Morgunblaðið - 25.04.2008, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2008 21
UMRÆÐAN
er verulegt áhyggjuefni fyrir alla
Flateyinga. Á síðustu árum hefur
verið lyft grettistaki í uppbygg-
ingu og endurnýjun húsa í Flatey.
Hús þessi eru nýtt allt
árið af stórum hópi
fólks auk þess sem
mikil aukning hefur
orðið í ferðatengdri
þjónustu. Forsenda
blómlegs mannlífs í
Flatey og eyjanna í
kring eru ferjusigl-
ingar Baldurs yfir
Breiðafjörð.
Fyrirtæki í Vest-
urbyggð hafa nýtt sér
góða þjónustu ferj-
unnar um áraraðir til
að koma fiskafurðum á
markað erlendis og
þar með skapað um-
talsverðar gjaldeyr-
istekjur fyrir byggð-
arlag sitt. Fyrirhuguð
fækkun á ferðum
Baldurs setur þennan
útflutning í uppnám
og er því enn eitt
óheillasporið í byggða-
þróun Vestfjarða.
Flateyingar óttast að þessi skerð-
ing á þjónustu Baldurs við Flatey
muni leiða það sama yfir eyna.
Stjórn Framfarafélagsins skorar
því á samgönguráðherra og þing-
menn Norðurlands vestra að beita
sér af alefli til að tryggja óbreytt-
ar ferjusiglingar yfir Breiðafjörð.
STJÓRN Fram-
farafélags Flateyjar,
hagsmunasamtaka
húseigenda í Flatey
á Breiðafirði, mót-
mælir fyrirhugaðri
fækkun á ferðum
ferjunnar Baldurs.
Stjórnin skorar á
samgönguyfirvöld að
endurskoða nið-
urskurð á framlögum
Vegagerðarinnar til
ferjusiglinganna
þannig að ekki komi
til þess að ferðum
fækki í sumar og á
næstu árum.
Með nýrri ferju
vorið 2006 kom mikill
vaxtarkippur í ferða-
þjónustu beggja
vegna Breiðafjarðar.
Á fyrsta heila rekstr-
arári hins nýja Bald-
urs fjölgaði farþeg-
um um 36%, bílum um 51% og
vörubílum um 90%. Hagsmunir
byggðanna norðan og sunnan
Breiðafjarðar af þessari sam-
göngubót eru augljósar en ferjan
hefur farið tvær ferðir daglega frá
júníbyrjun til ágústloka milli
Stykkishólms og Brjánslækjar og
eina ferð daglega á öðrum tímum
árs. Ferjan hefur einnig haft við-
komu fjórum sinnum á dag í Flat-
ey á sumrin og flutti yfir 13 þús-
und farþega til og frá eynni á
árinu 2007.
Í samningi Vegagerðarinnar og
Sæferða um ferjusiglingar yfir
Breiðafjörð eru ákvæði um að
styrkir til ferjunnar skuli lækka í
áföngum og falla niður í árslok
2009 að frátöldum greiðslum fyrir
tvær ferðir á viku út árið 2010.
Því blasir við að styrkir til
ferjusiglinga yfir Breiðafjörð
verða skertir og ferðum fækkað.
Forsendur samningsins á sínum
tíma voru að í lok samnings-
tímabilsins, fyrir árið 2009, yrði
kominn nýr heilsársvegur um
sunnanverða Vestfirði. Enda þótt
ljóst sé að svo verður ekki hafa nú
þegar verið felldar niður greiðslur
til ferjusiglinganna í samræmi við
samninginn. Hafa Sæferðir því
ákveðið að fella niður ferðir í byrj-
un og lok sumars 2008 en þann
tíma standa sjálfsaflatekjur ekki
undir rekstrarkostnaði. Ef heldur
fram sem horfir mun ferðum
fækka mjög á næstu 2 árum og
framtíð ferjusiglinganna er mjög
óviss.
Þessi samdráttur í fjölda ferða
Um ferjusiglingar
yfir Breiðafjörð
Bryndís Þórðardóttir skrifar
fyrir hönd stjórnar Framfara-
félags Flateyjar um ferjusigl-
ingar yfir Breiðafjörð
» Þessi sam-
dráttur í
fjölda ferða er
verulegt
áhyggjuefni
fyrir alla
Flateyinga.
Bryndís Þórðardóttir
Höfundur er formaður
Framfarafélags Flateyjar.
NORRÆNA um-
hverfismerkið Svan-
urinn er opinbert um-
hverfismerki
Norðurlandanna. Svan-
urinn hreiðraði um sig á
Íslandi fyrir um 17 ár-
um. Umhverfisstofnun
tók hann að sér og hef-
ur reynt að huga vel að
honum í gegnum tíðina.
Viðurkennd um-
hverfismerki eins og
Svanurinn auðvelda
neytendum að velja
gæðavörur sem eru
vistvænni en flestar sambærilegar
vörur á markaðnum. Með því að velja
umhverfismerktar vörur hvetjum við
fyrirtæki til að framleiða vistvænar
vörur þar sem hönnun, framleiðsla og
markaðssetning uppfylla ströng um-
hverfis- og gæðaskilyrði. Með því að
framleiða og selja
Svansmerktar vörur
geta fyrirtæki tekið
þátt í þessari þróun og
um leið styrkt ímynd
sína og viðskiptavild.
Hinn trausti Svanur
Svanurinn hefur
skapað sér ótvíræðan
sess sem mikilvægasta
og áreiðanlegasta um-
hverfismerkið á Norð-
urlöndunum, með mikla
útbreiðslu og traust
meðal neytenda. Nýleg-
ar kannanir sýna að
milli 75-97% fólks í nágrannaþjóðum
okkar þekkja Svaninn og að meðaltali
74% segist bera mikið traust til
merkisins. Á Íslandi hefur þekking á
Svaninum verið talsvert minni en
annars staðar Norðurlöndunum og
traust merkisins þar af leiðandi
minna.
Nú er hafið átak hjá Umhverf-
isstofnun í því að efla verulega starf-
semi Svansins á Íslandi með það að
markmiði að Svanurinn verði leiðandi
í innkaupum landsmanna og öðlist
það traust sem hann á skilið hér á
landi. Unnið verður að því að hlutfall
Svansmerktrar vöru og þjónustu á
markaði aukist stórlega og áhugi al-
mennings og fyrirtækja á Svaninum
og öðrum umhverfismerkingum verði
efldur. Efling Svansins er í samræmi
við metnaðarfulla stefnu Umhverf-
isstofnunar til næstu 5 ára um að
unnið skuli markvisst að því að um-
hverfismerkingar leiði innkaup al-
mennings og fyrirtækja.
Sýning Svansins í Perlunni
Sem liður í átaki um styrkingu
Svansins, mun Umhverfisstofnun
standa fyrir kynningu á Svans-
merktum vörum á þjónustu í Perl-
unni í tilefni af degi umhverfisins
laugardaginn 26. apríl kl. 11-17. Sýn-
ingin ber yfirskriftina Vistvænn lífs-
stíll og er ætlað að vekja athygli fólks
á þeim fjölmörgu vistvænu vörum og
þjónustu sem standa íslenskum neyt-
endum til boða.
Umhverfisstofnun hefur fengið til
liðs við sig fjöldann allan af fyr-
irtækjum sem framleiða, flytja inn og
selja Svansmerktar vörur um að sýna
gestum sýningarinnar sýnishorn af
hundruðum Svansmerktra vara og
þjónustu sem fáanleg er á Íslandi í
dag. Allt frá sláttuvél og rúmi til
pappírs og hreinsiefna. Umhverf-
isstofnun vill nota tækifærið og þakka
fyrirtækjunum fyrir einstaklega já-
kvæð viðbrögð og samstarfsvilja til
að koma þessari sýningu á. Gaman
hefur verið að komast að því hve mik-
ið og fjölbreytt úrval er til af Svans-
merktum vörum hér á landi.
Í tilefni af Degi umhverfisins gefur
Umhverfisstofnun nú skýr skilaboð
um að tilvera Svansins muni enn
styrkjast á Íslandi. Jafnframt hvetj-
um við alla til að koma við í Perlunni á
morgun, laugardag, og berja augum
allt það ríkulega úrval sem stendur
okkur til boða af Svansmerktum
vörum á markaðnum. Vörum sem eru
meðal þeirra bestu og umhverf-
isvænstu í sínum vöruflokki í dag.
Svanurinn er tækifæri okkar neyt-
enda til að ýta undir umhverfisvænna
og heilsusamlegra samfélag, sem hef-
ur sjálfbæra þróun að leiðarljósi.
Samfélag sem við getum öll verið
stolt af. Svanurinn er kominn til að
vera á Íslandi og nú tekur hann flug-
ið!
Svanurinn tekur flugið
Kristín Linda Árnadóttir
segir frá Svaninum sem er
viðurkennt umhverfismerki
» Svanurinn hefur
skapað sér ótvíræð-
an sess sem mikilvæg-
asta og áreiðanlegasta
umhverfismerkið á
Norðurlöndunum …
Kristín Linda
Árnadóttir
Höfundur er forstjóri
Umhverfisstofnunar.
ÓSPEKTIRNAR við Suðurlands-
veg gefa tilefni til þess að minna á
nokkur grundvall-
aratriði. Fyrst er til að
taka að viðurkennt er
hér á landi og hvar-
vetna í nágrannalönd-
unum að það sé lýð-
ræðislegur réttur
fólks að koma sjón-
armiðum á framfæri,
þar á meðal með því að
mótmæla með frið-
samlegum hætti og
innan ramma laganna.
Tjáningarfrelsið og
rétturinn til mótmæla
er verndaður í stjórn-
arskrá en slíkur réttur
takmarkast eins og
fleiri frelsisréttindi
stjórnarskrár af ýms-
um þáttum eins og til
dæmis sjónarmiðum
um allsherjarreglu og
öryggi borgaranna.
Þannig er t.d. skýrt að
banna má mannfundi
undir berum himni ef
uggvænt þykir að af
þeim leiði óspektir.
Enginn dregur í efa rétt vörubíl-
stjóra til að mótmæla, hvort sem þeir
vilja mótmæla háu olíuverði, skatt-
lagningu ríkisins, reglum um hvíld-
artíma eða hverju sem er. Ekki leik-
ur heldur neinn vafi á um það að
vörubílstjórar hafa ótal möguleika á
að koma slíkum mótmælum á fram-
færi innan þess ramma sem landslög
setja. Loks getur enginn efast um að
þeir sem ekki fara að lögum geta átt
von á afskiptum lögreglu og eftir at-
vikum viðurlögum í samræmi við það
sem lög kveða á um. Það
á jafnt við um vörubíl-
stjóra sem aðra.
Vörubílstjórar hafa
haldið uppi mótmælum
sínum í nokkrar vikur og
í mínum huga er enginn
vafi um að á því tímabili
hafa komið upp tilvik þar
sem þeir hafa brotið lög,
bæði umferðarlög og al-
menn hegningarlög. Þar
er bæði um að ræða brot
á einstökum ákvæðum
þessara laga sem og
ítrekuð tilvik þar sem
einstaklingar úr þeirra
hópi hafa ekki farið að
eðlilegum og lögmætum
fyrirmælum lögreglu, en
slík háttsemi getur sem
slík falið í sér lögbrot.
Ég er heldur ekki í vafa
um að lögregla hefur
sýnt mikið langlund-
argeð í samskiptum sín-
um við bílstjórana og
leitast við að greiða úr
málum í góðu og stuðlað
að því að þeir gætu komið mótmælum
sínum á framfæri með friðsamlegum
hætti.
Af fréttum að dæma fóru mótmæli
vörubílstjóra fullkomlega úr bönd-
unum við Suðurlandsveg að morgni
miðvikudags. Þeir frömdu lögbrot
með því að stöðva umferð um eina
helstu samgönguæð landsins og virtu
að vettugi ítrekuð tilmæli lögreglu
um að láta af þeirri háttsemi. Það var
því ljóst að lögreglunni var nauðugur
einn kostur að grípa til aðgerða. Að-
stæður kölluðu einfaldlega á slíkt.
Þegar allstór hópur manna reynir að
hindra lögreglu við störf sín og hegð-
ar sér með ógnandi hætti, jafnvel
með grjótkasti, er ekki að furða að
lögregla hafi talið sig nauðbeygða til
að grípa til harkalegra aðgerða.
Við aðstæður af þessu tagi hefur
lögregla skýra heimild til valdbeit-
ingar. Sú heimild takmarkast auðvit-
að af almennum sjónarmiðum með-
alhófsreglu um að ekki megi beita
meira valdi eða harkalegri aðgerðum
en nauðsynlegar eru hverju sinni.
Um það hvort slíkra sjónarmiða hafi
verið gætt í einstökum tilvikum er
auðvitað farið yfir innan lögregl-
unnar og eftir atvikum ákæruvalds-
ins og jafnframt geta þeir sem telja
sig hafa orðið fyrir of harkalegum
aðgerðum jafnan leitað réttar síns
fyrir dómstólum. Þar er hinn rétti
vettvangur til að útkljá slík mál; það
verður hvorki gert í fjölmiðlum né á
fundum í einstökum þingnefndum
eða annars staðar.
Vegna gagnrýni sem fram hefur
komið á lögregluna vegna aðgerð-
anna við Suðurlandsveg á miðviku-
daginn finnst mér hins vegar rétt að
ítreka þá skoðun mína, að fullt tilefni
hafi verið til aðgerða af hálfu lög-
reglu og aðstæður hafi kallað á að
málin væru tekin föstum tökum. Sem
betur fer koma aðstæður af þessu
tagi ekki oft upp hér á landi, en þeg-
ar það gerist ætti ekki að þurfa að
undrast að lögregla telji sig knúna til
að beita harðari aðgerðum en við eig-
um almennt að venjast.
Tilefni til harðra
lögregluaðgerða
Birgir Ármannsson skrifar
um aðgerðir lögreglu gegn
mótmælum bílstjóra við
Suðurlandsveg
Birgir Ármannsson
» Það var því
ljóst að lög-
reglunni var
nauðugur einn
kostur að grípa
til aðgerða. Að-
stæður kölluðu
einfaldlega á
slíkt.
Höfundur er formaður allsherj-
arnefndar Alþingis.
Í DAG er blásið til málþings í Há-
skóla Íslands um jafnrétti og fjöl-
breytileika. Segja má að háskólinn
hafi nokkra sérstöðu í þessum efn-
um. Eins og aðrir vinnustaðir ber
skólinn ábyrgð gagnvart öllu því fólki
sem þar er að störfum – bæði við nám
og í launavinnu – en einnig hefur há-
skólinn það hlutverk að vera leiðandi
afl í samfélaginu á grundvelli þess
fræða- og vísindastarfs sem þar fer
fram.
Ábyrgð háskólans er því mikil þeg-
ar kemur að jafnréttismálum og um-
ræðu um þau. En hvernig hefur skól-
anum gengið að axla þessa ábyrgð,
og hvernig getum við gert betur?
Þetta eru þær spurningar sem feng-
ist verður við síðdegis í dag.
Háskóli Íslands er stórt og fjöl-
breytt samfélag þar
sem finna má fólk á
öllum aldri og úr ólík-
um áttum. Eðlilegt er
að spurt sé hvernig
skólanum hafi tekist
að sinna þeirri skyldu
sinni að búa vel að öllu
því fólki sem myndar
háskólann og hvernig
sé hægt að tryggja að
þær hugsjónir, sem
jafnréttisáætlun há-
skólans og stefna hans
gegn mismunun
byggja á, nái fram að ganga. Hvað
þarf til svo háskólinn sé lifandi og
frjótt samfélag allra nemenda og
allra starfsmanna og sé hinu stærra
samfélagi til fyrirmyndar og hug-
ljómunar?
Það er yfirlýst stefna háskólans að
vera ávallt í fararbroddi í jafnrétt-
ismálum, og á það bæði við um innra
umhverfi skólans og áhrif hans út á
við. Slíku markmiði verð-
ur, eðli málsins sam-
kvæmt, aldrei endanlega
náð, heldur krefst það
stöðugrar vinnu og at-
hygli. Rétt eins og á vel
reknu heimili er starfinu
aldrei lokið því alltaf
bætast við ný verkefni.
Öll höfum við eitthvað
til málanna að leggja og
getum lagt jafnréttis-
baráttunni lið með einum
eða öðrum hætti. Í dag
er tækifæri til að taka
þátt í að móta umræðuna um jafn-
réttismál og verður boðið upp á er-
indi, fjórar vinnustofur, þar sem allt
áhugafólk um jafnrétti er hvatt til að
taka sér rými í umræðunni, og loks
pallborðsumræður þar sem fulltrúar
nemenda, fræðafólks, stjórnsýslu og
Jafnréttisstofu taka til máls.
Þér er boðið til málþingsins For-
skot með fjölbreytileika í dag í Öskju,
náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands,
frá kl. 13-17. Málþingið er í boði jafn-
réttisnefndar Háskóla Íslands, jafn-
réttisnefndar Kennaraháskóla Ís-
lands og rannsóknastofu í kvenna- og
kynjafræðum við Háskóla Íslands.
Aðgangur er ókeypis og öllum heim-
ill, og dagskrá málþingsins í heild má
finna á www.rikk.hi.is. Við vonumst
til að sjá sem flest koma og taka þátt
í spennandi umræðum um framtíð
jafnréttismála í Háskóla Íslands.
Forskot meðfjölbreytileika
Arnar Gíslason skrifar um mál-
þing sem haldið er í Háskóla Ís-
lands í dag
Arnar Gíslason
» Öll höfum við
eitthvað til málanna
að leggja og getum lagt
jafnréttisbaráttunni
lið með einum eða
öðrum hætti.
Höfundur er jafnréttisfulltrúi
Háskóla Íslands.