Morgunblaðið - 25.02.2008, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Glæsilegur vorfatnaður
í miklu úrvali
!"!#$!%"!#&
!%!&
'& (& )*
) (&
!"
#
#
#$
%
"
##&''()*)+ # ,
-
*... (/
0
0
Á ÞRIÐJA þúsund manns skoðuðu
um helgina nýjar þjónustuíbúðir í
Mörkinni við Suðurlandsbraut í
Reykjavík. Haraldur Haraldsson,
framkvæmdastjóri Markarinnar,
segir þennan mikla áhuga hafa far-
ið fram úr björtustu vonum sínum.
Um er að ræða 78 íbúðir og verða
fyrstu íbúðirnar tilbúnar til afhend-
ingar í lok mars. Haraldur sagði að
gert væri ráð fyrir að íbúar gætu
fengið nánast alla þjónustu á staðn-
um. Unnið væri að því að ná samn-
ingum við ríki og borg um almenna
þjónustu við íbúa líkt og hið op-
inbera hefur gert. Síðan myndi
Mörkin bæta það sem upp á vantar.
Ríkið er að byggja hjúkrunarheim-
ili í Mörkinni og Haraldur sagði að
þarna yrði því öflug þjónusta við
eldri borgara. Í næsta mánuði er
fyrirhugað að hefja byggingu á
nýrri blokk þar sem m.a. verður
sundlaug, gufubað og heitir pottar.
Eignamiðlun sér um sölu íbúðanna.
Fyrstu þjónustuíbúðirnar í Mörkinni í Reykjavík verða afhentar í lok mars
Árvakur/Frikki
Mikill
áhugi á
íbúðunum
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„ÞETTA er í fyrsta sinn sem svona
námskeið er haldið hér í borginni, en
tilgangur þess er að fræða foreldra
um hvað er framundan á þessum
tímamótum,“ segir Þorbjörg Ró-
bertsdóttir, félagsráðgjafi hjá þjón-
ustumiðstöð Laugardals og Háa-
leitis, um námskeið ætlað foreldrum
barna með fötlun í Reykjavík sem
byrja munu í grunnskóla nk. haust.
Að sögn Þorbjargar er námskeiðið
ókeypis, en áhugasömum foreldrum
er bent á að skrá þátttöku sína með
því að senda póst til Þorbjargar á
netfangið: thorbjorg.robertsdott-
ir@reykjavik.is. Segir hún stefnt að
því að gera námskeiðið að árlegum
viðburði hér eftir reynist þátttakan
góð þetta árið.
Fyrirlestrar sérfræðinga
jafnt sem notenda
Að sögn Þorbjargar sýnir reynsl-
an að mikilvægt sé að bjóða for-
eldrum upp á stuðning á þessum
tímamótum, enda að mörgu að huga.
„Það fá allir foreldrar skjálfta þegar
börn þeirra skipta um skólastig og
hann er kannski eilítið öðruvísi þeg-
ar börnin eru með fötlun, því börnin
koma eðlilega til með að þurfa meiri
stuðning inni í skólanum eins og þau
hafa flest kannski þurft í leikskól-
anum. Þá vakna spurningar hjá for-
eldrum á borð við á hverju þeir eiga
rétt, hvert eigi leita og hver sjái um
hvað innan kerfisins. Við ætlum á
námskeiðinu að
reyna að svara
þessum praktísku
spurningum.“
Aðspurð segir
Þorbjörg nám-
skeið vera sam-
starfsverkefni
þjónustu-
miðstöðvar Laug-
ardals og Háa-
leitis, sem sé
þekkingarmiðstöð í málefnum fatl-
aðra, við Greiningarstöðina, íþrótta-
og tómstundasviðs Reykjavík-
urborgar, menntasvið borgarinnar
og Sjónahol. Segir hún námskeiðið
samansett af erindum fræðimanna
og sérfræðinga. „Auk þess sem for-
eldrar fatlaðra barna muni fjalla um
reynslu sína af því að eiga börn í al-
mennum grunnskóla annars vegar
og hins vegar í sérskóla. Meðal fyr-
irlesara er einnig Freyja Haralds-
dóttir sem fjalla mun um eigin
reynslu af því að vera grunn-
skólanemandi með fötlun.“
Aukin fræðsla til for-
eldra fatlaðra barna
Námskeiði til handa foreldrum barna með fötlun sem hefja
grunnskólagöngu sína í haust haldið næstu tvær vikur
Í HNOTSKURN
»Gera má ráð fyrir að um 70fötluð börn hefji grunn-
skólagöngu sína ár hvert.
»Þjónustumiðstöð Laugardalsog Háaleitis býður miðviku-
dagana 27. febrúar og 5. mars
milli kl. 19.30 og 22 upp á nám-
skeið til handa foreldrum fatl-
aðra barna sem byrja munu í
grunnskóla í haust.
Þorbjörg
Róbertsdóttir
FLOKKSRÁÐSFUNDI Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs,
sem haldinn var 22.-23 febrúar, lauk
með samþykktum nokkurra álykt-
ana, m.a. um stóriðjumál og efna-
hags- og atvinnumál. Í ályktun í til-
efni stóriðjuáforma er lýst yfir
undrun á fyrirhuguðum álversupp-
byggingum í Helguvík og á Bakka.
„Fyrir kosningar boðaði Samfylk-
ingin stóriðjuhlé […] en svo virðist
sem það hafi verið orðin tóm.“ Brýnt
sé að stöðva álversáformin í ljósi
skuldbindinga Íslendinga í loftslags-
málum þar sem stóriðjuáformin
rúmast ekki innan losunarheimilda.
Í ályktun um efnahags- og at-
vinnumál segir að þar sem ekki hafi
verið hlustað á viðvaranir VG um
„afleiðingar gríðarlegrar þenslu,
jafnvægisleysis í hagkerfinu og hag-
stjórnarmistaka undanfarin ár“ blasi
nú við grafalvarlegar afleiðingarnar.
VG ályktar jafnframt að það þurfi
„að setja aukinn kraft í íslenskan
landbúnað og gera sem mest úr sér-
stöðu hans og möguleikum, m.a.
stórefla lífræna ræktun og nýsköpun
í landbúnaði í sátt við umhverfið.“
Grafalvar-
legar af-
leiðingar
ÞRÍR hafa sótt um starf sveitarstjóra
í Borgarfjarðarhreppi á Austurlandi.
Eru það Ásta Hrönn Björgvinsdóttir,
Akureyri, Ásta Margrét Sigfúsdóttir,
Borgarfirði eystri, og Jón Þórðarson,
Akureyri. Rætt var við umsækjendur
í vikunni og í kjölfarið verður tekin
ákvörðun um ráðningu.
Steinn Eiríksson hefur verið sveit-
arstjóri á Borgarfirði undanfarin
misseri, en kýs nú að einbeita sér að
uppbyggingu fyrirtækis síns Álfa-
steins, sem mjög er að færa út kvíarn-
ar.
Reiknað er með að nýr sveitarstjóri
taki við innan skamms.
Þrír sækja
um stöðu
sveitarstjóra
Fréttir á SMS