Morgunblaðið - 25.02.2008, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 25.02.2008, Qupperneq 2
2 MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is HUGMYNDIR nýs meirihluta Reykjavíkurborgar þess efnis að fargjöld í strætisvagna verði felld niður hjá börnum og unglingum að 18 ára aldri sem og öldruðum og ör- yrkjum hefur enn ekki verið rædd innan stjórnar Strætós bs. Að sögn Ármanns Kr. Ólafssonar, stjórnar- formanns Strætós, skýrist það af því að stjórnin hefur ekki fundað síðan nýr meirihluti tók við og því eðlilega ekki getað tekið efnislega afstöðu til hugmyndar nýs meirihluta. „Ég reikna með að Gísli Marteinn [Baldursson, fulltrúi Reykjavíkur í stjórn Strætós] muni gera stjórn- inni betur grein fyrir hugmynd- um Reykjavíkur- borgar á næsta stjórnarfundi,“ segir Ármann, en stjórnin kemur næst saman nk. föstudag. Aðspurður hvort til greina komi að fella niður fargjöld tiltekinna hópa segir Ár- mann það hingað til hafa verið stefnu stjórnarinnar að bíða með frekari ákvarðanir um slíkt þar til gefist hafi tækifæri til þess að leggja mat á árangurinn af skóla- verkefninu, þ.e. því að gefa fram- halds- og háskólanemum frítt í strætó. Þeirri tilraun ljúki með skólalokum nk. vor og í framhaldinu verði hægt að leggja mat á verk- efnið. „Ég tel að breytingar á gjald- skrá komi ekki til framkvæmda fyrr en í fyrsta lagi næsta haust, með því leiðakerfi sem þá taki við.“ Aðspurður segir Ármann tekjur af fargjöldum hafa, áður en skóla- verkefnið fór af stað, numið um 750- 800 milljónum króna á ári. Segir hann áætlanir gera ráð fyrir að kostnaður sveitarfélaganna vegna skólaverkefnisins nemi um 300 milljónum króna. Eftir stendur þá að tekjur Strætós af fargjöldum nema um 400 milljónum króna ár- lega. Spurður hver kostnaðurinn við að innheimta fargjald sé segir Ár- mann hann vera í kringum 40 millj- ónir króna. Gjaldskrárbreyting kemur ekki til álita fyrr en í haust Hugmynd nýs borgarstjórnarmeirihluta ekki enn verið rædd í stjórn Strætós bs. Í HNOTSKURN »Í málefnasamningi Sjálfstæð-isflokks og F-lista sem kynnt- ur var 21. janúar sl. kemur fram að stefnt skuli að því fargjöld í strætisvagna verði felld niður hjá börnum og unglingum að 18 ára aldri sem og öldruðum og ör- yrkjum. Ármann Kr. Ólafsson HAFRANNSÓKNARSKIPIÐ Árni Friðriksson RE-200 hélt seinnipart- inn í gær úr höfn í Reykjavík til loðnuleitar austur með Suðurlandi. Rannsóknarskip- ið Bjarni Sæ- mundsson er einnig á leið til loðnuleitar norð- ur með Vestur- landi. Skipinu er ætlað að kanna hvort loðna geng- ur vestur fyrir land. Auk þess ætla loðnuveiðiskip taka þátt í loðnuleit, en leitin er í sam- vinnu Hafrannsóknastofnunar og út- vegsmanna. Loðnuskipstjórar ósammála mati Hafró Skipstjórar á yfir 20 loðnuskipum sendu í gær frá sér yfirlýsingu, en í henni kemur fram að þeir eru ósam- mála mati Hafrannsóknastofnunar. „Á þeim erfiðu tímum sem íbúar sjávarplássa hringinn í kringum landið eru ganga í gegnum verður að ríkja trúnaður og traust milli Haf- rannsóknastofnunarinnar og hags- munaaðila. Við skipstjórarnir á þeim skipum sem hafa verið á miðunum erum sannfærðir um að ástand loðnustofnsins er betra en Hafrann- sóknastofnunin telur. Það mynstur sem við erum að upplifa núna hefur sést áður og það ætti ekki að valda mönnum áhyggjum.“ | 14 Rannsókn- arskip við loðnuleit ÞYRLA Landhelgisgæslu Íslands, TF-LIF, var notuð við leit að Piper Cherokee-flugvélinni sem hrapaði í sjóinn 130 mílur SSA af Höfn í Hornafirði á fimmtudag. Skipulagðri leit var hætt á laugardag en þar sem skilyrði til leitar voru góð í gær var ákveðið fara í leitarflug. Leitin var árangurslaus. Samkvæmt upplýsingum frá Gæslunni var veður og sjólag gott í gær en leitaraðstæður hafa verið af- ar erfiðar síðan slysið varð. Þrátt fyrir góð skilyrði fannst ekkert sem bent gæti til afdrifa flugmannsins bandaríska eða flugvélarinnar. Auk leitarinnar hefur verið svip- ast gaumgæfilega um úr skipum sem leið hafa átt um svæðið. Leitað án árangurs TVEIR karlmenn á þrítugsaldri voru handteknir í Skerjafirði á tí- unda tímanum í gærmorgun. Annar þeirra er grunaður um að hafa brotið rúðu í skartgripaverslun við Ingólfs- torg og látið greipar sópa. Árvökulir lögreglumenn sáu í myndavélakerfi lögreglunnar þegar maðurinn braut rúðuna með sleggju um klukkan 8.30 í gærmorgun. Mannskapur var þegar í stað sendur á svæðið og þegar lögreglu bar að var maðurinn enn við iðju sína. Er hann sá til laganna varða hljópst hann á brott og komst upp í bifreið félaga síns. Óku þeir á brott á ofsa- hraða. Nokkru síðar barst lögreglu til- kynning frá vegfaranda um bifreið sem ekið var á mikilli ferð í Skerja- firði. Lögregla kannaði málið og fann bifreiðina mannlausa en tvo fótgang- andi menn skammt frá. Þeir köstuðu frá sér skartgripum og lögðu á flótta en komust ekki langt. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni er talið að allt þýfið hafi fundist, en þar var um að ræða mjög verðmæta skartgripi. Á gangi í Skerjafirði með þýfið Handteknir fyrir rán í skartgripaverslun NORÐMAÐURINN Geir Skeie var valinn kokkur árs- ins í kokkakeppni Food and Fun-matarhátíðarinnar sem fram fór í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu á laugardaginn. Keppnin var opin almenningi og var fjölmenni á staðnum sem fylgdist með meistarakokk- unum að störfum. Tólf meistarakokkar frá Frakklandi, Noregi, Dan- mörku, Rússlandi, Bandaríkjunum, Bretlandi, Þýska- landi, Spáni og Ítalíu háðu harða keppni um besta fiskréttinn, besta kjötréttinn og besta eftirréttinn úr íslenskum hráefnum. Kokkarnir höfðu þrjár klukkustundir til að ljúka við átta skammta af hverjum fisk-, kjöt- og eftirrétti og gafst gestum á staðnum tækifæri til að smakka á verðlaunaréttunum á meðan þeir voru búnir til. Tíu manna alþjóðleg dómnefnd, skipuð nokkrum af bestu kokkum heims, mat réttina að matreiðslu lok- inni. Árvakur/Frikki Geir Skeie er kokkur ársins ♦♦♦ TVEIR menn féllu niður um ís á Hvaleyrarvatni um miðjan dag í gær. Mennirnir fóru á torfæruhjólum sín- um út á ísinn sem reyndist ekki nægi- lega traustur og gaf sig undan þung- anum. Mennirnir, sem eru feðgar, komust af sjálfsdáðum á þurrt og varð ekki meint af volkinu. Eftir að mennirnir höfðu komið sér upp úr köldu vatninu hringdu þeir eft- ir aðstoð neyðarlínunnar, s.s. til að ná hjólunum upp úr vatninu. Kallað var eftir aðstoð slökkviliðs og Björgunar- sveitar Hafnarfjarðar en í gærkvöldi hafði ekki tekist að ná hjólunum upp, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Að sögn hjálparsveitarmanns var erfitt að greina fyrir fram að ísinn væri ótraustur. Búið var að merkja sérstaka braut á ísnum fyrir vélhjóla- menn en svo virðist sem mennirnir hafi farið út fyrir hana. Eftir því sem leið á daginn þynntist svo ísinn frekar sem aftur torveldaði björgun hjól- anna. Algengt er að vélhjólamenn fari á torfæruhjólum út á ísinn að vetrar- lagi, en það hefur mætt mótstöðu ým- issa bæjarbúa. Nú síðast var fjallað um málið á fundi skiplags- og bygg- ingaráðs og tekið undir tilmæli um- hverfisnefndar þess efnis að draga til baka heimild vélhjólamanna að nota Hvaleyrarvatn fyrir íþrótt sína. Féllu niður um ís á Hvaleyrarvatni Ísinn brast und- an þunganum SKOÐUN á kostum járnbrautar milli Reykjavíkur og Keflavíkurflug- vallar var efni þingsályktunartillögu sem 12 þingmenn lögðu fyrir Alþingi á dögunum. Á sama tíma mælti Dag- ur B. Eggertsson, oddviti Samfylk- ingarinnar fyrir því í borgarstjórn, að kostir járnbrauta í borginni yrðu skoðaðir. Þverpólitísk dómnefnd verðlaunaði á dögunum þrjár hug- myndir um Vatnsmýrina, þar sem ein hugmyndanna felur í sér járn- brautarkerfi. Kristján Möller samgönguráð- herra segir þetta vera spurningu um hvað sé verið að vinna langt fram í tímann. Hann sagðist ekki vera nei- kvæður gegn slíkum hugmyndum og sjálfsagt væri að skoða öll mál. „Það er mikil og frjó umræða um sam- göngumál á Íslandi í dag og það er bara gott mál,“ sagði Kristján. Í skoðanakönnun sem gerð var fyrir átta árum töldu 57% Íslendinga hugmyndina, að leggja járnbraut á milli Reykjavíkur og Keflavíkur, vera góða og virtist málið ekki fylgja flokkspólitík. Fyrir um fjórum árum lét Orku- veitan gera skýrslu um hugsanlega lagningu lestarteina til Keflavíkur- flugvallar og rekstur hraðlestar. Í skýrslunni kom fram að slík lest myndi standa undir rekstrarkostn- aði en eftir stæði framkvæmdar- kostnaðurinn sem yrði á bilinu 24,1- 29,5 milljarðar króna. Fram kom í þingsályktunartillög- unni, að þáttur umhverfisáhrifa hefði mikið að segja í leit að nýjum leiðum í samgöngumálum. Þar kom einnig fram að stjórnvöld hefðu sett sér það markmið að umhverfisáhrifum sam- gangna verði haldið innan ásættan- legra marka. Jafnframt að draga úr hávaða frá samgöngum og að loft- mengun verði haldið innan viðmið- unargilda samkvæmt stöðlum ESB. Kostir þess að leggja járnbraut kannaðir Ráðherra ekki neikvæður og segir sjálfsagt að skoða málið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.