Morgunblaðið - 26.03.2008, Blaðsíða 36
■ Lau. 29. mars kl. 14.00
Maxímús Músíkús - Tónsprotatónleikar
Músin Maxímús Músíkus villist inn á æfingu og tónleika hljómsveitar-
innar. Tónleikar í tilefni af útkomu samnefndrar barnabókar Hallfríðar
Ólafsdóttur flautuleikara með myndum eftir Þórarin Má Baldursson
víóluleikara. Valur Freyr Einarsson leikari segir söguna af Maxímúsi,
trúðurinn Barbara lítur við og Maxímús sjálfur kemur í heimsókn. Á
efnisskránni eru m.a. Bolero eftir Ravel og fyrsti kaflinn úr fimmtu
sinfóníu Beethovens. Hljómsveitarstjóri: Bernharður Wilkinson
■ Fim. 3. apríl kl. 19.30
Einstakur gestur
Robert Levin er einhver merkasti tónlistarhugsuður okkar tíma. Hann
leikur píanókonsert nr. 3 eftir Beethoven og spinnur sína eigin
kadensur.
■ Fös. 4. apríl kl. 21.00
Heyrðu mig nú!
Öðruvísi upplifun af sinfóníutónleikum. Stuttir tónleikar þar sem lista-
mennirnir kynna verkin og partí í anddyri Háskólabíós á eftir. Róbert
Levin leikur píanókonsert eftir Beethoven og spinnur út frá lögum sem
tónleikagestir leggja til. Heppnir tónleikagestir vinna iPod í boði FL
Group.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
Í þeim atriðum bregð-
ur fyrir draumi um
aðra og betri mynd. Kannski
sjáum við hana síðar …41
»
reykjavíkreykjavík
BJÖRK Guðmundsdóttir mun halda tónleika í
Ísrael hinn 31. júlí næstkomandi, að því er fram
kemur á fréttavefnum Jerusalem Post. Þetta mun
vera í fyrsta skipti sem Björk heldur tónleika þar í
tólf ár, en ekki hefur enn fengist staðfest hvar tón-
leikarnir munu fara fram þótt líklegt sé að þeir
verði í Tel Avív.
Þá segir í fréttinni að ein evra af hverjum seld-
um miða muni renna til UNICEF.
Björk er á tónleikaferðalagi um heiminn um
þessar mundir að fylgja eftir nýjustu plötu sinni
Volta. Björk hefur á undanförnum mánuðum kom-
ið fram í Ástralíu, á Nýja-Sjálandi í Japan og
Kína, en tónleikar hennar í síðastnefnda landinu
vöktu mikla athygli þar sem söngkonan tileinkaði
Tíbetum lagið „Declare Independence“.
Annars er það að frétta af Björk að smáskífa
með lagi hennar „Wanderlust“ er væntanleg í
verslanir hinn 14. apríl næstkomandi. Myndband
við lagið verður hins vegar frumsýnt á Yahoo.com
á mánudaginn, 31. mars, og verður hægt að skoða
það í heilan sólarhring á síðunni.
Þeir sem hafa aðgang að þar til gerðum gler-
augum geta einnig séð myndbandið í þrívíd sem
ku vera hreint mögnuð upplifun.
Björk með tónleika í Ísrael
Morgunblaðið/Ómar
Björk Er væntanleg til Ísraels og í þrívídd á Yahoo.com.
Tónlistarmað-
urinn BMV gerir
það aldeilis gott
þessa dagana með
lagi sínu „End-
lessly“, en það er í
26. sæti yfir vin-
sælustu lögin á
Balí á útvarpsstöðinni Phoenix Ra-
dio sem ku vera sú heitasta á eyj-
unni. „Endlessly“ fór beint inn á
lista yfir vinsælustu lög stöðv-
arinnar í síðustu viku, í 31. sæti. Þá
er lagið í 5. sæti á útvarpsstöðinni
Radio Vala Rinore í Kosovo en hún
ku einnig vera sú vinsælasta þar í
landi. Í Litháen hefur lagið einnig
notið vinsælda, á vinsælustu út-
varpsstöðinni þar, Radio Centras.
Frá þessu greinir BMV sjálfur,
Brynjar Már Valdimarsson.
Vinsæll á Balí,
í Kosovo og Litháen
Jaðabókaútgáfan og ungskálda-
félagið Nýhil leitar nú fram-
kvæmdastjóra í 20-25% hlutastarf.
Vinnu- og ráðningartími er sveigj-
anlegur og laun „sanngjörn“. Í um-
sókn má gjarnan vera ljóð. Ómót-
stæðilegt tækifæri í kreppunni?
Sveigjanlegur ráðning-
artími, sanngjörn laun
Bubbi Morthens heldur tónleika
í Austurbæ fimmtudaginn 3. apríl
nk. kl. 21. Á efnisskránni verður
blanda af gömlu og nýju efni, s.s.
klassískir Bubba-tónleikar, Bubbi
og gítarinn. Ný plata er svo vænt-
anleg frá kónginum 6. júní, á af-
mælisdegi meistarans. Pétur Ben
stjórnaði upptökum.
Bubbi og gítarinn
í Austurbæ í apríl
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
SKILGREININGAR eru hvergi jafn
nákvæmar og í þunga/harð-
kjarnarokki og dans/raftónlist, þess-
um ofsavirku og einkar frjósömu
neðanjarðarsenum. Þannig leika Mi-
sery Index, hljómsveit frá hinum vin-
sæla viðkomustað Íslendinga í
Bandaríkjunum, Baltimore, svokall-
aðan dauðamulning eða „death
grind“ sem er samsláttur tveggja
nokkuð ólíkra stefna, dauðarokks og
„grindcore“.
Misery Index er orðin sæmi-
legasta stærð í bransanum, gefur
t.a.m. út hjá Relapse risanum en
sveitina stofnaði bassaleikarinn og
söngvarinn Jason Anderson er hann
og fleiri gengu úr dauðarokkssveit-
inni Dying Fetus (eða öfgadauða-
rokkssveitinni Dying Fetus, svo við
styggjum nú ekki skilgreiningarfas-
istana).
Skemmtilega beittir
„Við höfum reyndar komið marg-
oft til Íslands,“ segir Anderson
blaðamanni. „En bara til að milli-
lenda. Það eina sem við höfum séð af
landinu er flugstöðin, og það úr flug-
vélagluggunum. Ég hlakka því til að
sjá meira, og við ætlum að fara smá
hring um landið meira að segja.“
Anderson segir að hann hafi stofn-
að Misery Index af því að hann hafi
langað í meira fjör og meiri skemmt-
an en hann upplifði í Dying Fetus.
Blaðamaður hváir, enda er sveitin
þekkt fyrir beitta, pólitíska texta en
auk þess vísar heiti sveitarinnar í
hagfræðistuðul sem mælir vesaldóm
og fátækt (auk þess að vera heiti á
síðustu plötu Assück, sem Misery In-
dex dregur þónokkur áhrif frá).
„Það er nú alveg hægt að segja
eitthvað af viti og vera skemmtilegur
um leið,“ segir Anderson og brosir í
gegnum símann. „Ég nenni ekki að
vera að syngja eitthvert bull, text-
arnir verða að taka á einhverju.“
Í framhaldinu segir hann þá fé-
lagana lifa sæmilega eftir boðorði
anarkískrar hugmyndafræði, þó þeir
gangi ekki svo langt að rækta eigin
kartöflur.
100% þungarokkari
„Hljómsveitin hófst sem hljóðvers-
verkefni en þróaðist fljótlega út í tón-
leikasveit líka,“ heldur Anderson
áfram. „Ég er reyndar einn eftir af
upprunalega bandinu. Þróunin hjá
okkur hefur verið línulega upp á við
síðan við byrjuðum árið 2001. Við er-
um reyndar mun stærri í Evrópu en í
Bandaríkjunum.“
Segja má að Misery Index byggi
brú á milli harðkjarna og þunga-
rokks, enda leikur sveitin jöfnum
höndum með fulltrúum beggja
heima.
„Ég byrjaði sem 100% þungarokk-
ari,“ rifjar Anderson upp þegar þetta
er lagt fyrir hann. „Svo var það ekki
alveg að gera sig fyrir mig og ég
fékk í framhaldinu áhuga á pönki og
harðkjarnatónlist og dembdi mér af
fullum krafti í það. Nú svo ákvað ég
bara að slengja þessu saman í einn
pakka þegar ég stofnaði Misery In-
dex og fá þannig það besta úr báðum.
Sniðugt ekki satt?“
Dauðans alvara
Bandaríska öfgarokksveitin Misery Index heldur tónleika á Organ og í Hellinum
Misery Index „Það er nú alveg hægt að segja eitthvað af viti og vera
skemmtilegur um leið,“ segir bassaleikarinn og söngvarinn Jason Anderson.
Dyr opnast á Organ kl. 20.30. Á
laugardaginn í Hellinum (TÞM,
Hólmaslóð 2) opnast þær kl. 19.30
og þá hita Forgarður helvítis, Dis-
integrate og Gone Postal upp. Ekk-
ert aldurstakmark er á þá tónleika.