Morgunblaðið - 04.03.2008, Page 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UNDIR forystu Eyjólfs Kristjáns-
sonar tónlistarmanns verða haldnir
sérstakir heiðrunartónleikar til
heiðurs bandarísku hljómsveitinni
Eagles í Borgarleikhúsinu þann 19.
mars næstkomandi. Tónleikarnir
verða tvennir; kl. 20 og 22.30 og á
meðal söngvara sem munu túlka
perlur sveitarinnar má nefna Björg-
vin Halldórsson, Stefán Hilmarsson,
Friðrik Ómar, Sigurjón Brink, Dav-
íð Smára og sjálfan Eyjólf Krist-
jánsson. Meðal hljóðfæraleikara
verða þeir Jóhann Hjörleifsson á
trommur, Friðrik Sturluson á bassa,
Þórir Úlfarsson og Daði Birgisson á
hljómborð, Börkur Hrafn Birgisson,
Þráinn Baldvinsson og Sigurgeir
Sigmundsson á gítara ásamt bak-
raddasveit og slagverksleikurum.
Flutt verða mörg af vinsælustu lög-
um Eagles á tónleikunum.
Eagles, sem stofnuð var árið 1972
hefur sent frá sér urmul vinsælla
laga í gegnum tíðina og má þar
nefna til dæmis; „Hotel California“,
„Tequila Sunrise“, „Life In The
Fastlane“, „Take It Easy“, „Desper-
ado“, „Peaceful Easy Feeling“ og
mörg fleiri. Sveitin sendi á dögunum
frá sér sína fyrstu hljóðversplötu í
28 ár sem nefnist Long road out of
Eden.
Miðasala fer fram á midi.is og
miðinn kostar 5.900 kr.
Klassískir Hljómsveitin Eagles er með allra vinsælustu sveitum Banda-
ríkjanna og fáar sveitir hafa selt jafn margar breiðskífur og hún.
Eyfi blæs til Eagles-tónleika
Morgunblaðið/Frikki
Eyfi Ræðst ekki á garðinn þar sem
hann er lægstur.
Listamannahópurinn semum ræðir er að upplagiausturrískur, nefnist Gel-itin og hefur verið starf-
andi í um 20 ár. Upphafsmenn og
helstu forkólfar hópsins eru fjórir
karlmenn á fertugsaldri sem finnst
ennþá stórkostlegt að leika sér.
Hópurinn er einn af þekktustu lista-
hópum í nútímalistaheiminum og
hefur sýnt út um allan heim á söfn-
um og galleríum sem gefa sig út fyr-
ir að sýna það nýjasta og ferskasta í
nútímalist. Sumarið 2006 kom hóp-
urinn til Reykjavíkur og sýndi í gall-
eríinu Kling og Bang. Sýning hóps-
ins vakti töluverða athygli og umtal,
en hún nefndist Hugris og gekk út á
að þrír úr hópnum lágu undir laki
með gati í þrjá klukkutíma og
reyndu að láta sér rísa hold. Allt fyr-
ir augum sýningargesta sem stóðu
hjá og virtu fyrir sér listina.
Umrædd sýning á Laugaveginum
reyndist afdrifarík fyrir þá Munda
og Morra sem voru þá í námi í graf-
ískri hönnun í Listaháskóla Íslands.
Þeir og annar ungur bandarískur
listamaður, Schyler Maehl, voru
beðnir um að taka þátt í sýningunni
og teikna allt sem fyrir augu bar.
Saman mynda þeir þríeykið MoMs
og síðan þá hefur samstarf þeirra og
Geletin-hópsins heldur betur undið
upp á sig og blómstrað. Strákarnir
hafa tekið þátt í sýningum hópsins á
Feneyjatvíæringnum, í Deitch Proj-
ect sem er eitt virtasta nútíma-
listagallerí í New York og nú í París
í einu stærsta og virtasta nútíma-
safni heims. Þegar ég spyr Morra
yfir kaffibolla á Musée d’art Mod-
erne hvernig síðustu tvö ár í slagtogi
við Gelitin-hópinn hafi verið, segir
hann að þau hafi í raun verið eins og
ferðalag á spíttbáti í gegnum nú-
tímalistaheiminn. „Við vissum í
rauninni ekkert um nútímalistasen-
una sem var í gangi erlendis þegar
við gerðum fyrstu sýninguna með
Geletin en eftir hana hefur hópurinn
togað okkur hingað og þangað um
heiminn og við kynnst frábærum
listamönnum og sýnt á mjög flottum
stöðum svo við höfum fengið þetta
allt beint í æð á mjög stuttum tíma.
Kúkahúmor, nekt
og franskur pirringur
Sýningin á nútímalistasafni Par-
ísar nefnist La Louvre-Paris og hug-
mynd Gelitin-hópsins er að setja upp
sitt eigið Louvre-safn inni í nútíma-
listasafninu og gera óspart grín að
þjóðargersemum Frakka en um leið
vera með nokkurs konar yfirlitssýn-
ingu á verkum hópsins. „Mottó sýn-
ingarinnar er að eitt Louvre er ekki
nóg og þetta er okkar Louvre!“ út-
skýrir Morri. En Frakkar hafa ekki
alveg tekið gríninu hikstalaust. Sýn-
ingin er eins og leikherbergi
óþekkra stráka sem hafa fengið leyfi
til að haga sér nákvæmlega eins og
þeir vilja. Myndir af orðum búnum
til úr saur þekja veggi, illa farin
tuskuleikföng liggja á tjá og tundri
eða í formalíni, skúlptúrar úr syk-
urleðju standa á miðju gólfi og verk
úr klósettpappír hangir úr loftinu.
Myndir af nöktum fertugum mönn-
um með standpínu uppi á ýmsum
fjallstoppum hanga á veggjum.
Morri segir það enda ekki hafa verið
átakalaust að setja upp sýninguna.
Umsjónarmenn nútímalistasafns
Parísarborgar og háttsettir embætt-
ismenn hafi átt erfitt með að setja
saur, getnaðarlimi og leikföng í sam-
hengi við hið virta Louvre-safn.
Veggspjöld sýningarinnar sem sýna
meðlimi Gelitin nakta með tuskudýr
hangandi á hinu allra heilagasta og
með klessuverki af Mónu Lísu í
hægri hendi, fór að sögn öfugt ofan í
borgarstjórn Parísarborgar sem
vildi ekki leggja nafn borgarinnar
við „menningarguðlast“ af þessu
tagi. Listamennirnir voru látnir
skrifa undir samning sem kveður á
um að þeir megi aldrei framar nota
nafnið Louvre í list sinni. Morri seg-
ir að listamennirnir allir hafi verið
mjög undrandi á viðbrögðunum
þrátt fyrir að vera öllu vanir, enda
ögrandi í list sinni. „Undirbúningur
hefur verið í gangi í um eitt ár og við
höfum unnið sleitulaust við sýn-
inguna hér í París í tvo mánuði.
Stærstur hlutinn er þó unninn á
staðnum inni í safninu, líkt og alltaf
hjá Gelitin, og í verkunum má sjá
beina tengingu við átök við yfirmenn
og stjórnendur nútímalistasafnsins
hér í París,“ segir Morri með bros á
vör eftir þreytandi en lærdómsríka
vinnutörn. „Við höfum lært mjög
mikið um samvinnu hér í París. Það
er fullt framundan hjá okkur bæði í
MoMs og hjá hverjum og einum
okkar. Ég stefni á að klára námið við
LÍ og Mundi er á fullu í að hanna
fatalínuna sína. Svo er mjög líklega
framhald á samstarfi við Gelitin en
við ætlum bara að vera hressir og
opnir og þá gerast skemmtilegir
hlutir. Svo er alltaf í bígerð er að
gefa út bók með teikningum okkar
sem við rissuðum upp í Kling og
Bang fyrir Gelitin á sínum tíma og
var upphafið að þessu ævintýri.“
Á hlaupársdag var ný sýning opnuð í nútímalistasafni Parísarborgar, á verkum listamannahópsins Gelitin. Sýningin þykir afar
ögrandi og hefur valdið nokkrum óróa hjá yfirmönnum safnsins og jafnvel hjá borgarstjórn Parísar. Í listamannahópnum eru
tveir ungir íslenskir listamenn. Rósa Björk Brynjólfsdóttir fræddist um ótrúlegt ferðalag þeirra um nútímalistaheiminn.
Strákapör í stóru safni
Gelitin Veggspjöldin sem hönnuð voru af listahópnum fyrir sýninguna í
Louvre þykja afar gróf. Önnur sýna listamennina kviknakta.
MoMs Mundi og Morri hafa kynnst
mörgu á stuttum tíma í samstarfi
sínu við Gelitin-hópinn.
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
„Algjört listaverk”
eeeee
- 24 STUNDIR
„Ein mikilfenglegasta
bíómynd síðari ára”
eeeee
- Ó.H.T. Rás 2
eeee
- H.J. MBL
8
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
Þriðja besta
mynd aldarinnar
samkvæmt hinum
virta vef IMDB
O S C A R
®
T I L N E F N I N G A R
ÞAR Á MEÐAL
eeee
„Daniel Day Lewis
er stórkostlegur“
24 STUNDIR
SÝND Í KRINGLUNNI OG AKUREYRI
STEP UP 2 kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.7 ára
DEATH AT A FUNERAL kl. 6 B.i.7 ára
P.S. I LOVE YOU kl. 8 LEYFÐ
SÝND Í ÁLFABAKKA, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA
DARK FLOORS kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 14 ára
UNDRAHUNDURINN m/ísl tali kl. 6 LEYFÐ
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 6 - 8 - 10:30 B.i.16 ára
THERE WILL BE BLOOD kl. 8:30 - 10:10 B.i.16 ára
THERE WILL BE BLOOD kl. 7 - 10:10 B.i.16 ára LÚXUS VIP
JUNO kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára
DARK FLOORS kl. 8:20 - 10:30 B.i.14 ára
UNDRAHUNDURINN m/ísl tali kl. 6 LEYFÐ
STEP UP 2 kl. 8:20 - 10:30 B.i. 7 ára
SWEENEY TODD kl. 6 B.i.16 ára
eeee
- S.U.S. X-ið 97.7
eeee
- V.J.V. Topp5.is/FBL