Morgunblaðið - 26.03.2008, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 26.03.2008, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2008 11 FRÉTTIR „Á NÍUNDA áratugnum fór fram hér á landi landssöfnun fyrir tæki, svokölluðum heilasírita, til að greina flogaveika einstaklinga sem mögulega gætu farið í skurðaðgerð til útlanda. Það er reynd- ar komið enn betra tæki síðan. Nú eru tækin til en þá vantar mannskap. Þetta er mjög dapurlegt.“ Þetta segir Þorlákur Hermannsson, formaður LAUF, Landssamtaka áhugafólks um flogaveiki, en í Morgunblaðinu í gær kom fram að undanfarin tvö ár hefði ekki verið hægt svo vel væri að taka flogaveika í rannsókn á taugadeild Landspítalans, vegna manneklu. Rannsóknin er nauðsynleg til að greina upptök floga í heila sjúklinganna. Út frá þeim upplýsingum er metið hvort heilaskurð- aðgerð henti viðkomandi, en aðgerðin getur lækn- að fólk af flogaveiki. „Ég þekki marga sem hafa farið í aðgerðina og fengið góðan bata. Þessi að- gerð er gjörbylting fyrir þetta fólk.“ Þorlákur segir að flogaveikir, líkt og aðrir sjúk- lingar, finni fyrir manneklunni á Landspítalanum. „Það er dapurlegt til þess að hugsa að rúm skuli standa tóm vegna þess að það vantar starfsfólk. Það er alls ekki nógu vel hlúð að flogaveikum eða öðrum sjúklingum sem glíma við taugasjúkdóma. Í raun er þetta til skammar fyrir íslenska ríkið.“ Hann segir gott að peningar séu lagðir í þróun- arverkefni erlendis. „En við þurfum að líta okkur nær í þessum efnum, ekki sópa vandamálunum undir teppið.“ Þorlákur tekur fram að starfsfólk taugadeild- arinnar sé framúrskarandi, hins vegar starfi það oft við erfiðar aðstæður. Fordómar enn til staðar Þorlákur segir fordóma í garð flogaveikra enn til staðar í íslensku samfélagi þó að almennings- álitið hafi þokast í rétta átt á undanförnum árum. „En það er enn víða pottur brotinn í þessum mál- um,“ segir hann og nefnir að flogaveikir fái ekki ferðaslysatryggingu hjá tryggingafélögum. Þá segir hann það þekkt að flogaveikum sé hafnað á vinnumarkaði líkt og niðurstaða rannsóknar á at- vinnumálum flogaveikra, sem birt var í Morg- unblaðinu í gær, sýnir. „Fólk hefur verið rekið úr vinnu vegna sjúkdómsins, jafnvel hjá hinu op- inbera.“ Þorlákur þekkir mörg dæmi um þetta, meira að segja hafi flogaveikur maður verið rekinn úr björgunarsveit vegna sjúkdómsins. Fræðsluátak í uppsiglingu Í kjölfar aðalfundar LAUF nú í apríl nk. er stefnt að því að setja af stað í samfélaginu öflugt fræðsluátak um félagið og flogaveiki. „Ekki veitir af,“ segir Þorlákur. „Það er eins og orðið floga- veiki sé algjört bannorð. Það eru enn miklar rang- hugmyndir varðandi sjúkdóminn. Við erum til dæmis enn að berjast við að koma þeim skila- boðum á framfæri að alls ekki eigi að setja eitt- hvað í munn manneskju sem fær flogakast, það getur t.d. brotið tennur. En þetta er eitthvað sem lifir í þjóðarsálinni frá gamalli tíð.“ „Nú eru tækin til en þá vantar mannskap“ Morgunblaðið/Golli Formaður LAUF vill fræða almenning um floga- veiki og minnka fordóma „ÞAÐ vantar miklu meiri þjónustu við alla okkar sjúklingahópa,“ sagði Elí- as Ólafsson, yfirlæknir á taugadeild LSH í Morgunblaðinu í gær. Sagði hann þjónustu við Parkinsonsveika „klárlega“ hafa vernsað. Ástæðuna má rekja til manneklu og útskriftarvanda sem háir starfsemi á sjúkrahúsinu víðar en á taugadeild. Formaður Parkinsonsamtakanna staðfestir þetta og segir Parkinsonsveika hafa orðið fyrir verulegum óþægindum vegna þessa. Morgunblaðið/Júlíus Þjónustan versnað vegna manneklu „ÞETTA mikla álag getur farið að ógna öryggi sjúklinga,“ segir Álfheið- ur Árnadóttir, formaður hjúkrunar- ráðs Landspítala, um það álag sem starfsfólk spítal- ans býr við vegna manneklu og út- skriftarvanda. „Við verðum að fara að horfast í augu við það að nauðsynlegt er að bæta vinnuaðstöð- una og launin,“ segir Álfheiður. „Þetta er vandamál alls samfélagsins, ekki aðeins Landspítalans. Við þurf- um að gera upp við okkur hvernig þjónustu við viljum fá þegar við verð- um veik. Það kostar peninga og spít- alinn er í fjársvelti. Það er búið að spara eins og hægt er.“ Áflheiður bendir á að ýmislegt hafi þegar verið gert til að bæta mönnun í hjúkrun, t.d. að fjölga nemum í há- skólunum og að setja aukinn kraft í starfsþróun á LSH. Hins vegar muni á næsta áratug 147 hjúkrunarfræð- ingar og 95 sjúkraliðar á LSH hætta störfum sökum aldurs og það sé mikið áhyggjuefni. Álfheiður segir í raun ótrúlegt hvað hjúkrunarfræðingar hafa sýnt mikla þolinmæði við erfiðar aðstæður. „Þeim þykir auðvitað vænt um starfið sitt, vilja gera vel og vonast eftir að ástandið batni.“ Hún segir ljóst að það séu launa- málin sem nú brenni á starfsfólkinu. „Samningar eru lausir og ég tel að hjúkrunarfræðingar horfi mjög til þess.“ Mun ógna öryggi sjúklinga Nauðsynlegt að bæta vinnuaðstöðu og laun Álfheiður Árnadóttir Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is MEÐFERÐ sjúkdóms á borð við Parkinson er langtímaverkefni en ekki bráðameðferð. Hún hefur því ekki fallið vel að starfsemi tauga- deildar Landspítala, þar sem nær öll orkan fer nú í að bjarga í bráða- tilfellum og daglegum vandamálum í rekstri deildarinnar. Ekki er við starfsfólk deildarinnar að sakast heldur þá sem skammta starfsem- inni fé. Þetta segir Ásbjörn Einarsson, formaður Parkinsonssamtakanna, en í Morgunblaðinu í gær kom fram að vegna manneklu og útskriftar- vanda hefur þjónusta Landspítal- ans við m.a. Parkinsonveika versn- að. Ástandið er ekki bundið við taugadeildina heldur er það lýsandi fyrir þá stöðu sem upp er komin víðar á spítalanum. „Parkinsonsveiki er ólæknandi en hægfara taugasjúkdómur en það má lengi draga úr einkennum veik- innar með lyfjagjöf,“ segir Ásbjörn. Hann segir lyfjagjöfina flókna og einstaklingsbundna en algengt sé að Parkinsonssjúklingar taki 6-8 tegundir lyfja og sum þeirra upp í átta sinnum á dag. „Lyfjaskömmt- unin er stöðugur línudans þar sem ofskömmtun er jafn óheppileg fyrir sjúklinginn og vanskömmtun og hún breytist með þróun sjúkdóms- ins,“ segir Ásbjörn ítrekar að með- ferð sjúklinganna falli ekki að starf- semi taugadeildinnar við þær aðstæður sem þar ríkja í dag. Bundu vonir við dagdeildina „Parkinssonssjúklingar bundu miklar vonir við starfsemi dagdeild- arinnar þegar hún var sett á fót. Þar átti að vera aðstaða til lyfja- stillingar fyrir Parkinsonssjúka og einnig sérstakur hópur sérfræðinga á mismunandi sviðum, Parkinson- steymi, sem átti að geta skoðað heildarmyndina í sjúkdómsferli sjúklinga og leiðbeint þeim sam- kvæmt því. Ekkert af þessu hefur gengið eftir, þrátt fyrir fagrar yf- irlýsingar á fundum, og það er ljóst að það verður ekki á næstunni mið- að við núverandi álag á taugadeild.“ Annað vandamál, sem Parkinson- samtökin verða sífellt meira vör við, varðar innlögn Parkinsonssjúkl- inga á aðrar deildir Landspítalans en taugadeild, t.d. vegna annarra sjúkdóma, slysa eða einfaldlega vegna skorts á rými á taugadeild. „Á þessum deildum er oftast lítil eða engin sérþekking á flóknum taugasjúkdómum og er þá alltof al- gengt að lítið sem ekkert tillit sé tekið til sérþarfa sjúklingsins vegna Parkinsonsveikinnar,“ segir Ásbjörn. Hann segir dæmi um að Park- insonssjúklingar hafi orðið fyrir verulegum óþægindum og jafnvel varanlegum skaða af þessum sök- um inni á spítalanum. „Þarna ættu sérfræðingar taugadeildar að koma að málum og veita ráðgjöf en það gerist ekki í dag,“ segir Ásbjörn. „Það ber að taka fram að við teljum að hér sé ekki við starfsfólk tauga- deildar að sakast sem berst af bestu getu við að halda í horfinu við erf- iðar aðstæður, heldur þá sem skammta deildinni fé og aðstöðu.“ Urðu fyrir var- anlegum skaða Óviðunandi að leggja Parkinsonsveika inn á aðrar deildir en taugadeild Í HNOTSKURN »Yfir 500 Íslendingar eru meðParkinsonsveiki og um 40 ný tilfelli greinast árlega. »Parkinsonssjúkir þurfareglulega á stuttum inn- lögnum á taugadeild LSH að halda til lyfjastillinga. »Því hefur verið erfitt aðkoma við vegna þrengsla og manneklu og því eru þeir veikari og þurfa að liggja lengur inni er þeir loks koma til meðferðar. „ÞAÐ sem lýst er þarna á við um okk- ur öll,“ segir Guðjón Sigurðsson, for- maður MND-félagsins, um frétta- skýringu Morgunblaðsins í gær um áhrif manneklu og út- skriftarvanda Landspítala á þjónustu við sjúk- linga. Hann segir skipulega teymis- vinnu á sjúkra- húsinu að mörgu leyti lamaða. „Starfsfólk er upptekið við að slökkva elda sem ekki eru fyrirséðir, en hefur engan tíma til að fylgjast með sjúklingum, hringja út og kanna ástand hjá okkur svo koma megi í veg fyrir bráðainnlagn- ir,“ segir Guðjón. Hann segir að á taugadeild liggi nú maður sem hafi verið á spítalanum í fjórtán mánuði. „Hann fékk algera taugalömun en er að styrkjast hægt og rólega,“ segir Guðjón. „Hann var tekinn af biðlista fyrir Grensás sem segir viðkomandi að ekki taki því að endurhæfa hann, hann geti borið beinin á taugalækningadeild, teppt pláss fyrir bráðveika í stað þess að nálgast það að geta verið heima. Þó að dvöl á [taugadeild] sé frábær vegna gæða starfsfólksins er engum hollt að búa þar lengur en algera nauðsyn ber til. Það vantar „stíflueyði“ innan LSH og ekki síður kröftugan „stíflueyði“ á milli félagskerfis og heilbrigðiskerfis. Þetta vita orðið allir en það virðist vanta að ráðamenn hafi kjark og þor til að höggva á hnútana. Við hjá sjúk- lingasamtökunum erum klár til að að- stoða hvenær sem er. Strax ef einhver hefur kjarkinn til að ákveða aðgerðir. Nóg er komið af kjaftæðinu.“ Vantar stíflueyði á LSH Guðjón Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.