Morgunblaðið - 26.03.2008, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
* Gildir á allar
sýningar merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ*
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Semi-Pro kl. 3:45 - 8 - 10:10 B.i. 12 ára
Be kind rewind kl. 10
27 dresses kl. 5:40
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó
TILNEFND TIL 2 ÓSKARSVERÐLAUNA
M.A. FYRIR BESTA AUKALEIKARA
eeee
„Into the Wild telst til einna
sterkustu mynda það sem af er árinu.“
-L.I.B., TOPP5.IS
eeeee
„Gullfalleg, ljúfsár og heillandi.“
-B.B., 24 Stundir
eeee
„Into the Wild skilur við áhorfandann snortinn
af andstæðum, fegurðinni og vægðarleysinu
sem hún lýsir svo skýrt og fallega.“
-S.V., Mbl
Sími 564 0000
eeeee
„Bráðsnjöll
gamanmynd,
þar sem aðalleikararnir
Mos Def og Jack Black
leika á alls oddi“
-H.J., Mbl
eee
-24 Stundir
Frá framleiðendum The Devils Wears Prada
eee
- S.V. MBL
Frábær grínmynd
- V.J.V. Topp5.is/FBL
eee
Í BRUGGE
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG REGNBOGANUMSÝND Í SMÁRABÍÓI OG REGNBOGANUM
SÝND Í SMÁRABÍÓI
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
l
ATH:
Á UNDAN MYNDINNI
VERÐUR FRUMSÝNT
FRÁBÆRT MYNDSKEIÐ
(TRAILER)
ÚR ICE AGE 3!
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
Sími 462 3500
- Kauptu bíómiðann á netinu -
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
SÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
- S.V., MBL
eeee
- ÓHT, Rás 2
eee
eeee
- E.E, D.V.
- L.I.B.
Topp5.is/FBL
eeee
- Empire
eeee
- D.Ö.J.
Kvikmyndir.com
eeee
SÝND Í REGNBOGANUM
In Bruges kl. 5:45 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Horton m/ensku tali kl. 6 - 8 - 10
The Orphanage kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára
Be kind rewind kl. 10:30
27 dresses kl. 5:30 - 8
1
„Allt smellur saman og gengur upp”
- A.S., MBL
eeee
„Fín Fjölskyldumynd”
- 24 Stundir
eee
SÝND Í REGNBOGANUM
Spiderwick Chronicles kl. 6 - 8 B.i. 7 ára
Horton m/ísl. tali kl. 6
Heiðin kl. 8 - 10 B.i. 7 ára
Semi-Pro kl. 10 B.i. 12 ára
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Shutter kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Shutter kl. 4 - 6 - 8 - 10 LÚXUS
Spiderwick Chron.. kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 7 ára
Horton enskt tal kl. 4 - 6 - 8
Horton m/ísl. tali kl. 4 - 6
TÓNLIST
Hilton Reykjavík Nordica,
miðvikudagskvöldið 19. mars.
Yardbirds ofl. á Blúshátíð í Reykjavík
bbbmn
Blúshátíð í Reykjavík, Hilton Reykjavík
Nordica, 19. mars 2008.
Nordic All Stars Blues Band
Bláir Skuggar
The Yardbirds
NOTALEG stemning var inni á Hil-
ton hótelinu, síðastliðið miðvikudags-
kvöld. Salurinn er kjörinn til tónleika-
halds og var vel til fundið hjá for-
sprökkum Blúshátíðar að nýta hann
til þess. Fyrst á svið þetta kvöld var
hið norræna samkrull, Nordic All
Stars Blues Band. Þar var KK mætt-
ur ásamt löndum sínum, Björgvini
Gíslasyni og Pétur Östlund, en með
þeim léku hinir norsku Jolly Jumper
og Big Mo, ásamt sænska bassaleik-
aranum Krister Palais. Stjörnuliðið
flutti ein sex lög og leiftraði af spila-
gleði. Sérstaklega var gaman að sjá
til Björgvins Gíslasonar sem fór á
hamförum og gaf mikið af sér til með-
spilara sinna sem áhorfenda.
KK var og stórgóður með sína frá-
bæru rödd og leiðandi hryn sem Östl-
und virtist á stundum vera tregur til
að elta. Norðmennirnir í sveitinni
voru öllu síðri. Þannig var munn-
hörpuleikarinn Jolly Jumper fremur
yfirdrifinn og lék meira af kappi en
næmi. Söngur hans var og lífvana,
rétt eins og raul landa hans, Big Mo,
sem annars lék þokkalega á gítar.
Lagavalið var skothelt og kom ekkert
á óvart. Hressilegir rytmablúsar voru
í öndvegi og viðeigandi var að heyra
„Dust My Blues“, sem Yardbirds
hljóðritaði á sínum tíma en var upp-
haflega samið af Robert Johnson
undir nafninu „I Believe I‘ll Dust My
Broom“.
Eftir að KK og félagar höfðu hitað
áhorfendur vel upp með bráð-
skemmtilegu samspili steig öllu hóf-
stilltari flokkur á svið. Östlund var að
vísu áfram við settið en nú í tónlist-
arlegu umhverfi þar sem hann er tví-
mælalaust á heimavelli. Honum til
samspils voru mættir þeir Sigurður
Flosason, Jón Páll Bjarnason og Þór-
ir Baldursson. Saman mynda þessir
heiðursmenn kvartettinn Bláa
skugga og töldu þeir í sex ópusa Sig-
urðar af nýútkominni plötu flokksins,
Blátt ljós. Tónsmíðar Sigurðar eru
smekklegar og lagrænar, svo mjög að
maður fær á tilfinninguna að um
gömul lög sé að ræða. Þannig þótti
mér „Þegar flaskan er tóm“ minna
um margt á „Autumn Leaves.“
Sigurður gat þess reyndar í kynn-
ingum að tónlistin væri óður til
„gamla djassins“ og því komu kunn-
uglegar tilvitnanir í gamla slagara
ekki á óvart. Smíðarnar minntu einatt
á djasstónlist frá sjötta og sjöunda
áratug síðustu aldar og komu meist-
arar á borð við þá Wes Montgomery
og Jimmy Smith títt upp í hugann. Þá
var harðbop að hætti Art Blakey &
the Jazz Messengers í hávegum haft,
enda tileinkaði Sigurður lagið „Skila-
boð“ þeirri ágætu sveit. „Aldrei aft-
ur“ er þó lag sem minnti undirritaðan
jafnvel enn meira á Blakey. Fegursta
smíðin sem Skuggarnir fluttu var
annars hin sálarskotna „Aftur
heima“. Alveg hreint gullfalleg ball-
aða sem Sigurður blés undurblítt og
vel. Leikur Skugganna bláu var
hnökralaus og á köflum framúrskar-
andi, þar sem meistari Þórir Bald-
ursson átti hreint stórkostlega ein-
leikskafla.
Bandið sem beðið var eftir
Eftir um tveggja klukkustunda
„upphitunardagskrá“ var komið að
hljómsveit þeirri sem flestir höfðu
beðið eftir, The Yardbirds. Þessi goð-
sagnakennda hljómsveit fóstraði á
sínum tíma nokkra af þekktustu gít-
arleikurum rokksögunnar, þá Eric
Clapton, Jeff Beck og Jimmy Page.
Árið 1968 varð Led Zeppelin svo til úr
rústum Yardbirds og kallaðist raunar
í fyrstu The New Yardbirds. Hart-
nær hálf öld er liðin síðan Yardbirds
kom fyrst fram á sjónarsviðið og saga
sveitarinnar er um margt merkileg.
Gaman var að fylgjast með áhorf-
endum í salnum, sem virtust almennt
ekki búnir undir þá athyglisverðu
upprifjun á sögunni sem sveitin bauð
upp á. Við hæfi var að Yardbirds
skyldi hefja leik á laginu „The Train
Kept a Rolling“, sem jafnframt er
fyrsta lagið sem áðurnefnd Led Zep-
pelin taldi í, forðum daga. Í kjölfarið
lék sveitin ýmis lög af löngum ferli og
var gaman að heyra gömlu smellina
„Shapes of Things“, „For Your Love“
og hið frábæra „Heart Full of Soul“.
Lítið bar á eiginlegum trega, þótt
blússkotnir rokkslagarar væru annað
veifið leiknir, en þess í stað mátti á
köflum heyra hinar undarlegustu
lagasmíðar sem sennilega voru flest-
ar frá sýrurokkstímanum.
Undirrituðum leið raunar á köflum
eins og hann væri staddur á tónleik-
um hjá hinni paródísku hljómsveit,
Spinal Tap. Bassaleikari og söngvari
Yardbirds, John Idan, var og sem
klipptur út úr bíómynd frá þessum
tíma, í senn spaugilegur og svalur
sýnum. Idan þessi er annars ekki
einn upprunalegra meðlima Yard-
birds en fór þetta kvöld fyrir sínum
mönnum með ljómandi góðum söng
og harla þéttum bassaleik. Ég veit
raunar ekki hvernig færi fyrir Yar-
dbirds án þessa forsprakka því stofn-
meðlimirnir, þeir Jim McCarthy á
trommur og Chris Dreja á rytm-
agítar, voru því miður ekkert sér-
staklega sannfærandi á hljóðfæri sín
og hinn ungi sólógítarleikari, Ben
King, virtist ánægðari með sig en efni
stóðu til, þótt fingralipur sé. Aldurinn
á sjálfsagt eftir að kenna honum að
minna er oftast meira. Enginn stóð
sig þó beinlínis illa og átti munn-
hörpuleikarinn reyndi, Alan Glen, til
að mynda mjög góða spretti. Þá höfðu
þeir McCartney og Drej greinilega
engu gleymt í smekklegum rödd-
unum. Áhorfendur virtust flestir
skemmta sér ágætlega yfir Yar-
dbirds, þótt margir hafi eðlilega orðið
undrandi þegar hin meinta blússveit
tók til við hin ýmsu stílbrigði, sem
sum hver hafa elst fremur illa.
Undir lok tónleikanna kættust
menn þó svo um munaði er Yardbirds
taldi í Zeppelin-slagarann „Dazed
and Confused“. Undirrituðum þótti
þó heldur lítið til flutningsins koma,
en vel má vera að ósanngjarnt sé að
miða hann við fyrri útgáfur. Þó má
víst telja að Yardbirds hafi fyrst leik-
ið lagið áður en Zeppelin kom til sög-
unnar. Þetta blúskvöld á Hilton var
þegar á allt var litið með ágætum,
þótt lítið hafi raunar farið fyrir eig-
inlegum trega. Rokk og djass voru
allt eins áberandi, sem í sjálfu sér er
allt í lagi. Hljómburður er góður í
salnum og gerði ágæt hljóðblöndunin
tæplega fjögurra klukkustunda tón-
leika alveg bærilega.
Tregir til trega
Orri Harðarson
Ljósmynd/Lúðvík Valsson
Yardbirds Alan Glen reyndur á munnhörpu, Ben King fingralipur á gítar.
Fréttir
í
tölvupósti