Morgunblaðið - 25.04.2008, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
BÆÐI Geir H. Haarde forsætisráð-
herra og Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir utanríkisráðherra taka vel í
hugmyndir Björgólfs Guðmunds-
sonar, formanns bankaráðs Lands-
bankans, um að settur verði á stofn
svokallaður þjóðarsjóður.
Hugmyndina viðraði Björgólfur á
aðalfundi Landsbankans á miðviku-
dag, og segir hann slíkan sjóð, sem
gæti haft tekjur af auðlindum
landsins og hugviti þjóðarinnar,
geta komið að gagni til að verja
efnahagslífið og hagstjórnina fyrir
áföllum svipuðum þeim sem dunið
hafa á síðustu mánuði. Vildi Björg-
ólfur líkja hlutverki slíks sjóðs við
norska olísjóðinn, sem hann segir
einn helsta þáttinn í efnahagslegum
styrk Noregs.
„Ég tel að þessi hugmynd sé allr-
ar athygli verð, en hafa verður í
huga að íslensku lífeyrissjóðirnir
gegna að mörgu leyti sama hlut-
verki og olíusjóðurinn norski,“
sagði Geir og bætti við að það væri
jafnframt heppilegt ef bankarnir
kæmu sér upp öflugum varasjóði til
að tryggja sig og sína starfsemi.
Ingibjörg Sólrún áhugasöm
um auðlindagjald
„Mér líst ágætlega á þessa hug-
mynd,“ sagði Ingibjörg. „Slíkur
sjóður gæti skipt miklu máli þegar
takast þarf á við áföll í efnahags-
málum.“
Spurður um þær tekjuleiðir sem
Björgólfur leggur til að sjóðurinn
mundi hafa segist Geir ekki geta
tekið til þess afstöðu að svo stöddu.
Ingibjörg sagði hins vegar að sér
þættu hugmyndir Bjórgólfs um
auðlindagjald áhugaverðar: „Ég er
sammála því sem kom fram hjá
honum, að það sé mikilvægt að
stefna að því að innheimt verði al-
mennt auðlindagjald fyrir nýtingu
hvort heldur er á vatnsafli, jarð-
varma eða sjávarauðlindum.“
Vilja skoða hug-
mynd um þjóðarsjóð
Leiðtogar stjórnarflokkanna taka vel í hugmynd Björgólfs
Geir H.
Haarde
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Í HNOTSKURN
»Sjóðurinn gæti verið gagn-legur til að bregðast við efna-
hagsáföllum.
»Forsætisráðherra vill aðbankarnir komi sér upp öfl-
ugum varasjóði.
TILFÆRSLA valda með inngöngu
Íslands í Evrópusambandið er ekki
fýsilegur kostur að mati Sturlu
Böðvarssonar, forseta Alþingis.
Þetta kom fram í ræðu sem hann
flutti í Jónshúsi í Kaupmannahöfn í
gær þegar verðlaun Jóns Sigurðs-
sonar voru þar afhent í fyrsta sinn.
Sturla sagði að því hefði verið
varpað fram „að í næstu kosningum,
sem verða ekki seinna en árið 2011,
verði í raun og veru kosið um aðild
okkar Íslendinga að Evrópusam-
bandinu. Í þeim alþingiskosningum
verði lagt fyrir þjóðina að velja
þingmenn með hliðsjón af afstöðu
þeirra til umsóknar um aðild að
Evrópusambandinu. Þetta eru
vissulega mikil tíðindi ef af verður
og undarleg gráglettni örlaganna ef
sú verður raunin á 200 ára afmæl-
ishátíðarári sjálfstæðishetjunnar.“
Hann sagði að þótt mikilvægt
væri að skoða efnahagsleg rök yrði
einnig að íhuga „mikilvægi þjóðar-
vitundar og sjálfstæðis okkar mitt á
milli Ameríku og Evrópu þar sem
við bæði njótum
og gjöldum ein-
angrunar lands-
ins fjarri stærstu
mörkuðum“.
„Aðild að Evr-
ópusambandinu
myndi kalla á
breytingar á auð-
lindanýtingu okk-
ar. Það hlýtur því
að verða að skýra það vel út fyrir
kjósendum í sjávarbyggðum á Ís-
landi hvers vegna við eigum að fela
yfirráð og skipulag nýtingar sjáv-
arauðlindarinnar stjórnmálamönn-
um og embættismönnum Evrópu-
sambandsins,“ sagði Sturla.
Umfram allt bæri að varast að
byggja upp óraunhæfar væntingar
um stöðu okkar innan Evrópusam-
bandsins. „Sem smáþjóð eigum við
að nýta styrk okkar þar sem við
getum og við höfum margt fram að
færa og getum haft áhrif, þótt við
stöndum utan Evrópusambands-
ins.“
ESB-aðild ekki
fýsilegur kostur
Íhuga þarf „mikilvægi þjóðarvitundar“
Sturla Böðvarsson
VETNISVÉL var í gær notuð í
fyrsta sinn til að knýja vél um borð í
farþegaskipi, hvalaskoðunarskipinu
Eldingu
Jón Björn Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Íslenskrar nýorku,
segir það næsta skref nú þegar
vetnisbílar eru komnir á vegina, að
skoða möguleika þess að skipta
jarðefnaeldsneyti út fyrir vetni úti á
sjó.
„Þetta er fyrsta skipið sem al-
menningur ferðast með, þar sem
vetni er notað. Aðalvél skipsins
verður enn knúin með dísilolíu, en
við höfum skipt um ljósavél þannig
að öll raforkuframleiðsla á skipinu
er núna vetnisknúin,“ sagði Jón
Björn. „Nú tekur við tímabil þar
sem við söfnum gögnum um hvernig
vetnisvélin hegðar sér, og hvort að
veltingur, selta og aðrir þættir hafa
áhrif á hana. Við byggjum svo á
þeim rannsóknum í næstu skrefum
sem tekin verða.“
Gestum og fjölmiðlum var boðið í
stutta siglingu með Eldingunni, og
lagðist báturinn síðan að Miðbakka
kl. 11 og fór þar fram stutt athöfn
þar sem Ólafur F. Magnússon borg-
arstjóri afhenti Nýsköpunarmiðstöð
Íslands vetnisbíl til afnota. Um leið
var opnuð sýning á visthæfum bílum
á hafnarbakkanum, þar sem al-
menningur átti kost á að prufu-
keyra vetnis-, metan-, og rafbíla, og
visthæfa bensín- og dísilbíla. Það
var Bílgreinasambandið sem stóð að
sýningunni.
Vetnið líklegt til að verða ofan á
Jón Björn segir mikilvægt það
starf sem unnið er til að finna vist-
hæft eldsneyti: „Ekki er hægt að
stýra því með handafli hvaða elds-
neyti verður ofan á, hvort sem er
metan, vetni eða raforka, og líklega
mun verða ákveðinn tími þar sem
þessar lausnir verða allar í notkun
samhliða. Það kom hins vegar fram
á ráðstefnu sem við héldum á mið-
vikudag að bæði Daimler og Ford
sjá vetni sem besta framtíð-
arvalkostinn, ýmist eitt sér eða
blandað t.d. rafhlöðukerfi,“ segir
hann. „Líklega mun notkun etanóls
ekki verða ofan á, enda sést að notk-
un þess hefur slæm á hrif á mat-
arverð. Hægt er að nota metan, m.a.
frá ruslahaugum, en miðað við nú-
verandi tækni myndi t.d. metanið
sem losnar frá ruslahaugum á Ís-
landi ekki duga til að knýja nema 5-
10% af bílaflotanum.“
Safna gögnum um hegðun
vélarinnar í veltingi og seltu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samhent Eins og sést fór Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra
létt með að aftengja vetnisdæluna frá Eldingu. Jón Björn Skúlason frá Ís-
lenskri nýorku og Hjálmar Árnason rétta henni hjálparhönd.
Hvalaskoðunarskipið Elding fyrsta farþegaskipið búið vetnisvél
Vetnisvélin vígð í
gær og einnig
haldin sýning á
visthæfum bílum
REGLUR Ferðaþjónustu fatlaðra
verða endurskoðaðar í kjölfar dóms
sem féll í fyrradag. Þar var afleys-
ingabílstjóri hjá þjónustunni dæmdur
í tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga
fatlaðri stúlku.
Að sögn Halldórs Þórhallssonar,
deildarstjóra hjá Ferðaþjónustu fatl-
aðra, var um að ræða afleysingabíl-
stjóra á leigubíl sem er verktaki hjá
þjónustunni. Sá var með hreint saka-
vottorð en gerð er krafa um slíkt ætli
menn sér að starfa við leigubílaakst-
ur. Þó að um verktaka hafi verið að
ræða liggur ábyrgðin hjá Ferðaþjón-
ustunni.
Ráðinn í góðri trú
Spurður hvað hægt sé að gera til að
koma í veg fyrir að atvik sem slíkt
endurtaki sig segir Halldór erfitt að
segja til um það. „Það eina sem maður
getur beðið um er hreinn ferill. Þegar
þetta kom upp var maðurinn leystur
af undireins og tekinn úr akstri. Hann
hefur ekkert komið nálægt þessu aft-
ur og mun aldrei gera það.“
Halldór segir reglur Ferðaþjón-
ustu fatlaðra vera í sífelldri endur-
skoðun og verði þær sérstaklega
skoðaðar í kjölfar þessa máls. Þó sé
erfitt að segja til um hvort hægt sé að
gera betur. „Maðurinn hafði rétt á að
keyra leigubíl og við báðum um saka-
vottorð sem var alveg hreint. Við
stóðum í góðri trú, að þetta væri góð-
ur maður, þó annað hafi svo komið í
ljós.“
Reglur
verða end-
urskoðaðar
STÓRSÖNGVARINNN Björgvin
Halldórsson hélt tónleika fyrir fullu
húsi í Cirkusbygningen í Kaup-
mannahöfn í gærkvöldi. Björgvin
var í skýjunum þegar hann gekk af
sviði í gærkvöldi. „Þetta er búið að
vera æðislegt og er það ennþá, nú er
Eurobandið að gera allt vitlaust.“
„Þetta hús er náttúrulega algjör
snilld,“ sagði Björgvin um tónleika-
húsið, en eins og nafnið bendir til er
það nokkurskonar hringleikahús
þar sem skemmtikraftar eru í
miðjum sal. „Við þurfum bara að
kaupa þetta hús og flytja það á tunn-
um heim til Íslands.“
Ljósmynd/Lára Long
Íslenskt stuð Björgvin naut liðsinnis Eyjólfs Kristjánssonar og Sigríðar Beinteinsdóttur í gærkvöldi.
Sirkus
Björgvins
Halldórs-
sonar
♦♦♦
FULLTRÚAR A- og D-lista í bæj-
arstjórn Bolungarvíkur mynduðu
nýjan meirihluta skömmu fyrir mið-
nætti í gærkvöldi. Þetta kom fram í
fréttum Ríkisútvarpsins. Hefur
D-listi þrjá fulltrúa í bæjarstjórn og
A-listi einn.
Elías Jónatansson, oddviti
D-lista, tekur við embætti bæjar-
stjóra.
Meirihlutasamstarf A-lista og
K-lista í bæjarstjórn Bolungarvíkur
sprakk síðastliðinn mánudag.
Nýr meiri-
hluti í Bol-
ungarvík