Morgunblaðið - 21.05.2008, Side 29

Morgunblaðið - 21.05.2008, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2008 29 saman fyrir 44 árum. Ég var sextán ára gömul en Hrönn þrjátíu og átta ára, þegar við bjuggum saman vetr- arlangt í Reykjavík. Eiginmenn okk- ar voru þá saman til sjós á Bjarma. Við urðum strax vinkonur og aldrei þvældist aldursmunurinn fyrir vin- áttu okkar. Vináttu sem einkenndist af trausti, trúnaði og elsku sem aldrei bar skugga á. Slíkur vinskapur verð- ur ekki á torgum keyptur. Líf Hrann- ar var ekki alltaf dans á rósum. Mikill harmur var að henni og fjölskyldunni kveðinn þegar sonur hennar tólf ára og tvö systkinabörn létust af slysför- um. Missirinn markaði hana fyrir lífs- tíð en sorgina og harm sinn bar hún í hljóði. Hrönn hafði ákveðnar skoðan- ir á mönnum og málefnum. Hún lá ekki á sínum skoðunum væri eftir þeim leitað. Hrönn var hrein og bein og kom alltaf til dyranna eins og hún var klædd. Hún var falleg og glæsileg kona. Hávaxin og grönn, ljós yfirlit- um með sterkan persónuleika. Hún bjó yfir ákveðinni reisn og tign. Hrönn var fagurkeri og náttúruunn- andi. Heimili hennar bar fagurkeran- um vitni. Blómadýrkandi var hún og ræktaði garðinn sinn í Hafnargötu 10 svo af bar . Hrönn var mikill tónlistar- unnandi, tónelsk og músíkölsk. Hún spilaði á hljóðfæri á yngri árum, á saxófón. Dugnaður og elja voru að- alsmerki Hrannar. Hún var ham- hleypa til verka og var búin að skila góðu ævistarfi. Er ekki ofsagt að hún hafi unnið fram á síðustu stund. Margir hafa fengið að njóta fallegra og listilega vel gerðra muna úr henn- ar höndum. Það voru forréttindi í mínum huga að eiga vináttu Hrannar Kristjánsdóttur. Ég vil þakka sam- fylgdina,vináttu og tryggð við mig og mína. Ég votta Önnu Baldvinu, Birnu, Guðlaugu og fjölskyldum þeirra samúð mína . Megi allar góðar vættir styrkja þær og vernda. Svanhildur Árnadóttir. Í nótt er gott að gista Eyjafjörð og guðafriður yfir strönd og vogum. Í skini sólar skarta haf og jörð og skýjabólstrar slegnir rauðum logum. Það veit hver sál, að sumar fer í hönd, en samt er þögn og kyrrð um mó og dranga, og hvorki brotnar bára upp við strönd né bærist strá í grænum hlíðarvanga. Svo ljúft er allt í þessum heiða hyl, svo hátt til lofts og mjúkur barmur jarðar, að víst er engin veröld fegri til en vornótt björt í hlíðum Eyjafjarðar. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.) Þegar vorið var í óðaönn að boða komu sína með birtu, fuglasöng, litlum gróðurnálum og því sem til- heyrir kvaddi sómakonan Hrönn Kristjánsdóttir þetta líf. Ég kynntist henni fyrir rúmlega 40 árum síðan þegar vinátta tókst með okkur Önnu Baddý, dóttur hennar, við upphaf skólagöngu í MA. Þrátt fyrir að ekki væsti um okkur í heimavistinni var vinsælt að skjótast til Dalvíkur um helgar og fá heimabakkelsi og annað góðmeti sem Hrönn hristi fram úr erminni eins og ekkert væri. Hús- bóndinn Jóhannes var skipstjóri, afla- sæll og vel virtur, og mikið að heiman vegna starfs síns. Hann óskaði oft eft- ir því að Anna kæmi í heimsókn þegar hann var í landi og það var sama þótt norðlenskur hávetur væri alltaf vildi Anna bregðast við bón hans og þá var gott að vera ungur og áræðinn. Við eigum margar minningar frá ferðum sem kallaðar væru svaðilfarir í dag en þóttu alveg erfiðisins virði þegar tek- ið var á móti okkur með kostum og kynjum á Dalvíkinni. Hrönn gat við fyrstu kynni virst hrjúf og stundum óþarflega hreinskil- in. Hún hafði orðið fyrir sárum missi við hörmulegt slys sem henni var ekki tamt að tala um og hún hefur eflaust brynjað sig gegn. Við nánari kynni kom í ljós hversu umhyggjusöm hún var, nösk á mannlegt eðli og fann til samkenndar með þeim sem lentu í einhvers konar mótbyr. Hrönn var einstaklega myndarleg við alls konar handavinnu og gerði hvert meistarastykkið á fætur öðru, sat aldrei iðjulaus. Ég naut góðs af því. Hún gaf mér m.a. bróderað vöggusett, listaverk sem góðar óskir fylgdu, svo saumaði hún á mig buxna- dress þegar við Anna vorum í Kenn- araskólanum. Það var hvítt og í blúss- unni var breið blúnda í mittið, gæti örugglega verið hátíska í dag. Hrönn hlýtur að hafa hannað það og það sýndi sig oft hve hugmyndarík og flink hún var. Ég á margar góðar minningar frá samskiptum við Hrönn en ein mynd er mér þó sérstaklega minnisstæð frá heimsókn á Dalvík og það er vor- mynd. Sólin skein og veðrið var eins og það gerist best á norðlensku vori. Hrönn var úti í garði, búin að setja út sumarhúsgögnin og farin að huga að blómunum sem hún var einstaklega lagin við, eins og fleira. Hún fór af vandvirkni yfir öll beðin og hlúði að nýgræðingnum. Þessari mynd hefur brugðið fyrir oftar því hún var ein- staklega umhyggjusöm við allt ung- viði og var mjög annt um afkomendur sína og fjölskyldu. Þeim öllum sendi ég samúðarkveðjur. – Nú fljúga mínir fuglar, góða dís. Nú fagna englar guðs í Paradís. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.) Ég minnist með hlýhug góðrar konu. Jóna Möller. Fuglarnir gleyma að syngja um vorið þögulir flögra um. Himininn felur sitt bláa auga breytir harmi í regn. Tíminn eitt augnablik staldrar við tregur lítur um öxl. Dropi ferðast í átt til sjávar að allra áfangastað í ósnum ótal raddir fagna, hún Hrönn er komin heim. Kristján Már. Hrönn Kristjánsdóttir var af þeirri kynslóð Íslendinga, sem lifði og hrærðist í þeirri fullvissu, að réttur alþýðunnar til góðra og sanngjarnra kjara yrði aðeins tryggður á grund- velli jafnaðarstefnunnar. Líf hennar mótaðist af þessari hugsjón og þeim mannkærleika, sem lesa mátti úr verkum hennar, orðum og æði. Hrönn var fyrst og fremst góð mann- eskja, greind og hugdjörf. Hún ólst upp í hringiðu verkalýðsbaráttunnar þar sem faðir hennar hafði farsæla forystu um langt árabil. Einstakling- ar af þeirra feðgina toga voru þátt- takendur í mögnuðustu og mikilvæg- ustu baráttu íslenskrar þjóðar, fyrr og síðar, fyrir betra og traustara sam- félagi, sem skal reist á jöfnuði, sam- kennd og ekki síst samfélagslegri ábyrgð. – Það hvarflar stundum að mér, að fólk af þessu bergi brotið, hafi, til lengri tíma litið, gert þjóð sinni meira gagn en margir, sem mest hefur verið hampað og sitja nú við tómar gullkistur. Hrönn var í þeim stóra hópi Alþýðuflokksfólks og síðar Samfylkingar, sem alltaf hefur verið boðið og búið til starfa, telur sér skylt að vinna í þágu lýðræðis og jafnaðar í von um betra samfélag. Úr þessum hópi heyrast sjaldnast kröfur um laun eða umbun og fá æðruorð heyrast um gleymsku milli kosninga. Ég verð Hrönn ævarandi þakklát- ur fyrir hlýju hennar, aðstoð og stuðning á þeim árum, sem ég sat á Alþingi fyrir Alþýðuflokkinn í Norð- urlandi eystra. Þangað kom ég fyrst ókunnugur og ættlaus í héraði, en Hrönn og fjöldi annarra óskyldra greiddu götu og efldu sjálfstraustið. Minningin um heiðurs- og baráttu- konuna Hrönn Kristjánsdóttur og aðra vini og félaga, sem horfnir eru, verður sífellt dýrmætari. Árni Gunnarsson. Það er mikill söknuður í huga okk- ar Lionssystra er við kveðjum Hrönn okkar. Með fráfalli hennar er höggvið stórt skarð í hópinn, sem verður seint fyllt. Hrönn var stofnfélagi í Lions- klúbbnum Sunnu á Dalvík, og starfaði þar af miklum áhuga og dugnaði til hinstu stundar þrátt fyrir mikil og langvinn veikindi. Jákvæðni hennar og ósérhlífni var okkur félögunum mikil hvatning og uppörvun. Það vafðist ekki fyrir henni að keyra frá Akureyri til funda við okkur, þann tíma sem hún bjó þar. Hrönn var mikill viskubrunnur og ósjaldan gladdi hún okkur með fróð- leik og gamanmálum. Við bárum ótakmarkaða virðingu fyrir henni og lífshlaupi hennar. Hún var djásnið okkar! En nú skal ekki um það rætt sem er þó liðið hjá, en minnast hins sem indælt er og ekki gleymast má. Hve litla brekkan bæinn við var blómum skrýdd og væn, með hverju nýju vori víst hún varð svo fagurgræn. En allt þitt líf þess vitni var hve varst þú djörf og sterk, þau geymast ennþá æðimörg þín unnu handaverk. En óræktin sem áður var, já upp við bæjarþil, hún flúði undan huga og hönd um holt og móa og gil. Ég blessa allt það blómaskeið og bjarta minning þá, sem eins og stjarna skærast skín er skuggar leita á. Ég þakka alla ást og tryggð já, allt sem gafst þú mér því kveð ég þetta litla ljóð það ljóð er helgað þér (Höf. Ásgrímur Kristinsson.) Hvíl þú í friði og hafðu þökk fyrir allt og allt. Öllum aðstandendum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Lionsklúbburinn Sunna, Dalvík. Við strákarnir í Bárugötu 6 á Dal- vík þökkum Hrönn af alhug þá vin- semd og hlýju sem hún hefur sýnt okkur um tíðina. Vinátta hennar var okkur mikils virði. Blessuð sé minning góðrar frænku. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinarskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna er sefur hér hinn síðasta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. ( V. Briem.) Dætrum Hrannar og öðrum ætt- mennum sendum við okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Arnar og Jón Arnar. Lokið er kafla í lífsins miklu bók við lútum höfði í bæn á kveðjustund. Biðjum þann Guð sem gaf þitt líf og tók græðandi hendi að milda sorgarstund. Ó, hve við eigum þér að þakka margt þegar við reikum liðins tíma slóð. Í samfylgd þinni allt var blítt og bjart blessuð hver minning, fögur ljúf og góð. Okkur í hug er efst á hverri stund ást þín til hvers, sem lífins anda dró hjálpsemi þín og falslaus fórnarlund Friðarins Guð þig sveipi helgri ró. (Höf. Vigdís Runólfsdóttir.) Elsku Hrönn okkar. Þökkum þér allar góðar stundir í leik og starfi. Guð blessi minningu þína. Kristín og Elín. ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, JAKOBS CECILS JÚLÍUSSONAR, Löngufit 12, Garðabæ. Sérstakar þakkir færum við séra Hans Markúsi Hafsteinssyni fyrir innilegan hlýhug og stuðning á erfiðum tímum. Guðný Sigurjónsdóttir, Sigmundur H. Jakobsson, Þórhildur Karlsdóttir, Jóhanna Jakobsdóttir, E. Jóhannes Einarsson, Dagbjört I. Jakobsdóttir, Pálmi Stefánsson, Áslaug Jakobsdóttir, Hafsteinn Þorgeirsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir og fósturfaðir, ÞÓRARINN JÓN SIGURMUNDSSON vélstjóri, áður Nýbýlavegi 40, Kópavogi, sem andaðist 15. maí á Hrafnistu í Reykjavík, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstudaginn 23. maí kl. 15.00. Gústaf Örn Þórarinsson, Hannes (Hannu) Ólafsson, Jónína Eyjólfsdóttir, Steinar Orri Hannesson. ✝ Þakka auðsýnda samúð við fráfall og útför SIGURÞÓRS JÓNASSONAR fyrrum bónda að Efri-Kvíhólma. Sérstakar þakkir til starfsfólks Kirkjuhvols fyrir góða umönnun. Þá vil ég einnig þakka sveitungum hans fyrir ómetanlega aðstoð við búskapinn í gegnum árin. Fyrir hönd aðstandenda, Guðfinna Sveinsdóttir. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, KRISTRÚN LÍNEY HELGADÓTTIR húsmóðir, Kirkjuvegi 14, Keflavík, andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 18. maí. Jóhann Pétursson, Pétur Jóhannsson, Sigrún Jónatansdóttir, Guðrún Rósalind Jóhannsdóttir, Helgi Jóhannsson, Hjördís M. Bjarnason, Sóley Jóhannsdóttir, Ólafur J. Briem, Jóhann Jóhannsson og barnabörn. ✝ Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, MARGRÉT VILBERGSDÓTTIR, Þórsbergi 6, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju við Strandgötu föstudaginn 23. maí kl. 15.00. Grétar Þorleifsson, Anna Valbjörg Ólafsdóttir og aðrir vandamenn. ✝ Okkar ástkæra GUÐRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR lést laugardaginn 17. maí á Landspítalanum í Fossvogi. Útför hennar fer fram frá Grensáskirkju þriðjudaginn 27. maí kl. 15.00. Páll Matthíasson, Ólöf Ragnheiður Björnsdóttir, Benedikt Hjálmarsson, Sherry Ruth Bout, Ólöf Benediktsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.