Morgunblaðið - 25.04.2008, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SUMARDEGINUM fyrsta var fagn-
að með ýmsum hætti í höfuðborg-
inni í gær. Skipulagða dagskrá var
að finna um alla borg og eru sumir
viðburðirnir orðnir órjúfanlegur
hluti af fagnaðinum, líkt og víða-
vangshlaup ÍR en það fór fram í 93.
skipti.
Þá héldu Sniglarnir í fyrstu hóp-
keyrsluna en farið var upp á Akra-
nes og áð þar áður en haldið var til
baka. Fyrir hádegi héldu skátarnir
í skrúðgöngu frá Arnarhóli og lauk
göngunni við Hallgrímskirkju þar
sem skátamessa var haldin.
Félagsmiðstöðvarnar fögnuðu
komu sumarsins með hátíðum víðs-
vegar um bæinn. Kampur, sem
þjónar Hlíðahverfi og miðbænum,
hélt mikla hátíð á Miklatúni og
Tónabær hélt sína gleði með pompi
og prakt í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum. Þar var dansað og
leikið og bauðst krökkum að fá lit-
ríka andlitsmálningu. Þá voru ýmis
skemmtileg sýningaratriði auk
óvæntra skemmtiatriða sem glöddu
yngstu kynslóðina.
Milt var í veðri en smá rigningar
gætti seinnipartinn sem glaðir
borgarbúar létu lítið á sig fá.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Keppnisskap Keppendur í hinu árlega víðavangshlaupi ÍR taka á rás. Hlaupnir eru 5 km í kringum Tjörnina en þetta var í 93. sinn sem hlaupið er haldið og tóku 250 manns þátt.
Morgunblaðið/hag
Útreiðartúr Þessi ungi drengur, Marko Daniel, skemmti sér vel á baki.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fagnaður Skátarnir fögnuðu deginum og sýndu listir sínar með fána áður en skátamessa hófst í Hallgrímskirkju.
Morgunblaðið/hag
Máluð Þessi unga snót fékk skemmtilega andlitsmálningu í tilefni dagsins.
Morgunblaðið/hag
Garpar Vörður Leví Traustason, forstöðumaður Fíladelfíu, Gunnar Sig-
urjónsson, sterkasti prestur í heimi og prestur í Digraneskirkju, og Íris
Kristjánsdóttir, prestur í Hjallakirkju, tóku þátt í hátíðahöldum Sniglanna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hlaupari Hundurinn Garpur fékk rásnúmer eins og allir fyrir hlaupið.
Sumarið
heilsaði
með mildri
rigningu