Morgunblaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 20
vistvænt
20 ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
slátt af skoðun ef
hann pantaði tíma fyr-
ir hádegi fyrir lok
marsmánaðar. Það
vantaði bara að koma
ætti með bílinn milli
kl. 9 og 9.30.
Síðan liðu ein-
hverjir dagar og þá
kom miði frá Að-
alskoðun, þar sem
minnt var á skoð-
unartíma þar sem bíll-
inn er með 1 sem aft-
asta staf. En Víkverja
til mikillar undrunar
var ekkert tilboð í
boði, ekki einu sinni
5% afsláttur. Þarna
virðast því vera tækifæri fyrir
fleiri aðila á markaðnum því miðað
við þann mikla bílaflota sem er í
umferð ætti að vera ágætur bis-
ness í skoðunum.
x x x
Að endingu má Víkverji til meðað lýsa ánægju sinni með
endinn á Glæpnum í Sjónvarpinu á
sunnudagskvöldið, þótt sorglegur
hafi verið. Af tillitssemi við þá sem
sáu ekki lokaþáttinn og bíða eftir
endursýningu í kvöld, segir Vík-
verji ekki annað en að Danir hafa
búið til snilldarfléttu, og skilið eft-
ir nógu marga lausa enda til að
halda áfram með framhaldsseríu.
Vonandi eru tökur þegar hafnar.
Þungu fargi varlétt af Víkverja í
gær er hann heyrði í
útvarpinu skýringu á
megnri ólykt við
Höfðabakkabrúna.
Hún mun stafa af ein-
hverjum frárennsl-
isvanda frá fyrirtæki
sem leystur verður á
næstunni. Víkverji
var farinn að hafa
áhyggjur af „kjall-
aranum“ sínum því
lyktin minnti hann
dálítið á eigin við-
rekstur, ekki síst eftir
óhollustufæði, en
skildi ekkert í því af
hverju fýlan kæmi alltaf á sama
stað; undir Höfðabakkabrúnni,
þegar ekið er þar um reglulega.
Verra fannst Víkverja að heyra að
vegfarendur um brúna hefðu
kvartað undan hálfgerðri brenni-
steinsfýlu, svo slæman hélt hann
ekki eigin viðrekstur vera!
x x x
Nú þegar komið er að því aðfara með annan fjölskyldubíl-
inn í skoðun saknar Víkverji þess
sárlega að meiri samkeppni ríki
ekki milli skoðunarfyrirtækjanna.
Fyrst kom miði um lúguna frá
Frumherja, sem bauð Víkverja
mikla kjarabót (eða þannig),
hvorki meira né minna en 10% af-
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Þeir unglingar sem borða ævinlega morgunverðhafa tilhneigingu til að vera léttari, stunda oftarlíkamsrækt og borða hollari mat yfirleitt en þeir
unglingar sem sleppa því að borða morgunverð. Frá
þessu er sagt á vefmiðli Reuters og er þar vitnað í banda-
ríska rannsókn þessu til staðfestingar. Rannsóknin náði
til rúmlega tvö þúsund bandarískra unglinga og var í
fimm ár fylgst með matarvenjum þeirra, þyngd og lífs-
stíl. Unglingarnir voru rétt undir fimmtán ára aldri þeg-
ar rannsóknin hófst.
Í ljós kom að þeir unglingar sem borðuðu oftast morg-
unmat reyndust vera léttastir. Þeir sem ævinlega
slepptu því að borða morgunverð, reyndust að meðaltali
2,3 kílóum þyngri.
„Við komumst að því með þessari rannsókn að þeir
unglingar sem borða oft morgunmat og þá sérstaklega
þeir sem borða morgunverð á hverjum einasta degi, eru
heilbrigðari yfirleitt og hafa heilsusamlegan lífsstíl,“
segir Mark Pereira í Háskólanum í Minnesota School of
Public Health, sem leiddi rannsóknina.
„Þeir unglingar sem ævinlega borða morgunverð eru
mun virkari líkamlega og þeir borða hollari mat yfirleitt.
Fyrir vikið borða þeir minna af fitu og kólesterólríkri
fæðu en meira af trefjaríkri fæðu.“
Þeir sem stóðu að rannsókninni benda á að áætlað sé
að um 25 prósent bandarískra barna sleppi því að borða
morgunverð og á sama tíma berist fréttir af því að offita
sé vaxandi vandamál hjá ungu fólki.
Eflaust hljómar það undarlega að þeir sem sleppa
reglulega þessari máltíð, séu feitari en þeir sem láta
hana aldrei fram hjá sér fara.
Fyrrnefndur Mark Pereira setti fram þá kenningu að
með því að fylla magann að morgni, eigi þeir sem borða
morgunverð auðveldara með að hafa stjórn á matarlyst
sinni í gegnum daginn. Eins getur morgunverður komið í
veg fyrir að unglingurinn troði sig út af mat í hádeginu
eða á öðrum matmálstímum.
Þó svo að morgunverður sé jafn áríðandi máltíð og
raun ber vitni, er ekki þar með sagt að borða skuli hvað
sem er í morgunmat. Það gerir engum gott að gúffa í sig
súkkulaðikleinuhring eða annarri óhollustu í morg-
unmat. Möguleikar á hollum morgunmat eru fjölmargir,
foreldrar og unglingar þurfa að finna út úr því saman svo
allir séu sáttir. Og það skiptir öllu máli að bæta ávöxtum
eða annarri hollustu út á eitthvað sem krökkunum finnst
gott.
Unglingar ættu að borða morg-
unmat til að halda sér grönnum
Reuters
Við vöxt Þessar stúlkur hafa eflaust ekki borðað morg-
unmat, í það minnsta ekki hollan.
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
Spilliefni er að finna víðaren í efnaiðnaði – þau erulíka algeng á ofurvenjuleg-um, íslenskum heimilum.
Hins vegar getur verið misbrestur
á því að heimilisfólk skili slíkum
efnum sérstaklega inn til sorp-
meðferðar eins og vera ber svo
koma megi í veg fyrir mengun af
völdum þeirra. Algengast er að
málningarafgangar og leysiefni rati
í endurvinnslugámana og eins hef-
ur fólk tekið sig á varðandi skil á
rafhlöðum.
Algeng spilliefni á heimilum eru
t.d. ýmiss konar hreinsiefni, skor-
dýraeitur, lím, lyf og fleira. „Þegar
farið er að skoða ofan í kjölinn
hvað telst vera spilliefni eru það
fjölmargir flokkar. Þessi efni eru
mengunarvaldar og sem slík skað-
vænleg í heimilissorpinu,“ segir
Jón Hólmgeir Steingrímsson,
framkvæmdastjóri Efnamóttöku-
nnar sem sér um förgun og endur-
vinnslu slíkra efna.
Hann útskýrir að þegar efnin
endi í heimilissorpinu fari þau með
almennu sorpi í urðun á stöðum á
borð við Álfsnes. Þó að allar mögu-
legar varúðarráðstafanir séu gerð-
ar á urðunarstöðunum, t.a.m. með
drenlögnum, sé alltaf hætta á að
efnin endi í grunnvatninu, sé þeim
ekki fargað á viðeigandi hátt en til
eru sérstakar eyðingarleiðir fyrir
þessi efni.
„Þau eru ýmist brennd hérna
heima eða send úr landi til eyð-
ingar,“ útskýrir Jón og bætir við
að dregið hafi úr því síðarnefnda
vegna aukins tækjabúnaðar hér
heima. „Nú eru komnar brennslu-
stöðvar hér innanlands sem ráða
betur við þessi efni svo við nýtum
þær eins og hægt er.“
Með kassa í kjallaranum
Leysiefni eru að mestu end-
urnýtt. „Annars vegar eru leysiefni
hreinsuð eftir notkun þeirra. Dæmi
um slíkt er vökvinn sem nýttur er
til hreinsunar á áhöldum hjá bíla-
málurum og málningarverk-
smiðjum. Hann kemur óhreinn inn
til okkar en eftir að búið er að
hreinsa hann má nota hann aftur.
Hins vegar eru leysiefnin nýtt sem
eldsneyti og orkugjafi og t.a.m.
notar Sementsverksmiðjan mikið
af leysiefnum sem orkugjafa við
sína framleiðslu.“
Almenningur getur skilað spilli-
efnum inn til söfnunarstöðva sveit-
arfélaganna, s.s. Sorpu á höf-
uðborgarsvæðinu. Jón segir
algengast að fá málningarafganga
og leysiefni frá heimilum inn á
söfnunarstöðvar. „Eins hefur það
aukist að fólk skili inn rafhlöðum
eftir auglýsingaherferð sem var á
vegum Úrvinnslusjóðs og fyr-
irtækja í greininni. Það hefur nú
skilað sér í auknum skilum. Fólk
getur nálgast litla rafhlöðukassa
hjá Sorpu og öðrum söfn-
unarstöðvum, en þá er hægt að
geyma við hliðina á ruslafötunni án
þess að það fari mikið fyrir þeim.“
Hann segir ekki eins mikið um
að fólk komi með efni á borð við
skordýraeitur og hreinsiefni inn á
söfnunarstöðvar. Það sé þó senni-
lega fyrst og fremst af hugs-
unarleysi sem slík efni enda í
heimilissorpinu. „Það má örugg-
lega vekja fólk til vitundar um að
efni á brúsum, s.s. úðabrúsum, eru
yfirleitt spilliefni. Best er því að
koma sér upp sér fötu eða kassa,
t.d. í kjallara, og safna í hann slík-
um afgöngum og koma þeim svo á
söfnunarstöðvar.“
Morgunblaðið/Ómar
Bílþvottur Ýmiss konar viðhaldsefni fyrir bíla eru meðal spilliefna sem leynast á venjulegum heimilum og brúsum
utan af þeim sem og afgöngum ber að skila inn til söfnunarstöðva.
Morgunblaðið/Frikki
Vakning Talsvert hefur aukist að fólk skili notuðum rafhlöðum til söfn-
unarstöðva eftir auglýsingaherferð um mikilvægi þess.
Morgunblaðið/Golli
Þrif Skila ber ræstiefnum og brús-
um utan af þeim til sérmeðferðar.
Engin spilliefni
í heimilissorpið
Algeng
spilliefni á
heimilum
Ýmiss konar hreinsiefni
stíflueyðir
húsgagnabón
skordýraeitur
lím
lyf
málning
lakk
leysiefni á borð við terpentínu
og white spirit
þynnir
rafhlöður
kvikasilfur í hitamælum
úðabrúsar
ýmiss konar viðhaldsefni fyrir
bíla, s.s. frostlögur, olíuefni og
rafgeymar.