Morgunblaðið - 04.03.2008, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2008 7
FRÉTTIR
DÓMSTÓLL í Bretlandi hafnaði í gær frávísunar-
kröfu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar í meið-
yrðamáli Jóns Ólafssonar, sem hann höfðaði gegn
Hannesi í Bretlandi.
Jón sagði í samtali við Fréttavef Morgunblaðs-
ins, mbl.is, að málið héldi nú áfram en hann hefur
ráðið til sín tvo lögmenn í Bretlandi til að fara með
málið.
Jón höfðaði meiðyrðamál upphaflega gegn
Hannesi í Bretlandi. Árið 2005 dæmdi enskur
dómstóll Hannes til að greiða Jóni Ólafssyni 11
milljónir kr. í bætur vegna ummæla sem Hannes
lét falla á ráðstefnu norrænna blaðamanna í Reyk-
holti í október 1999 og birti síðan á heimasíðu
sinni.
Í framhaldinu krafðist Jón fullnustu dómsins á
Íslandi og að gert yrði fjárnám hjá Hannesi.
Hannes brást við með að gera þá kröfu fyrir dómi
að fjárnámið yrði fellt niður og samhliða leitaði
Hannes eftir viðurkenningu breskra dómstóla eft-
ir því að dómurinn yrði gerður ógildur.
Breskir dómstólar féllust á þetta og var því upp-
haflegi dómurinn felldur úr gildi.
Þegar breski dómarinn felldi upphaflega dóm-
inn úr gildi mælti hann svo fyrir að Jón væri und-
anþeginn þeirri skyldu, sem annars hvílir á mönn-
um, að birta stefnu fyrir Hannesi svo hann gæti
haldið áfram með málið.
Heimir Örn Herbertsson, lögmaður Hannesar,
segir að skv. bresku réttarfari beri að höfða meið-
yrðamál innan eins árs frá því meiðandi ummæli
voru birt. Mál telst því höfðað þegar stefna hefur
verið stimpluð af dómara. Ágreiningurinn nú sner-
ist því um það hvort hægt væri að leysa Jón undan
stefnubirtingunni. Þetta telur Heimir að sé beint
inngrip í íslenskt réttarfar. Í gærmorgun féllst
dómstóllinn ekki á það að þetta hefði verið óheim-
ilt. Að sögn Heimis er næsta skref að fara yfir nið-
urstöðuna og taka ákvörðun í framhaldinu af því.
Frávísunarkröfu Hannesar
hafnað af breskum dómstól
GRÉTAR Már Sigurðsson, ráðu-
neytisstjóri utanríkisráðuneytis, og
Manouchehr Mottaki, utanrík-
isráðherra Írans, funduðu í Teheran
um helgina. Sagt var frá fundinum á
írönsku fréttasíðunni presstv.com í
gær.
Viðskipti og samvinna á sviði jarð-
hita var á meðal þess sem rætt var á
fundinum. Samkvæmt upplýsingum
úr utanríkisráðuneytinu var rætt
um Jarðhitaskóla Háskóla Samein-
uðu þjóðanna í Reykjavík og hvort
ríkin geti haft frekari samvinnu á
sviði jarðvarma. Þá var rætt um að
liðka fyrir viðskiptasamböndum ís-
lenskra fyrirtækja sem hafa áhuga á
starfa í Íran, en með íslensku sendi-
nefndinni í för voru fyrirtæki í heil-
brigðisgeiranum. Haft er eftir Mot-
taki á vef presstv.com að þar sem
viðskiptajöfnuður Írans við útlönd
sé jákvæður geti samvinna við Ís-
lendinga um margvísleg verkefni
tryggt hagsmuni beggja. Nefnir
hann þar til dæmis bílaframleiðslu
og virkjanaframkvæmdir.
Auk þess bar framboð Íslands til
öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og
staða mála í Afganistan á góma.
Ekki fengust upplýsingar um hvort
Íranar hafi lýst yfir stuðningi við
framboð Íslands til öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna.
Fundað um
samvinnu
við Íran
HÁDEGISFUNDUR Skýrslutækni-
félagsins um rafræna opinbera þjón-
ustu verður haldinn á morgun, 4.
mars, kl. 12–14 á Grand Hótel
Reykjavík.
Í fréttatilkynningu segir að á
fundinum verði farið yfir hvernig
lagt er mat á rafræna opinbera þjón-
ustu í fjölþjóðlegum samanburð-
arkönnunum og hver staða Íslands
hefur verið. Þá verður kallað eftir
viðbrögðum ríkisvaldsins og stærsta
sveitarfélagsins við því sem virðist
vera óviðunandi staða Íslands þegar
kemur að framboði á rafrænni op-
inberri þjónustu og leitað leiða til
þess að breyta núverandi ástandi.
Erindi flytja Eggert Ólafsson,
MPA, Guðfinna S. Bjarnadóttir, al-
þingismaður og fulltrúi stefnumót-
unarnefndar ríkisstjórnarinnar, og
Álfheiður Eymarsdóttir, þjón-
ustustjóri Reykjavíkurborgar.
Í lokin munu Bragi L. Hauksson
hjá Tryggingastofnun, Guðbjörg
Sigurðardóttir hjá forsætisráðu-
neytinu, Haukur Arnþórsson hjá HÍ,
og Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri
í Hveragerði, taka þátt í pan-
elumræðum ásamt frummælendum.
Fundinum stjórnar Indriði H. Þor-
láksson.
Ísland í
fallsæti?
Á FUNDI hreppsnefndar Langa-
nesbyggðar föstudaginn 29. febr-
úar sl. lýsti nefndin yfir eindregn-
um stuðningi við áform um
uppbyggingu álvers á Bakka við
Húsavík.
„Kjölfesta í atvinnumálum er
grundvöllur þess að snúa megi vörn
í sókn og viðhalda gróskumikilli
byggð á Norðausturlandi. Þar er
fyrirhugað álver á Bakka bæði eft-
irsóknarverður og raunhæfur val-
kostur. Álver á Bakka mun skapa
um 300 ný framtíðarstörf, sam-
kvæmt skýrslu um samfélagsleg
áhrif álvers á þeim stað. Afleidd
störf vegna álvers verða mun fleiri
og áhrifa þeirra mun gæta langt út
fyrir sveitarfélagið Norðurþing,“
segir í bókun.
Tillagan var samþykkt sam-
hljóða.
Styðja álver
á Bakka
♦♦♦
♦♦♦