Morgunblaðið - 26.03.2008, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2008 13
NOKKRAR líkamsárásir voru
kærðar til lögreglunnar á Selfossi
yfir páskahelgina. M.a. ruddist
karlmaður inn í íbúðarhús um mið-
nætti föstudagsins langa og réðst
þar á heimilismann með þeim af-
leiðingum að hann viðbeinsbrotnaði
og hlaut áverka í andliti.
Sá sem varð fyrir árásinni gat
ekki greint frá því hver réðst á
hann en lögregla telur sig hafa
fengið upplýsingar um árásar-
manninn. Málið er í rannsókn en
ekki er vitað hvað árásarmanninum
gekk til, að því er fram kemur á
lögregluvefnum.
Á föstudaginn langa hafði kona
samband við lögreglu og skýrði frá
því að eiginmaður hennar hefði
ráðist á hana á Selfossi og valdið
henni minni háttar áverkum. Svo
vildi til að skömmu áður hafði mað-
urinn verið handtekinn vegna ölv-
unarláta og var vistaður í faga-
geymslu.
Annan í páskum var óskað eftir
lögreglu að sumarbústað í Hruna-
mannahreppi. Þar hafði sumar-
bústaðareigandi orðið fyrir árás
manns sem hafði tekið að sér verk í
bústaðnum og taldi eigandann ekki
hafa goldið sér fyrir að fullu.
Líkamsárásir
á Selfossi
UM 90 verkefni komu til afgreiðslu
lögreglunnar á Akranesi í liðinni
viku, að því er fram kemur á frétta-
vef lögreglunnar.
Umferðin átti drjúgan þátt í
verkefnum lögreglumanna eins og
oft áður og voru m.a. 20 ökumenn
kærðir fyrir of hraðan akstur.
Mældur hraði var allt að 121 km á
klst.
Sjö voru handteknir í vikunni
grunaðir um akstur undir áhrifum
fíkniefna og einn grunaður um ölv-
un við akstur. Það sem af er árinu
hafa 26 verið vegna gruns um fíkni-
efnaakstur og 9 grunaðir um ölv-
unarakstur. Til samanburðar má
geta þess að allt árið í fyrra hand-
tók lögreglan á Akranesi 47 fyrir
fíkniefnaakstur og 42 fyrir ölvunar-
akstur.
Í nógu að snú-
ast á Akranesi
ÞRJÚ fíkniefnamál komu upp á Ísa-
firði um helgina þar sem hald var
lagt á fíkniefni í neysluskömmtum.
Í einu málinu fannst nokkuð af
fíkniefnum á farþega sem var að
koma með flugi frá Reykjavík.
Reyndust þar vera um 10 grömm af
amfetamíni og 5 skammtar af
meintu LSD, ásamt neysluáhöldum.
Talsverður erill var hjá lögreglu
enda mikill fjöldi gesta á þeim við-
burðum sem í boði voru. Talsvert
eftirlit var viðhaft í tengslum við
mögulega meðferð fíkniefna og var
fengin aðstoð frá embætti ríkislög-
reglustjóra, en þaðan kom lög-
reglumaður frá lögreglunni á Ak-
ureyri með fíkniefnaleitarhund.
Þrjú fíkni-
efnamál
á Ísafirði
TVÖ mál hafa komið upp á Litla-
Hrauni síðustu daga er varða brot á
lyfjalögum. Málin snúast um stera
og töflur sem fundust í fórum
tveggja fanga.
Amfetamín, um 10 grömm, og
tóbaksblandað hass fannst í bifreið
sem lögreglumenn á Selfossi stöðv-
uðu í umferðareftirliti á páskadag.
Farþegi í bifreiðinni var með am-
fetamínið. Hann var færður í lög-
reglustöð til yfirheyrslu, einnig
ökumaðurinn sem grunaður var um
að aka undir áhrifum fíkniefna.
Sterar og
töflur
í fórum fanga
Mývatnssveit | Laufey Sigurð-
ardóttir fiðluleikari kom færandi
hendi í Dymbilviku með fríðan
flokk hljóðfæraleikara og söng-
konu. Á skírdag í Skjólbrekku
fluttu þau oktett í F–dúr eftir Schu-
bert og einnig sönglög. Það var Sig-
rún Hjálmtýsdóttir sem flutti söng-
lögin við undirleik oktettsins.
Í Reykjahlíðarkirkju á föstudag-
inn langa fluttu sömu listamenn al-
varlegri stutt verk eftir Bach, Vi-
valdi, Mozart, Händel og Alan
Hovhaness. Húsfyllir var í kirkj-
unni og listafólkinu ákaflega vel
tekið. Morgunblaðið/BFH
Músík í
Mývatnssveit