Morgunblaðið - 26.03.2008, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2008 9
FRÉTTIR
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
ÁÆTLANIR Jarðvéla ehf. gerðu
ráð fyrir að lokið yrði við að tvö-
falda Reykjanesbraut við veginn
að Vogum í lok ágúst í fyrra.
Rekstur Jarðvéla fór hins vegar í
þrot og framkvæmdir hafa legið
niðri svo mánuðum skiptir. Nú er
gert er ráð fyrir að tvöföldun á
þessum kafla ljúki um mánaðamóti
júní og júlí í sumar, um 10 mán-
uðum síðar en Jarðvélar höfðu
áætlað.
Merki á þriðja hverjum staur
Framkvæmdirnar við veginn að
Vogum er hluti af tvöföldun
Reykjanesbrautar frá Strand-
arheiði að Njarðvík. Eftir að Jarð-
vélar sögðu sig frá verkinu tók
Vegagerðin yfir umsjón með
merkingum á framkvæmdasvæð-
inu í byrjun desember sl. Í kjöl-
farið var merkingum breytt, stein-
steypublokkir voru færðar og
léttari skiltum komið fyrir.
Jónas Snæbjörnsson, svæð-
isstjóri Vegagerðarinnar, sagði í
gær að ekki væri ætlunin að bæta
við merkingum vegna slyssins að-
faranótt þriðjudags. Búið væri að
bæta við merkingum, m.a. á þeim
kafla sem slysið varð á og vandséð
hvernig hægt væri að auka þær.
Hann nefndi sem dæmi að merki
að um vegurinn væri fyrir umferð
í báðar áttir hefði verið sett á
þriðja hvern ljósastaur á kaflanum
við Vogaveg. Málið yrði þó skoðað.
Þar sem Jarðvélar sögðu sig frá
verkinu varð að bjóða verkið út á
nýjan leik og verða tilboð í verkið
opnuð 8. apríl nk. Að sögn Jón-
asar er miðað við að búið verði að
tvöfalda brautina að vegamótum
við Grindavíkurveg um mán-
aðamótin júní og júlí nk. og að
verkinu ljúki að mestu í október
nk. Þetta væri um þriggja mánaða
töf frá upphaflegum útboðsskil-
málum. Á hinn bóginn hefði Vega-
gerðin boðið Jarðvélum svokallað
flýtifé, þ.e. aukagreiðslu ef verk-
inu hefði miðað hraðar en sam-
kvæmt útboði og Jarðvélar hefðu
gert ráð fyrir að ljúka tvöföldun
fram hjá veginum að Vogum í lok
ágúst 2007.
Varðandi þá vegakafla þar sem
umferð er beint fram hjá fram-
kvæmdasvæðunum sagði Jónas að
Jarðvélar hefðu mátt hafa þessi
svokölluðu framhjáhlaup opin í
þrjá mánuði en sá frestur væri
löngu liðinn.
Tafsamar framkvæmdir við tvöföldun Reykjanesbrautar frá Strandarheiði að Njarðvík
Morgunblaðið/RAX
Ætluðu að ljúka tvöföldun
við Vogaveg í fyrrasumar
BEGGJA vegna vegamóta Reykja-
nesbrautar og Vogavegar er að
mestu búið að tvöfalda Reykjanes-
braut. Vegna framkvæmda við mis-
læg gatnamót og fleira er umferð
hins vegar aðeins hleypt inn á ann-
an veghlutann og þar er því tví-
stefna á 2-3 kílómetra löngum
kafla, þ.e. ein akrein er fyrir hvora
akstursstefnu.
Þetta getur valdið ruglingi, m.a.
vegna þess að þegar ekið er eftir
þessum kafla sjá ökumenn að búið
er að leggja tvöfalda braut við hlið-
ina á þeirri sem ekið er eftir. Þeg-
ar skyggni er slæmt eða umferð lít-
il er töluverð hætta á að ökumenn
á norðurleið telji að hin brautin,
sem er þeim á vinstri hönd, sé fyrir
umferð í gagnstæða átt en þeir geti
ekið á tveimur akreinum. Þeir sem
eru á leið suður ættu að gera sér
betur grein fyrir ástandinu m.a.
þar sem þeir þurfa að beygja til
vinstri inn á kaflann sem um ræðir.
Ruglingur sem þessi virðist hafa
orsakað alvarlegt bílslys á um-
ræddum kafla brautarinnar að-
faranótt þriðjudags en það lítur út
fyrir að ökumaður, sem var á leið
til höfuðborgarsvæðisins, hafi talið
að báðar akreinarnar væru fyrir
umferð til norðurs. Kona slasaðist
illa í slysinu og í gær var henni enn
haldið sofandi í öndunarvél.
Á tveimur öðrum stöðum á
Reykjanesbraut er umferð færð á
milli nýrra og gamalla hluta braut-
arinnar. Kaflinn við Vogana er
hins vegar lengstur og varasam-
astur.
Meiri hætta
á ruglingi á
norðurleið
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Sumarkjólar
Ný sending
Skeifan 11d • 108 Reykjavík
sími 517 6460
www.belladonna.is
Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-15
Vönduð ítölsk leðurstígvél
fyrir breiða kálfa
(vídd 44 - 48cm)
skóstærðir 38 - 43