Morgunblaðið - 04.03.2008, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
EFTIRLITSMENN þingmanna-
samtaka Evrópuráðsins létu í gær í
ljós efasemdir um að forsetakosning-
arnar í Rússlandi á sunnudag hefðu
verið frjálsar og lýðræðislegar.
Andreas Gross, sem fór fyrir 25
eftirlitsmönnum, sagði að úrslit
kosninganna „endurspegluðu vilja
kjósendanna“ en bætti við að þær
gætu ekki talist lýðræðislegar, m.a.
vegna ósanngjarnrar fjölmiðlaum-
fjöllunar. „Það var ekkert frelsi í
þessum kosningum,“ sagði Gross og
skírskotaði m.a. til þess að ríkis-
reknu fjölmiðlarnir hömpuðu sigur-
vegaranum, sem naut stuðnings
Vladímírs Pútíns forseta, og fjölluðu
lítið um aðra frambjóðendur.
Þegar nær öll atkvæði höfðu verið
talin í gær var Dmítrí Medvedev,
fyrsti aðstoðarforsætisráðherra,
með 70,2% fylgi. Gennadí Zjúganov,
leiðtogi kommúnistaflokksins, fékk
17,8% atkvæðanna og Vladímír
Zhírínovskí, leiðtogi þjóðernisöfga-
manna, fékk um 9%.
Ráðamenn á Vesturlöndum ósk-
uðu Medvedev til hamingju en
nokkrir þeirra tóku fram að ekki
hefði alltaf verið farið eftir lýðræð-
islegum reglum í kosningunum.
„Kosningarnar fóru fram að rúss-
neskum hætti, vitað var um sigur-
vegarann fyrirfram,“ sagði Bernard
Kouchner, utanríkisráðherra Frakk-
lands.
Medvedev, sem er 42 ára, tekur
við forsetaembættinu 7. maí og verð-
ur þá yngsti leiðtoginn í Kreml frá
Nikulási 2., síðasta keisara Rúss-
lands. Gert er ráð fyrir því að
Medvedev skipi Pútín forsætisráð-
herra en mikil óvissa er um hvernig
þeir skipti með sér völdunum.
Hörð valdabarátta?
Evrópskir fjölmiðlar gagnrýndu
framkvæmd kosninganna en voru
ekki á einu máli um hvort Medvedev
og Pútín gætu stjórnað Rússlandi í
sameiningu.
„Búist aðeins við breytingum að
nafninu til þegar „Pútvedev“ tekur
við völdunum,“ sagði í fyrirsögn
fréttaskýranda breska dagblaðsins
Guardian. Mörg blaðanna veltu því
fyrir sér hvort Medvedev yrði aðeins
þjóðhöfðingi að nafninu til og hvort
Pútín hefði áfram bæði tögl og
hagldir sem forsætisráðherra.
Nokkur blaðanna spáðu því sam-
starfið gengi snurðulaust fyrir sig að
mestu en aðrir töldu líklegt að hörð
valdabarátta blossaði upp á milli
þeirra. „Rússland hefur aldrei áður
haft tvær valdamiðstöðvar og fáir
telja að það gangi,“ sagði Svenska
Dagbladet.
Franska dagblaðið Le Figaro dró í
efa að „tvíeykisfyrirkomulagið“ ent-
ist lengur en til vors og sagði að saga
landsins sýndi að aðeins væri „rými
fyrir einn keisara í Rússlandi“.
„Gætu ofurvinsældir Pútíns horfið
þegar hann hefur ekki lengur stjórn-
sýsluvaldið í Kreml á bak við sig?“
spurði blaðið.
Þýska blaðið Süddeutsche Zeit-
ung sagði að Pútín hefði verið hepp-
inn að því leyti að hærra olíuverð
hefði gert honum kleift að bæta lífs-
kjör Rússa. „Ef efnahagsástandið
versnar gæti krónprins Pútíns fallið í
ónáð,“ sagði blaðið. „Það verða ekki
mótmæli í nafni háleitra hugsjóna á
borð við lýðræði eða fjölmiðlafrelsi,
heldur vegna hneykslismála í
tengslum við byggingariðnaðinn eða
verð á lesta- og strætisvagnaferð-
um.“
Maria Lipman, stjórnmálaskýr-
andi í Moskvu, sagði að á næstu
mánuðum mætti búast við mikilvæg-
um vísbendinum um hvernig stjórn-
málaþróunin yrði í Rússlandi. T.a.m.
yrði spennandi að fylgjast með
myndun nýrrar ríkisstjórnar og að
hve miklu leyti nýir ráðherrar teldu
sig standa í þakkarskuld við Medve-
dev fremur en Pútín.
Annar stjórnmálaskýrandi í
Moskvu, Sergej Markov, sagði að
það væri hægara sagt en gert að
skipta völdunum. „Mörgum spurn-
ingum er ósvarað. T.d. er er ekkert í
stjórnarskránni um hver eigi að ráða
yfir ríkissjónvarpinu – forsetinn eða
ríkisstjórnin,“ sagði Markov. „Það
stendur ekkert í stjórnarskránni um
hver eigi að ráða yfir Gazprom og
Rosneft, eða stjórna flokknum Sam-
einaða Rússlandi.“
Einnig verður áhugavert að fylgj-
ast með afdrifum valdamestu aðstoð-
armanna Pútíns úr röðum fyrrver-
andi starfsmanna sovésku
leyniþjónustunnar KGB. Fara þeir
með Pútín í forsætisráðuneytið,
verða þeir áfram í Kreml til að fylgj-
ast með Medvedev eða víkja þeir fyr-
ir öðrum?
Telja aðeins rými fyrir
einn keisara í Rússlandi
Eftirlitsmenn efast
um að kosning-
arnar hafi verið
lýðræðislegar
! !"
# !
# $
%
!
"
!
"
#$%
&'$
(
)
*++,
$'-(
.
/ 01
% (0
.
/ 1
) '!(
(
.
/ 2
+,--.(/01/02+-345+/6,3!/-
&'()*+,
#
$%
&
'
(
)
*%% *%$ *%) *%+ *%( *%, *%' *%-
-.
/-
01234('
.
$+%
$)%
$$%
$%%
*+++
3
4++
*%% *%$ *%) *%+ *%( *%, *%' *%-
56.6
5.-7
+089,
/ !
4555
3
4++
),%
)%%
$,%
$%%
*%% *%$ *%) *%+ *%( *%, *%' *%-
5.6.
66.:
;4<,='>40?1 4'
$%
0
&
-
'
*%% *%$ *%) *%+ *%( *%, *%' *%-
@A
-B
(78+51/
9.-31(3:1+;2+
<
> !
"
C
1 2
1 "
2
"
DE 3
"
C
4
2
"
DE 5
6 4
2
"
>
7
/
48!
9
4 9
:
;
<"
7 !
=
> "
> !
DE ? 6 "
"E 1
6 2
"
'"
6
8 '"
3
7 7 2
"
F E @
9
A 4BC:AD"
6 !
"
%&&'%&&<%&&=%&&>
?@@@ %&&& %&&? %&&% %&&$ ,%%
(%%
+%%
)%%
$%%
%
(9'4D0G? =;1?H 4'FD
7
5--/ I-B I-- 6... I.5 I.6 I.7 I.: I.
A
I.
@
I.
/
5: 5/B 566 56A
6B. 7@@ :/B
/@-
5 *%&
:B76
7.7/
5B66
56:A
Reuters
Strengjabrúða Pútíns? Pútín Rússlandsforseti og Dmítrí Medvedev, ný-
kjörinn eftirmaður hans, fagna kosningaúrslitunum á tónleikum í Moskvu.
SKOÐANAKANNANIR helg-
arinnar hafa sýnt allt að 12% for-
skot Hillary Clinton þó að Barack
Obama þyki vinna mikið á. For-
kosningar fara fram í fjórum ríkj-
um í Bandaríkjunum í dag og þykja
niðurstöður kosninganna í Texas
og Ohio gífurlega mikilvægar fyrir
frambjóðendur demókrata. Alls er
um 370 kjörmenn að keppa í ríkj-
unum fjórum. „Ohio er lykillinn að
forsetaembættinu,“ sagði Hillary
Clinton í gær en hún hefur lýst sig
bjartsýna á niðurstöður dagsins.
Sigur þykir nauðsynlegur fyrir
Clinton en keppinautur hennar,
Obama, hefur haft betur í 11 for-
kosningum í röð og er nú með
nokkuð fleiri kjörmenn en Clinton.
AP
Bjartsýn Hillary Clinton.
Kosningaslagur
Gaza. AFP. AP. | Ehud Olmert, for-
sætisráðherra Ísraels, lýsti því yfir
í gær að Ísraelsher myndi halda
áfram árásum á Gaza-svæðið. Her-
inn hefur nú dregið sig út af svæð-
inu, en Olmert segir að þar með sé
ekki um eftirgjöf að ræða, „við
munum ekki sýna vott af umburð-
arlyndi heldur svara fyrir okkur.
Viðbrögð okkar eru ekki bundin við
sérstakar aðgerðir eða dagsetn-
ingar,“ sagði Olmert á fundi Ka-
dima-flokksins í Jerúsalem í gær.
Ísraelar hafa síðan á miðvikudag
gert loftárásir á Gaza-svæðið og
hafa um 120 manns fallið, þar af 22
börn. Árásirnar eru gerðar með því
markmiði að stöðva eldflaugaárásir
sem skæruliðar á Gaza hafa gert á
nokkrar byggðir í Ísrael. Stjórn-
málaskýrendur hafa sagt árásir Ísr-
aela tilgangslausar, viðræður verði
að eiga sér stað á milli Ísraela og
Hamas-manna er ráða á Gaza-
svæðinu. Condoleezza Rice, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, er
væntanleg til Ísrael í dag, til að
reyna að þoka áfram frið-
arviðræðum.
Árásir Ísraela
halda áfram
ÍRANSKUR
dómstóll hefur
dæmt mann til að
kaupa 124.000
rósir handa eig-
inkonunni eftir
að hún lagði inn
kvörtun vegna
nísku hans.
„Hann tímir ekki
einu sinni að kaupa handa mér kaffi
þegar við förum út,“ segir eig-
inkonan. Hún vill taka út brúð-
argjöf sína í rósum, en það er gjöf
sem eiginmaður er skuldbundinn til
að gefa og getur kona krafist henn-
ar hvenær sem er. Dómstóllinn
gerði íbúð mannsins upptæka en
hann segist aðeins hafa efni á fimm
rósum á dag.
Kærður vegna
nísku sinnar
STUTT
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, sendi heillaóskir til ný-
kjörins forseta Rússlands í gær-
morgun.
Í kveðjunni áréttaði forseti Ís-
lands að bæði rússneska þjóðin
og veröldin öll vænti mikils af
störfum hins nýja forseta enda
framlag Rússlands við lausnir á
vandamálum mannkyns afar
brýnt, svo sem í baráttunni gegn
loftslagsbreytingum og fyrir friði
og farsælli sambúð allra ríkja.
Þá nefndi forseti Íslands að Ís-
lendingar hefðu um árabil notið
traustrar samvinnu við Rússa;
öflug viðskipti og menning tengt
þjóðirnar saman. Á komandi ár-
um væntu Íslendingar þess að
hæfni þeirra við nýtingu hreinnar
orku, einkum jarðhita, gæti nýst
Rússum við breytingar á orku-
kerfum landsins og að samvinna
þjóðanna í málefnum Norðurslóða
yrði áfram árangursrík. Norð-
urslóðir væru í vaxandi mæli einn
mikilvægasti hluti heims, einkum
vegna auðlindanna sem þar er að
finna og nýrra siglingaleiða sem
kunna að opnast á komandi ár-
um.
Væntir mikils
af störfum
forsetans