Morgunblaðið - 26.03.2008, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Okkur er borgið, elskan, honum hefur tekist að bjarga stýrinu.
VEÐUR
Fyrir nokkrum vikum var vikið aðþví hér í Morgunblaðinu að
tímabært væri að svokallaðir hags-
munaverðir þyrftu að skrá sig hjá
opinberum aðilum og láta þess get-
ið hverjir umbjóðendur þeirra
væru. Þetta er
nauðsynlegt til
þess að opinberar
umræður séu
gagnsæjar og
ekki fari á milli
mála erindi
hverra menn eru
að reka.
Það er t.d. al-veg ljóst að Vilhjálmur Eg-
ilsson, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, er að tala fyrir
þeirra hönd, þegar hann gagnrýnir
Seðlabankann aftur og aftur fyrir
stýrivaxtahækkanir. Vilhjálmur er
ekki í felum. Hann kemur til dyr-
anna eins og hann er klæddur.
Menn vita fyrir hverja hann er að
tala.
En svo eru aðrir á ferð í erind-rekstri sem ekki er alltaf aug-
ljós. Þetta má sjá t.d. á sumum að-
sendum greinum sem birtast hér í
Morgunblaðinu.
Í sumum tilvikum segja mennhreint út í slíkum greinum fyrir
hverja þeir eru að vinna. En í öðr-
um tilvikum ekki.
Lögmenn eru t.d. virkir þátttak-endur í almennum umræðum.
Sumir þeirra láta þess jafnan getið
fyrir hverja þeir eru að vinna – og
skrifa.
Aðrir ekki.
Þegar lögmenn reka erindi við-skiptavina sinna með greina-
skrifum í blöðum er sjálfsagt að
þeir segi frá því hverjir skjólstæð-
ingar þeirra eru.
Og það á við um marga starfs-hópa.
STAKSTEINAR
Vilhjálmur
Egilsson
Í þágu hverra?
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
"#
"#$%
"#
"#
"#$%
"#$%
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
!
!
!
!
*$BC
!"#
$ %
*!
$$B *!
&' (# '# )#*)
<2
<! <2
<! <2
&#( $+ %,-"$).
CD
B
#
"
" &$ %'%
<
E87E
(
)
" *%%
% +
! $ %%& <
!!% &, &$
%
%#
$ &
" -"
! $
/0$$ )11
$)#2) ")+ %
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Marta B. Helgadóttir | 25. mars 2008
Ópólitískan
borgarstjóra
Erla Ósk Ásgeirsdóttir
formaður Heimdallar rit-
ar mjög athyglisverða
grein í Morgunblaðið í
dag þar sem hún leggur
til að mynduð verði
þjóðstjórn í borginni
undir forystu ópólitísks borgarstjóra
úr röðum atvinnulífsins.
Orðrétt segir Erla Ósk:
„Það er löngu tímabært að stjórn-
málamenn í borginni beini sjónum
sínum aftur að málefnum borgarinnar
og vinni saman að hagsmunum borg-
arbúa. ...“
Meira: martasmarta.blog.is
Ásgerður Jóna Flosadóttir | 25. mars
Nafnaleynd á blogg-
inu – Hvers vegna?
Ég hef velt því fyrir
mér hvers vegna
mbl.is leyfir ein-
staklingum að blogga
undir nafnleynd.
Ég tel slíkt mjög
óeðlilegt.
Kemur það fyrir að nafnlausu
bloggararnir ati annað fólk auri og
sá sem fyrir verður veit ekki hvaðan
á sig stendur veðrið.
Þeir sem vilja tjá sig í bloggheimi
eiga að gera það undir nafni. Ann-
að er óheiðarlegt. Hvað er þetta
fólk að fela?
Meira: asgerdurjona.blog.is
María Kristjánsdóttir | 25. mars 2008
Nesti fyrir Björn
Bjarnason
Eduardo Galiano heitir
skáld frá Uruquay.
Hann hefur aðrar
skoðanir á Milton Fried-
man en David Mamet. Í
bók hans: „Dagar og
nætur – ástar og friðar“
(1983) segir hann:
„Kennisetningar Miltons Fried-
mans færðu honum Nóbels-
verðlaunin, en þær færðu Chilebúum
Pinochet.“
Björn gæti kannski reynt að fræð-
ast um Chicago-drengina og athæfi
þeirra í Santiago í þessari ferð.
Meira: mariakr.blog.is
Helga Sigrún Harðardóttir | 25. mars
Oft var þörf...
Í stjórnkerfinu ætti að
vera til n.k. almanna-
varnarnefnd sem ætlað
er það hlutverk að
bregðast við alvarlegum
áföllum í fjármála- og
efnahagskerfum Íslend-
inga, rétt eins og þegar nátt-
úruhamfarir ríða yfir. Með sama hætti
og heil sveitarfélög geta lamast við
miklar hamfarir, hefur ríkisstjórn Ís-
lands nú lamast og virðist hafa dagað
uppi eins og hvert annað nátttröll.
Árið 2004 skipaði þáverandi for-
sætisráðherra, Halldór Ásgrímsson,
samráðshóp með fulltrúum forsæt-
isráðuneytis, fjármálaráðuneytis, við-
skiptaráðuneytis, Fjármálaeftirlitsins
og Seðlabanka Íslands til að segja til
um viðbúnað og viðbrögð ef upp
kæmi fjármálakreppa eða alvarleg
áföll. Hópurinn sem skilaði af sér í
febrúar 2006 lagði til að skipaður
verði samráðshópur sem fylgist með
stöðu og horfum á fjármálamörkuðum
og fylgist jafnframt með meiri háttar
breytingum á lögum, reglum og starfs-
háttum sem varða fjármálamark-
aðinn, ásamt því að fara með álitamál
í alþjóðlegu samstarfi, sérstaklega
innan EES. Þar er kveðið á um að
þessi vettvangur átti að verða vett-
vangur upplýsinga- og skoðanaskipta.
Honum var ætlað að vera ráðgefandi
en ekki taka ákvarðanir um aðgerðir
en honum var ætlað að kalla saman
fund og leiðbeina stjórnvöldum um
aðgerðir væri fjármálakerfinu talin
hætta búin eða aðstæður á markaði
yrðu þess eðlis að um alvarlegt
ástand væri að ræða. Ef ekki nú, hve-
nær þá? Í skýrslunni er að finna lýs-
ingar á því að stjórnvöld þurfi að vera í
stakk búin að meta á skömmum tíma
alvarleika ástandsins og jafnframt að
tryggja að almenningur verði fyrir eins
litlum skaða og frekast er kostur. Þar
er kveðið á um „viðlagaæfingar“ eins
og í alvöru almannavarnarnefndum.
Gallinn er hins vegar sá að þáver-
andi forsætisráðherra gafst ekki ráð-
rúm til að skipa samráðsvettvanginn,
enda hvarf hann af braut skömmu síð-
ar. Sá forsætisráðherra sem við tók,
hefur að engu haft þessi fínu áform
um að vera við öllu búinn, setja sam-
an varaáætlun sem grípa mætti til ef
róðurinn þyrfti að herða og veita ráð-
villtum ráðherrum leiðbeiningar um
það hvernig stjórna skuli litlu landi
eins og Íslandi. ...
Meira: helgasigrun.blog.is
BLOG.IS
FRÉTTIR
Morgunverðarmálþing fjármála-
ráðuneytis, Félags forstöðumanna
ríkisstofnana og Stofnunar stjórn-
sýslufræða v. H.Í. kynnir og ræðir
lokaniðurstöður umfangsmikillar
rannsóknar á stjórnun og starfum-
hverfi ríkisstofnana, á morgun
fimmtudag. Ennfremur verða
rædd brýn verkefni framundan að
mati fyrirlesara, þátttakenda í
pallborði og fundarmanna.
Innlegg flytja Ómar H. Krist-
mundsson dósent og Þorsteinn
Pálsson ritstjóri, auk þeirra sitja í
pallborði þau Gunnar Björnsson
fjármálaráðuneyti og Arndís Ósk
Jónsdóttir ParX. Haukur Ingi-
bergsson formaður Félags for-
stöðumanna stýrir pallborðsum-
ræðum.
Rannsóknin sem hófst á árinu
2006 var samstarfsverkefni þess-
ara aðila, en Ómar H. Kristmunds-
son dósent við Háskóla Íslands
stýrði henni. Rannsóknin beindist
að stjórnun ríkisstofnana, þar á
meðal mannauðs- og fjármála-
stjórnun, launaákvörðunum og
samskiptum stofnana við ráðu-
neyti. Einnig náði hún til upplýs-
ingamiðlunar innan stofnana,
vinnubragða, samskipta og starfs-
ánægju og þjónustu stofnana.
Alls tóku 144 stofnanir þátt í
rannsókninni og 10 þúsund ríkis-
starfsmenn. Ómar H. Kristmunds-
son stýrði sambærilegu rannsókn-
arverkefni 1998.
Málþingið sem Ágústa H. Gúst-
afsdóttir af starfsmannasviði fjár-
málaráðuneytisins stýrir, fer fram
á Grand hótel, þátttökugjald er kr.
3.800 og er morgunverður innifal-
inn. Skrá þarf þátttöku á http://
www.stjornsyslustofnun.hi.is/page/
framtidaraherslur
Ræða rannsókn
á stjórnun
ríkisstofnana
Ómar H.
Kristmundsson
Þorsteinn
Pálsson