn kostar frá 18 og upp í 24 þúsund krónur,“ segir Viðar Við- arsson, sölumaður hjá Skíðaþjónust- unni. Skíðaútbúnað er hægt að fá leigðan þar fyrir 1.500 kr. fyrir fyrsta dag og 1.000 kr. fyrir næsta dag. „En ef leigutakinn vill til dæmis leigja út- búnaðinn í vikutíma, er leigan þrjú þúsund fyrir börn og fjögur þúsund fyrir fullorðna,“ segir Viðar. Í boði er skíðakennsla um helgar fyrir börn bæði í Bláfjöllum og í Hlíð- arfjalli. Kennslan er ókeypis í Blá- fjöllum milli kl. 11.00 og 15.00 en tek- ið er gjald vegna skíðakennslunnar í Hlíðarfjalli. Tveggja tíma kennsla í einn dag kostar þar 2.000 kr. á barn og fjögurra tíma kennsla frá 10.00- 14.00 með pitsuhádegisverði er á 3.500 kr. Verði kennsludagarnir fleiri er veittur afsláttur auk systk- inaafsláttar. Þegar reiknivélin er tekin upp læt- ur nærri að skíðapakkinn með nauð- synlegum útbúnaði kosti um fimmtíu þúsund krónur. Þá eru ótalin lyftu- gjöld skíðasvæðanna, en bæði í Hlíð- arfjalli og í Bláfjöllum kostar dag- skort fyrir börn 550 krónur. Svo verða menn bara að meta það hvort fjárfesting á borð við þessa verði til ánægju og yndisauka og svari þannig kostnaði. join@mbl.is Morgunblaðið/Golli Bláfjöll Með hækkandi sól getur tækifærum til slíkra daga fjölgað, haldi snjónum áfram að kyngja niður. Pakkaverðið langbest Skíða- og brettapakkar hafa selst eins og heitar lummur að undan- förnu. En hvað skyldi það kosta að koma barninu sínu á byrj- unarreit í skíðabrekk- unum? Jóhanna Ingv- arsdóttir velti fyrir sér kostnaði við nauðsyn- legar græjur. Morgunblaðið/Kristján Hlíðarfjall Búnaðurinn er misdýr eftir því hvort keypt er nýtt eða notað.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.