Morgunblaðið - 04.03.2008, Qupperneq 36
Skúlptúrar úr sykur-
leðju standa á miðju
gólfi og verk úr klósettpappír
hangir úr loftinu … 40
»
reykjavíkreykjavík
FRÉTTAVEFURINN Earth Tim-
es segir frá því að Björk Guðmunds-
dóttir hafi tileinkað sjálfstæðisbar-
áttu Tíbeta lagið „Declare
Independence“ (Lýsið yfir sjálf-
stæði) á tónleikum tónlistarkon-
unnar í Sjanghæ á sunnudag. Earth
Times hefur eftir sjónarvottum á
tónleikunum að Björk hafi sungið
Tíbet, Tíbet á eftir ljóðlínunum
Raise your flag (dragið fána að húni)
undir lok lagsins en uppátækið hafi
að öllum líkindum farið framhjá
þeim 3.000 gestum sem sóttu tón-
leikana í íþróttahöllinni.
Earth Times segir hins vegar lík-
legt að uppátæki Bjarkar muni ergja
kínversk stjórnvöld enda hafi það
gerst áður að útlendingar hafi verið
reknir úr landi fyrir að taka upp
málstað Tíbets fyrir sjálfstæði. Tals-
maður kínverska tónleikahaldarans
sagði í viðtali við Earth Times að
hann hefði ekki heyrt umrætt lag og
neitaði að tjá sig frekar um málið.
Frá því var sagt hér í Morg-
unblaðinu fyrir stuttu að Björk hefði
notað sama lag á tónleikum í Tókýó
til að lýsa yfir stuðningi við sjálf-
stæðisyfirlýsingu Kosovo og í fram-
haldinu var tónleikum Bjarkar í
Serbíu aflýst.
Björk tileinkaði Tíbetum lag
Reuters
Sjálfstæð Björk Guðmundsdóttir hefur sýnt það margoft að hún fer
hvorki troðnar slóðir né í felur með skoðanir sínar.
Árshátíð Við-
skiptablaðsins var
haldin á Hótel
Borg á föstudags-
kvöldið. Hátíðin
var með glæsileg-
asta móti og
skemmtu starfsmenn blaðsins sér
vel. Á meðal þeirra voru Andrés
Magnússon, Sindri Freysson, Birgir
Ísleifur Gunnarsson, söngvari Mo-
tion Boys og ljósmyndari á blaðinu,
og tónlistarmaðurinn Árni Vil-
hjálmsson sem vakti nýverið at-
hygli fyrir að verja sig sjálfur fyrir
dómi. Bogomil Font og Millj-
arðamæringarnir léku fyrir dansi
og í kjölfarið átti plötusnúður að
halda fjörinu áfram. Ekki vildi hins
vegar betur til en svo að Bogomil
Font (Sigtryggur Baldursson)
flæktist í rafmagnssnúru plötu-
snúðsins með þeim afleiðingum að
hún slitnaði og því lauk árshátíð-
inni fyrr en áætlað hafði verið.
Bogomil Font batt
enda á árshátíð Vbl.
Egill Helgason gerði grín að því
á bloggsíðu sinni að á menning-
arhátíðinni sem nú stendur yfir í
Brussel sé meira eða minna að
finna fastagesti Ölstofunnar. Hvort
nokkuð sé til í því skal ósagt látið
en þó skal það viðurkennt að á slík-
um hátíðum eru oftar en ekki sam-
ankomnir listamenn sem almenn-
ingur í landinu hefur stundum
aldrei heyrt minnst á. Í maí verður
lítil menningarhátíð haldin í Tor-
onto í tilefni af reglubundnu flugi
Icelandair til borgarinnar. Á meðal
þeirra sem koma fram eru Ghost-
igital og Ólafur Arnalds en það sem
þykir kannski merkilegra er að
Magni og Á móti sól troða líka upp.
Já, var ekki kominn tími til.
Magni í Toronto
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
BJÖRGVIN Halldórsson, jafnan kallaður Bo
Hall, er þekktur fyrir allt annað en að ráðast á
garðinn þar sem hann er lægstur. 24. apríl nk,
sumardaginn fyrsta, heldur Bo stórtónleika í
Cirkusbygningen í Kaupmannahöfn með tíu
manna hljómsveit og 18 manna strengjasveit
Sinfóníuhljómsveitar Konunglegu óperunnar í
Kaupmannahöfn. Þar munu auk þess koma fram
margir af þekktustu söngvurum landsins, m.a.
Stefán Hilmarsson, Svala dóttir Björgvins, Sig-
ríður Beinteinsdóttir, Eyjólfur Kristjánsson og
Regína Ósk.
Fyrirtækið Hótelbókanir í Kaupmannahöfn
stendur að tónleikunum í samstarfi við Ice-
landair. Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtæk-
inu í gær höfðu um 700 manns þegar pantað
miða á tónleikana, um 150 miðar voru óseldir
síðdegis í gær. Tónleikarnir fara fram undir
borðhaldi en Cirkus-byggingin sögufræga getur
rúmað um 900 manns í mat. Að loknu borðhaldi
hefst svo dansleikur og þar mun Björgvin einnig
skemmta með hljómsveit sinni og öðrum söngv-
urum. Björgvin hefur fyllt Laugardalshöllina
þrisvar sinnum á seinustu tveimur árum, fyrst
með Sinfóníuhljómsveit Íslands í hittifyrra og
tvennum jólatónleikum í fyrra. Hann ætti því
auðveldlega að geta fyllt Cirkus. Eins og nafnið
bendir til voru upphaflega sirkussýningar í
byggingunni en hún var vígð árið 1886. Í ryþma-
sveit Björgvins er einvalalið, þeir Þórir Bald-
ursson (sem útsetur og stjórnar hljómsveitinni),
Róbert Þórhallsson, Þórir Úlfarsson, Vilhjálmur
Guðjónsson, Matthías Stefánsson, Tatu Kantoma
og Benedikt Brynleifsson. Bo var í Kaupmanna-
höfn um helgina og gekk þá m.a. frá samningum
við strengjasveitina, hljóðfæraleigu og stjórn
hússins. „Síðan verð ég með leynigesti,“ sagði
Björgvin spenntur þegar blaðamaður náði tali af
honum í gær. Sjálfur var hann leynigestur á tón-
leikum Stuðmanna og Sálarinnar í Kaupmanna-
höfn í fyrra. „Þetta verður rosalegt stuð og þetta
gengur mjög vel, það er mikil ásókn núna ein-
mitt með hækkandi sól. Við erum komin lang-
leiðina með að klára miðana, það eru einhverjir
miðar eftir. Þetta er, eins og þeir segja, „long
weekend“, þetta er sumardaginn fyrsta og það
kemur þarna aukadagur inn í. Það er nánast
orðið fullt í allar flugvélar um þessa helgi og í
þessari viku til Kaupmannahafnar,“ segir Björg-
vin. Icelandair selur pakkaferðir þessa, þ.e. flug,
gistingu og aðgöngu-miða á tónleikana með
galakvöldverði. Einnig er hægt að kaupa miða á
tónleikana á www.koben.is, á 1.800 danskar
krónur með mat.
Verulega sjarmerandi hús
Björgvin segir lagaval á tónleikunum verða
svipað og á tónleikum hans með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands í hittiðfyrra en þó bætt í
það. „Síðan búum við til rosa ballprógramm.
Þetta hús er náttúrlega svo skemmtilegt. Ef við
ættum svona hús værum við í góðum málum,“
segir Björgvin. Tónlistar- og ráðstefnuhúsið sé
gott til sýns brúks, þ.e. að sitja og horfa beint
fram fyrir sig og hlusta, en Cirkus-byggingin sé
aftur á móti fjölnota hús og verulega sjarm-
erandi. „Þetta hús er náttúrlega bara ævintýri,“
segir Björgvin. Cirkus er í anda hringleikahúss,
með sviði fyrir í miðju og setið til borðs allt í
kring og upp í rjáfur. Björgvin segist hafa farið
á frábæra sýningu í Cirkus um liðna helgi og
fengið kræsingar, laxafrauð og kálfakjöt. Lík-
lega verði boðið í önd sumardaginn fyrsta, „æð-
islega flottan mat“. „Ég er í svaka stuði núna,“
segir Björgvin sem hefur nóg að gera, vinnur
m.a. að sólóplötu og kemur fram á Eagles-
heiðurstónleikum 19. mars, svo fátt eitt sé nefnt.
Bo fyllir fjölleikahúsið
Nær uppselt á stórtónleika Björgvins Halldórssonar í Kaupmannahöfn á
sumardaginn fyrsta Dýrindis andarsteik í matinn og stuðball á eftir
Morgunblaðið/Eggert
Björgvin Á jólatónleikum í fyrra með Svölu, dóttur sinni. Icelandair þurfti að bæta við þremur vélum
til Kaupmannahafnar þá helgi í apríl sem tónleikarnir verða haldnir.
■ Fim. 6. mars kl. 19.30
Gamalt og nýtt
Enginn vill missa af Sigrúnu Eðvaldsdóttur leika hinn magnaða
fiðlukonsert Albans Berg. Auk hans eru á efnisskránni verk meist-
aranna Brahms og Bach í meistaralegum hljómsveitarbúningi
Schönbergs og Weberns. Hljómsveitarstjóri: Rumon Gamba
Einleikari: Sigrún Eðvaldsdóttir
Missið ekki af tónleikakynningu Vinafélags SÍ. Súpa og fyrirlestur á
Hótel Sögu kl. 18. Aðeins 1.200 kr. Allir velkomnir.
■ Fim. 13. mars kl. 19.30
Páskatónleikar
Söngsveitin Fílharmónía og evrópskir einsöngvarar í fremstu röð
taka þátt í flutningi Þýskrar sálumessu eftir, Brahms, eins mesta
snilldarverks kórbókmenntanna.
■ Lau. 15. mars kl. 17.00
Kristallinn – kammertónleikaröð í Þjóðmenningarhúsinu
Kvartett fyrir endalok tímans eftir Messiaen er eitt áhrifaríkasta
snilldarverk tuttugustu aldarinnar.Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is