Morgunblaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞAÐ ER
TIL ÞÍN...
ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ
HRINGJA EKKI Í
MIG HINGAÐ
FUGLARNIR
VORU AÐ
GERA MIG
BRJÁLAÐANN Í
ALLT SUMAR
NÚNA ERU ÞEIR ALLIR
FLOGNIR SUÐUR OG ALLT
ER ORÐIÐ HLJÓTT...
ALLT
OF
HLJÓTT
ÉG
SAKNA
FUGL-
ANNA!
MIKIÐ VAR FRÍIÐ
FLJÓTT AÐ LÍÐA! ÉG
TRÚI ÞVÍ EKKI AÐ VIÐ
SÉUM AÐ FARA HEIM
ÞAÐ Á EFTIR AÐ VERA
SKRÍTIÐ AÐ KOMA
AFTUR Í SIÐMENNINGUNA.
BYRJA AFTUR AÐ NOTA
ÖLL ÞESSI TÆKI
ÉG GET EKKI BEÐIÐ EFTIR
ÞVÍ AÐ KOMAST INN Í BÍL
OG SETJA ÚTVARPIÐ Í GANG
ÉG ÆTLA Í DNA-
PRÓF TIL AÐ
SJÁ HVORT
HANN SÉ
SONUR MINN
TREYSTU
MÉR...
STOPP!
HVER ER
ÞAR?
HVERS KONAR
NAFN ER EIGINLEGA
„HVER“?
VEIT ÞAÐ EKKI...
HANN HLÝTUR AÐ
VERA EINHVER
ÚTLENDINGUR
ERTU
EKKI
AÐ
VERÐA
TILBÚIN?
SÝRÐUR
RJÓMI
MAMMA ÞÍN GETUR VERIÐ ERFIÐ EN ÞÚ
HEFÐIR EKKI ÁTT AÐ VERÐA REIÐUR
ÞÚ VERÐUR AÐ BIÐJA HANA
AFSÖKUNAR OG LOFA ÞVÍ
AÐ ÞÚ MUNIR EKKI SEGJA
SVONA HLUTI FRAMAR
ÉG VEIT AÐ ÉG
ÞARF AÐ GERA
ÞAÐ...
ERTU BÚINN
AÐ ÞVÍ?!?
EITT SKREF
Í EINU
VIÐ
SKULUM EKKI
LÁTA
JAMESON
EYÐILEGGJA
FRÍIÐ OKKAR
HANN HLÝTUR AÐ VERA
ÁSTÆÐAN FYRIR ÞVÍ AÐ MÉR
FANNST EITTHVAÐ VERA AÐ
VERTU EKKI SVO VISS, PETER...
FYRR EÐA SÍÐAR Á ÉG EFTIR AÐ FINNA
KÓNGULÓARMANNINN OG KREMJA HANN!
dagbók|velvakandi
Marco snuðar börnin
ÁSTÆÐA þess að mig langar að tjá
mig í Morgunblaðið eru barnabörnin
mín og verslunin Marco. Almennt
hef ég ekki mikla kvörtunarþörf og
læt nú flest sem yfir mann gengur
trufla mig sem minnst, en í þetta
skipti ofbýður mér. Jólin fyrir rúmu
ári auglýstu þeir í Marco vandaða
grjónasekki, reyndar mjög dýra
miðað við aðra á markaðnum, en
flotta og eins og áður sagði sterka og
þolgóða. Við hjónin gáfum 3 barna-
börnum okkar slíka í jólagjöf, börn-
in; ein stúlka 3 ára og strákur og
stelpa 5 ára og bara svo það liggi
ljóst fyrir, öll mjög nett og í léttara
lagi. Án þess að orðlengja það meira
voru allir sekkirnir sprungnir (rifn-
ir) á innan við ári, þ.e.a.s. dugðu ekki
fram að næstu jólum, ýmist gáfu sig
á saumum eða við rennilás. Viðbrögð
Valdimars Grímssonar eiganda
Marco og hans ráðamanna voru
vægt til orða tekið hrokafull, og
þeim og fyrirtækinu til skammar.
Það eina sem þeir buðust til að gera
var að laga sekkina eftir að hafa
þvertekið fyrir annað en þeir hefðu
skemmst vegna slæmrar meðhöndl-
unar, en þeir sem geta ímyndað sér
svona sekk springa og frauðplastið,
sem þeir eru fylltir með, dreifist um
allt og loðir við veggi sem annað og
tók talsverðan tíma að hreinsa, geta
kannski séð, að fá sama sekkinn við-
gerðan aftur er ekki efst á óskalist-
anum. Við hjónin sem gáfum þessar
gjafir sögðum hr. Grímssyni og hr.
Snæland að við óskuðum að fá frek-
ar eitthvað annað í staðinn, t.d.
sængurver fyrir börnin eða þess
háttar, okkur var ekki svarað af viti
og bara sagt að eta það sem úti frýs
og þrátt fyrir 3-4 skilaboð hafði
Valdimar aldrei samband. Stykkið
kostaði um 20 þús. og þetta eru ef-
laust þau slökustu kaup sem ég hef
gert og þjónustan enn síðri.
Vitandi að svona skrif skipta svo
sem engu máli fyrir slík fyrirtæki,
nema kannski að þau hlæja dátt og
segja við sig að slæm umfjöllun sé þó
betri en engin, því það er þó frítt
auglýsingagildi, en eitt er þó víst!
Aldrei mun ég versla við fyrirtæki
sem stjórnarmenn þessa fyrirtækis
reka ef ég fæ við það ráðið.
Vilhjálmur S. Pétursson.
Síminn, auglýsið minna
Mig langar til að koma ábendingu til
Símans vegna lélegrar þjónustu.
Ég sótti um síma í Reykjavík 3.
febrúar og hinn 27. febrúar er eng-
inn sími kominn. Í hvert sinn sem ég
hringdi og spurði um símann þá var
engar upplýsingar að fá. Ég vil
benda ykkur hjá Símanum á að aug-
lýsa minna og veita betri þjónustu,
áður en þið óskið eftir fleiri við-
skiptavinum.
Málfríður Vilbergsdóttir.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
ÓHÆTT er að segja að hundar séu meðal vinsælustu gæludýra í heimi
enda eru þeir lærdómsfúsir og hægt er að kenna þeim fjölmargt ef rétt er
farið að þeim.
Morgunblaðið/Ingó
Hundur í skoðunarferð
FORELDRAVERÐLAUN Heimilis
og skóla – landssamtaka foreldra
verða veitt 15. maí í 13. sinn. Að auki
verða veitt hvatningarverðlaun til
einstaklinga og stofnana ef tilefni
þykir til.
Leitað er eftir tilnefningum um
einstaklinga, félög, fyrirtæki, stofn-
anir, sveitarfélög eða skóla á leik,-
grunn- og framhaldsskólastigi sem
stuðlað hafa að: Árangursríkum
leiðum við að efla samstarf foreldra
og kennara, jákvæðum hefðum í
samstarfi heimila og skóla og því að
brúa bilið milli foreldra og nemenda.
Sérstök dómnefnd sem í sitja
fulltrúar frá Skólastjórafélagi Ís-
lands, KHÍ, svæðasamtökum for-
eldra, fræðsluskrifstofum og fulltrú-
um frá Heimili og skóla mun velja
verkefni til verðlauna sem uppfylla
eitt eða fleiri af ofangreindum við-
miðum.
Senda skal inn tilnefningar á raf-
rænan hátt með því að fylla út eyðu-
blað á www.heimiliogskoli.is. Síðasti
skiladagur tilnefninga er 4. apríl,
segir í fréttatilkynningu.
Nánari upplýsingar eru á heima-
síðunni www.heimiliogskoli.is
Óska eftir tilnefn-
ingum til for-
eldraverðlauna
LÖGREGLAN lýsir eftir vitnum að
árekstri jeppa og smábíls þriðju-
daginn 26. febrúar klukkan 19.41 á
mótum Hafnarfjarðarvegar og Víf-
ilsstaðavegar í Garðabæ. Lentu þar
saman dökkgrænn Toyota Land
Cruiser og ljósgrár Hyundai Getz.
Ágreiningur er uppi um stöðu um-
ferðarljósa þegar áreksturinn varð
og því eru þeir vegfarendur sem
kunna að hafa orðið vitni að óhapp-
inu, beðnir um að hafa samband við
lögreglu í síma 444 1000.
Lýst eftir vitnum
FRÉTTIR