Morgunblaðið - 26.03.2008, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
SÉRSVEIT ríkislögreglustjóra og
lögreglan á Suðurnesjum gerðu
húsleit í Röstinni í Reykjanesbæ
undir kvöld í gær og handtóku Pól-
verja sem talinn er tengjast árás-
arhópnum í Keilufellsmálinu svo-
nefnda.
Eins og fram hefur komið hand-
tók lögreglan fjóra menn sl. laug-
ardag í kjölfar hrottafenginnar
árásar á sjö Pólverja á heimili
þeirra við Keilufell. Í fyrstu var sagt
að hinir handteknu væru allir Pól-
verjar en nú er komið í ljós að einn
þeirra er frá Litháen. Þeir voru allir
úrskurðaðir í þriggja vikna gæslu-
varðhald. Vegna þess sem á undan
hafði gengið í málinu var mikill við-
búnaður í Reykjanesbæ í gær og
tók lögreglan enga áhættu, að sögn
talsmanns hennar. Einn maður var
handtekinn og eftir skýrslutöku
verður tekin ákvörðun um hvort far-
ið verður fram á gæsluvarðhald.
Talið er að 10 til 12 menn hafi
tekið þátt í árásinni og er því fimm
til sjö manna enn leitað. Málið er á
mjög viðkvæmu stigi, að sögn lög-
reglu, og engar upplýsingar gefnar
um gang mála.
Fimmti maðurinn handtek-
inn vegna Keilufellsmálsins
Áfram leitað að fleiri árásarmönnum
Ljósmynd/Þorgils
Handtaka Mikill viðbúnaður var vegna aðgerðanna í gær.
FULLTRÚAR geislafræðinga á
myndgreiningarsviði Landspítalans
eiga fund með yfirmönnum sviðsins í
dag, vegna breytinga á vinnutíma
þeirra. Geislafræðingar sætta sig
ekki við boðaðar breytingar á vinnu-
tíma og hafa því 90% geislafræðinga
spítalans, eða um 50 manns, sagt upp
störfum frá og með 1. maí nk.
„Gangi þessar uppsagnir eftir
mun það hafa mikil áhrif á spítalann,
því sjúkdómsgreiningar byggjast að
stórum hluta á röntgenrannsóknum
sem unnar eru á myndgreiningar-
sviði,“ segir Katrín Sigurðardóttir,
formaður Félags geislafræðinga.
Að sögn Katrínar eru geislafræð-
ingar ósáttir við nýkynntar breyt-
ingar á vinnutíma þeirra, en breyt-
ingarnar felast í því að geisla-
fræðingum er gert að ganga vaktir.
„Geislafræðingar telja að þessi
breyting skerði þeirra kjör það mik-
ið og sé það mikil breyting að þeir
líta á það sem uppsögn. Grunnlaun
geislafræðinga hafa verið mjög lág,
þannig að gæsluvaktir og bakvaktir
með eftirvinnu hafa verið það sem
hefur haldið starfsfólki á spítalanum.
Þegar svo er dregið úr slíku eru
kjörin orðin þannig að menn sjá sér
ekki lengur fært að vinna við spít-
alann,“ segir Katrín og tekur fram
að geislafræðingar telji nýtt vinnu-
plan einnig mjög ófjölskylduvænt og
treysti sér sökum þess heldur ekki
til að vinna samkvæmt því.
Geislafræð-
ingar hafa
sagt upp
LÖGREGLAN á Blönduósi hafði af-
skipti af 40 ökumönnum vegna hrað-
aksturs í fyrradag og þar af voru 20
teknir á Þverárfjallsvegi, en einn
þeirra var tekinn á 140 km hraða.
Að sögn varðstjóra voru flestir
ökumannanna teknir á 105 til 113 km
hraða, en margir óku á 120-130 km
hraða á Þverárfjallsvegi. Þar er há-
markshraði 90 km á klukkustund.
Fjörutíu
óku of hratt
ÁRNI Vilhjálmsson, hæstaréttarlög-
maður og lögfræðilegur ráðgjafi
Norðuráls, segir í grein í Morgun-
blaðinu í dag að sveitarfélögin
Reykjanesbær og Garður hafi verið í
fullum rétti þegar þau gáfu út bygg-
ingarleyfi vegna fyrsta áfanga álvers
við Helguvík.
Í greininni kemur fram að sveitar-
félögin hafi sinnt ábendingum Skipu-
lagsstofnunar í sambandi við orku-
samninga og í ljósi „laga um losun
gróðurhúsalofttegunda er ekki ann-
ars að vænta en væntanlegu álveri
Norðuráls við Helguvík verði úthlut-
að losunarheimildum vegna starfsemi
sinnar þegar ljóst verður hvenær það
tekur til starfa. Því hafa sveitarfélög-
in Reykjanesbær og Garður farið í
einu og öllu eftir ábendingum Skipu-
lagsstofnunar“. | 24
Farið að
lögum í
Helguvík
Reykjanesbær og
Garður í fullum rétti
ALLT lætur undan síga, hvort heldur það er úr flóru
landsins eða manngerðir gripir á borð við skipið sem
verið var að rífa í frumeindir sínar í slippnum í Hafn-
arfirði þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti þar leið
fram hjá í gær. Skipið hefur vafalítið þjónað hlutverki
sínu vel til sjós og þar litið bjartari daga en í gær.
Morgunblaðið/RAX
Allt er í heiminum hverfult
♦♦♦
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
UM páskahelgina brunnu á höfuð-
borgarsvæðinu fimm bílar og er talið
líklegt að kveikt hafi verið í þeim öll-
um. Einnig virðist sem kveikt hafi
verið í þremur byggingum: í húsinu
sem kennt er við skemmtistaðinn
Sirkús, í yfirgefnu íbúðarhúsi við
Hverfisgötu og í húsi Waldorfskól-
ans í Hraunbergi.
Vaða eld í lélegum húsum
Jón Viðar Matthíasson, slökkvi-
liðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgar-
svæðisins, hefur miklar áhyggjur af
þróuninni, sérstaklega af yfirgefnum
húsum í miðborginni þar sem virðist
sem hústökufólk hafi sest að: „Ef síð-
an kviknar í þessum húsum þarf ég
að senda mína menn inn til að ganga
úr skugga um að ekki sé fólk í hús-
inu. Ekki er nóg með að þeir þurfi að
vaða reyk og eld heldur eru húsin oft
í mjög lélegu ástandi, göt í gólfum og
stigar í ólagi. Í myrkrinu þurfa þeir
að þreifa sig áfram á gólfinu þar sem
notaðar sprautu-
nálar geta verið á
stangli.“
Jón segir mikla
hættu á að eldar
breiðist í næstu
hús, sérstaklega í
miðbænum. Eig-
endur tómra húsa
verði að gera bót
á sínum málum.
Þeim beri ekki aðeins lagaleg skylda
til að ganga frá húsunum með örugg-
um hætti, heldur einnig siðferðisleg:
„Geta menn ímyndað sér þá stöðu
sem þeir gætu lent í að eiga hús þar
sem, sakir vanrækslu, það myndi
gerast að fólk myndi brenna inni.“
Viðurlög of væg
Einnig nefnir Jón íkveikjur í stiga-
göngum, sem hafa verið algengar
síðustu vikur og mánuði: „Viðurlög
eru alltof væg við íkveikjum í íbúðar-
húsum hér á landi. Í öðrum löndum
eru þeir sem gera slíkt ákærðir fyrir
tilraun til manndráps enda íkveikjan
tilræði við alla íbúa hússins.“
Mikil eldhætta af yfirgefnum húsum
Setur fjölda
fólks í lífshættu
Jón Viðar
Matthíasson
ELDUR kom upp í Waldorfskólanum
Sólstöfum við Hraunberg kl. 11 í gær.
Barst Slökkviliði höfuðborgarsvæðis-
ins tilkynning um mikinn reyk en
slökkvistarf gekk greiðlega.
Að sögn Snorra Traustasonar,
kennara við skólann, voru hvorki
kennarar né nemendur í húsinu þegar
bruninn varð, enda páskafrí. Snorri
segir allt benda til að um íkveikju hafi
verið að ræða, virðist sem brotist hafi
verið inn í húsið og einhverjir mögu-
lega hafst þar við um hríð áður en
kveikt var í.
Eldurinn virðist hafa verið borinn
að munum sem nemendur höfðu búið
til, en svo virðist sem eldinum hafi
ekki tekist að læsa sig í veggi og voru
skemmdir staðbundnar.
Hústökumaður bjargaðist
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
barst tilkynning um eld í húsi við
Hverfisgötu skömmu eftir miðnætti
aðfaranótt þriðjudags.
Þegar slökkvilið kom á staðinn var
allnokkur reykur í húsinu, en ekki
logaði mikill eldur. Virðist sem kveikt
hafi verið í skrani og timbri við stiga í
húsinu og var eldurinn staðbundinn.
Slökkviliðsmenn leituðu að fólki í
húsinu og fannst karlmaður sofandi í
risi þess.
Slökkvistörf gengu greiðlega.
Þurfti maðurinn sem fannst í húsinu
ekki á aðhlynningu að halda.
Grunur um íkveikju í
tveimur húsum í gær
Ljósmynd/Haraldur Guðjónsson
Skaði Starfsfólk Waldorfskólans er slegið vegna brunans og mun frestast
um nokkra daga að skólinn verði opnaður að nýju eftir páskafrí.