Morgunblaðið - 26.03.2008, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2008 33
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
40+ félagsstarf fyrir fólk með
þroskahömlun | Félagsmiðstöðin er
opin kl. 17-22, bingó.
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30,
vinnustofa kl. 9- 16.30, postulíns-
málning kl. 9-12 og 13-16.30.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handa-
vinna, smíði/útskurður kl. 9-16.30,
heilsugæsla kl. 10-11.30. Uppl. í síma
535-2700.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böð-
un, almenn handavinna, glerlist,
morgunkaffi/dagblöð, fótaaðgerð,
hádegisverður, spiladagur, kaffi.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofan Gullsmára 9 er opin kl. 10-
11.30. Sími 554-1226. Skrifstofan í
Gjábakka er opin kl. 15-16. Sími 554-
3438. Félagsvist í Gjábakka kl. 13.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði kl.
10. Síðdegisdans undir stjórn Matt-
hildar og Jóns Freys kl. 14.30, kaffi-
veitingar. Söngfélag FEB, æfing kl. 17.
Félagsheimilið Gjábakki | Bossía kl.
9.30, glerlistarhópar kl. 9.30 og 13,
handavinnustofan opin, leiðbeinandi
til kl. 17, félagsvist kl. 13, söngfugl-
arnir taka lagið við gítarundirleik
Guðrúnar Lilju kl. 15.15, viðtalstími
FEBK kl. 15-16, bobb kl. 16.30 og sam-
kvæmisdans kl. 18-20 undir stjórn
Sigvalda.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Mynd-
list kl. 9, ganga kl. 10, hádegisverður,
postulínsmálun og kvennabrids kl. 13.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 8, kvennaleikfimi kl.
9, 9.45, 10.30, brids og bútasaumur í
Jónshúsi kl. 13.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustof-
ur opnar kl. 9-16.30, dansæfing kl. 10.
Frá hádegi: spilasalur opinn. Á morg-
Opið hús kl. 15. Dr. Hólmfríður K.
Gunnarsdóttir fjallar um Viktor Fran
og „Leitina að tilgangi lífsins“. Kaffi-
veitingar á Torginu.
Vídalínskirkja Garðasókn | For-
eldramorgunn kl. 10-12.30. Fræðsla
mánaðarlega, kynnt. Kaffi á könnuni.
skeiðið stendur til 1. maí og er öllum
opið og þátttakendum að kostn-
aðarlausu. Skráning í Bústaðakirkju í
síma 553-8500. Starf eldri borgara
er í kirkjunni kl. 13-16. Spilað, föndrað,
handavinna og óvænt uppákoma.
Hafið samband við kirkjuvörð í síma
553-8500 ef bílaþjónustu er óskað.
Dómkirkjan | Bænastund kl. 12.10-
12.30. Léttur hádegisverður á kirkju-
loftinu á eftir. Bænarefnum má koma
á framfæri í síma 520-9700 eða með
tölvupósti til domkirkjan@domkirkj-
an.is.
Fríkirkjan Kefas | Unglingasamkoma
kl. 20. Prédikun, spjall, tónlist og
samvera. Allir unglingar velkomnir.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund kl.
12-13. Fyrirbænir og altarisganga,
léttur hádegisverður að lokinni
stundinni. TTT fyrir 10-12 ára kl. 17-18
í Rimaskóla og Korpuskóla.
Grensáskirkja | Samverustund aldr-
aðra, matur og spjall kl. 12. Farið
verður frá kirkjunni kl. 13.30 í föstu-
guðsþjónustu í Breiðholtskirkju sem
hefst kl. 14.
Hallgrímskirkja | Árdegismessa kl. 8.
Hugleiðing, altarisganga. Morg-
unverður í safnaðarsal eftir messuna.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía |
Bænastund kl.12-13, skrifstofan lokar
á meðan, unglingafræðsla kl. 17.30,
fjölskyldusamveran kl. 18, létt máltíð
gegn vægu gjaldi, Biblíukennsla kl. 19,
Royal Rangers skátastarf fyrir 5 ára
og eldri.
Kristniboðssalurinn | Samkoma kl.
20. Guðlaugur Gunnarsson segir frá
stöðu fjármála Kristniboðs-
sambandsins og ræðumaður er
Ragnar Gunnarsson framkvæmda-
stjóri. Kaffi á eftir.
Neskirkja | Fyrirbænamessa kl. 12.15.
Prestur sr. Sigurður Árni Þórðarson.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fóta-
aðgerðir kl. 9-12. Aðstoð v/böðun kl.
9.15-16, handavinna kl. 10-12, sund kl.
11.45, hádegisverður, verslunarferð í
Bónus kl. 13-16, tréskurður kl. 14.30,
kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.30, morgunstund kl. 10, handa-
vinnustofan opinn allan daginn, hár-
greiðslu- og fótaaðgerðarstofan opin
allan daginn, upplestur kl. 12.30, bók-
band kl. 13, dans kl. 14. Uppl. í síma
411-9450.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.30, morgunstund kl. 10, handa-
vinnustofan opin allan daginn, versl-
unarferð kl.12.30, upplestur kl. 12.30,
bókband kl. 13, dans kl. 14 við undir-
leik harmónikkuhljómsveitar, uppl. í
síma 411 9430
Þórðarsveigur 3 | Handavinna kl. 9,
salurinn opinn og ganga kl. 13, boccia
kl. 14. Kaffiveitingar.
Kirkjustarf
Áskirkja | Hreyfing og bæn í neðra
safnaðarheimili kl. 11.
Bessastaðasókn | Foreldramorgunn
er í Holtakoti kl. 10-12. Opið hús eldri
borgara er í Litlakoti kl. 13-16, sr. Birg-
ir Thomsen kemur í heimsókn og sýn-
ir myndir frá Sólheimum í Grímsnesi.
Bæna/kyrrðarstund í leikskólanum
Holtakoti kl. 20-21.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl.
12. Tónlist, hugvekja, fyrirbænir. Létt-
ur málsverður í safnaðarheimili eftir
stundina. Starf eldri borgara kl.
13.30. Kirkjuprakkarar 7-9 ára kl. 16.
TTT 10-12 ára kl. 17. Æskulýðsfélag
KFUM&K og kirkjunnar kl. 20.
Bústaðakirkja | Emmaus-námskeiðið
um lífið og trúna hefst 27. mars kl.
19.30-21 og er ætlað öllum sem
áhuga hafa á kristindómnum. Nám-
un kl. 10.30 er helgistund, umsj.
Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni í
Fella og Hólakirkju. Alla föstud. kl.
10.30 er leikfimi o.fl. (frítt) í ÍR-
heimilinu v/Skógarsel umsj. Júlíus
Arnarsson íþróttakennari.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9
16.30, útskurður kl. 9–12, ganga kl.
10.15, hádegismatur, bridd kl. 13, kaffi.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa
kl. 9-16 hjá Sigrúnu, keramik, gler-
málun o.fl. Jóga kl. 9-12, Sóley Erla.
Samverustund kl. 10.30, lestur og
spjall. Böðun fyrir hádegi, hádeg-
isverður kl. 11.30. Hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Vorferðin á vit
skálda til Akureyrar er 14.-16. maí.
Dagakrá í Leikhúsinu Möðruvöllum
15. maí kl. 20. Gist á KEA. Hjördís
Geirs og hljómsveit spilar á morgun
27. mars kl. 13.30 í tilefni 5 ára af-
mælis Draumadísa og prinsa. Sími
568-3132.
Íþróttafélagið Glóð | Kynning á
Ringó í Snælandsskóla kl. 19-20. Pútt
í Sporthúsinu í Dalsmára kl. 9.30.
Ringó í Smáranum kl. 12, línudans í
Húnabúð, Skeifunni 11, kl. 17. Uppl. í
síma 564-1490.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun er
pútt á Korpúlfsstöðum kl. 10 og Lista-
smiðjan opin kl. 13-16 á Korpúlfs-
stöðum.
Kópavogsd. Rauða kross Íslands |
Sjálfboðaliðar prjóna föt fyrir börn í
neyð í sjálfboðamiðstöðinni Hamra-
borg 11, kl. 16-18. Á staðnum verða
prjónar, garn og fólk sem hittist
reglulega. Kaffiveitingar.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr-
unarfræðingur frá heilsugæslunni kl.
10.30, leikfimi kl. 11, handverksstofa
og námskeið í myndlist kl. 13, kaffi-
veitingar.
Norðurbrún 1 | Félagsvist kl. 14.
70ára afmæli. Í gær, 25.mars, varð sjötugur
Jökull Arngeir Guðmundsson
málmiðnaðarmaður með
meiru. Hann er til heimilis að
Skarðshlíð 13e á Akureyri.
60ára afmæli. Í gær, 25.mars, varð sextugur
Leó E. Löve hæstaréttar-
lögmaður, Kringlunni 35,
Reykjavík. Leó er staddur á
Kanaríeyjum yfir páskana en
biður fyrir kveðjur til ættingja
og vina um allt land.
70ára afmæli. BaldvinJóhannsson varð sjö-
tugur 24. mars síðastaliðinn.
Af því tilefni tekur hann á
móti gestum í golfskála Keilis
föstudaginn 28. mars frá kl 18.
dagbók
Í dag er miðvikudagur 26. mars, 86. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Og orð hans býr ekki í yður, því að þér trúið ekki þeim, sem hann sendi. (Jóh. 5, 38.)
Félag íslenskra fræða efnir tilrannsóknarkvölds á morgun,fimmtudag. Þar flytja erindiSteingrímur Þórðarson,
Ragnhildur Richter og Sigríður Stef-
ánsdóttir, íslenskukennarar við MH,
um kennslubækurnar Íslenska eitt og
Íslenska tvö sem þau eru höfundar að.
“Bækurnar eru samdar með þarfir
svokallaðrar heildstæðrar móðurmáls-
kennslu í huga og taka því á öllum þátt-
um móðurmálsins,“ segir Steingrímur
en bækurnar komu út 2006 og 2007.
„Bækurnar eru báðar byggðar upp á
sex stórum þemaköflum hvor og falla
að nýrri námsskrá í íslensku, svo þær
geta hvor um sig dugað sem heildstæð
kennslubók fyrir námskeiðin Íslenska
103 og 203 í áfangakerfi, en margir
bekkjarskólar hafa notað bækurnar
með öðru námsefni yfir lengri tíma, s.s.
fyrstu tvö námsárin.“
Sem dæmi nefnir Steingrímur að
fyrsti kafli Íslensku 1 kynni nemendur
fyrir sjónarhornum í skáldskap, um-
hverfi og formi, einnig er fjallað um
ljóðalestur, rímnahætti og einkenni
bundins máls: „Annar kafli bókarinnar
fjallar um persónusköpun og byggingu,
útdrætti og endursagnir og í sömu bók
er farið í grunnatriði setningafræði,
stafsetningu og ólíkar tegundir rit-
smíða,“ segir hann. „Seinni bókin er
m.a. með ítarlega umfjöllun um
Snorra-Eddu, málsögu, og einnig er
þar langur kafli er um ritgerðasmíð og
heimildavinnu með sýnishornum.“
Bækurnar þeirra Steingríms, Ragn-
hildar og Sigríðar hafa vakið mikla at-
hygli og hlaut Íslenska eitt árið 2006
tilnefningu til Hagþenkisverðlaunanna,
og hafa margir framhaldsskólar tekið
að nota bækurnar við kennslu: „Efnis-
tök bókanna þykja nýstárleg. Þá fylgir
hverjum kafla ítarlegur verkefnahluti
með þrennskonar verkefnum: ritunar-
verkefnum, úrlausnarverkefnum og
efnum til umhugsunar fyrir nemendur
og kennara að ræða um í tíma,“ segir
Steingrímur. „Nálgast má lausnir við
öllum verkefnunum á vef Forlagsins
sem hefur gagnast kennurum mjög við
vinnu sína. Þá er í bókunum tekið sam-
an atriðsorðaskrá sem auðveldar nem-
endunum að fletta upp hugtökum og
skýringum eins og þörf er á.“
Fyrirlesturinn hefst kl. 20 í húsi
Sögufélagsins, Fischersundi 3.
Menntun | Fyrirlestur á morgun í Fischersundi 3 um nýjar kennslubækur
Nýstárleg efnistök í íslensku
Steingrímur
Þórðarson fæddist
í Reykjavík 1951.
Hann lauk B.A.-
prófi í íslensku og
sögu frá HÍ 1979
og M.Sc.-gráðu í
kennslufræðum
frá Edinborgarhá-
skóla 2001. Stein-
grímur hefur starfað við Mennta-
skólann við Hamrahlíð frá 1979 sem
kennari, áfangastjóri og konrektor.
Eiginkona Steingríms er Þorgerður
Jónsdóttir kennari og eiga þau sam-
anlagt þrjú börn og fjögur barnabörn.
Kvikmyndir
Kaffi Hljómalind, lífrænt kaffihús | And-
spyrnubíó - The Weather Underground kl.
20, frítt inn. Bandarísku róttæklingarnir í
The Weathermen færðu Víetnamstríðið
heim og sprengdu upp opinberar bygg-
ingar ríkisstjórnarinnar. Meðlimir fóru
huldu höfði en gáfu sig seinna fram og út-
skýra í myndinni upphaf og endi hreyfing-
arinnar.
Fyrirlestrar og fundir
Krabbameinsfélagið | Stuðningshópur
kvenna sem fengið hafa krabbamein í
eggjastokka heldur rabbfund í húsi
Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8, kl. 17.
Kaffiveitingar. Konur sem fengið hafa
krabbamein í eggjastokka eru hvattar til að
mæta.
Náttúrufræðistofnun Íslands | Dr. Tómas
G. Gunnarsson vistfræðingur og for-
stöðumaður Háskólaseturs Snæfellsness
flytur erindi á Hrafnaþingi í sal Möguleiks-
hússins við Hlemm, kl. 12.15-13. Nánar um
erindi Tómasar er á http://www.ni.is/
midlun-og-thjonusta/hrafnathing/
greinar//nr/745
Samtök náttúrustofa SNS | Fræðsluerindi
um atferli sauðfjár verður á morgun, 27.
mars kl. kl. 12.15 og verður varpað um fjar-
fundarbúnað vítt og breitt um landið. Nán-
ar um hvar hægt er að fylgjast með fyrirl. á
www.nsv.is. Hafdís Sturlaugsdóttir land-
nýtingarfræðingur á Náttúrustofu Vest-
fjarða, heldur erindi sem hún nefnir: „Man
sauður hvar gekk lamb“ og með hverjum?
Atferlisrannsókn á sauðfé á ströndum.
Fréttir og tilkynningar
Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn verður við
Rauða kross húsið í Grindavík kl. 10-17.
GEORGE W. Bush kann
vel við páskakanínuna
svonefndu eins og sjá má á
þessari mynd sem tekin
var í fyrradag við Hvíta
húsið. Þar fór fram árlegt
eggjakapphlaup sem löng
hefð er fyrir við forseta-
bústaðinn, það fyrsta
haldið 1878.
Börn kepptust þá við að
rúlla eggjum eftir lóðinni í
fyrradag og notuðu til
þess stórar skeiðar. Fleira
var gert fólki til skemmt-
unar, tónlist leikin og and-
lit barna máluð, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Góðir
vinir
Reuters
FRÉTTIR
Bakkatjörn en
ekki Seltjörn
Í Velvakanda 20. mars síðastliðinn
var Bakkatjörn rangnefnd Seltjörn.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
mistökunum.
Rangur dómstóll
Dómur í grúsardeilu sem fjallað var
um í Morgunblaðinu 19. mars sl. var
kveðinn upp í Héraðsdómi Reykja-
víkur en ekki Héraðsdómi Suður-
lands eins og ranglega kom fram.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
mistökunum.
Beinafundur
Í frétt Morgunblaðsins í gær af bein-
fundi í Kjósarhreppi misritaðist að
Páll Ingólfsson væri bóndi á bænum
Eyjum 2. Hið rétta er að Páll býr á
Eyjum 1. Eru hlutaðeigandi beðnir
afsökunar á þessum ruglingi.
LEIÐRÉTT
GUNNAR E. Finnbogason dósent
við Kennaraháskóla Íslands leitast
við að svara spurningunni um hversu
barnvænn íslenski skólinn og ís-
lenskt samfélag sé, í fyrirlestri sem
fer fram í dag, 26. mars, kl. 16, í
Bratta, fyrirlestrarsal í Hamri.
Í fyrri hluta kynningarinnar verð-
ur rætt um nokkur af helstu ákvæð-
um Barnasáttmála Sameinuðu þjóð-
anna og vakin athygli á þeim
grundvallarviðhorfum og sjónarmið-
um hans sem helst tengjast veru-
leika skólans og kennarans. Í seinni
hluta kynningarinnar verður gengið
út frá þeirri staðreynd að hornsteinn
Barnasáttmálans er barnmiðun; þ.e.
að allir þeir sem koma að uppeldi og
menntun barna hafi ávallt réttindi
þeirra og velferð að leiðarljósi og
leggi sig fram um að sjá aðstæður
barna frá sjónarhorni þeirra.
Í anda Barnasáttmálans?
Einnig verður leitað svara við
spurningunni hvort eða í hve miklum
mæli íslenskt skólasamfélag og fé-
lagsleg umgjörð þess sé svo að kenn-
arar geti starfað í þeim anda sem
Barnasáttmálinn gengur út frá.
Hversu
barnvænn
er skólinn?
♦♦♦