Morgunblaðið - 26.03.2008, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 26.03.2008, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand VARÚÐ! HUNDUR VARÚ HUND Ð! VARÚÐ! HUNDUR ODDI, SKILTIÐ Á VIÐ ÞIG GRR! BARA 5 DAGAR Í AFMÆLI BEET- HOVEN BÚÐIR OPNAR ÞANGAÐ TIL 9 Á KVÖLDIN SVONA! FULL KANNA AF „LÆKNINGARDRYKK KALVINS“! ÉG ÆTLA AÐ SELJA HVERT GLAS Á HUNDRAÐKALL OG VERÐA RÍKUR! EN ÞETTA ER BARA SKÍTUGT VATN ÚR SKURÐINUM! ÞAÐ ER LAUFBLAÐ Í VATNINU ÉG SEGI BARA AÐ ÞETTA SÉ LÆKNINGAJURT ÞAÐ Á ENGINN EFTIR AÐ VILJA DREKKA ÞETTA! ÞAÐ SJÁ ALLIR AÐ ÞETTA ER BARA DRULLA! ÞAÐ GÆTI VERIÐ RÉTT SVARTIDAUÐI Á KÖNNUNNI! BARA HUNDRAÐ KRÓNUR GLASIÐ! HVAÐ Á ÉG EIGINLEGA AÐ GERA VIÐ ÞETTA? GETUM VIÐ EKKI BARA BOÐIÐ FÓLKI TIL OKKAR Í MATARBOÐ? AF HVERJU KOMSTU MEÐ SVONA MARGAR BÆKUR HEIM ÚR SKÓLANUM? ATLI, BÆKUR HJÁLPA MANNI AÐ NÁ ÞEIM MARKMIÐUM SEM MAÐUR SETUR SÉR Í LÍFINU STEFÁN, ÞETTA VAR ENGIN SMÁ FERMING! ÞAÐ VAR PLÖTUSNÚÐUR, ANDLITSMÁLARI, LEIKJAHERBERGI... ÞAÐ EINA SEM VANTAÐI VAR SVERÐAGLEYPIR OG NOKKRIR FÍLAR ÞAÐ VORU ENGIR LAUSIR ÞESSA HELGI ÞETTA VAR SAMT FRÁBÆRT... ANSANS! ÉG VAR AÐ NÁ YFIRHÖNDINNI ÁÐUR EN JAMESON ÁKVAÐ AÐ EYÐILEGGJA ALLT LÁTTU MIG NIÐUR! EINS OG ÞÚ VILT! AAAHH! dagbók|velvakandi Minning um vin HUNDURINN Ares lést í svefni mánudaginn 17. mars sl. Honum var gotið 1. desember 1994 að mér óþekktum bæ í nágrenni Hvols- vallar. Móðirin var einstæð Collí tík. Föðurinn töldu bændur, eftir að hafa séð Ares, vera „stór- an Skota, senni- lega Scheffer blandaðan, sem gekk laus á svæðinu“. Viku gamall kom Ares inn á mitt heimili hér í Kópavogi og bjó þar það sem eftir var ævinnar. Þann dag fékk hann nafn. Honum varð ekki hvolpa auðið. Saman sóttum við Ares hvolpa- og hundanámskeið hjá hundaskólanum Gallerí Voff og fékk hann ávallt 1. verðlaun fyrir mestu framfarir. Við andlát Aresar míns barst mér ein samúðarkveðja með SMS frá starfsfélaga mínum og vini. Vegna þess að mér finnst hún tær snilld og lýsa djúpum skilningi sendanda á til- gangi lífsins og siðferði þess birti ég hana. „Votta þér samúð mína. Megi hann kjamsa á ljúfum hnútum á hin- um eilífu veiðilendum. P.“ Höfundur er verkfræðingur. Týnd kisa á Álftanesi CARLOS er 10 mánaða, svartur og hvítur, geldur fress. Hann er með bleikt trýni en tvo svarta bletti sinn hvorum megin á nebbanum. Hann er örmektur (208224000163370) en ekki með ól. Hann sást síðast laugardag- inn 8. mars, í Austurtúni á Álftanesi. Ef einhver hefur séð til hans er hægt að hafa samband við Stefán í síma: 693-1064. Atlantsolía MIG langar að þakka þeim Símoni, Ástu og Írisi starfsmönnum hjá Atl- antsolíu. Ég lenti í vandræðum með bensínlykilinn minn og voru þau fljót að kippa þessu í lag fyrir mig. En þetta var fyrir utan vinnutíma þeirra. Mig langar að þakka þeim kærlega fyrir frábæra og persónu- lega þjónustu. Guðný Ulla Ingólfsdóttir. Við sem elskum íslenskuna Mér finnst svo leitt að sjá hversu margar málvillur eru í textavarpinu, það er eins og allar beygingar hverfi og svo mikið vantar upp á að ég er al- veg gapandi yfir þessu. Því miður þá virðist þetta ekkert ætla að batna. Einnig vil ég lýsa óánægju minni með Íslandspóst. Oft á tíðum skila sér ekki bréf til mín og hafa jafnvel safnað dráttarvöxtum þegar þau loksins koma í leitirnar. Vil ég kenna því um að þeir sem eru að bera út, sem eru oft á tíðum útlendingar, kunna ekki íslenskuna nógu vel til að koma þeim til réttra aðila. Kona í vesturbænum. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is VESPUM hefur fjölgað í umferðinni síðastliðið ár og reyndar mótorhjólum almennt. Ökumaður þessarar vespu lætur ekki vorhretið aftra sér í að komast leiðar sinnar. Morgunblaðið/Valdís Thor Vespa FRÉTTIR AF óviðráðanlegum ástæðum verð- ur að aflýsa fyrirlestrum kanadísku blaða- og fræðikonunnar Julie Bar- low sem fyrirhugaðir voru í dag, miðvikudag og á morgun, fimmtu- dag. Breyting verður því á dagskrá frönskuvikunnar í þá veru að í stað fyrirlesturs Barlow fjalla háskóla- kennararnir Eyjólfur M. Sigurðs- son og Jóhanna Guðjónsdóttir um stöðu frönskunnar í heiminum og hérlendis. Umfjöllun þeirra fer fram á íslensku á veitingastaðnum Le Rendez-vous, Klapparstíg 38, í dag kl. 18. Fyrirlesturinn sem halda átti í Háskóla Íslands á fimmtudag fellur hins vegar niður af ofangreindum ástæðum, segir í fréttatilkynningu. Breyting á dagskrá Frönsku vikunnar UNDIRRITAÐ verður samkomulag um endurhæfingarúrræði fyrir ör- yrkja, sem er tilraunaverkefni til þriggja ára, en slíkt úrræði hefur ekki áður verið í boði á Vesturlandi. Undirritunin fer fram að Kirkju- braut 1 á Akranesi í dag, 26. mars kl. 15. Að verkefninu standa Akranes- kaupstaður, Sjúkrahúsið og heilsu- gæslustöðin á Akranesi (SHA), Svæðisskrifstofa um málefni fatl- aðra á Vesturlandi og Akranesdeild Rauða kross Íslands. Um leið verður undirritað annars vegar samkomulag á milli félags- málaráðuneytisins og Svæðisskrif- stofu um málefni fatlaðra á Vestur- landi og hins vegar samkomulag milli heilbrigðisráðuneytisins og Sjúkrahússins og heilsugæslustöðv- arinnar á Akranesi þess efnis að ráðuneytin hvort um sig leggi til verkefnisins sem nemur 2,5 milljón- um króna á ári í þrjú ár. Endurhæfingarúrræðið hefur einnig fengið 1,5 milljónir króna á fjárlögum ríkisins vegna ársins 2008, Svæðissjóður Rauða krossins á Vest- urlandi styrkir verkefnið um 1,5 milljónir króna, auk þess sem úrræð- ið er styrkt m.a. af Hvalfjarðarsveit, Kaupþingi á Akranesi og Lions- klúbbi Akraness, segir í fréttatil- kynningu. Endurhæfingar- úrræði fyrir öryrkja

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.