Morgunblaðið - 04.03.2008, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2008 31
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Ferðalög
Gisting á Spáni
Barcelona, Costa Brava, Menorca og
á Valladolid.
Upplýsingar í síma 899 5863,
www.helenjonsson.ws
www.spainapartments.ws
Heilsa
Viltu losna við 5-7 kg. á 9 dögum?
Þú getur það með Clean 9 frá FLP.
9 daga hreinsikúr með Aloe Vera.
Sjálfstæður dreifingaraðili FLP.
Björk 894-0562 bsa@simnet.is
www.123.is/aloevera
Hljóðfæri
Nýtt hljómborð Pa50, meira en
hálfvirði. (Verð í dag 99.800). Góð
kaup svo virkilega um munar.
S.: 899 4220.
Húsnæði í boði
Laugardalur, stutt í sund og
ræktina.
Til leigu tvær nýuppgerðar íbúðir á
jarðhæð, efst í Laugarásnum í þríbýli.
90 fm. á 150 þús. á mánuði og 60 fm.
á 130 þús. á mánuði. Tveir mánuðir
fyrirfram og einn í tryggingu. Reyk-
laust og engin gæludýr. Meðmæla
óskað frá vinnustað og/eða fyrrver-
andi leigusala. Eigendur búa einnig í
húsi. Góð lóð fyrir börn og fallegt
útsýni. Berglind 820-5848.
Atvinnuhúsnæði
Til leigu gott skrifstofuherbergi
á 2. hæð við Fiskislóð,
101 Reykjavík.
Skrifstofan er 15 m2, auk fundar-
aðstöðu, eldhúss og sameiginlegs
rýmis. Öryggiskerfi er fyrir hvert skrif-
stofuherbergi á hæðinni. Upplýsingar
í síma 897-3290 eða í tölvupósti á
samleid@samleid.is.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús .
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Fjárfestið í landi!
Fallegar lóðir við Ytri-Rangá til sölu.
Veðursæld og náttúrufegurð. Land er
góður fjárfestingakostur!
Uppl. á www.fjallaland.is og í
síma 893 5046.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Til sölu
Afar léttur stóll, staflanlegur í 10
hæðir, með sérstaklega þægilegu
sæti sem gerir hann góðan fyrir
langar setur, fyrir allar þyngdir.
Á hliðinni er smella, þannig að
hægt er að krækja stólum saman
og mynda samfellda röð.
Einnig er hægt að fá litla kerru
sem gerir það létt verk að flytja
stólastafla á milli svæða.
Barr ehf.
Urriðakvísl 18
110 Reykjavík
GSM 892-2799
barr@barr.is
Ráðstefnustóll
Álgrind - AD 27 SB
Til á lager og
til afgreiðslu
strax!
Þjónusta
Hitaveitur/vatnsveitur
Þýskir rennslismælar fyrir heitt og
kalt vatn.
Boltís sf.,
símar 567 1130 og 893 6270.
Byggingavörur
www.vidur.is
Harðviður til húsbygginga. Vatns-
klæðning, panill, pallaefni, parket
o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði.
Sjá nánar á vidur.is.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
580 7820
STÓRPRENT
580 7820
LJÓSAKASSARNýkomnir
BIRKENSTOCK sandalar:
Arisona. litur: svart
stærðir: 36 - 47. Verð: 6.475.-
Funk. litur: svart
Stærðir: 36 - 42. Verð: 5.885.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070.
Opið mán.-föst. 10-18,
og laugardaga 10-14
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
GreenHouse vor-sumarvaran er
komin. Verið velkomin að sækja
frían bækling.
Opið í dag, þriðjudag 13-19.
GreenHouse, Rauðagerði 26.
Bílar
Corolla HB Sol ´04
Toyota Corolla HB Sol árg ´04, ekinn
47 þús.km, bíll í toppstandi, ekkert
áhvílandi, verð kr. 1740 þús. Uppl. í
síma 862 6445 eftir kl. 16.
Ökukennsla
bifhjolaskoli.is
Bókleg námskeið. Reyndir bifhjóla-
kennarar. Ný og nýleg hjól.
Þjónustuauglýsingar 5691100
Smáauglýsingar
augl@mbl.is
✝ Elías Guðbjarts-son sjómaður
fæddist á Kropp-
stöðum í Hóls-
hreppi í Skálavík í
N-Ísafjarðarsýslu 6.
júní 1921. Hann lést
á Hrafnistu í
Reykjavík laug-
ardaginn 23. febr-
úar síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru þau Illugi
Guðbjartur Sig-
urðsson, f. 13. apríl
1886, d. 15. ágúst
1960, og Halldóra Margrét Sig-
urðardóttir, f. 6. maí 1889, d. 12.
desember 1965. Systkini Elíasar
voru Kristján, Sigurrós, Sigurður
Guðmundur, Elías Ingimundur,
Elías Kristján Uni, Sigfríður
María og Guðbjartur Halldór Sig-
urvin.
Elías og Svanhildur Marías-
dóttir, f. 28. desember 1925, d.
29. október 2007,
eignuðust saman
sex börn. Þau eru
Jónas Friðgeir, f.
1950, d. 1992, Við-
ar, f. 1952, Hilmar,
f. 1953, Svanur Elí,
f. 1959, Selma
Björk, f. 1961, og
Halldór Guðbjartur,
f. 1965. Sonur Svan-
hildar er Bæring
Vagn Aðalsteins-
son, d. 1989. Elías
gekk honum í föð-
urstað.
Elías eignaðist 13 barnabörn
og níu barnabarnabörn.
Elías og Svanhildur bjuggu all-
an sinn búskap í Bolungarvík uns
þau skildu 1971 og flutti Elías þá
til Reykjavíkur. Síðustu ár bjó
Elías á Hrafnistu í Reykjavík.
Útför Elíasar fer fram frá Ás-
kirkju í Reykjavík í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Elsku pabbi minn.
Nú þegar þú hefur fengið hvíld-
ina góðu hjá Guði langar mig að
minnast þín í nokkrum orðum. Í
uppvexti mínum fyrir vestan man
ég hversu hart þú lagðir að þér að
búa okkur gott heimili. Þú vannst
mikið og varst því ekki oft heima-
við en ég man hversu gaman það
var að fara niður í beitningaskúr
til þín. Það var mjög gaman þegar
ég fékk að beita en þú kenndir mér
réttu handtökin. Þú varst duglegur
í beitningunni eins og öðrum störf-
um sem þú tókst þér fyrir hendur.
Ég man þegar við rérum á Kópi á
handfærum og grásleppuveiðum í
djúpið. Ekki vorum við þeir afla-
mestu en þú varst duglegur og
sannaðist sú regla að þeir fiska
sem róa. Man ég þegar við vorum
að draga grásleppunetin en þá var
enginn dráttakallinn, og netin
dregin á höndum. Þú varst við
stýrið á meðan ég dró, þér fannst
þetta nú ekki mikið mál en mér
óhörðnuðum unglingnum þótti nóg
um að draga netin inn meira og
minna full af þara því að ekki var
alltaf mikið af grásleppu í netunum
á þessum tíma.
Ég man þegar þú stækkaðir
húsið okkar, hversu mikil vinna
það var. Grunnurinn var grafinn
með skóflu og haka en við eldri
strákarnir hjálpuðum við að grafa
og steypa upp húsið. Þegar ég
hugsa um þetta í dag og um tím-
ann þá finnst manni þetta hafa
verið mikil harka og dugnaður.
Þær fáu frístundir sem þú áttir
fóru í að vinna við húsið. Vinnan
borgaði sig því að gleðin var mikil
þegar verkinu var lokið og við
sáum að plássið var helmingi
meira. Okkur krökkunum leið vel
fyrir vestan en það var erfitt þegar
þið mamma ákváðuð að skilja og
flytja suður.
Fyrst þegar þú komst suður og
fórst á vertíð á loðnubátnum Ven-
us er mér minnisstætt þegar þú
komst til Hafnarfjarðar og upp á
Krosseyrarveg að hitta krakkana.
Ég man hvernig mér fannst þú
vera ánægður með að vera kominn
suður líka, en ég vissi að þér leidd-
ist fyrir vestan eftir að fjölskyldan
fluttist suður í Hafnarfjörð á und-
an þér.
Þegar loðnuvertíðinni lauk
fékkst þú starf í BYKO þar sem þú
endaðir þinn starfsferil 67 ára
gamall. Það má segja að þar hafir
þú fundið starf sem þú varst virki-
lega ánægður með.
Eftir að þú fluttir á Klapparstíg-
inn vorum við mikið hjá þér en það
var mjög gott að geta komið til
þín. Og eftir því sem árin liðu fann
ég hversu gott það var að heim-
sækja þig, því þú tókst alltaf svo
vel á móti okkur, sérstaklega þeg-
ar ég kom með dóttur mína, sem
þér fannst alltaf svo gaman hitta.
Það kom að því að þú varst orð-
inn lasinn og gast ekki verið einn
lengur á Klapparstígnum og flutt-
ist því á Hrafnistu í Reykjavík. Því
miður var tólf ára dvölin á Hrafn-
istu ekki eins góð og ég hefði ósk-
að þér. Þú varðst veikari með ár-
unum og gast því ekki notið þess
nógu vel að vera á góðu heimili þar
sem margir njóta síðustu æviár-
anna. Því vil ég færa starfsfólki á
hjúkrunardeildinni G-2, sem hugs-
aði um þig af alúð síðustu árin,
mínar bestu þakkir . Ég veit að þú
ert kominn á góðan stað þar sem
þér líður betur og ert laus við allar
þjáningar. Megi góður Guð geyma
minningu þína elsku pabbi minn.
Þinn sonur,
Hilmar.
Elsku afi.
Það er svolítið skrítið að hugsa
til þess að þú sért farinn. Ég man
svo vel þegar ég var lítil stelpa og
kom í heimsókn til þín á Klapp-
arstíginn. Það var alltaf svo spenn-
andi að koma í þetta gamla hús.
Ég held ég hafi ekki verið meira
en fimm – sex ára þegar ég sat
inní eldhúsi hjá þér borðandi
hjónabandssælu að spjalla við þig
og Ingibjörgu og minningin er svo
skýr. Þú með rauðu axlaböndin og
hún að bera á borð kaffi með
bleiku svuntuna sína. Mér fannst
alltaf svo gaman þegar þú kallaðir
mig nöfnuna þína, ég var sko stolt
að heita í höfuðið á báðum öfunum
mínum. Það vekur því með manni
skrítna tilfinningu þegar ég hugsa
um það að þegar ég var fimm ára
átti ég fullt af ömmum og öfum á
lífi en nú fimmtán árum seinna er
bara einn afi eftir. Það kennir
manni að lífið er hverfult og óvið-
ráðanlegt. Lífið æðir víst áfram og
maður áttar sig ekki á hversu
langur tími er liðinn fyrr en á
stundum sem þessum.
Ég kveð þig með ljóði eftir Jón-
as frænda, Hugarró.
Hafgrænum augum
horfi ég upp til
himingáttar.
Umvafinn friði
og áhyggjuleysi
andans þáttar.
Óttalaus er ég
í öruggum höndum
æðri máttar.
(Jónas Friðgeir Elíasson.)
Guð geymi þig og minningu
þína, afi minn.
Þitt barnabarn
Bergrós Elín.
Elías Guðbjartsson
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum.
Minningargreinar