Morgunblaðið - 04.03.2008, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2008 39
SÖNGKONAN Madonna verður
fimmtug seinna á árinu og segist
alls ekki kvíða því, heldur bara
hlakka til að halda stóra veislu.
„Fimmtíu ára afmælið er stór
áfangi fyrir alla. Fólk er alltaf að
minnast á þetta við mig, en ég lít
bara á þetta sem afsökun til þess
að halda stóra afmælisveislu,“
sagði Madonna, en stóri dagurinn
er þann 16. ágúst.
Síðustu árin hefur Madonna
stundað jóga af kappi, auk þess
sem hún hugleiðir á hverjum
degi.
„Mér finnst ég miklu sterkari
núna en til dæmis fyrir tuttugu
árum. Ég held að sálin og lík-
aminn séu nátengd, svo ef maður
er andlega hraustur þá fylgir lík-
amleg heilsa í kjölfarið.“
Reuters
Bráðum fimmtug Hlakkar til að
halda afmælisveislu í sumar.
Ekki
hrædd við
að eldast
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
HEFUR tilvera okkar mannanna
á jörðinni eitthvert vægi? spyr
Leikfélag Menntaskólans við
Hamrahlíð í ár, í verkinu E1ntak.
Hópurinn fer ótroðnar slóðir, sem-
ur verkið sjálfur og leikur án
handrits. Notast er við samsetta
aðferð sem felur í sér að vinna
ekki út frá handriti eða hlut-
verkum heldur út frá hugmynda-
flugi leikara og leikstjóra einu
saman. 22 nemendur leika í sýn-
ingunni og eru engin aðal- eða
aukahlutverk. Allir eru jafnir, allir
fá að leika.
Leikstjórar verksins eru tveir,
leikararnir Stefán Hallur Stef-
ánsson og Vignir Rafn Valþórsson,
en þeir tilheyra sjálfstæðum leik-
hópi, Vér morðingjar, sem er til-
raunagjarn í sínum störfum og
rær á ókönnuð mið. Stefán Hallur
segir það sameiginlega ákvörðun
nemenda og leikstjóra að fara
þessa leið. Nemendur hafi viljað
láta á sig reyna og leikstjórarnir
orðið við þeirri ósk. Í september
héldu þeir Stefán og Vignir nám-
skeið í skólanum og sigtuðu út 22
nemendur, leikara, til að vinna
frekar með í ákafri spunavinnu.
„Við vinnum eins og ein heild,“
svarar Stefán Hallur þeirri spurn-
ingu hvort ekki sé erfitt að hafa
tvo leikstjóra í sýningu. Þeir Vign-
ir hafi unnið mikið saman áður og
samstarfið gengið snurðulaust.
Í E1ntaki er hlaupið í gegnum
lífsskeið manneskju sem reynir að
fóta sig í fallvöltum veruleikanum.
„Þetta er mjög háfleygt,“ segir
Stefán Hallur og hlær. Þeir Vignir
hafi lagt í hann með ekkert í
höndunum nema leikarana og
þeirra hugmyndaflug. Verkið hafi
verið að gerjast í um hálft ár og
búið að taka á sig ýmsar myndir.
„Það er oft þannig að ekki er
hlustað á hvað krakkarnir sjálfir
hafa fram að færa en þarna vild-
um við virkilega fá að vita hvað
brennur á þeim. Þetta verk fjallar
einfaldlega um æviskeið mann-
eskju, tekið á ýmsum pólum á
æviskeiði einnar manneskju. Við
förum í fæðingu og dauða nátt-
úrlega, það er auðvitað svolítið
stórt viðfangsefni. Inn á milli er
ýmislegt sem við höfum flestöll
gengið í gegnum, alla vega á Ís-
landi í dag. Fermingin, fyrsta kyn-
lífsreynslan, gifting, brúðkaup,
jarðarför … allt mögulegt sem set-
ur mark sitt á líf okkar og sumir
skipta meira máli en aðrir og mis-
munandi eftir einstaklingum hvað
hefur áhrif á þá í gengum lífið. Í
rauninni spyrjum við okkur spurn-
ingarinnar í lokin hvort það skipti
einhverju máli.“
Stefán Hallur segir enga aðal-
persónu að finna í verkinu. Allir
leiki aðalhlutverk þó að í raun sé
ekki um nein aðalhlutverk að
ræða. „Við erum öll eintök af svip-
uðu módeli og göngum í gegnum
svipaða reynslu. Við mótumst
náttúrlega öll ólíkt af þessum at-
burðum sem verða á vegi okkar á
lífsleiðinni, tökum ólíkan pól í
hæðina eftir því hvaða reynsla á
við og það voru svona verkefni
sem við vorum að láta krakkana
fá,“ segir Stefán og nefnir sem
dæmi að leikararnir hafi átt að sjá
fyrir sér sína eigin jarðarför.
Margar pælingar hafi komið út úr
því og verið valið úr þeim, svo
dæmi sé tekið. Útkoman hafi orðið
leiksýning sem í raun sé samsuða
af ólíkri lífsreynslu nemenda.
E1ntak var frumsýnt 29. febr-
úar sl. og verður sýnt til og með
14. mars í nýju rými í MH, Undir-
heimum. Þar var áður geymsla en
er nú rými til leiksýninga, svartur
kassi þar sem nálægðin er mikil
við leikara. Gestir þurfa þó ekki
að óttast að leikarar dragi þá inn í
verkið og láti þá leika. Nálægðin
er engu að síður mikil.
Við er-
um öll
eintök
Morgunblaðið/Golli
Tveir fyrir einn „Við vinnum eins og ein heild,“ svarar Stefán Hallur þeirri
spurningu hvort ekki sé erfitt að hafa tvo leikstjóra í sýningu.
Frekar upplýsingar um miðasölu
og sýningar eru á vef skólans,
www.mh.is.
01.03.2008
2 5 13 20 21
8 5 3 0 0
4 8 7 6 8
12
27.02.2008
3 7 21 24 26 37
3920 46
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Háskólabíó
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
eeeee
Frábær mynd. Hún er falleg, sár og
fyndin. Allt gekk upp, leikur, leikmynd,
saga, hljóð, mynd og allt sem þarf til að
gera fína bíómynd.
-S.M.E., Mannlíf
eeee
“Brúðguminn er skemmtileg mynd sem
lætur áhorfendur hljæja og líða vel“
- G. H., FBL
eeee
Besta íslenska fíl-gúdd myndin
fyrr og síðar “
- S.S. , X-ið FM 9.77
Frá framleiðendum The Devil Wears Prada
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓISÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
- H.J. , MBL
eeeee
„Myndin er verulega vel leikin
og að öllu leyti frábær”
- E.E., DV
FRIÐÞÆING
- Ó. H. T. , RÁS 2
eeee
LANG VINSÆLASTA MYND ÁRSINS!
45.000 MANNS!
eee
- S.V. MBL
8
Þriðja besta
mynd aldarinnar
samkvæmt hinum
virta vef IMDB
eeee
New York Times
eeeee
Timeout
eeeee
Guardian
eeee
- H.J. MBL
„Samtímaklassík,
gallalaust
meistaraverk”
- telegraph
„Myndin lifir
með þér í marga
daga á eftir“
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
eeee
- V.I.J. 24 STUNDIR
- V.J.V. TOPP 5
Sýnd kl. 6, 8 og 10 Sýnd kl. 8 og 10:10
-bara lúxus
Sími 553 2075
Skemmtilegasta rómantíska gamanmynd ársinsmeð
Katherine Heigl úr Knocked up og Greys Anatomy í fantaformi.
Missið ekki af þessari!
„Day-Lewis sýnir
þvílíkan leiksigur í
myndinni.
Eins eftirminnileg
og kyngimögnuð
frammistaða hefur
ekki sést í háa
herrans tíð”
eeeee
- V.J.V. Topp5.is/FBL
„Algjört listaverk”
eeeee
- 24 STUNDIR
„Ein mikilfenglegasta
bíómynd síðari ára”
eeeee
- Ó.H.T. Rás 2
- E.E. D.V.
eeee
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 5:30, 8 og 10:30
Kauptu bíómiða á netinu á
The Kite Runner kl. 6 - 9 B.i. 12 ára
There will be blood kl. 5:50 - 9 B.i. 16 ára
Into the wild kl. 5:20 - 10:10 B.i. 7 ára
Atonement kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Brúðguminn kl. 5:50 - 8 B.i. 7 ára
Stærsta kvikmyndahús landsins
BYGGÐ Á EINNI
VINSÆLUSTU BÓK ALLRA TÍMA.
BYGGÐ Á EINNI
VINSÆLUSTU BÓK ALLRA TÍMA.
eeee
- M.M.J.,
kvikmyndir.com
eeee
- M.M.J.,
kvikmyndir.com
eeee
- L.I.B.,
Topp5.is/FBL
„Mynd sem hreyfir
við manni“
eeee
- L.I.B.,
Topp5.is/FBL
„Mynd sem hreyfir
við manni“