Morgunblaðið - 21.05.2008, Side 13

Morgunblaðið - 21.05.2008, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2008 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 6 7  6 7  #$% &'%&( )&*+ )(*# 8 8 6 7   37 (',$& -%$ )(*. )&*. 8 8 9 : ) ! ;%< &(',(+ ('#+( )&*- )&*% 8 8 &=>? 9@7 $'&+( .'&&+ )(*+ )&*- 8 8 6 7  6 7 A #'+%( &'&// )%*, )(*/ 8 8            ! "  !"#$%%" @  B  # 3 B  # ?C # &D B  # B$! /! # 4 ?  0$( E$!% FG$!% B  #  H!( 3! # D!%/! E$!% #  $ # >-I6; >   3 1  &' / # =2  # J # ' &$($)*+    # @$G # @$!G @ :2 @$!G - $ -"& ? 3! &$( B  # &K 2 3! FG$!%G B  # ;L# ' # >  # = 2((!( 11! # ,!!$1! #  $ $ ,)   M! 2 @$ ! M  43 B !% # 4 1'! # - +. / %1$+ .*&% /.*%% &%*-+ $*$% &.*.% (%*#% (%*+- .+#*%% ($*%% +-*-% #*$. &&*.# /*#$ &%%*%% &*(. $*.- (&+*%% &$,$*%% //%*%% %*+- &-%*%% &*,% (%*%% $*$# #.*%% ,*-% -,(-*%% &%*%% -*+%                                        ,1  %(! =$/ 1 + $  %(N  >$              A   A        A A      A    A    A        O      AO AO  OA                O   AO   AO  O        &'$% 1  A  A   A       A            9(!!( 1 1                               @= @= @= @= @= * ,20    ÞETTA HELST ... ● GYLFI Sigfús- son hefur verið ráðinn forstjóri Hf. Eimskipa- félags Íslands, eða Eimskips. Stefán Ágúst Magnússon, sem hefur verið for- stjóri eftir að Baldur Guðnason hætti fyrr á árinu, hefur látið af störf- um hjá félaginu að eigin ósk en hann var áður aðstoðarforstjóri og fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs Eim- skips. Gylfi ætti að vera öllum hnút- um kunnugur hjá Eimskip, en hann hefur undanfarin 18 ár sinnt ýmsum störfum innan Eimskips og tengdra félaga, síðast sem framkvæmda- stjóri Eimskips í Bandaríkjunum og Kanada. Tekur við stýrinu hjá Eimskipafélaginu Gylfi Sigfússon ● ÚRVALSVÍSITALA í Kauphöllinni á Íslandi lækkaði um 0,8% í gær og er lokagildi hennar 4.902 stig. Hluta- bréf Exista lækkuðu um 3,1%, bréf SPRON lækkuðu um 2,7% og bréf Bakkavarar um 2,4%. Hins vegar hækkuðu hlutabréf FL Group um 1,4% og bréf Icelandair Group hækk- uðu um 0,5%. Krónan veiktist í gær um 0,6%. Gengisvísitala krónunnar var 147,95 stig í byrjun dags var komin í 148,85 stig í lok dags, samkvæmt upplýs- ingum frá Glitni. Velta á milli- bankamarkaði var 16,6 milljarðar. Lækkun í Kauphöllinni og krónan veiktist Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is HLUTABRÉFAVÍSITÖLUR lækkuðu töluvert í flestum kauphöll- um beggja vegna Atlantsála í gær sem og í Asíu. Í fréttum á vefmiðlum helstu fjölmiðla var ástæðan annars vegar rakin til áframhaldandi hækk- unar á heimsmarkaðsverði á olíu og hins vegar til nýrra talna frá Banda- ríkjunum, sem gefa til kynna að und- irliggjandi verðbólguþrýstingur sé meiri en áætlað var. FTSE 100 vísitalan í kauphöllinni í London lækkaði um tæp 3% í gær, Dax-vísitalan í Frankfurt lækkaði um 1,5% og CAC-vísitalan í París lækkaði um 1,7%. Þá lækkaði Hang Seng í Hong Kong um 2,2% og Nik- kei-vísitalan japanska lækkaði um 0,8%. Í Bandaríkjunum lækkaði Dow Jones um 1,5% og Nasdaq um 1,0%. Olían nálgast 130 dollara Verð á hráolíu fór í gær yfir 129 dollara fyrir tunnuna á markaði í New York og hefur aldrei verið hærra. Verð á Brent-Norðursjávar- olíu hækkaði einnig í gær og var tæpir 128 dollarar. Í frétt í Financial Times segir að skýringarnar á hækkununum séu meðal annars áhyggjur af því að birgðastaða ríkja sé slæm. Þá hafi einnig áhrif að doll- arinn hafi veikst auk þess sem þekktur bandarískur fjárfestir, T. Boon Pickens að nafni, hafi spáð því að verðið á hráolíu myndi fara í 150 dollara á þessu ári. Þótt ótrúlegt sé þá segir í frétt FT að spá þessa manns hafi haft áhrif á verðið. Í frétt á fréttavef BBC-fréttastofunnar er því svo bætt við að yfirlýsing sam- taka olíuútflutningsríkja, OPEC, um að þau muni ekki auka olíufram- leiðsluna, hafi haft áhrif til hækkun- ar verðsins. Í frétt á fréttavef danska blaðsins Børsen segir að um miðjan dag í gær hafi borist fréttir af því frá Banda- ríkjunum að framleiðsluverð, að matar- og orkuverði undanskildu, hafi hækkað að undanförnu tvöfalt meira en spáð hafði verið. Það bendi til þess að undirliggjandi verðbólga vestanhafs sé meiri en ráð hafi verið fyrir gert, en það hafi haft áhrif í kauphöllum í Evrópu. Töluverðar lækkanir á mörkuðum í gær Reuters Áhrif Hækkun á olíuverði í gær hafði áhrif til lækkunar á gengi hlutabréfa í helstu kauphöllum. Á myndinni sést olíuborpallur í Texas. Olíuverð og verð- bólga í Bandaríkj- unum hafði áhrif ALÞJÓÐLEGA matsfyrirtækið Moody’s hefur lækkað lánshæfisein- kunn ríkissjóðs Íslands um eitt þrep úr Aaa í Aa1. Fyrirtækið hefur jafnframt lækkað svonefnt lands- mat (e. country ceiling) á banka- innstæður í er- lendri mynt úr Aaa í Aa1. Þetta var tilkynnt í gær. Í tilkynning- unni segir að allar aðrar lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands, þar með talið landsmatið fyrir skuldbindingar í erlendri mynt, landsmatið fyrir bankainnstæður í íslenskum krónum og landsmat fyrir verðbréf í íslenskum krónum, hafi verið staðfestar Aaa. Þá segir að all- ar lánshæfiseinkunnirnar séu nú á stöðugum horfum en þær voru áður á neikvæðum horfum. Moody’s lækkar einkunn Lækkun Lánshæf- iseinkunn lækkar. TAP Icelandair Group á fyrsta fjórð- ungi þessa árs nam 1,7 milljörðum króna eftir skatta samanborið við 1,2 milljarða króna tap á sama tímabili í fyrra. Enginn söluhagnaður var færð- ur til tekna á fyrsta fjórðungi þessa árs en hann var 1,2 milljarðar á fyrsta fjórðungi ársins 2007. Heildarvelta Icelandair Group í ár var um 14 millj- arðar króna og jókst um 18% frá sama tímabili á fyrra ári. Aukinn eldsneytiskostnaður Fram kemur í tilkynningu frá Ice- landair Group að vegna árstíðasveiflu í flugi og ferðaþjónustu sé afkoma fé- lagsins jafnan neikvæð á fyrsta árs- fjórðungi og nú hafi EBITDA verið neikvæð um 857 milljónir króna. Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group segir í tilkynning- unni að rekstur félagsins á fyrsta árs- fjórðungi sé nokkru betri en gert hafi verið ráð fyrir, í mun erfiðara árferði en á síðasta ári. Þannig hafi eldsneyt- iskostnaður félagsins aukist um tæp- an einn milljarð króna frá sama tíma 2007. Verkefnastaða í leiguflugsvið- skiptum sé hins vegar góð sem og bókunarstaða í áætlunarflugi. Tap Icelandair Group eykst Bókanir Bókunarstaða er sögð góð. Uppgjör Icelandair Group hf. gretar@mbl.is GREININGARDEILDIR Lands- bankans og Kaupþings spá því að Seðlabanki Íslands muni halda stýrivöxtum sínum óbreyttum á næsta vaxtaákvörðunardegi bank- ans sem er á morgun. Greiningardeild Landsbankans segir að hagvísar bendi til þess að enn sé töluverður kraftur í neyslu og fjárfestingum. Greiningardeild Kaupþings telur ljóst að hagkerfið sé á leiðinni í mjög hraða kólnun. Spá óbreytt- um vöxtum Tilboð til hluthafa FL Group hf. Í tengslum við fyrirhugaða afskráningu FL Group hf. af skipulegum verðbréfamarkaði hefur stjórn félagsins, með samþykki hluthafafundar 9. maí 2008, ákveðið að gera hluthöfum félagsins tilboð um að selja hluti sína í félaginu. Tilboðið er lagt fram á grundvelli nánari skilmála sem fram koma í bréfi sem sent hefur verið til hluthafa. Tilboðið er gert þeim hluthöfum sem skráðir voru í hluthafaskrá félagsins samkvæmt uppgerðum viðskiptum í lok dags 8. maí 2008. Með bréfinu fylgir lykilorð fyrir hluthafa til þess að taka þátt í tilboðinu ásamt leiðbeiningum. Hluthöfum býðst að selja hlutabréf sín miðað við gengið 6,68 fyrir hvern hlut í FL Group hf. Fyrir hlutabréfin verður greitt með hlutabréfum í Glitni banka hf., miðað við gengið 17,05 fyrir hvern hlut í Glitni banka hf., eða um 0,39 hlutir í Glitni banka hf. afhentir fyrir hvern hlut í FL Group hf. Tilboðið tók gildi hinn 9. maí 2008 kl. 10:00 og gildir til 21. maí 2008 kl. 16:00. Hluthafar, sem hyggjast taka tilboðinu, skulu fylgja þeim leiðbeiningum sem fram koma í bréfi til hluthafa. Ef bréfið, með upplýsingum um tilboðið og lykilorð, hefur ekki borist hluthafa í seinasta lagi miðvikudaginn 14. maí 2008 skal hann hafa samband við Þjónustuver Glitnis í síma 440 3725. Þjónustuverið veitir hluthöfum jafnframt frekari upplýsingar ef þörf er á í tengslum við tilboðið. Reykjavík, 9. maí 2008 Stjórn FL Group hf. FL Group | Síðumúla 24 | 108 Reykjavík | Sími 591 4400 | www.flgroup.is TAP af rekstri Icebank á fyrsta fjórðungi ársins 2008 nam 3,4 millj- örðum króna eftir skatta. Á sama tímabili í fyrra var hagnaður af rekstri bankans 1,8 milljarðar króna. Á síðasta ársfjórðungi árs- ins 2007 var hins vegar tap bankans 2,7 milljarðar. Í tilkynningu frá Icebank segir að afkoma bankans á fyrsta fjórð- ungi þessa árs skýrist einkum af tvennu: Annars vegar hafi gengis- tap af markaðsbréfum numið um 3,5 milljörðum króna, einkum af eignarhlut bankans í Exista sem lækkaði um 44% á ársfjórðungnum en bankinn átti 281 milljón hlut í ársbyrjun. Hins vegar hafi var- úðarniðurfærsla krafna numið sam- tals um 2,3 milljörðum króna. Eigið fé Icebank lækkar milli árs- fjórðunga úr tæpum 13,4 milljröum króna í 10,3 milljarða. Tap 3,4 milljarðar ♦♦♦ ♦♦♦ ALFESCA hagnaðist um 1,8 millj- ónir evra á þriðja fjórðungi yf- irstandandi rekstrarárs sam- anborið við 1,3 milljónir evra á sama tímabili í fyrra. Hagnaður á fyrstu 9 mánuðum rekstrarársins nam 25,1 milljón evra og jókst um 32,5% frá fyrra ári. Xavier Govare, forstjóri Alfesca, segir í tilkynningu að afkoman á þriðja fjórðungi rekstrarársins sé viðunandi þegar tekið sé tillit til erfiðra markaðsaðstæðna. Alfesca hagnast ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.