Morgunblaðið - 25.02.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.02.2008, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 55. TBL. 96. ÁRG. MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is ÞEIR ERU ÞURSAR ALLT VARÐ FRAMÚRSKARANDI GOTT OG RAUNAR FULLKOMIÐ Á KÖFLUM >> 37 Hetjur >> 33 Öll leikhúsin á einum stað Leikhúsin í landinu 20 % m eira magn - sam a verð ostur.is VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson segir eðlilegt að allur borgarstjórn- arflokkur Sjálfstæðisflokksins fái tækifæri til þess að ákveða í samein- ingu hver verður borgarstjóri fyrir hönd flokksins. Eins og fram kom í yfirlýsingu frá Vilhjálmi í gær mun hann sitja áfram sem borgarfulltrúi og oddviti borgarstjórnarflokksins en hvað hann varðar „er opið hver tekur við embætti borgarstjóra“ í mars á næsta ári. Samtímis barst yfirlýsing frá borgarstjórnarflokkn- um þess efnis að Vilhjálmur nyti óskoraðs stuðnings. Í viðtali við Morgunblaðið í dag segir Vilhjálm- ur að ákvörðun verði tekin þegar nær dregur en leggur áherslu á að flokkurinn muni tímasetja þá ákvörðun á eigin forsendum en ekki láta undan þrýstingi pólitískra and- stæðinga. Vilhjálmur segist þeirrar skoðun- ar að ekki eigi að leita út fyrir nú- verandi borgarstjórnarflokk að nýju borgarstjóraefni enda sé þar að finna fjölda hæfileikafólks. Hann segir hins vegar mikilvægt að sátt verði innan hópsins um valið þannig að sá er sest í borgarstjórastólinn hafi skýrt umboð. Þau Hanna Birna Kristjánsdótt- ir, Gísli Marteinn Baldursson og Júlíus Vífill Ingvarsson sögðu öll í samtali við Morgunblaðið í gær að þau myndu gefa kost á sér sem borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokks- ins að ári. | 4 og Miðopna Þrjú gefa kost á sér Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins ætlar sameiginlega að taka ákvörðun um hver verður borgarstjóri í Reykjavík eftir eitt ár Árvakur/Frikki Oddviti Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son, oddviti sjálfstæðismanna. Í HNOTSKURN » Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-son, oddviti sjálfstæðis- manna í borgarstórn, segir nýj- an meirihluta leggja mikið upp úr velferðarmálum. Ekki megi gleyma sér í peningahyggju og gullæði. »Hann leggur jafnframtmikið upp úr því að haldið verði áfram markvissri upp- byggingu hjúkrunarheimila fyrir aldraða. »Vilhjálmur segir ákvörðunsína ekki skapa neina óvissu. Nema síður sé. FRÉTTASKÝRING Eftir Andra Karl andri@mbl.is FERÐUM skemmtiferðaskipa á Norður- Atlantshafi hefur fjölgað mikið á umliðnum árum og sú þróun mun halda áfram. Á sama tíma og markhópur útgerðarfyrirtækjanna er að breytast og með- alaldur farþega að lækka eru meiri kröfur gerðar til ferðaþjónustu í landi. Á Íslandi vinna markaðssamtökin Cruise Iceland að því að þróa undirstöður og innviði fyrir móttöku skemmtiferðaskipa. Um 300 skemmti- ferðaskip eru í rekstri um þessar mundir og mun fjölga um fjörutíu á næstu þremur ár- um. Skipakomum hingað til lands hefur fjölgað mikið og þannig komu til Reykjavík- ur um 80 skemmtiferðaskip síðasta sumar og verða að öllum líkindum fleiri í ár. Tölu- verðar tekjur fást af erlendum farþegum skipanna og samkvæmt könnun Faxaflóa- hafna eyddu þeir síðasta sumar rúmlega 400 milljónum króna. Vefsvæði í vinnslu Vaxtarmöguleikar Íslands í þessum geira eru töluverðir og hefur mikil vinna verið lögð í að efla tengslanet milli aðila í ferða- þjónustunni á norðurslóðum. Meðal annars er í vinnslu að koma á því sem nefnt er Tengslanet norðursins (e. Network of the North) og byggist á að safna í miðlægan gagnagrunn upplýsingum sem hagsmuna- aðilar geta nýtt sér. Hugmyndin er að byggja upp vefsvæði að fyrirmynd netal- fræðiorðabókarinnar wikipediu, þ.e. að allir aðilar geti lagt fram upplýsingaefni á sama vefsvæði. Í skýrslu nefndar um móttöku skemmti- ferðaskipa sem kom út í nóvember sl. er að finna fjölmargar tillögur sem lúta að því að veita skemmtiferðaskipum og farþegum þeirra betri þjónustu. Meðal þess sem þarf að koma til framkvæmda er að koma upp þjónustubyggingu til móttöku farþega, bæði í Reykjavík og á Akureyri, og efla grunnaðstöðu í öðrum höfnum sem taka á móti skemmtiferðaskipum. Einnig er mikil- vægt að tryggja aukið fjármagn til mark- aðsstarfs. | 11 Meiri kröfur til þjónustu Koma skemmtiferða- skipa eykst ár frá ári SNÆFELL úr Stykkishólmi varð í gær bik- armeistari í körfuknattleik karla í fyrsta skipti með því að sigra Fjölni úr Grafarvogi í úrslitaleik í Laugardalshöllinni. Þar ríkti að vonum mikil stemning enda fjölmenntu Stykk- ishólmsbúar á leikinn og haft var á orði að fáir hefðu orðið eftir fyrir vestan. Hlynur Bæringsson, fyrirliði Snæfells, hóf bikarinn á loft, umkringdur ljósmyndurum sem fönguðu þetta sögulega augnablik. Það var líka mikil gleði í Grindavík í gær þegar kvennalið staðarins varð bikarmeistari í fyrsta skipti með því að leggja Hauka að velli en sá leikur fór einnig fram í Laugardalshöll- inni. | Íþróttir Árvakur/Frikki Fyrsti titillinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.