Morgunblaðið - 04.03.2008, Page 19
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2008 19
Þrátt fyrir varnarbaráttu margra
sveitarfélaga á landsbyggðinni í dag
og töluvert mikla fólksfækkun ríkir
hins vegar bjartsýni meðal íbúa
Djúpavogs sem hafa greinilega trú á
sinni heimabyggð sem áður. Skýrist
það m.a. af ágætu atvinnuástandi al-
mennt þrátt fyrir þorskkvótaskerð-
inguna sem tilkynnt var á síðastliðnu
ári.
Stærsti vinnuveitandinn Vísir hf.
er sem áður langmikilvægasta stoðin
í atvinnulífinu á Djúpavogi og má
segja að forsvarsmenn þess fyr-
irtækis hafi sýnt mikla festu í sínum
rekstri á staðnum í gegnum þær
þrengingar sem gengið hafa yfir
sjávarútveginn á síðustu vikum og
mánuðum, sem er auðvitað sér-
staklega mikilsvert fyrir allt sam-
félagið á Djúpavogi.
Fyrir skemmstu var birt í tímariti
sveitarstjórnarmála, samantekt yfir
íbúaþróun í þéttbýliskjörnum á
landsbyggðinni á tímabilinu 1998-
2007. Í úttektinni kemur m.a. fram að
þéttbýliskjarninn á Djúpavogi stend-
ur hvað styrkustum fótum í sam-
anburði sveitarfélaga á Austurlandi
en aðeins hefur fækkað um 5,9% á
fyrrgreindu tímabili. Í úttektinni
kom fram allt að 40% fækkun hjá
þeim þéttbýliskjörnum sem verst
komu út. Það má því segja að varn-
arbaráttan hafi tekist vel í þétt-
býliskjarnanum á Djúpavogi en
fækkun íbúa Djúpavogshrepps hefur
að langmestu leyti skýrst af mikilli
fækkun í dreifbýlinu á undanförnum
árum og áratugum.
Nú bendir hins vegar ýmislegt til að
íbúaþróunin sé að snúast við og íbú-
um taki að fjölga aftur á svæðinu en
mikil og jákvæð hreyfing hefur verið
á húsnæðismarkaðnum á Djúpavogi
á undanförnum vikum og mánuðum
og má segja að húsnæði gangi nú
kaupum og sölum þessa dagana eins
og heitar lummur. Hið jákvæða er í
þessu sambandi að í flestum tilvikum
er um ungt fjölskyldufólk að ræða
sem hefur verið að fjárfesta í hús-
næði á Djúpavogi að undanförnu.
Vegna þessara viðskipta hefur skap-
ast töluverð umframeftirspurn eftir
húsnæði á staðnum. Húsnæðisverð
hefur að sama skapi verið að hækka
jafnhliða eftirspurninni.
Unglingarnir á Djúpavogi hafa sann-
arlega verið að slá í gegn að und-
anförnu en nýlega vann 15 ára
drengur, Aron Daði Þórisson, til 1.
verðlauna á landsvísu í ritgerða-
samkeppni grunnskólanna undir titl-
inum „heimabyggðin mín“ og var
heiðraður sérstaklega af því tilefni
hinn 11. febrúar í Norræna húsinu
m.a. að viðstöddum mennta-
málaráðherra, Þorgerði Katrínu
Gunnarsdóttur.
Þá vann fyrir skemmstu hin stór-
efnilega unglingahljómsveit Friðpíka
frá Djúpavogi hljómsveitarkeppni
SamAust 2008, sem er söngvakeppni
félagsmiðstöðva á Austurlandi en þar
tóku alls 14 hljómsveitir þátt. Þeir fé-
lagar í Friðpíku munu því keppa fyr-
ir hönd Austurlands á hinni árlegu
stórhátíð Samfés sem haldin verður í
Reykjavík hinn 7.-8. mars nk.
Það má því segja að unglingarnir á
Djúpavogi séu sannarlega að slá í
gegn um þessar mundir.
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Bjartsýni Vísir hf. hefur sýnt festu í starfsemi sinni á Djúpavogi og er atvinnuástand þar ágætt um þessar mundir.
DJÚPIVOGUR
Andrés Skúlason fréttaritari
Rúnari Kristjánssyni á Skaga-strönd kom í hug eftir tón-
leika „Geirs og Bubba“:
Fordómarnir flestir nú
falla í einum hvelli,
því að Lóa litla á Brú
leggur þá að velli!
Og með tilliti til þess sem unnist
hefur og þess sem tapast hefur:
Marga í villu lausung lokkar
langt frá rétta horfinu.
Því að gömlu gildin okkar
gleymdust undir torfinu.
Loks yrkir hann:
Hér sem stendur virðist viðra
verr en stundum áður.
Til því mætti tíðin hliðra,
taka að hækka gráður.
Hvernig er það annars syðra,
ertu af kulda þjáður ?
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af veðri og
fordómum
Þú skorar með okkur – Eimskip
tilhamingju
Óskum handhöfum Eimskipsbikarsins
mEð árangurinn!
TB
W
A\
R
EY
KJ
AV
ÍK
\
SÍ
A