Morgunblaðið - 21.05.2008, Page 2

Morgunblaðið - 21.05.2008, Page 2
fyrirhugaðri Bitruvirkjun aðeins ör- fáum klukkustundum eftir að Skipulagsstofnun lagði fram álit sitt á framkvæmdinni“. Óskar segist aðspurður velta því fyrir sér hvort stjórn OR sé að „binda hendur sínar“ með því „að slá þetta svæði af strax í upphafi“. Borgarfulltrúar Vinstri grænna töldu hins vegar í bókun sinni bygg- ingu Bitruvirkjunar „ekki viðunandi vegna verulegra neikvæðra og óafturkræfra áhrifa á landslag, úti- vist og ferðaþjónustu“. Ákvörðun stjórnar OR gefi „fyrirheit um nýja tíma og breyttar áherslur í náttúruvernd“. „Þetta markar mjög mikil tíma- mót og er fagnaðarefni fyrir alla náttúruverndarsinna og alla sem hafa viljað láta náttúruna njóta vafans, og sérstaklega fyrir þá sem hafa barist fyrir því að það yrði horfið frá þess- um fyrirætlun- um í Bitru,“ sagði Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi VG, spurð um málið. Bókun Vinstri grænna var sam- hljóma sameiginlegri bókun Sig- rúnar Elsu Smáradóttur, fulltrúa Samfylkingar í stjórn OR, og Svan- dísar Svavarsdóttur, fulltrúa VG, á stjórnarfundi OR í gær, þar sem sagði að „sterk náttúruverndarrök“ hnigju „að því að eira svæðinu til langrar framtíðar“. Dagur B. Eggertsson, borgar- fulltrúi Samfylkingarinnar, sagði ákvörðun OR vera „rökrétt fram- hald af áliti Skipulagsstofnunar“. „Ég er ánægður með niðurstöðu stjórnar Orkuveitunnar, finnst hún rökrétt. Raunar myndi ég gjarnan kjósa að stjórn Orkuveitunnar væri jafndugleg við að eyða óvissu varð- andi REI og útrás fyrirtækisins og aðra þætti í rekstrinum frekar en láta reka á reiðanum,“ sagði Dagur. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for- maður borgarráðs, sagði Sjálfstæð- isflokkinn hafa vísað á bug ásök- unum um flumbrugang á hendur stjórn OR í bókun sinni. OR hefði mikinn metnað í umhverfismálum og stjórn fyrirtækisins hefði hætt und- irbúningi og frestað öllum fram- kvæmdum á svæðinu við Bitru, í ljósi álits Skipulagsstofnunar. Stjórn OR hefði samþykkt að halda áfram undirbúningi við virkjun í Hverahlíð í samræmi við álit Skipulagsstofn- unar. Borgarstjóri fagnar ákvörðun stjórnar OR um Bitruvirkjun „ÉG FAGNA þessari niðurstöðu mjög og ekki síst þeirri staðreynd að minnihlutaflokkarnir í borgar- stjórn telji þá stefnu sem R-listinn stóð fyrir um byggingu Bitruvirkj- unar óviðunandi,“ sagði Ólafur F. Magnússon borgarstjóri, eftir að ákvörðun stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur (OR) um Bitruvirkjun lá fyrir í gær. „Álit Skipulagsstofnunar og ákvörðun stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur um Bitruvirkjun mark- ar tímamót fyrir þá sem hafa barist fyrir því að náttúran njóti vafans.“ Allir flokkar lögðu fram bókun um málið í borgarstjórn í gær þar sem það var rætt utan dagskrár. Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, lýsti í bókun sinni yfir „undrun sinni yfir þeim flumbrugangi“ sem einkenndi „sam- þykkt stjórnar OR um að hverfa frá Borgarfulltrúi Framsóknarflokksins veltir því upp hvort OR sé að „binda hendur sínar í framtíðinni“ Svandís Svav- arsdóttir Óskar Bergsson Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Dagur B. Eggertsson Ólafur F. Magnússon 2 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurð- ardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is FORSVARSMENN tveggja stórra verktaka í byggingariðnaði segja að verkefnastaða þeirra sé ágæt um þessar mundir þrátt fyrir mikla lægð á fasteignamarkaðinum, en ákveðið hafi verið að hægja á byggingu íbúða. Gunnar Valur Gíslason, forstjóri Eyktar hf., segir verkefnastöðu Eykt- ar mjög góða, þótt augljóslega sé samdráttur í byggingariðnaðinum um þessar mundir. „Við erum með mjög góða verkefnastöðu. Stærsta verkefni okkar er á Höfðatorgi þar sem við er- um annars vegar að ljúka við innrétt- ingu 14.000 fermetra skrifstofubygg- ingar og 10.000 fermetra bílakjallara og hins vegar er í fullum gangi upp- steypa 23.000 fermetra skrifstofu- turns sem á að vera tilbúinn til inn- réttingar á fyrri hluta næsta árs. Við erum einnig með nokkur stór útboðs- verk í gangi, svo sem skrifstofubygg- ingu og verksmiðjuhús fyrir Hamp- iðjuna í Skarfagörðum, öryggis- og þjónustuíbúðir fyrir Hjúkrunarheim- ilið Eir í Grafarvogi, nýjar höfuð- stöðvar framkvæmdasviðs Hafnar- fjarðarbæjar, verslunar- og skrifstofuhús fyrir Smáragarð við Vallakór í Kópavogi og nýtt íþrótta- hús fyrir HK í Kópavogi. Auk þess samdi Vegagerðin nýlega við Eykt um að ljúka við byggingu brúa við tvöföldun Reykjanesbrautar frá Strandarheiði að Njarðvík. Þá erum við að hefja vinnu við að endurinnrétta skrifstofur og fram- leiðslusetur stoðtækjafyrirtækisins Össurar hf. að Grjóthálsi 5.“ – Er samdrátturinn farinn að hafa áhrif á starfsemina? „Að einhverju leyti er það svo. Við höfum stöðvað byggingu fjölbýlishúss sem við vorum komnir af stað með í Norðlingaholti og ég sé jafnvel fram á að við hægjum enn frekar á byggingu íbúða á næstunni. Greiningardeildir bankanna gera ráð fyrir því að íbúða- markaðurinn hér taki aftur við sér þegar líða tekur á árið 2009. Fram að því má búast við því að framleiðsla íbúða verði með hægasta móti hér á höfuðborgarsvæðinu. Við munum fylgjast grannt með þróun mála á næstu mánuðum. Það er fyrirséð að stórir árgangar ungs fólks muni leita út á íbúðarmarkaðinn á næstu 3–5 ár- um og þessu unga fólki þarf að sinna vel.“ Máttu vita að lánsfé yrði dýrara Spurður hvernig byggingariðnað- urinn sé búinn undir breyttar aðstæð- ur frá hans sjónarhóli svarar Gunnar: „Það hefur legið fyrir lengi að hægja myndi á í atvinnulífi okkar á árinu 2008 og fram á árið 2009 og forsvars- menn byggingarfyrirtækja hafa mátt vita að lánsfé yrði jafnframt torfengn- ara og dýrara en verið hefur á und- anförnum árum. Það sá hins vegar enginn fyrir þær erfiðu aðstæður sem mögnuðust á alþjóðlegum fjármála- mörkuðum á undanförnum vikum og mánuðum og komið hafa illa við ís- lenskt fjármálalíf. Ég held líka að enginn hafi búist við eins skjótum breytingum á lánastarfsemi bank- anna og hafa sýnt sig á undanförnum vikum. Fyrir byggingariðnaðinn velt- ur mikið á því hvernig opinberum út- boðum verður háttað á næstunni. Þar eru mörg stór verkefni í uppsiglingu, svo sem vegagerð, bygging mislægra gatnamóta, virkjanaframkvæmdir og fleira.“ Spurður hvort líklegt sé að störfum fækki á næstunni og grípa þurfi til uppsagna ef dregur úr framkvæmd- um segir hann: „Þenslan á undanförn- um árum hefur meðal annars valdið því að verktakar eins og við hjá Eykt höfum þurft að reiða okkur í miklum mæli á erlent vinnuafl. Þótt okkur hafi gengið ágætlega að fá starfsfólk erlendis frá, er slíkt alls engin ósk- astaða byggingarfyrirtækja hér. Ég veit ekki í hvaða mæli byggingarfyr- irtæki grípi til uppsagna á næstunni en auðvitað er líklegt að störfum í byggingariðnaði muni fækka nú þeg- ar hægist um.“ Hægja á framkvæmdum á Hrólfsskálamel Verkefnastaða Íslenskra aðalverk- taka (ÍAV) er góð út allt þetta ár að sögn Karls Þráinssonar, aðstoðarfor- stjóra ÍAV. Hins vegar sé íbúðamark- aðurinn daufur. ,,Við erum vel settir verkefnalega séð en maður sér merki um það á markaðinum að það er að draga úr,“ segir hann. Stærsta verk- efni ÍAV er bygging tónlistar- og ráð- stefnuhússins í Reykjavík og eru framkvæmdir í fullum gangi. ÍAV er einnig m.a. með í byggingu 26 íbúða fjölbýlishús við Hrólfsskálamel á Sel- tjarnarnesi – hið fyrsta af þremur sem fyrirtækið ætlar að reisa. Af- henda á fyrstu íbúðirnar í nóvember. Að sögn Karls hefur verið ákveðið að hægja á framkvæmdum við hinar blokkirnar tvær á meðan séð verður hver þróunin verður. Áfram sé þó unnið að hönnun þeirra. ,,Það hefur aðeins selst í þessu 26 íbúða húsi en það er hægagangur,“ segir Karl, sem hafði ekki haldbærar upplýsingar um hversu margar íbúðir væru seldar. Verktakar hægja á byggingu íbúðarhúsa Turn 19 hæða skrifstofubygging sem Eykt reisir á mótum Borg- artúns og Höfðatúns. SENN líður að því að skólahurð aft- ur skelli og skruddan með hjá grunnskólabörnum landsins. Um þessar mundir taka þó margir grunnskólar forskot á sælu sumars- ins og efna til sérstakrar vordag- skrár. Slíkir dagar fela gjarnan í sér útiveru af ýmsu tagi, sem er kærkomin tilbreyting eftir langan og kaldan vetur. Meðal þeirra skóla sem breyta til í skólastarfinu um þessar mundir er Breiðholtsskóli. Krakkarnir í skól- anum skemmtu sér hið besta úti við í gær. Þeir fóru í ýmsa leiki, bæði nýja og gamla. Einn er sá leikur sem alltaf nýtur vinsælda, en hann felst í því að velta sér niður gras- grænar brekkur. Ekki er verra að skemmta sér við slíkt í hópi góðra skólasystkina. Morgunnblaðið/Frikki Vorfjör hjá skóla- börnunum LEKI kom að bátnum Von GK-113er hann sigldi á utanverðan grjót-garðinn við Sandgerðishöfn, á leið úr línuróðri. Varð óhappið um kl. 17 í gær og var báturinn á fullri ferð. Þrír voru um borð en sakaði ekki. Báturinn er rúmlega ársgamall og í eigu Útgerðarfélags Sand- gerðis. Munu skemmdir á bátnum framanverðum vera töluverðar. Bátur sigldi á grjótgarð ÞRÍR strákar, nemendur í Grunda- skóla á Akranesi, villtust í Þórsmörk í gær. Þeir höfðu farið í gönguferð en rötuðu ekki til baka. Voru piltarnir blautir og kaldir þegar skálavörður í Langadal fann þá um kl. 21 í gær. Villtust í Þórsmörk ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.