Morgunblaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
TÓNLISTAR- og ráðstefnuhúsið við Ægisgarð
rýkur upp. Uppsteypa hússins gengur vel en
gert er ráð fyrir að húsið verði formlega vígt og
tilbúið til rekstrar eftir tvö ár eða í desember-
mánuði árið 2009 og að svæðið verði að verulegu
leyti tilbúið 2010. Um gríðarlega miklar bygg-
ingarframkvæmdir er að ræða sem sést best með
því að bera húsgrunninn saman við stjórnarráðið
í forgrunni myndarinnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið rýkur upp
TVEGGJA mán-
aða skilorðs-
bundinn fangels-
isdómur yfir
karlmanni sem
sakfelldur var
fyrir heimilisof-
beldi gegn fyrr-
verandi eigin-
konu sinni, er
heldur vægur
miðað við tilefnið að mati Jóns H.
Snorrasonar aðstoðarlögreglustjóra
sem sótti málið fyrir hönd lögreglu-
stjórans á höfuðborgarsvæðinu.
Málið var dæmt í Héraðsdómi
Reykjaness á föstudag og var ákærði
sakfelldur fyrir að ráðast á konuna á
þáverandi heimili þeirra beggja og
slá hana ítrekað hnefahöggum í höf-
uð og andlit og sparka í líkama henn-
ar. Afleiðingarnar urðu þær að hún
hlaut opið sár og mar á augnlok og
augnsvæði hægra megin, marga yf-
irborðsáverka á höfði, mar yfir
hryggjartindi hálsliðar og handlegg
auk yfirborðsáverka á öxl. Þá hlaut
hún mar á læri.
Tildrög málsins voru þau að til
átaka kom á milli fólksins í framhaldi
af samtali þeirra um yfirvofandi
skilnað. Maðurinn játaði að hafa
slegið og sparkað í konuna en sagði
hana hafa átt upptökin með því að slá
hann utanundir. Dómurinn taldi
sannað að maðurinn væri sekur um
brotið gegn konunni.
Maðurinn á sakaferil að baki, m.a.
fyrir minniháttar líkamsárás.
Anna M. Karlsdóttir, settur hér-
aðsdómari, dæmdi málið.
Ríkissaksóknari mun ákveða
hvort dóminum verði áfrýjað til
Hæstaréttar til refsiþyngingar.
Að sögn Jóns H. Snorrasonar hafa
heimilisofbeldismál forgang í rann-
sóknum hjá LHR og í bígerð er að
þingfesta 1-2 slík mál fyrir dómstól-
um á næstu vikum.
Saksóknari
telur dóm
vægan
Heimilisofbeldismál í
forgangsrannsókn
Jón H. Snorrason
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
KONUR koma hlutfallslega ekki
verr út úr prófkjörum en karlar og
eru hlutfallslega jafnlíklegar til að
ná settu marki og karlar. Hins
vegar sækjast konur ekki eins
mikið eftir forystusætum og vilja
ekki vera eins ofarlega á lista. Þá
eru frambjóðendur líklegri til að
ná settu marki séu þeir þingmenn.
Þetta eru helstu niðurstöður
BA-ritgerðar Ásdísar Jónu Sigur-
jónsdóttur í stjórnmálafræði við
Háskóla Íslands, Eru tengsl milli
kynferðis og árangurs í prófkjör-
um stjórnmálaflokka? Hún fær
verkefnastyrk Félagsstofnunar
stúdenta fyrir ritgerðina og verður
hann afhentur í dag.
Ásdís Jóna safnaði saman gögn-
um um prófkjör allra þeirra
stjórnmála-
flokka, sem
héldu prófkjör,
og frambjóðend-
ur þeirra í að-
draganda kosn-
inganna til
Alþingis 2003 og
2007. Hún safn-
aði saman upp-
lýsingum um alla
frambjóðendur í
prófkjörunum, 113 frambjóðendur
2003 og 203 frambjóðendur 2007,
og á hvaða sæti þeir stefndu auk
annarra gagna. Greining sýndi að
konur voru ekki með marktækum
hætti ólíklegri til að ná því sæti
sem þær stefndu á en karlar. Ás-
dís segir áberandi að áttunda sæt-
ið hafi verið vinsælt hjá konum í
Reykjavík.
Indriði H. Indriðason, dósent í
stjórnmálafræði við HÍ, var leið-
beinandi Ásdísar. Í haust fengu
þau styrk frá jafnréttissjóði og
næsta skref er að finna út hvers
vegna konur sækjast ekki eftir
sætum eins ofarlega á lista og
karlar.
Konur koma ekki
verr út úr prófkjörum
Karlar sækjast frekar eftir forystusætum en konur
Í HNOTSKURN
» Konur sækjast síður eftirforystusætum en karlar og
stefna frekar á lægri sæti.
» Meira en helmingur þeirraþingmanna sem gáfu kost á
sér í prófkjöri 2007 fengu það
sæti sem þeir sóttust eftir.
» Verkefnastyrkir Félags-stofnunar stúdenta eru veitt-
ir þrisvar á ári og nemur hver
styrkur 150 þúsund kr.
Ásdís Jóna
Sigurjónsdóttir
BYGGINGA- og verkfræðifyrirtækið StafnÁs
ehf. hefur sagt upp 95 manns og er mikill meiri-
hluti þeirra Pólverjar. Trésmiðafélag Reykja-
víkur og Samevrópska vinnumiðlunin á Íslandi,
EURES, eru að reyna að útvega verkamönn-
unum vinnu, bæði hérlendis sem erlendis, en
flestir starfsmennirnir eru með mánaðar upp-
sagnarfrest.
Finnbjörn A. Hermannsson, formaður Sam-
iðnar, segir að Trésmiðafélag Reykjavíkur hafi
verið starfsmönnum fyrirtækisins innan hand-
ar síðan skömmu eftir áramót, þegar fyrirtækið
greiddi ekki laun á réttum tíma. Vegna afskipta
félagsins fengu starfsmennirnir launin greidd,
en sagan hafi endurtekið sig fyrir rúmri viku og
þá hafi félagið aftur gengið í málið. Síðan hafi
fyrirtækið tilkynnt Vinnumálastofnun upp-
sagnirnar og enn hafi ekki bólað á launa-
greiðslum.
Forsvarsmaður StafnÁss svaraði ekki skila-
boðum í gærkvöldi en Finnbjörn segir augljóst
að fyrirtækið sé komið í þrot. Um 90% starfs-
mannanna séu Pólverjar og sé verið að reyna
að útvega þeim nýja vinnu, meðal annars hjá
fyrirtækjum sem StafnÁs hafi verið und-
irverktaki hjá, en fyrir liggi að ekki finnist
vinna handa öllum strax. Margir séu reyndar
búnir að fá nóg og vilji fara heim.
Finnbjörn segir að ekki sé kvartað undan
verkefnaskorti og ekki hafi heyrst af almennum
samdrætti í byggingariðnaði, þótt vitað sé að
farið sé að þrengja að einstökum fyrirtækjum
vegna þess að minna fjármagn sé í umferð.
Dröfn Haraldsdóttir, verkefnisstjóri EUR-
ES, segir að margir starfsmanna StafnÁss hafi
komið í gegnum EURES. Þeir hafi almennt
ekki áhuga á að fara á bætur heldur vilji vinna
og hafi þeim meðal annars verið bent á störf í
Noregi, Bretlandi og Danmörku.
Byggingafyrirtæki segir upp 95 manns
Verkefni StafnÁs ehf. hefur verið með
Vindakór 2-8 í Kópavogi í byggingu.
SÆNSKA fjármálaeftirlitið hyggst
rannsaka viðskipti Kaupþings í Sví-
þjóð með eigin hlutabréf. Fyrstu tvo
mánuði ársins stendur nafn bankans
við 48% af viðskiptum með eigin
bréf. Þetta kemur fram á fréttavef
Dagens Industri.
Deildarstjóri hjá sænska eftirlit-
inu, Jan Fritsch, segir vissulega
vera um hátt hlutfall að ræða, en vill
ekki spá frekar um ástæður þess.
Að sögn Peters Borsos, tals-
manns Kaupþings í Svíþjóð, eiga
viðskiptin sér eðlilegar skýringar.
„Skýringin er sú að við erum
skráðir á markað, bæði í Stokkhólmi
og í Reykjavík,“ segir Borsos.
Áhugann á að skipta með bréf
Kaupþings í gegnum bankann sjálf-
an megi rekja til högnunarviðskipta,
þegar gengi Kaupþings er ólíkt í
Svíþjóð og á Íslandi. Fáir séu skráð-
ir á báða markaði og þessi kaup séu
stunduð fyrir hönd viðskiptavina
Kaupþings.
Jan Fritsch segist ekki útiloka að
þessi skýring sé rétt en að málið
verði rannsakað af yfirvöldum.
Rannsakar
Kaupþing
í Svíþjóð
♦♦♦
RAFMAGNSLAUST var á Egils-
stöðum og í nágrenni í um 14 mín-
útur í gærkveldi áður en straumur
komst á að nýju.
Samkvæmt upplýsingum frá
Rafmagnsveitum ríkisins á Aust-
urlandi sló álverið á Reyðarfirði
út. Við það varð yfirspenna á kerf-
inu sem leyst var út í aðveitustöð-
inni við Eyvindará. Fljótt og vel
gekk að koma rafmagni á aftur og
var það komið á um fjórtán mín-
útum síðar.
Rafmagns-
laust í 14
mínútur