Morgunblaðið - 26.03.2008, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 26.03.2008, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2008 9 FRÉTTIR Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is ÁÆTLANIR Jarðvéla ehf. gerðu ráð fyrir að lokið yrði við að tvö- falda Reykjanesbraut við veginn að Vogum í lok ágúst í fyrra. Rekstur Jarðvéla fór hins vegar í þrot og framkvæmdir hafa legið niðri svo mánuðum skiptir. Nú er gert er ráð fyrir að tvöföldun á þessum kafla ljúki um mánaðamóti júní og júlí í sumar, um 10 mán- uðum síðar en Jarðvélar höfðu áætlað. Merki á þriðja hverjum staur Framkvæmdirnar við veginn að Vogum er hluti af tvöföldun Reykjanesbrautar frá Strand- arheiði að Njarðvík. Eftir að Jarð- vélar sögðu sig frá verkinu tók Vegagerðin yfir umsjón með merkingum á framkvæmdasvæð- inu í byrjun desember sl. Í kjöl- farið var merkingum breytt, stein- steypublokkir voru færðar og léttari skiltum komið fyrir. Jónas Snæbjörnsson, svæð- isstjóri Vegagerðarinnar, sagði í gær að ekki væri ætlunin að bæta við merkingum vegna slyssins að- faranótt þriðjudags. Búið væri að bæta við merkingum, m.a. á þeim kafla sem slysið varð á og vandséð hvernig hægt væri að auka þær. Hann nefndi sem dæmi að merki að um vegurinn væri fyrir umferð í báðar áttir hefði verið sett á þriðja hvern ljósastaur á kaflanum við Vogaveg. Málið yrði þó skoðað. Þar sem Jarðvélar sögðu sig frá verkinu varð að bjóða verkið út á nýjan leik og verða tilboð í verkið opnuð 8. apríl nk. Að sögn Jón- asar er miðað við að búið verði að tvöfalda brautina að vegamótum við Grindavíkurveg um mán- aðamótin júní og júlí nk. og að verkinu ljúki að mestu í október nk. Þetta væri um þriggja mánaða töf frá upphaflegum útboðsskil- málum. Á hinn bóginn hefði Vega- gerðin boðið Jarðvélum svokallað flýtifé, þ.e. aukagreiðslu ef verk- inu hefði miðað hraðar en sam- kvæmt útboði og Jarðvélar hefðu gert ráð fyrir að ljúka tvöföldun fram hjá veginum að Vogum í lok ágúst 2007. Varðandi þá vegakafla þar sem umferð er beint fram hjá fram- kvæmdasvæðunum sagði Jónas að Jarðvélar hefðu mátt hafa þessi svokölluðu framhjáhlaup opin í þrjá mánuði en sá frestur væri löngu liðinn. Tafsamar framkvæmdir við tvöföldun Reykjanesbrautar frá Strandarheiði að Njarðvík Morgunblaðið/RAX Ætluðu að ljúka tvöföldun við Vogaveg í fyrrasumar BEGGJA vegna vegamóta Reykja- nesbrautar og Vogavegar er að mestu búið að tvöfalda Reykjanes- braut. Vegna framkvæmda við mis- læg gatnamót og fleira er umferð hins vegar aðeins hleypt inn á ann- an veghlutann og þar er því tví- stefna á 2-3 kílómetra löngum kafla, þ.e. ein akrein er fyrir hvora akstursstefnu. Þetta getur valdið ruglingi, m.a. vegna þess að þegar ekið er eftir þessum kafla sjá ökumenn að búið er að leggja tvöfalda braut við hlið- ina á þeirri sem ekið er eftir. Þeg- ar skyggni er slæmt eða umferð lít- il er töluverð hætta á að ökumenn á norðurleið telji að hin brautin, sem er þeim á vinstri hönd, sé fyrir umferð í gagnstæða átt en þeir geti ekið á tveimur akreinum. Þeir sem eru á leið suður ættu að gera sér betur grein fyrir ástandinu m.a. þar sem þeir þurfa að beygja til vinstri inn á kaflann sem um ræðir. Ruglingur sem þessi virðist hafa orsakað alvarlegt bílslys á um- ræddum kafla brautarinnar að- faranótt þriðjudags en það lítur út fyrir að ökumaður, sem var á leið til höfuðborgarsvæðisins, hafi talið að báðar akreinarnar væru fyrir umferð til norðurs. Kona slasaðist illa í slysinu og í gær var henni enn haldið sofandi í öndunarvél. Á tveimur öðrum stöðum á Reykjanesbraut er umferð færð á milli nýrra og gamalla hluta braut- arinnar. Kaflinn við Vogana er hins vegar lengstur og varasam- astur. Meiri hætta á ruglingi á norðurleið Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 Sumarkjólar Ný sending Skeifan 11d • 108 Reykjavík sími 517 6460 www.belladonna.is Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-15 Vönduð ítölsk leðurstígvél fyrir breiða kálfa (vídd 44 - 48cm) skóstærðir 38 - 43

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.