Morgunblaðið - 21.05.2008, Síða 17

Morgunblaðið - 21.05.2008, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2008 17 SUÐURNES Eftir Svanhildi Eiríksdóttur Reykjanesbær | „Þetta hefur verið áhugamál mitt nokkuð lengi. Ég bjó í Skotlandi á árunum 1987-1990 og þar er mikið af fornbílum og tækjum. Ég átti sjálfur fornbíl og var virkur í samtökum þar og sótti margar uppá- komur,“ sagði Þórir Jónsson, formað- ur klúbbs bíla- og tækjaáhugamanna, sem nýverið var stofnaður. Aðsetur klúbbsins er í Reykjanesbæ en hann er hugsaður fyrir Suðurnesin öll. Í Reykjanesbæ hefur löngum verið mikill áhugi á fornbílum og tækjum, mótorhjólum og sportbátum og jafn- framt á Suðurnesjum í heild. Það hef- ur verið áberandi á tyllidögum eins og Ljósanótt í Reykjanesbæ og Sand- gerðisdögum og lagni Guðna Ingi- mundarsonar frá Garðstöðum í Garði við að gera upp gamla bíla og vélar hefur lengi verið á margra vitorði. Brunadæla og slökkviliðsbíll Byggðasafnið í Garði varðveitir 60 þessara véla en nýverið barst klúbbi bíla- og tækjaáhugamanna bruna- dæla frá Sandgerði sem Guðni gerði upp fyrir um áratug. Þórir Jónsson, formaður klúbbsins, sagði í samtali við blaðamann að mikill fengur væri í dælunni, en hún var fyrsta bruna- dæla Slökkviliðsins í Sandgerði. Klúbbnum barst einnig slökkviliðsbíll frá Sandgerðisbæ, Ford Trader ár- gerð 1963. „Markmiðið með stofnun þessa klúbbs er fyrst og fremst það að stuðla að samheldni áhugamanna um fornbíla og tæki,“ sagði Þórir. Hann tók fram að allir félagsmenn í dag væru einnig meðlimir í Forn- bílaklúbbi Íslands og hefðu tekið virkan þátt í félagsstarfinu þar. „Það er hins vegar nauðsynlegt að hafa svona félag hér, enda erfitt að vera alltaf að fara í bæinn.“ Stofnfélagar voru 15 en Þórir sagði vinnu nú standa yfir við skráningu nýrra fé- laga. Klúbburinn hefur aðsetur að Bakkastíg 10 í Reykjanesbæ og fellur félagsstarfið innan Tómstunda- bandalags Reykjanesbæjar. „Við fengum nýverið styrk úr tóm- stundaráði og ætlum að nota hann til að byggja upp félagsaðstöðu hér í húsinu, en meðlimir klúbbsins hittast hér fyrsta mánudag í mánuði. Fé- lagmenn hafa auk þess lagt ýmis tól og tæki í sameiginlegan sjóð og margir velvildarmenn hafa gaukað að þeim tækjum og efnum, svo sem tveimur bílalyftum og nýju járni á þakið. Þá hafa menn aðgang að sand- blásturstæki í klúbbhúsinu en auk sameiginlegra verkefna vinna menn einnig við að gera upp sína eigin bíla og tæki.“ Ekki kostnaðarsamt ef menn er skynsamir „Auk slökkviliðsbílsins og dæl- unnar frá Sandgerði á klúbburinn gamlan Bedford frá árinu 1963, síðast í eigu Slökkviliðs Borgarfjarðar. Stefnan er að vera búinn að gera bíl- ana og dæluna upp fyrir næstu Ljósa- nótt. Það verður gaman að geta sýnt þetta með öllum hinum fornbílunum og ekki síst gaman fyrir krakkana að fá að kíkja í gamla Bedfordinn.“ Þórir sagði bæði bílana og brunadæluna gangfær, mesta vinnan færi í að ryð- hreinsa og mála. – Er þetta ekki kostnaðarsamt áhugamál? „Nei, alls ekki, ef menn haga sér skynsamlega í þessu. Auðvitað er hægt að fara út í öfgar í þessu eins og öðru.“ Sjálfur á Þórir Plymouth ár- gerð 1966 sem hann hyggst selja áður en fjölskyldan flytur til Danmerkur í byrjun næsta árs og kaupa sér bíl til að gera upp þar. Hermannagrænn Lord ofan af Velli, merktur „Flags of our fathers, sem stendur utan við klúbbhúsið er einnig í eigu Þóris, en Þórir var meðal þeirra Suðurnesja- manna sem unnu við kvikmyndina á sínum tíma. Á Bakkastíg 10 er einnig handsnúin bátsvél og rafstöð í eigu Þóris. „Tækin skapa fjölbreytni,“ sagði Þórir og nefndi að í Skotlandi hefði verið mikið um landbún- aðartæki samhliða bílunum og hann kvað sig dreyma um að í klúbbnum næðist að skapa álíka fjölbreytni. „Við vitum t.d. að það er mikið til af dráttarvélum í landinu og við höfum áhuga á að fá einhverja í klúbbinn. Það vantar líka menn með þekkingu á þessum tækjum til starfa í klúbbinn og einnig menn sem eru tilbúnir til þess að aka bílunum á tyllidögum. Það er alls ekki gerð krafa um það að menn eigi bíla eða tæki til að fá inn- göngu í klúbbinn, þekkingin er mik- ilvæg. Svona klúbbur verður ekki til nema með áhugamönnum. Hér er allt til staðar til að koma þessu heim og saman og tækjunum í gang,“ sagði Þórir sem upplýsti blaðamann jafn- framt um að til stæði að finna geymsluhúsnæði fyrir bílana og tæk- in, en slíkt húsnæði væri hins vegar ekki auðfundið. Áhuginn er drif- kraftur klúbbsins Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Bedfordinn Þórir Jónsson, formaður klúbbs bíla- og tækjaáhugamanna, undir stýri á gamla Bedfordinum sem klúbbmeðlimir keyptu. Bíllinn er nokkuð þungur í stýri sem auk þess er hægra megin í bílnum. Nokkrir áhuga- menn um bíla og tæki á Suðurnesj- um hafa stofnað klúbb með aðsetur í Reykjanesbæ Í HNOTSKURN »Þórir Jónsson hefur lengiverið áhugasamur um forn- bíla og tæki. Hann hefur leitt hóp manna með sömu áhugamál í skoðunarferð til Skotlands, þar sem áhugi hans kviknaði fyrir al- vöru. »Klúbbur bíla- og tækjaáhuga-manna hefur aðsetur við Bakkastíg 10 í Reykjanesbæ. Klúbburinn leitar að góðu geymsluhúsnæði og jafnvel framtíðarhúsnæði fyrir starf- semina, en núverandi húsnæði fékkst fyrir vinargreiða. »Áhugi er á að auka fjöl-breytnina í klúbbnum með fjölgun tækja og véla af ýmsum toga. Einnig er leitað eftir kunn- áttumönnum til að sjá um tækin og jafnvel ökumönnum til að aka bílum á tyllidögum. LANDIÐ Eftir Ólaf Bernódusson Skagaströnd | Bræðurnir Stefán og Rúnar Jósefssynir á Skagaströnd hafa í vetur stundað refaveiðar í Skagabyggð með ágætum árangri. Fimmtánda tófan, sem féll í valinn nú nýverið fyrir skoti frá Rúnari, var öðruvísi en aðrar tófur vetrarins. Tófan sú arna var bara með þrjá fætur. Á hana vantaði hægri framfót alveg uppi við búkinn þannig að ólík- legt er að hún hafi lent í gildru og slitið sig lausa. Stúfurinn, sem er ekki nema um það bil eins sentí- metra langur, er vel gróinn þannig að ljóst er að dýrið er búið að vera þrífætt um töluverðan tíma. Bræð- urnir telja líklegast að einhver hafi sært tófuna með þessum afleiðingum en misst hana frá sér áður en tókst að bana henni. Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Óvenjulegt Rúnar Jósefsson heldur á þrífættu tófunni sem að öðru leyti virtist vel á sig komin. Með Rúnari er Stefán bróðir hans. Þrífættri tófu lógað Garður | Útskáladagur verður haldinn í Útskálakirkju í Garði næstkomandi sunnudag, 25. maí. Það eru hollvinir Menningarseturs að Útskálum sem efna til menning- arveislu í þeim tilgangi að gefa fólki kost á að fylgjast með end- urbótum á gamla prestsetrinu og fræðast um framvindu verkefn- isins. Með menningarveislu er minnt á þá miklu menningu og menntun sem tengst hefur prest- setrum víða um land frá siðaskipt- um. Boðið verður upp á kórsöng, ein- söng og frásagnir. Kvenfélagið Gefn í Garði býður kaffi og aðrar veitingar og prestsetrið að Út- skálum, sem nú er í endurbygg- ingu, verður opið gestum og gang- andi. Á Kirkjustaðnum Útskálum er unnið að uppsetningu menning- arseturs í gamla prestsetrinu. Hús- ið er að mestu fullbúið að utan og unnið er að endurbyggingu innan dyra. Í máli og myndum verður saga prestsetranna í mannlífi fyrri alda sett fram. Dagskráin hefst kl. 14 með söng Strætókórsins, Sigurður Sigurð- arson vígslubiskup flytur hátíð- arræðu. Hrefna Eggertsdóttir pí- anóleikari og Davíð Ólafsson óperusöngvari flytja nokkur lög, Barði Guðmundsson frá Útskálum flytur frásögn og Barnakór Garðs syngur. Hollvinir kynna endur- bætur á Útskáladeginum Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Kirkjan Útskálakirkja hefur verið endurnýjuð að utan og innan. Norskir plastbátar Sterkir, stöðugir og öruggir. Þola vel grófa meðferðÞola vel grófa meðferð eru upplagðir á sjó og vötn Notendur eru meðal annars. Bátaleigur, Björgunaraðilar og sportveiðimenn. m einnig með 500 L og 1.000 L vatnstan Notendur eru meðal annars bátaleigur, björgunaraðilar og sportveiðimenn. Erum einnig með 500 L og 1.000 L vatnstanka fyrir sumarbústaði og fl. Uppl. í síma 697 4900 og á www.svansson.is taði og fl. fyrir sumarbú Þola vel grófa meðferð eru upplagðir á sjó og vötnog eru upplagðir á sjó og vötn. Útimálning Viðarvörn Lakkmálning Þakmálning Gólfmálning Gluggamálning Innimálning Gljástig 3, 7, 20 Verð frá kr. 298 pr.ltr. Gæða málning á frábæru verði Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli. Afsláttur af málningarvörum 20% Sætúni 4 Sími 517 1500 Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður. Skútuvogi 13, S. 517 1500 www.teknos.com

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.