Morgunblaðið - 25.02.2008, Side 23

Morgunblaðið - 25.02.2008, Side 23
einstaka persónu lifa. Guð geymi þig, elsku amma. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Ásta, Vilhjálmur Alvar, Brynjar. Andlát ömmu Bíbíar markar kafla- skil. Frá mínum fyrstu dögum hef ég notið stuðnings, ástar og félagsskap- ar þeirrar einstöku konu sem amma var. Hún var mér svo margt: uppal- andi, ættarhöfuð, fyrirmynd og vinur. Djúpt skarð er höggvið þar sem hennar naut áður. Amma hefur alltaf verið til staðar og litið eftir mér. Með mínum allra fyrstu minningum er minning um maltbrauð með smjöri og búraosti í eldhúsinu hennar á Háaleitisbraut. Það er svo merkilegt hvernig maður man í gegnum mat. Það var líka ómögulegt annað en að fá sér eitthvað smá í gogginn í félagsskap ömmu sem aldrei mátti vita af tómum maga. Eft- ir því sem ég eltist kunni ég einnig sí- fellt betur að meta smekk hennar fyr- ir kaffibolla og sætabrauði – eigin veikleika sem ég á ekki erfitt með að rekja. Amma setti mark sitt á líf allra sem henni fengu að kynnast enda heillandi manneskja á svo margan hátt. Hún var mikill fagurkeri og hafði næmt auga á liti og form. Hún var sjálf svo falleg, með sitt fannhvíta hár, sín him- inbláu augu og sinn sígilda, skær- bleika varalit. Hennar helstu töfrar fólust þó í ótrúlegum persónustyrk og sjálfstæði. Þótt beinin gæfu sig með árunum stóð vilji ömmu ávallt keikur. Amma Bíbí bað engan afsökunar á til- veru sinni heldur þvert á móti, hún setti mark sitt á umhverfið hvar sem hún kom. Hún vissi hvað sneri upp og hvað niður í þessum heimi og lá sjald- an á skoðun sinni. Athugasemdir hennar gátu stundum virst óvægnar en ávallt voru þær vel meintar. Henn- ar dýrmætasta eign var fjölskyldan. Amma undi sér enda best í mann- fagnaði, umkringd fjölskyldu og vin- um. Jafnvel eftir áttrætt gat hún enst lengi fram eftir kvöldi í góðum gleð- skap, setið á spjalli og reytt af sér brandara. Eftir því sem árunum fjölgaði fann hún sig betur í virðing- armiklu hlutverki öldungsins og leyfði okkur að snúast í kringum sig. Amma var óumdeilanlega höfuð fjöl- skyldunnar, svolítið eins og sólin með okkur á sporbaug. Amma Bíbí sagði mér eitt sitt að hún hefði aldrei gefið sérstaklega mikið fyrir nafnið sitt. Þar verð ég að vera henni ósammála. Birnan er sterkt og sjálfstætt dýr, stundum óvægin í návígi en allar hennar gerðir stýrast af umhyggju fyrir afkvæmum sínum. Betri lýsingu á ömmu veit ég ekki um. Nafn hennar mun ég alla tíð bera með stolti og minnast hennar með ást, þakklæti og virðingu. Hvíldu í friði elsku amma. Birna Þórarinsdóttir. Birna eða Bíbí frænka var tíður gestur á æskuheimili okkar. Hún kom oft gangandi niður Barmahlíðina tignarleg, létt og rösk í spori með rjóðar kinnar eftir gönguna úr Háa- leiti og Dalalandi seinna meir. Bíbí var mjög ræðin og lífleg og var mikið hlegið í návist hennar. Hún gaf sér ávallt tíma til að ræða málin við okkur og hafði mikinn áhuga á að fylgjast með okkur. Hún spurði hvað við værum að fást við, hvernig okkur gengi og hvernig okkur liði. Bíbí bar ætíð hag okkar fyrir brjósti og aldrei leiddist okkur í nærveru hennar. Hún var ómissandi í allar hinar helstu veislur og boð hjá okkur. Hún lék á als oddi og átti það til að koma með glettin og hnitmiðuð innskot á mannamótum. Jólaboð Bíbíar á hlýlegu og smekk- legu heimili hennar á Háaleitisbraut voru skemmtileg. Fallega dekkað matarborðið með ýmsu spennandi ný- stárlegu meðlæti, sem hún hafði kynnst í Danmörku, eins og tartalett- um, rauðbeðusalati og kökum bragð- bættum með smá skvettu af sérríi eða púrtvíni. Þetta var ólíkt því sem við vorum vön á þessum tíma. Eftir mat- inn var síðan brugðið á leik, spilað bingó, matador eða skottið teiknað á svínið með bundið fyrir augun. Já, minningarnar eru margar og ljúfar. Bíbí og pabbi, eða Sæi bróðir, eins og hún kallaði hann, voru miklir perluvinir. Þau ásamt mömmu gátu setið lengi hér áður fyrr og spjallað saman. Bíbí vitnaði gjarnan til Dan- merkuráranna á stríðsárunum með Vilhjálmi heitnum, áranna á Siglufirði og ekki síst rökræddi hún það sem efst var á baugi í þjóðfélaginu hverju sinni. Hún var ákveðin og hafði sterk- ar skoðanir og ákveðna lífssýn. Það eru ekki svo mörg ár síðan Bíbí og for- eldrar okkar fóru í sumarfrí saman til Spánar. Það var skemmtileg sjón að horfa á eftir þeim á leið inn í flughöfn- ina. Við vitum að pabbi hafði gaman af að hringsnúast í kringum systur sína til að gera ferðina sem eftirminnileg- asta. Jafnvel eftir að Bíbí fluttist í Sóltún áttu þau systkinin til að sitja sitt í hvorum stólnum og ræða málin vítt og breitt. Hvað þau gátu spjallað! Þau voru ekki alltaf sammála um hlutina og átti Bíbí þá til að segja: „Ertu virki- lega orðinn svona gleyminn, Sæi minn?“ og hlæja við, komin hátt á ní- ræðisaldurinn, við bróðurinn sinn fimm árum yngri. Bíbí fylgdist ekki bara vel með okk- ur systkinunum heldur sýndi hún börnum okkar einnig mikla umhyggju og ástúð, sem við sannarlega kunnum öll að meta. Bíbí var okkur og börnum okkar kærleiksrík frænka. Viðmót og nærvera hennar var einstök og mun minning okkar um þessa hlýju og lífs- glöðu frænku okkar ætíð fylgja okkur. Elsku frændsystkini, við systkinin vottum ykkur og fjölskyldum ykkar okkar dýpstu samúð. Jón Alvar, Hrönn, Guðrún Sigríður og Jónína Margrét MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 23 MINNINGAR ✝ Kjartan Thor-oddsen Ingi- mundarson fæddist á Sunnuhvoli á Barðaströnd 25. ágúst 1923. Hann andaðist 18. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Jón Kristinn Ingimundur Jó- hannesson, bóndi á Bakka og Ystu- Tungu í Tálknafirði, f. 3. mars 1895, d. 8. apríl 1973, og Guð- björg Bjarnveig Jóhannesdóttir húsfreyja, f. 28. október 1887, d. 22. mars 1962. Systkini Kjartans eru Jóhannes Magnús, f. 1914, d. 1997, Þórður, f. 1916, d. 2005, Kristín Guðbjörg, f. 1919, Jóhanna Björg, f. 1921, d. 2006, Lilja, f. 1924, d. 2000, Ólafur Sigurður, f. 1927, og Hjálmar, f. 1928. Uppeld- issystir er Sigrún Jónsdóttir, f. 1939. Kjartan kvæntist 1944 Hrefnu Sigurðardóttur, f. 1920. Börn þeirra eru: 1) Helga Þóra skurð- hjúkrunarfræðingur, f. 1945, maki Guðmundur Kristjánsson, hrl., f. 1946. Skildu. Börn þeirra eru a) Kristján Pétur, f. 1967, b) Hrefna, f. 1971, hennar dóttir er Tinna Ty- nes, f. 2005, c) Kjartan, f. 1975, maki Emilía Gunnarsdóttir, f. 1975, börn þeirra Melkorka, f. 2001, og Hrafn, f. 2004 2) Hreinn reksfirði og var ári síðar orðinn skipstjóri á undanþágu þar sem til- skildir 18 mánuðir frá því að hann lauk stýrimannaprófi voru ekki liðnir. Eftir þetta var hann stýri- maður og skipstjóri á togurum og bátum þar til hann hætti sjó- mennsku. Kjartan var farsæll í starfi sínu sem stjórnandi skipa og tvívegis varð hann þeirrar gæfu aðnjótandi að bjarga áhöfnum fiskiskipa er lent höfðu í hafsnauð. Fyrir störf sín til sjós var hann sæmdur heiðursorðu sjó- mannadagsráðs á Patreksfirði á sjómannadaginn 2004. Að lokinni sjómennsku gerðist hann eftirlits- maður fiskafurða, en vann síðast sem öryggisvörður í átta ár. Listhneigð Kjartans kom í ljós á unga aldri. Hann bæði rissaði myndir á pappír og tálgaði skúlp- túra úr spýtum. Síðar varð hann jafnhagur á tré, bein, málm og liti. Verk hans eru víða til og spanna allt frá bátslíkönum til torfbæja og frá skúlptúrum til málverka. Eftir að hann var kominn í land hóf hann einnig að setja hugrenningar sínar í ljóð og smásögur. Öll list- sköpun hans einkenndist af því að hann var stöðugt að segja frá. Hvort sem hann málaði, skar út, samdi ljóð eða setti saman smásög- ur, var hann ávallt að tjá hughrif sín og upplifun af lífinu eða því, sem hugur hans geymdi frá liðinni tíð. Í bókinni „Kæi í Tungu“ frá 2003 er að finna sýnishorn af ljóð- um hans og smásögum, en þar eru einnig myndir af málverkum hans og skúlptúrum. Útför Kjartans verður gerð frá Seljakirkju í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Hrafnkell, verkamað- ur, f. 1946, 3) Jens, lýtalæknir, f. 1951, maki Þórey Björns- dóttir flugfreyja, f. 1952, börn þeirra a) Björn Róbert, f. 1969, maki Stefanía Kjart- ansdóttir, f. 1972, b) Þorbjörg, f. 1975, sambýlismaður Ómar Ingþórsson, f. 1970, þeirra dóttir er Salka Soffía, f. 2007, c) Davíð, f. 1981, sam- býliskona Þórdís Guðmundsdóttir, f. 1981, d) Þórey, f. 1985, d. 1985, e) Þórunn, f. 1985, d. 1985, f) Þórdís, f. 1990, 4) sonur, f. 1955, d. 1955, 5) Þórunn, skurð- hjúkrunarfræðingur, f. 1956, maki 1 Loftur Hlöðver Jónsson skrif- stofumaður, f. 1946. Skildu. Þeirra sonur Kjartan Hrafn, f. 1981, sam- býliskona Tekla Hrund Karls- dóttir, f. 1982, dóttir þeirra er Álf- rún Eva, f. 2007. Maki 2 Sigtryggur Jónsson sálfræðingur, f. 1952, þeirra börn Friðrik Þór, f. 1991 og Valþór Freyr, f. 1996. Kjartan hóf sjómennsku 14 ára gamall er hann fór sumarvertíð á hvalbát, en frá 18 ára aldri stund- aði hann sjóinn allt til ársins 1983. Hann lauk stýrimannaprófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík vorið 1957 og réðst strax sem ann- ar stýrimaður á „nýsköpunartog- arann“ Ólaf Jóhannesson frá Pat- Elsku pabbi minn, nú ertu búinn að kveðja og það er endanlegt. Þegar ég var lítil stelpa á Patró og ung stúlka þá kvaddir þú mig oft en ég vissi að þú kæmir aftur. Að minnsta kosti var það mín barnstrú. Pabbi var að fara á sjóinn og það var þín vinna og ég þekkti ekkert annað. Það var ekki sjaldan sem ég stóð á bryggjunni á Patró og veifaði þér og horfði á þig í brúnni með sixpensara og pípu í öðru munnvikinu og mikið var ég stolt. Ég átti besta pabba sem til var. Þótt þú værir mikið í burtu komst það upp í vana en alltaf var tilhlökkunin jafn- mikil, þegar þú komst heim, að finna þína hlýju og sterku arma umvefja mig, sjá fallega brosið þitt og þín fal- legu augu sem stundum voru þreytt eftir erfiðan túr en oftast geislandi og full af gleði. Hjartans pabbi minn, það var erfitt að sjá þig svona veikan. Það sem fór mjög illa með þig var að þú skyldir missa sjónina að mestu. Þú varst mikill listamaður. Það var sama hvað hönd þín snerti, það varð allt að fagurri list. Þú málaðir bæði í olíu og vatnslitum. Þú skarst út í tré og hval- bein hvílík glæsiverk. Og að síðustu ortir þú ljóð og smásögur settir þú á blað frá þinni æsku. Bók var gefin út með ljóðum þínum og sögum og fékkst þú 50 eintök í 80 ára afmælisgjöf. Ég hef ekki oft sé þig tárast en þarna vöknaði þér um augun, elsku pabbi. Þú hefur alltaf verið hetjan mín, bestur og flottastur fram á hinstu stund. Þú verður í hjarta mínu alltaf. Kenndu mér klökkum að gráta kynntu mér lífið í svip Færðu mér friðsæld í huga finndu mér leið- ir á ný Veittu mér vonir um daga vertu mér hlýja og sól Láttu mig læra af reynslu leyfðu mér að ná Gefðu mér gullin í svefni gættu að óskum og þrám Minntu á máttinn í sálu minning er fegurri en tár Og sjáðu hvar himinninn heiður handan við þyngstu ský er dagur sem dugar á ný. (Sigmundur Ernir Rúnarsson.) Takk fyrir að hafa fengið að vera dóttir þín. Þín alltaf Helga Þóra. Elsku tengdapabbi, kæri vinur. Þú veist að ég er pennalöt kona með einsdæmum, en við gerðum samning fyrir allmörgum árum um að það okk- ar sem að færi á undan myndi skrifa um hitt, og við það mun ég standa þótt erfitt sé. Þú sagðir mér svo oft að þú myndir alltaf daginn sem þú sást mig fyrst. Þú sagðir: „Þú hélst í höndina á strák sem var sonur minn, og í hina hélstu í hendina á litlum dreng og það var hann Bjössi okkar“. Þú bættir svo við: „Ég gleymi aldrei augunum þínum Þórey og síðan hefur þú verið mín“. Þetta var svo fallega sagt og í svo mik- illi einlægni að það mun fylgja mér alla tíð. Það er svo margs að minnast þegar litið er um farinn veg og efst í huga mér er þakklæti fyrir að hafa verið samferðakona þín í nær 40 ár. Þú varst stoltur maður og mikill faðir. Börnin þín og barnabörn voru þér allt- af ofarlega í huga. Það lýsir því vel hvernig mann þú hafðir að geyma þeg- ar hann Jens sonur þinn fór til útlanda í nám. Þá komst þú á hverju kvöldi og svæfðir drenginn hann Davíð sem tók upp á því að neita að sofna fyrst pabbi hans gat ekki boðið honum góða nótt. Þú fannst líka jörðina fyrir okkur, Mýrina á Snæfjallaströnd, og gekkst í að semja um kaup á henni. Margar ferðirnar fórum við þangað og alltaf vorum við sammála um að sólin skini okkur til heiðurs þegar að við keyrð- um Djúpið. Við vorum alltaf nokkuð ánægð með hvort annað. Þú sagðir að ég væri trúnaðarvinkona þín og ég gekst upp í því, enda mun ég geyma ýmislegt sem okkur fór á milli. Þú varst mikill hagleiksmaður og margt til lista lagt. Það var sama hvar barið var niður, þú málaðir, ortir og skarst út í bein og tré. Litla húsið og brúin á Glæsivöllum sem þú smíðaðir við sumarbústað foreldra minna munu standa um ókomin ár og minna okkur á þig í hvert skipti sem við komum þangað. Eins eru stundirnar þegar að þið feðgarnir hjálpuðust að við að smíða veröndina í Hæðarselinu ógleymanlegar. Elsku Kjartan minn, þú lifðir fyrir okkur. Ég vissi að þú varst tilbúinn, ævidagurinn var orðinn langur. Ég kveð þig og bið góðan Guð að fylgja þér um hafsins höf. Að lokum langar mig að þakka þá alúðlegu aðhlynningu sem þú fékkst frá starfsfólki Seljahlíðar á þessum síðustu og erfiðu dögum. Þín tengdadóttir, Þórey. Hógværð og visku og hagleik og list, þú hafðir í ómældu magni. Nú hefur þú öðlast á himninum vist, þar heilagir menn þér fagni. Þín arfleifð er það sem við ei höfum misst og ávallt hún verður að gagni. Hógværð segi ég því ekki varstu að trana þér fram eða að óska eftir að kastljósið beindist að þér, þó þú hefðir miklu meira fram að færa en margir aðrir sem baða sig í því ljósi daglega. En þú vissir hvað þú vildir og lést aðra vissulega heyra af því. Visku þína heyrði ég oft í því er þú ræddir um hvernig þú stjórnaðir mannskap á skipstjórnarárum þínum og eins kom hún ómæld fram í ljóðum þínum og smásögum. Hagleiki þinn og listfengi lifir í verkum þínum, byggingum, mál- verkum, útskurði, ljóðum og smásög- um. Það reyndist mér auðvelt að hrí- fast með þér í áhuga þínum á ættfræði, ljóðum, smásögum og frá- sögnum og því að byggja og skapa. Þó ekki væri ég sjómaður og hafi varla komið á sjó tókstu mig samt með þér og þó langt sé um liðið, man ég vel þær góðu stundir sem við áttum sam- an tveir um borð í Hrefnunni. Bæði í logni og blíðu þar sem við eyddum tímanum í spjall og rökræður, einkum um íslenskt mál og ljóðagerð. Þú vildir lengi vel ekkert af stuðlum og höfuð- stöfum vita, þó síðar yrði það mitt hlutverk að svara spurningum þínum um þá hluti. Einnig í stormi og ágjöf þegar þú varst tilbúinn til þess að fórna línunni og stíma í land til þess að verða ekki til þess að drekkja tengda- syninum. Það gat ég hins vegar ekki leyft og vildi auðvitað sýna hvað í mér bjó. Og þrátt fyrir stórsjó og storm komumst við í land, línan ásamt afla, ég og þú. Það var u.þ.b. sem við kynntumst að þú fórst að yrkja ljóð og ég fékk að fylgja þér og skynja stöðugt vaxandi kraftinn og fegurðina, en líka kímnina sem þú áttir svo auðvelt með að koma til skila. Það var ósjaldan að síminn hringdi hér heima og þú vildir láta meta nýtt ljóð eða leggja til breyting- ar og þá þurfti það að gerast strax því ljóðið var á vörum þínum. Þarna var ég heppinn, því lítið hefðir þú þurft á mér að halda, ef listhneigð þín hefði ennþá einungis birst í útskurði eða listmálun. Fjölskyldan var þér allt og áhersla þín á samheldni fjölskyldunn- ar er til eftirbreytni. Þar liggur stoðin og þar liggur styrkurinn í sorginni og í gleðinni. Þetta vissir þú og þetta ástundaðir þú og þetta kenndir þú. Þess vegna reyndir þú að vekja ættfræðiáhuga okkar sem yngri erum og þess vegna vildir þú að við kynnt- umst þínum heimahögum og deildir með okkur öllu sem þér var hjartfólg- ið frá æsku og uppvexti. Þess vegna hvattir þú til þess að ættirnar hittust á ættarmótum. Það sem ég lærði af þér er miklu meira en þú hafðir hugmynd um og fyrir það vil ég þakka. Ég mun sakna þín. Sigtryggur. Elsku afi. Við Þórdís og Friðrik Þór barnabörn þín, sem bæði höfum þekkt þig í um það bil 17 ár, erum sammála um eitt, að þú sért einn mesti snill- ingur sem við höfum kynnst. Þrátt fyrir að við séum ung vitum við margt um þig og þitt góða líf þar sem við sátum oftar en aldrei og spjölluðum saman. Þú gast alltaf feng- ið okkur til að hlæja með þínum ein- staka húmor og það var alveg merki- legt hversu skýr þú varst alla tíð. Þú lagðir mikið upp úr skáldskap, myndlist og handverksvinnu, en lagð- ir þó mesta áherslu á það við okkur að við skyldum byrja að yrkja. Auðvitað litum við upp til þín elsku afi og fórum að þreifa fyrir okkur í skáldskapnum. Eins og þú sjálfur veist sömdum við kannski ekki innihaldsríkustu kvæðin, en þú gladdist alltaf yfir hverju rími sem kom af vörum okkar. ,,Þið hafið þetta í blóðinu,“ sagðirðu alltaf og brostir. Þessum orðum munum við aldrei gleyma og við vitum að þú munt alltaf halda áfram að hvísla þeim í eyru okkar og styðja okkur í öllu, líkt og þú ert vanur að gera. Minningar okkar eru þær að þú hafir alltaf verið ekki bara góður afi heldur einnig góður vinur og leik- félagi. Það sem þú gerðir ekki til þess að gleðja litlu hjörtun okkar, t.d. þeg- ar þú byggðir hengirúmið í sveitinni. Við getum ekki annað en brosað þegar við hugsum til baka. Takk fyrir alla þá ást og væntum- þykju sem þú veittir okkur. Okkur finnst alveg frábært að hafa fengið tækifæri til að kynnast og eiga afa eins og þig og munum við aldrei gleyma þér. Ástarkveðjur, Þórdís Jensdóttir og Friðrik Þór Sigtryggsson. Kjartan Thoroddsen Ingimundarson  Fleiri minningargreinar um Kjart- an Thor Ingimundarson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.  Fleiri minningargreinar um Birnu Halldórsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.