Morgunblaðið - 26.03.2008, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 26.03.2008, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2008 23 dan. Þetta oða aukna ski ekkert mæti þess- um tólum. ort maður eðlabank- fyrirtækj- r eða út í kir í það lla saman ninga. Við [í dag] til nefndina. ni að fylgj- hagsmála úrræði ef það stefni ur kjara- samninga. Okkur finnst líka ástæða til að ríkisstjórn kalli saman þann formlega samráðsvettvang sem hún stóð fyrir að mynda eftir kosning- arnar á síðasta ári.“ Var gert áhlaup á krónuna? Gylfi sagðist finna fyrir þeirri umræðu að bankarnir hefðu verið gerendur í því áhlaupi sem varð á krónuna. Hann sagðist kalla eftir upplýsingum um hverjir stóðu fyrir þessum miklu viðskiptum með krónur. „Við getum ómögulega horft upp á að einhverjir hagnist á því að gera áhlaup á krónuna þegar félagsmenn okkar eru hinir eigin- legu þolendur þegar upp er staðið,“ sagði Gylfi. dunefnd il fundar iseinkunn. Þessi breyting er einkum ætluð til þess að smærri fjármálafyrirtæki á borð við sparisjóði geti aflað sér lausafjár. Þriðja breytingin er sú að gefin verða út sér- stök innstæðubréf Seðlabankans en með því vill bankinn koma til móts við eftirspurn eftir tryggum verðbréfum til skamms tíma. 5 punkta Morgunblaðið/Ómar vaxta sneri gengisfalli undanfarinna daga við.   3 ,*" - .  )*! ' æðst af því hvernig ávöxtunarkrafa á skulda- markaði þróast næstu daga hvort Íbúðalána- hækkar vexti. Sjóðurinn mun á næstu dögum um afla lánsfjár á skuldabréfamarkaði, en ór síðast í útboð í desember á síðasta ári. kvæmt áætlun Íbúðalánasjóðs ætlar hann að í útboð á skuldabréfamarkaði á þessum árs- ngi, en það þýðir að sjóðurinn mun fara í útboð k þessa mánaðar. Guðmundur Bjarnason, væmdastjóri Íbúðalánasjóðs, segir að útlán ánsjóðs hafi verið undir áætlun í febrúar og en velta í janúar hafi verið umtalsverð. Það þurfi að afla lánsfjár með útboði. Hann segir arkaði hafi hækkað aðeins í gær eftir að Seðla- kkun stýrivaxta. Undanfarnar vikur hafi kraf- tæðan sé væntanlega sú að fjárfestar hafi verið réf úr áhættumeiri bréfum. Guðmundur segir i í útboð í dag geti hann lækkað vexti miðað við ðist á markaði. Hann segist þó eiga von á að banka muni leiða til hækkunar á vöxtum Íbúða- endilega víst að það gerist strax. ga að fara í útboð Geir H. Haarde forsætis-ráðherra sagði eftir rík-isstjórnarfund í gær aðhann teldi vaxtahækkun Seðlabankans í morgun eðlilega varnaraðgerð í ljósi aðstæðna á peningamarkaði. „Seðlabankinn hefur nú gripið til aðgerða af sinni hálfu. Í fyrsta lagi vaxtahækkunar, sem hann gerir sjálfstætt og ekki að höfðu neinu samráði við ríkisstjórnina. Síðan greip hann einnig til annarra aðgerða sem að hluta til eru sjálf- stætt verkefni, m.a. er þar um að ræða útgáfu skuldabréfa í nafni ríkissjóðs sem fjármálaráðuneytið og bankinn hafa unnið að og síðan aðrar breytingar sem miða allar að því að bankarnir geti útvegað sér laust fé og auðveldað þeim starf- semi við núverandi aðstæður.“ Geir sagði ljóst af viðbrögðum á mörkuðunum að þessar aðgerðir væru farnar að skila nokkrum ár- angri. Krónan hefði styrkst og hlutabréfamarkaðir væru á uppleið sem reyndar væru að einhverju leyti hluti af alþjóðlegri þróun. Skilaboð Seðlabankans mikilvæg Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan- ríkisráðherra sagði að viðbrögð á markaði sýndu að ákvörðun Seðla- bankans væri farin að virka. „Þó að þetta sé vissulega umdeild og erfið ákvörðun held ég að flestir geti verið sammála um að það var ekki margra kosta völ fyrir Seðla- bankann. Miðað við þá stefnu sem við höfum í peningamálum og þá stefnu að standa vörð um verð- bólgumarkmiðin var þetta eðlileg ákvörðun af hans hálfu og skýr skilaboð um að hann ætli sér að halda aftur af verðbólgunni og því falli á genginu sem hér hefur verð- ið. Ég held að það sé mjög mik- ilvægt að Seðlabankinn sendi skýr skilaboð eins og hann hefur núna gert.“ Geir sagði aðspurður engin áform um að draga úr ríkisút- gjöldum. Hann minnti á að allar hagspár sýndu að það væri að draga úr þjóðarútgjöldum og að hagvöxtur, sem var 4% í fyrra, yrði kannski ekki nema 1% á þessu ári. Geir sagðist vilja vekja athygli á því að þessi ákvörðun Seðlabanka að hækka vexti væri ekki tekin á hefðbundnum vaxtaákvörð- unardegi. Ákvörðunin yrði að skoðast í ljósi þeirra aðstæðna sem skapast hefðu á gjaldeyrismarkaði. Líta mætti á hana sem varn- araðgerð af hálfu bankans. Í samræmi við efnahagslíkan bankans „Það eru skiptar skoðanir um þá vaxtastefnu og það efnahagslíkan sem Seðlabankinn notar en miðað við þetta líkan og þá stefnu sem bankinn hefur fylgt má segja að þetta sé skiljanleg og rökrétt ákvörðun. Svo er það önnur spurn- ing hvort má betrumbæta þessa umgjörð,“ sagði Geir. Ingibjörg Sólrún minnti á að það væri ekki einsdæmi að stýri- vextir færu þetta hátt. Stýrivextir í Bandaríkjunum hefðu á tímabili farið upp í 19% og verið yfir 10% í alllangan tíma. Geir sagði að tölur um afkomu bankanna sýndu að þeir stæðu í grunninn vel. Þeir hefðu hins veg- ar ekki farið varhluta af þróuninni á alþjóðlegum mörkuðum sem hefði birst í því að það væri erfitt um laust fé. Allir seðlabankar í heimi og einnig Seðlabanki Íslands hefðu unnið að því að greiða úr þessari lausafjárkreppu enda væri það eitt af hlutverkum bankans að gera það. Ríkisstjórnin hefur verið gagn- rýnd fyrir aðgerðarleysi á ólgutím- um í efnahagsmálum. Geir og Ingi- björg Sólrún sögðu að það væri ýmislegt sem stjórnvöld væru að skoða og það mætti ekki túlka það sem aðgerðaleysi þó að ekki væri öllu spilað út í fyrstu atrennu. Ingibjörg sagði að eitt af því sem hefði verið rætt væri að styrkja gjaldeyrisstöðu Seðlabankans með lántöku. Slík aðgerð hefði ekki ver- ið útilokuð þó að ekki hefði verið gripið til hennar enn. Geir var spurður út í skulda- tryggingarálag bankanna og rík- isins. „Við teljum að skuldatrygg- ingarálag sem er komið yfir 200 punkta á íslenska ríkinu sé út í hött og það sé engin réttlæting fyrir slíku álagi.“ Vaxtahækkun Seðlabankans er eðlileg varnaraðgerð Geir H. Haarde Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is Seðlabankinn brást við þró-un undanfarinna daga ágjaldeyrismarkaði í gærmeð því að hækka stýri- vexti um 1,25 prósentustig. Spurð- ur hvort ekki hafi komið til greina að grípa til þessa ráðs fyrr segir Davíð Oddsson, formaður banka- stjórnar Seðlabankans, að þróun gengis hafi verið óhagstæð um hríð áður en það féll mjög mikið skömmu fyrir páska. „Um sama leyti vorum við að vinna að breyt- ingum á reglum og ætluðum okkur alltaf að kynna þær á þriðjudegi eftir páska og það hefði verið mjög vafasamt að kynna eingöngu regl- ur sem að sumu leyti lúta að því að auka aðgengi banka að fé, bæði hér í Seðlabankanum og hjá þeim sjálfum, með því að losa um bindi- skylduna án þess að horfa til þró- unar gengisins. Við töldum þessa gengisbreytingu vera mjög óeðli- lega vegna þess að raungengið er orðið jafnlágt og það var hvað lægst fyrir um aldarfjórðungi. Auk þess höfum við séð að verðbólgu- þrýstingur hefur ekkert minnkað, öfugt við það sem allir hafa spáð. Eftirspurn er enn gríðarleg og verðbólguvæntingar enn gríðar- lega miklar. Allir þessir þættir samanlagðir urðu til þess að við ákváðum að spyrna við fótum og okkur sýnist það hafa haft jákvæð áhrif,“ segir Davíð en aðspurður segir hann ekki hafa verið rætt um að hækka vextina enn meira að þessu sinni. „Þetta er mesta hækkun sem hefur verið ákveðin í einu lagi af bankanum síðan núverandi fyrir- komulag peningamála var tekið upp 2001, sem sýnir auðvitað hinn mikla þunga sem býr að baki ákvörðunarinnar.“ Davíð segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvort vextir verði hækkaðir aftur á næstunni. Þvert á móti standi vonir til þess að afgerandi hækkun af þessu tagi dragi úr líkum á því að til fleiri hækkana þurfi að koma, þótt aldr- ei sé hægt að útiloka það og stjórn bankans hafi ekki leyfi til þess að útiloka notkun á þeim fáu tækjum sem hún hefur yfir að ráða. Ekki mikil breyting Auk þess að hækka stýrivexti breytti Seðlabankinn reglum sín- um og þ. á m. var breyting á reglum um skuldabréf hæf til tryggingar í viðskiptum við bank- ann. Davíð segir bréfin áfram þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði til þess að þau séu veðhæf. „Við erum í raun ekki að gera mikla breytingu núna. Það sem við erum að ákveða er að ef bréfin uppfylla skilyrði, eins og verið hef- ur hingað til, gerum við ekki kröfu um að sá sem leggur bréfin fram hafi tiltekna lánshæfiseinkunn því minni aðilar hafa það ekki endilega og við erum að leggja áherslu á að það sem lagt er að veði hafi það lánshæfismat sem hingað til hefur þurft. Það er aðalbreytingin og kemur til góða einkum smærri að- ilum á markaði, t.d. sparisjóði.“ Aðspurður segir hann ekki hafa hillt undir skort á lausafé á mark- aðnum en hugsanlegt hefði verið að kerfið gæti farið að hiksta. „Það er eitt af verkefnum Seðla- bankans að sjá til þess að íslenski fjármálamarkaðurinn virki og hann hefur verið í góðu lagi en við vildum ekki standa frammi fyrir því að hann færi að hiksta án þess að hafa gert okkar til þess að sjá til að hann gengi áfram með eðlileg- um hætti.“ Í Alphaville-dálki vefjar Fin- ancial Times kemur fram að reglu- breyting bankans gæti túlkast sem syndaaflausn til handa bönkunum sem þurfa að fjármagna umsvif er- lendis með innlendu fjármagni. Davíð segir þessi ummæli hljóta að vera byggð á misskilningi, að öðr- um kosti séu þau ómakleg. „Við er- um að færa þessar reglur í áttina að því sem er hjá evrópska seðla- bankanum þannig að það er engin önnur breyting,“ segir hann. Áhrif á trúverðugleika Seðlabankinn hefur unnið að því að byggja upp trúverðugleika sinn. Telur Davíð aðgerðir gærdagsins hafa áhrif þar á? „Við teljum þessar aðgerðir reyndar ekki stórfenglegar eða miklar. Við höfum áður stigið ákveðin skref og nú tökum við eitt til viðbótar. Þessar ákvarðanir snúa einkum og sér í lagi að inn- lendri stöðu bankakerfisins, en hin vandamálin sem hafa verið til um- ræðu snúa að erlendri stöðu þess. Það er mun meira í höndum bank- anna sjálfra en Seðlabankans. Bankinn er að tryggja að hið inn- lenda kerfi virki að því leyti til sem hann getur, en auðvitað þurfa fjár- málastofnanirnar sjálfar að hafa sitt í lagi. Seðlabankinn getur við þrengri aðstæður liðkað til fyrir kerfinu og það er hann að gera ná- kvæmlega eins og seðlabankar annars staðar hafa verið að gera en eðli málsins samkvæmt erum við ekki að reyna að hafa áhrif á erlenda stöðu bankakerfisins.“ Sérðu fyrir þér að Seðlabankinn geti, ef til kemur, hjálpað bönk- unum um fjármögnun? „Við höfum ekki gert ráð fyrir því að til þess komi. Bankarnir hafa lýst því yfir að þeir hafi tryggt fjármögnun töluvert á ann- að ár og við væntum þess að löngu fyrir þann tíma verði hinn alþjóð- legi markaður kominn í annað ástand en hann er núna.“ Óeðlileg áhrif á gengi? Davíð segir Seðlabankann hafa haft vísbendingar um að hugsan- lega hafi einhverjir verið að hafa meiri áhrif á gengi krónunnar að undanförnu en eðlilegt getur talist og að um hafi verið að ræða aðila sem áttu ekki að stunda slíkar gjörðir. „Ef sú er raunin er það að okkar mati mjög alvarlegt mál og við er- um að skoða málið eftir að hafa fengið vísbendingar þess efnis í hús. Reynist þessar vísbendingar réttar eða sannar verður við því að bregðast því það veikir mjög trú- verðugleika gjaldeyrismarkaðar- ins ef menn hafa það á tilfinning- unni að ábyrgir aðilar taki þátt í því að hafa óeðlileg áhrif á hann. Ég vil ekki gefa mér að það hafi gerst en við munum fara í gegnum málið til þess að sjá hvort líklegt sé að slíkar vísbendingar séu réttar.“ Eru einhver viðurlög við slíku? „Það er hægt að bregðast við með margvíslegum hætti, bæði af hálfu Seðlabanka og FME, en það er of fljótt að velta því fyrir sér,“ segir Davíð Oddsson. Seðlabankinn ákvað að spyrna við fótum Morgunblaðið/Ómar Vaxtahækkun Davíð Oddsson segir Seðlabankanum hafa borist vísbend- ingar um að reynt hafi verið að hafa óeðlileg áhrif á gengi krónunar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.