Morgunblaðið - 26.03.2008, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2008 17
MENNING
Þekkta finnlandssænska skáldið Lars Huldén,
prófessor, les úr verkum sínum á sænsku
í Norræna húsinu í dag kl. 17.00
í boði Sendiráðs Finnlands.
Aðgangur ókeypis.
Bókmenntakvöld
STUTTMYNDADAGAR 2008
verða í Kringlubíói 29. maí.
Veitt verða verðlaun fyrir
bestu stuttmyndina að verð-
mæti 100.000 kr, 75.000 fyrir
annað sætið og 50.000 fyrir
þriðja sætið. Vinningsmyndin
verður að auki kynnt á Short
Film Corner á kvikmyndahá-
tíðinni í Cannes og höfundi
myndarinnar boðið á hátíðina.
Skilafrestur er til 1. maí en
hægt er að skila myndum til Kvikmyndafélags Ís-
lands í Bankastræti 11 en einnig á www.stutt-
myndadagar.is. Öllum er heimilt að senda inn
myndir en hámarkslengd mynda er 15 mínútur.
Kvikmyndir
Stuttmyndadagar
auglýsa skilafrest
Úr stuttmyndinni
Verðlaunabikarinn.
Á MORGUN kl. 17.15 talar
Terry Gunnell um Gyðjurnar í
mýrunum í erindi sem fjallar
um tengsl norrænna gyðja við
mýri og vötn, og af hverju mýr-
arfórnir í Skandinavíu virðast
hafa horfið um 500 eftir Krist.
Einnig verður íhugað af hverju
svo fá örnefni eru eftir sem
styðja slík tengsl. Fyrirlest-
urinn verður fluttur á ensku, í
stofu 201 í Árnagarði, og er opinn öllum.
Í fyrirlestrinum verður skoðað hvað lá að baki
mýrarfórnum og um leið hvað getur hafa orðið til
þess að þær hurfu svona skyndilega. Terry er dós-
ent í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
Þjóðmenning
Hvað varð um
mýragyðjurnar?
Terry Gunnell
NÆSTU tónleikar Jazzklúbbs-
ins Múlans verða annað kvöld,
á Domo. Silver kvintett leikur,
en hann sérhæfir sig í að leika
tónlist píanóleikarans og tón-
skáldsins síunga Horace Sil-
ver, en hann verður áttræður á
árinu. Hljómsveitin er skipuð
þeim Snorra Sigurðarsyni
trompetleikara, Ólafi Jónssyni
saxófónleikara, Agnari Má
Magnússyni píanóleikara, Þorgrími Jónssyni sem
leikur á bassa og Erik Qvick trommuleikara.
Horace Silver er eitt merkilegasta og afkasta-
mesta tónskáld djasssögunnar en eftir hann ligg-
ur fjöldi laga og standarda.
Tónlist
Silfurkvintettinn
heiðrar djassmann
Horace Silver
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„ER þetta ekki frábært?“ svarar
Aino Freyja Järvelä, formaður
Bandalags sjálfstæðra leikhúsa,
innt viðbragða við frétt Hagstofu
Íslands í gær um hagtölur leikhús-
anna í landinu starfsárið 2006-2007.
Í frétt Hagstofunnar kemur
fram að samanlögð aðsókn að sýn-
ingum leikhúsanna, atvinnu-
leikhópa og áhugaleikfélaga nam
tæpum 440 þúsundum. Fjöldinn
samsvarar því að hver Íslendingur
sæki leikhús 1,4 sinnum á ári. Seg-
ir Aino Freyja að þessi aðsókn sé
Evrópumet, en hún er líka það
mesta sem mælst hefur hér á landi.
Frá aldamótum hefur leikhúss-
gestum fjölgað um 48 þúsund, eða
um tólf af hundraði.
Í samantektum fyrir stóru leik-
húsin, atvinnuleikhópa og áhuga-
leikfélög kemur fram að sýning-
argestum í stóru leikhúsin hefur
fækkað lítillega frá leikárinu á und-
an, um tæplega 3 þúsund gesti,
meðan sýningargestum sjálfstæðu
atvinnuleikhópanna hefur fjölgað
umtalsvert undangengin ár. „Þetta
kemur ekki á óvart hvað frjálsu
leikhópana snertir,“ segir Aino
Freyja. „Það er orðið mjög breytt
landslagið í sviðslistunum og leik-
hópum sem hafa verið að marka
sér sérstaka stefnu hefur verið að
fjölga. Það eru líka æ fleiri sem
hafa atvinnu af rekstri leikhópa.“
Aino Freyja segir að tíðarandinn
sé annar nú. Áður fyrr hafi starf-
ræksla sjálfstæðra atvinnuleikhópa
verið eins konar stökkpallur fyrir
þá, sem þar unnu, inn í stóru leik-
húsin. Nú sé þetta breytt. „Við höf-
um færst frá þessu og hóparnir eru
ákveðnari í að standa sjálfstæðir til
lengri tíma. Við sjáum það í þess-
um tölum. Við höfum líka farið á
markaði og svið, sem stóru leik-
húsin hafa ekki sinnt, og finna okk-
ur breiðari grundvöll fyrir leiklist-
arstarfsemi.“
Aino Freyja þakkar sagnahefð-
inni það hve Íslendingar sækja vel
leikhús. Hún segir Finna hafa ver-
ið næsta á eftir okkur í röðinni, en
þeir sæki leikhús ríflega hálfu sinni
á ári.
Aðsókn í leikhús hefur aldrei verið meiri en í fyrra og er sú mesta í Evrópu
Breytt landslag
í sviðslistum
Í HNOTSKURN
» Sjö atvinnuleikhús vorustarfrækt í landinu á síðasta
ári og sýndu á 13 leiksviðum.
» Sjálfstæðum atvinnuleik-hópum fjölgaði úr 22 í 38 frá
2000 til 2007. Innlend verk eru
uppistaðan í sýningum þeirra.
» 40 áhugaleikfélög vorustarfrækt 2006–2007.
» Íslendingar sóttu leikhús aðmeðaltali 1,4 sinnum síðasta
leikár. Það er Evrópumet.
LEIKÁRIÐ 2006–2007 var Leikfélagi Akureyrar sérlega hagstætt, en sam-
kvæmt frétt Morgunblaðsins í lok sýningarársins kom fram að tæplega 38
þúsund manns hefðu séð sýningar leikársins. Um aldamótin voru leik-
húsgestir Leikfélags Akureyrar um 5–10 þúsund að jafnaði á ári.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Margir sáu Svartan kött
LEONARD A. Lauder snyrtivöru-
framleiðandi, stjórnarformaður
Whitney Museum of American Art í
New York, hefur tilkynnt að hann
muni gefa safninu 131 milljón dala,
tæpa tíu milljarða króna. Er það
stærsta gjöf sem safninu hefur bor-
ist í 77 ára sögu þess.
Whitney er eitt af fjórum stóru
listasöfnunum í New York, þótt það
sé kannski ekki eins þekkt og
Metropolitan, MoMA og Guggen-
heim. Whitney-tvíæringurinn, þar
sem margt það helsta í núlistum er
sett fram annað hvert ár, hlýtur
ætíð mikla athygli og þá eru iðu-
lega settar upp framúrskarandi
sýningar á verkum bandarískra
listamanna í safninu.
Meginþorri fjárins rennur í
grunnsjóð safnsins. Þá er vonast til
að gjöfin verði til þess að safnið,
sem hefur verið í fjárþröng, þurfi
ekki að selja hina frægu byggingu
þar sem safnið er staðsett, á Madi-
son Avenue og 75. stræti. Bygg-
ingin var teiknuð af Marcel Breuer.
„Eins og svo margir unnendur
vandaðs arkitektúrs tel ég að Whit-
ney-safnið og Breuer-byggingin
séu eitt,“ sagði Lauder.
Whitney hyggst reisa útibú neðar
á Manhattan, í svokölluðu „kjöt-
pökkunar“-hverfi. Hefur verið sam-
ið við annan stjörnuarkitekt, Renzo
Piano, um að teikna bygginguna.
Gjöf Lauders er sú stærsta sem
söfn í New York hafa fengið árum
saman. Stephan A. Schwarzman
gaf New York-bókasafninu 100
milljónir dala í liðinni viku, fyrir
stækkun safnsins, og David Rocke-
feller lofaði MoMA einnig 100 millj-
ónum dala árið 2005.
Lauder gef-
ur Whitney
10 milljarða
Vonar að safnið haldi
Brauer-byggingunni
Safnið Whitney-safnið í New York.
MYNDBAND með lesnum texta og
tónlist er uppistaða sýningar Gunn-
hildar Hauksdóttur í D–salnum í
Hafnarhúsinu. Myndbandið sýnir
hesta, hesta í haga og hesta í ein-
hvers konar sirkus eða á hestasýn-
ingu, tamda hesta í samspili við
temjara sinn eða knapa.
Meginþáttur innsetningarinnar
snýst um augljósar andstæður hins
kraftmikla og villta annars vegar og
tamda og snyrta hins vegar. Undir
myndunum les rödd texta á ensku
þar sem lýst er áliti einhverra “okk-
ar“ á ákveðnum útlitseinkennum
sem gætu átt við hestana en líka
eitthvað annað. Textann má t.d. auð-
veldlega yfirfæra yfir á viðhorf ný-
lenduþjóða til nýlendubúa sinna, við-
horf heimamanna til innflytjenda
eða viðhorf mannsins til náttúrunnar
og umhverfis síns yfirleitt, og er
hann sem slíkur bæði beittur og
fyndinn.
Myndbandið er fallegt áhorfs þar
sem þokki hestanna nýtur sín og nið-
urnjörvaður kraftur þeirra er áleit-
inn. Framsetning þess vekur upp
spurningar en virðist helst stjórnast
af fagurfræðilegum þáttum, mynd-
irnar verða óefniskenndar svona
svífandi í rýminu, og það að geta
ekki séð báða skjáina í einu kallar
fram ákveðna spennu, þó ekki aug-
ljóslega í samræmi við viðfangsefnið.
Gunnhildur vinnur úr hreinni og
klárri hugmynd, hér spila saman
hefð myndbandslistarinnar, hug-
myndalistarinnar og fagurfræði
samtímans, auk þess sem sýningin
minnir óþægilega á stöðugt og oft fá-
ránlegt gildismat okkar á umhverf-
inu, mótað af fordómum, fáfræði og
fortíð sem á ekki lengur við í dag.
Niðurnjörvuð náttúra
MYNDLIST
Listasafn Reykjavíkur,
Hafnarhús
Til 27. apríl. Opið alla daga kl. 10–17.
Aðgangur ókeypis.
Tignuð skepnan, Gunnhildur Hauksdóttir
bbbnn
Ragna Sigurðardóttir
THE ARMORY
Show, alþjóðleg
kaupstefna með
nýja myndlist í
New York, opnar
fyrir fjölmiðla-
menn og safnara
í dag. Er þetta
ein helsta kaup-
stefnan með
myndlist og er
áherslan alfarið
á það sem kalla má nýjast í list-
heiminum. Gallerí i8 tekur nú í
fyrsta sinn þátt í kaupstefnunni.
Þetta er í tíunda sinn sem The
Armory Show er haldið í þessari
mynd. Mörg helstu myndlistargall-
erí heimsins eru með bás á kaup-
stefnunni, sem stendur út helgina. Í
fyrra komu ríflega 50.000 gestir og
myndverk seldust fyrir ríflega 85
milljónir dala.
„Þetta er messa í afar háum
gæðaflokki og verið er að stilla
mörgum nýjum verkum upp í bás-
unum,“ sagði Börkur Arnarson, frá
i8, þar sem hann var við uppsetn-
ingu sýningarinnar í gær.
Hann sagði talsverða spennu í
loftinu fyrir opnun kaupstefnunnar
í dag, því þá mun koma í ljós hvort
óróinn í efnahagslífinu muni hafa
áhrif á myndlistarheiminn. Verð á
listaverkum hefur ekki tekið neina
dýfu, hvað sem verður.
Í kjölfar kaupstefnunnar verða
stóru uppboðshúsin með uppboð á
samtímalist í næstu viku.
Meðal þess sem i8 stillir upp eru
nýir skúlptúrar eftir Katrínu Sig-
urðardóttur, hólógram-verk eftir
Hrein Friðfinnson, ljósmyndaverk
eftir Ólaf Elíasson, og verk eftir
Birgi Andrésson, Kristján Guð-
mundsson og Rögnu Róbertsdóttur.
„Við leggjum áherslu á okkar
listamenn, sem eru allir starfandi á
alþjóðlegum listvettvangi,“ sagði
Börkur en i8 galleríið tekur þátt í
fjórum til fimm slíkum listmessum
erlendis á ári.
„Í háum gæðaflokki“
The Armory Show opnuð í New York
Verk eftir Rögnu
Róbertsdóttur.