Morgunblaðið - 26.03.2008, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2008 31
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur SEFL
Samtök eldri félaga í Lífeyrissjóði
verkfræðinga
Aðalfundur SEFL árið 2008 verður haldinn í
húsi VFÍ Engjateigi 9, miðvikudaginn 2. apríl
kl. 16.20.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Framtíð SEFL. Frummælandi Svavar Jóna-
tansson.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Til leigu
Atvinnuauglýsingar
Til leigu
Traust og gott fyrirtæki óskar eftir 40-80 fm
skrifstofuhúsnæði miðsvæðis í Reykjavík.
Langtímaleiga. Nánari upplýsingar í síma
895 9700 eða bjartur@visindi.is
Tilkynningar
BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 3000 - MYNDSENDIR 411 3090
Auglýsing um breytingar á
deiliskipulagsáætlunum
í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með
auglýstar tillögur að breytingum á deiliskipulag-
sáætlunum í Reykjavík.
Rangársel 15
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Seljahverfi
vegna lóðarinnar að Rangárseli 15.
Tillagan gerir ráð fyrir að byggð verði 200 m²
viðbygging við leikskólann Seljakot, lóð leik-
skóla verði stækkuð um 845 m² og minnkar lóð
Ölduselsskóla sem nemur um ca. 235 m² vegna
stækkunar leikskólalóðar í norður. Bílastæðum fjöl-
gar úr 15 í 28 og nýtingarhlutfall á lóð verður 0,16.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Sóltún 2-4
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ármannsreits
við Sóltún, vegna húsa við Sóltún 2-4.
Tillagan gerir ráð fyrir m.a. að á lóðinni að Sóltúni
4 megi byggja sex hæða hús, í stað fjögurra
hæða, fyrir hjúkrunartengda þjónustu auk einnar
hæðar tengibyggingar við núverandi hjúkrunar-
heimili. Lóðirnar Sóltún 2 og Sóltún 4 verða ein
lóð og verður sameignleg bílastæðaþörf alls 174
bílastæði. Gert verður ráð fyrir bílakjallara undir
núverandi stæðum við Sóltún 2 sem myndi rúma
78 bílastæði. Sameiginleg lóð stækkar um 310 m²
vegna stækkunar byggingarreits.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags-
og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að Borgartúni
3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 26. mars
2007 til og með 7. maí 2008. Einnig má sjá tillög-
urnar á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru
þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til
að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athuga-
semdum við tillögurnar skal skila skriflega eða á
netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og bygg-
ingarsviðs eigi síðar en 7. maí 2008. Vinsamlegast
notið uppgefið netfang fyrir innsendar athuga-
semdir með tölvupósti.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 26. mars 2008
Skipulagsstjóri Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Tollkvóti fyrir kartöflunasl frá Noregi.
Með vísan til reglugerðar nr. 281/2008, sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda hinn 19. mars 2008,
er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir kartöflunasl í tollskrárnúmeri 2005.2003,
sem upprunnið er í Noregi og er innflutt þaðan, sbr. bókun 4 við EES-samninginn:
Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
Tollskrár kg % kr/kg
númer:
Kartöflur: 01.05.08-31.12.08 15.000 0 0
2005.2003 Nasl svo sem skífur,
skrúfur, hringir, keilur,
stangir o.þ.h., þó ekki úr
kartöflumjöli.
Berist umsóknir um meiri innflutning en nemur auglýstum tollkvóta verður úthlutun miðuð við
hlutfall innflutnings hvers umsækjanda miðað við heildarinnflutning allra umsækjenda á
kartöflunasli í tollskrárnúmeri 2005.2003 á tímabilinu 1. janúar 2007 til 31. desember 2007.
Úthlutun er ekki framseljanleg.
Skriflegar umsóknir skulu berast til fjármálaráðuneytisins, tekju- og lagaskrifstofu, Arnarhvoli, 150
Reykjavík, fyrir kl. 15:00 föstudaginn 18. apríl nk.
Fjármálaráðuneytinu, 25. mars 2008.
Félagslíf
I.O.O.F. 9 18832681/2 MA* I.O.O.F. 7. 18832671/2 FL.
I.O.O.F. 18 1883268 ll*
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Raðauglýsingar 569 1100
Fræðslufundur
um gallamál
Í samvinnu við Matsmannafélag Íslands mun
Sigurður Helgi Guðjónsson hrl. formaður
Húseigendafélagsins halda fyrirlestur um
helstu gallamál sem Húseigendafélagið hefur
haft til meðferðar.
Hér er um mjög fróðlegt og áhugavert málefni
að ræða, enda Sigurður þekktur fyrir að vera
skeleggur og skemmtilegur ræðumaður.
Fyrirlesturinn verður haldinn í dag, miðviku-
dag, í Háteigi A, 4. hæð, Grand Hóteli, Sigtúni
38, og hefst kl. 18.00.
Kaffiveitingar.
Stjórn Matsmannafélags Íslands.
Grunnskólinn Ljósaborg
Kennarar óskast
Okkur vantar öfluga og hressa kennara í góðan
starfsmannahóp fyrir skólaárið 2008-2009.
Tvo umsjónarkennara á yngsta stig og
miðstig.
Íþróttakennara.
List- og verkgreinakennara, s.s. dans,
heimilisfræði, tónmennt, mynd-og textíl-
mennt..
Hafið samband við Hilmar Björgvinsson
skólastjóra í síma 482 2617 eða 863 0463, net-
fang hilmar@ljosaborg.is
Heimasíða: http://www.ljosaborg.is
Umsóknarfrestur er til 31. mars.
Góður vinur hefur
lokið göngu sinni á
þessari jörð. Við Elli
Björn Elías Ingimarsson
✝ Björn ElíasIngimarsson
fæddist í Hnífsdal
12. ágúst 1936.
Hann lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á
Ísafirði 9. mars síð-
astliðinn og var
jarðsunginn frá Ísa-
fjarðarkirkju 15.
mars.
kynntumst fyrst í
Gagnfræðaskólanum
á Ísafirði 1952 þar
sem við vorum
bekkjarbræður. Urð-
um við strax góðir fé-
lagar og vorum mikið
saman. Eftir að
skólagöngu lauk
skildi leiðir. Ég flutti
suður en hann hóf
sitt lífsstarf í Hnífs-
dal þar sem hann bjó
alla sína tíð.
Það mun hafa ver-
ið 1980 sem skóla-
systur okkar tóku upp á því að
fermingarsystkini sem fermdust
1950 kæmu saman og rifjuðu upp
gamla daga. Þessi siður varð svo
fastur liður á fimm ára fresti og
hefur haldist alla tíð síðan.
Við Elli höfum mætt á allar
samkomurnar. Árið 1988 hittum
við hjónin Ella og Dódó fyrir til-
viljun úti á Spáni og mynduðust
þá góð kynni. Eftir það fórum
við að fara saman í ferðir til út-
landa og fórum við næstum því
árlega eftir það. Seinna fórum
við að fara saman innanlands
með vagnana okkar og fórum
víða. Elli naut þess að vera úti í
náttúrunni og hann þekkti vel
landið. Hann var vel lesinn og
hafði góða frásagnargáfu. Það var
gaman að heyra hann herma eftir
ýmsum kynlegum kvistum og
segja sögur af sérstökum mönnum
og frá ýmsum atvikum í Hnífsdal.
Hnífsdalur var hans óskastaður,
og það var gott að koma á Bakka-
veginn. Síðasta ferðin sem við fór-
um saman var að Fjallfossi í
fyrrasumar þar sem við dvöldum í
blíðuveðri.
Mig hafði alltaf langað til að
dvelja við fossinn og þetta var
yndislegur tími. Elli keyrði okkur
á ýmsa fallega staði á suðurfjörð-
unum og er okkur þetta ógleym-
anlegt. Það var fastur liður hjá
okkur að tala saman á laugardags-
kvöldum, fá fréttir og láta vita af
sér. Ef ekki heyrðist í þeim sem
átti að hringja þá hringdi hinn í
næstu viku til að vita hvort ekki
væri allt í lagi. Mér brá því nokk-
uð í vetur þegar ég heyrði ekki í
honum í dálítinn tíma. Þá kom í
ljós að hann var orðinn veikur og
sýnt hvert stefndi. Við kveðjum nú
þennan vin okkar með þakklæti
fyrir samverustundirnar og vin-
skapinn.
Elsku Dódó, börn og aðrir
vandamenn. Við Hanna vottum
ykkur okkar innilegustu samúð á
sorgarstundu og biðjum Guð að
styrkja ykkur öll.
Hanna Ósk og
Jón Sigurðsson.